Morgunblaðið - 13.08.1975, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.08.1975, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. AGÚST 1975 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6. sími 22 4 80. Áskriftargjald 700,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið Frá því var skýrt í fréttum Ríkisútvarps í gærkvel'di, að skráðir at- vinnulausir á landinu öllu, í endaðan júlímánuð sl., hafi verið 350 talsins. 1 þessari tölu eru talið fólk, sem hefur ekki fulla vinnu, þó starfi hluta úr degi, og jafn- vel fólk, sem aldurs vegna sinnir ekki fullu starfi. Það er því ekki langt frá réttu að segja, að atvinnuleysi sé óþekkt fyrirbrigði hér- lendis í dag, þrátt fyrir þann vanda, sem okkur var og er á höndum vegna al- þjóðlegrar efnahagskreppu og áhrifa innfluttrar og heimatilbúinnar verðbólgu. Þegar núverandi ríkis- stjórn var mynduð, fyrir tæpu ári, blés ekki byrlega í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar. Versnandi við- skiptakjör þjóðarinnar, sem rýrt hafa kaupmátt útflutn- ingstekna um 30%, höfðu kippt rekstrargrundvelli undan helztu atvinnugrein- um okkar, einkum í útgerð og fiskvinnslu. Stóraukinn rekstrarkostnaður, sam- hliða lækkandi söluverði framleiðslunnar, stefndi í beina rekstrarstöðvun og viðblasandi atvinnuleysi Sama máli gegndi um ýms- an útflutningsiðnað og um- talsverður samdráttur í byggingariðnaði virtist óumflýjanlegur. Rekstrar- erfiðleikar í sjávarútvegi höfðu og valdið því, að iðn- fyrirtæki, sem sinntu þjón- ustu við þessa atvinnu- grein, fengu hana ekki greidda og vóru komin í alvarlegan rekstrarfjár- skort, sem að öllu óbreyttu hlaut að leiða til stöðvunar á starfsemi þeirra. Við þetta bættist, að gjaldeyrissjóðir þjóð- arinnar vóru uppurnir, fjárfestingarsjóðir tómir, verðjöfnunarsjóðir at- vinnuveganna höfðu orðið fyrir verulegum skakkaföll- um, erlend skuldasöfnun meiri en dæmi vóru til um áður og fjármál ríkisins í kaldakoli. Samdráttur í ríkisframkvæmdum og að- gæzla um ríkisfjármál varð ekki lengur umflúin. Farvegur allra hræringa í þjóðarbúskapnum virtist því stefna að ósi umfangs- meira atvinnuleysis hér á landi en dæmi vóru til um allar götur frá upphafi síð- ari heimsstyrjaldarinnar. Afleiðingar alþjóðlegrar efnahagskreppu hafa komið fram í víðtæku atvinnuleysi hvarvetna um hinn vest- ræna heim, bæði hjá stór- um þjóðum og smáum, og milljónir manna ganga nú atvinnulausar í nágranna- löndum okkar. Aðsteðjandi vandi virtist þeim mun viðameiri hérlendis en með öðrum þjóðum sem við erum þeim háðari um verð- lag einhæfrar útflutnings- framleiðslu, sem var á niðurleið, og næmari fyrir alþjóðlegum efnahags- sveiflum. Efnahagsráðstafanir nú- verandi ríkisstjórnar tóku vissulega mið af ríkjandi efnahagsaðstæðum, versn- andi viðskiptakjörum, lækkandi þjóðartekjum á einstakling, og rekstrar- erfiðleikum helztu atvinnu- vega okkar. Ýmsar stað- reyndir, sem vóru arfleifð frá fyrri tímum, vóru viður- kenndar í raun, svo sem minnkandi ráðstöfunartekj- ur þjóðarinnar og raungildi gjaldmiðils okkar. Þessar aðgerðir hlutu að segja til sín í tímabundinni skerð- ingu á lífskjörum, og mæta andstöðu af því tiiefni, þó þess væri gætt sem kostur var, að skerða sem minnst hag hinna lægstlaunuðu, með láglaunabótum, hækk- unum bóta almannatrygg- inga, tekjuskattaíviln- unum, niðurgreiðslum landbúnaðarafurða og lækkun söluskatts á vissum vörutegundum. Þær aðgerðir, sem gripið var til, hafa vissulega borið umtalsverðan árangur. Hér hefur tekizt að halda uppi fullri atvinnu, hvarvetna um landið, svo atvinnuleysi er nær ekkert, öfugt við það sem raun varð á í nágranna- löndum okkar. Það tókst jafnframt að tryggja vinnu- frið, þrátt fyrir ýmsar blikur á lofti, a.m.k. til næstu áramóta. Hér er um að ræða veigamesta árangurinn af störfum nú- verandi ríkisstjórnar, sem vissulega hefur vakið athygli bæði hérlendis og erlendis. Efnahagsvandinn er þó enganveginn leystur til frambúðar. Við höfum ein- vörðungu unnið orrustu í stríði, sem ekki sér fyrir endann á, náð veigamiklum áfanga en ekki lokamarki. En við höfum jafnframt numið þann lærdóm, að við ráðum við vandann, að við getum siglt á milli skers og báru í kröppum sjó efna- hagskreppunnar inn á lygn- ara vatn framtíðarvel- megunar, ef við kunnum að standa saman. Stéttastríð og sundurlyndi geta hins- vegar á skammri stund snú- ið dæminu við, svo þjóðar- skútan steyti á skeri efna- hagshruns og atvinnu- leysis. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og þjóðin þarf þegar að gera sér glögga grein fyrir hugsánlegri at- burðarás í íslenzku atvinnu- lífi í byrjun næsta árs, er aðilar vinnumarkaðarins standa í sömu sporum og fyrr á þessu ári, þ.e. við samningaborðið. Þá gildir að glopra ekki niður þeim árangri, sem þegar hefur náðst, atvinnuöryggi og markvissri stefnu á aukna verðmætasköpun í ^ijóðar- búinu, sem er óhjákvæmi- leg forsenda raunhæfra kjarabóta og framtíðarvel- megunar þjóðfélagsþegn- anna. Aukin verðmætasköpun og atvinnuöryggi Aðeins ein jörð Síðasta tækifæri Arabaþjóð- anna nefnist grein,' sem Maurice Guernier, einn af vís- indamönnum Rómarklúbbsins, skrifaði nýlega í Express. Þar heldur hann því fram að Araba- leiðtogarnir hafi ekki nema nokkra mánuði til að leika út síðustu trompum sínum, þ.e. að ákveða að halda út á braut iðnaðar í löndunum öllum. íranskeisari hafði á ferð sinni um París látið í það skína, að í septembermánuði mundi olfu- verðið enn hækka. Enda varla nema eðlilegt að eigendur olí- unnar vilji fá uppbætur á verð- bólguna, sem dregur stórlega úr ágóðanum af þessari tekju- lind þeirra. En höfuðvandi þeirra, einkum Arabalandanna, er sá að olían gengur svo hratt upp, að þeir eiga á hættu að sitja uppi olíulausir árið 2000, með minni þjóðartekjur ■ en nokkur önnur lönd heimsins. Nú, þegar sú stefna er orðin ofan á, að líta beri nánar á einstök svæði jarðarinnar og haga þróun þar eftir aðstæðum, þá er forvitnilegt að héyra hvað maður eins og Maurice Guerni- er hefur að segja um Araba- löndin: Fyrir nokkrar eyðimerkur- ekrur hafa Arabaþjóðirnar I 25 ár háð stríð, sem dæmt hefur þá til stöðnunar og getur riðið þeim að fullu. Vonlaust strfð. Setjum okkur andartak fyrir sjónir, að ísrael yrði þurrkað út. Arabar fengju þá aftur 419 þúsund hektara af ræktanlegu landi, sem þeir mundu setja á 520 þúsund Arababændur f stað 520 þúsund Gyðinga- bænda. Hlálegar bætur það. Því Aröbum hefur fjölgað um 60 millj. síðan 1948. Þess vegna verður að herða sig upp í að Síðasta tækifæri Araba- þjöðanna gera þeim ljóst, að strfðið er þegar búið að valda óbætanlegu tjóni, þar sem jafnvel ágóðinn af fullum sigri gæti aldrei bætt upp 25 ára stöðnun eða jafnvel félagslega og efnahagslega hnignun. Hið raunverulega stríð þeirra er þróunarstríð. Þetta er sorglega einfalt og liggur á borðinu. 1. Nú eru 100 milljónir Ibúa á svæðinu frá Agadír til Bagdad. Árið 2000 verða þeir 200 millj- ónir. Fólksfjölgunin í Alsír er t.d. 3,4%, sem táknar það að þjóðin tvöfaldast á 20 árum. Nú þegar eyðir þetta land — sem þó er eitt bezt skipulagða rfkið — þriðjungi af olíutekjunum í að fæða viðbótina. 2. Framleiðslan á hvern Araba — afraksturinn af vinnu hans og olíusölunni — er ein sú lægsta á þessari jörðu, þ.e. aðeins 250 dollarar á ári á hvern einstakling. 3. Þetta stafar af þremur meginástæðum: jarðvegurinn er ófrjór og að stórum hluta eyðimörk, loftslag er ákaflega þurrt, og mannfólkið iðulega forlagatrúar og búið að beygja sig undir óblfð náttúruöfl. Vegna olíulindanna býðst Arabaþjóðunum samt einstakt tækifæri. Þær eiga dýrmætan fjársjóð og alveg einstæðan í mannkynssögunni. Allt gullið frá Mexico og Perú á 16. öld voru smámunir á móts við olíu- birgðirnar, þó það ylli ekki svo lítilli röskun f heiminum á endurreisnartímanum. Þetta eru alveg ótrúleg auðæfi, sem tryggja 6 Arabalöndum af tólf 65 milljarða dollara í árlegar tekjur. En þessar tekjur hverfa á 20 árum sums staðar eða á 30—50 árum hjá öðrum. Þessi staða á enga fyrirmynd f heims- sögunni. Þrátt fyrir auðæfi á borð við frásagnirnar í Þúsund og einni nótt, getur framtfð Arabaþjóðanna orðið vonlaus, jafnvel enn vonlausari en þjóða Suðausturasíu. Það er óhætt að kalla þetta harmleik. Leiðtogar Araba hafa ekki nema nokkur ár, raunar nokkra mánuði, til að spila út sfðustu spilum sínum. Hvernig eiga þeir að gera það? 1) með þvi að hafa stjórn á oliuauðnum, þ.e. að hægja á framleiðslunni, til að tæma ekki auðlindirnar á 20—30 árum, heldur t.d. á 50—60 árum. Þá fæst tími til að fjár- festa auðinn skynsamlega og koma efnahagsmálum land- anna í varanlegt horf. Þetta má gera með því að hækka svolítið olíuverðið, eins og Faysal heit- inn vildi. Og skv. skýrslu vfs- indamannanna Mesarovics og Pestels er vitað að svolítið minni olíunotkun, vegna hægr- ar hækkunar á henni, væri til góðs eins fyrir efnahagsmál heimsins í heild. 2) að fjárfesta skynsamlega á 50 árum (1975—2025) olíupen- ingana, svo þeir fari að gefa af sér og breyti ástandinu á þann veg, að árið 2000 verði Arabar sjálfum sér nógir í framleiðslu, eins og iðnríkin eru nú þegar. Ef þetta stórvirki verður ekki leyst af hendi, verða 200 millj- ónir Araba í byrjun næstu aldar, eða eftir einn manns- aldur, fátækasta fólk jarðar, búandi á ófrjóasta landinu, án nokkurra hjálpartækja og von- laus um nokkra framþróun. Arabaþjóðirnar geta vel ráðið við slíkt stórvirki. Til þess hafa þær bæði gáfur og almenna hæfileika. En til þess þarf geysilegt átak. Fyrsta átakið er innanrikis- pólitískt. Aðeins sex arabalönd af 12 eru svo heppin að liggja á olíulindum. Og það sem meira er, hvert framleiðsluríki (sem er þá mjög auðugt) liggur að tveimur, sem ekki hafa olíu- lindir (og eru því mjög snauð): að Alsir liggja Marokko og Túnis, að Líbíu liggja Túnis og Egyptaland, að Arabíu og Irak liggja Egyptaland annars vegar og hins vegar ríkjahópurinn Jórdania — Sýrland — Líbanon. Slíkar samlokur for- ríkra og örsnauðra eru hrein efnahagsleg fjarstæða og þar er alltaf pólitfsk sprengihætta. Stofnun raunverulegs efna- hagsbandalags Arabaríkjanna gæti ein myndað þann ramma, sem óhjákvæmilegur er til að hægt verði að fjárfesta olíupen- ingana þannig að þeir gefi af sér fyrir allt Arabasamfélagið, allt frá Agadfr til Persaflóa. Slíkt efnahagsbandalag, í lík- ingu við Efnahagsbandalag Evrópu, gæti orðið undirstaðan að efnahagslega sjálfstæðum Arabaríkjum, sem væru farin að standa á eigin fótum og sjá fyrir sér með eigin framleiðslu fyrir árið 2025. Það er raunar gömul hugmynd Abdels Nass- ers, að Arabaollan yrði notuð til þróunar f öllum Arabalönd- unum. Annað átakið, sem Araba- löndin þurfa að gera, er að taka upp samvinnu við Evrópulönd- in. Að sjálfsögðu geta Araba- löndin vart hjálparlaust byggt upp nýjan Arabaheim á 50 árum. Bandarfkin og Sovét- ríkin hafa hvorugt brennandi þörf fyrir oliuna þeirra, og eru tvö öflug heimsveldi. Japan snýr sér að mestu að Kyrrahaf- inu. Evrópa er þvi eftir. Ágæt- lega gætu fallið saman hags- munir af skiptum á olíu á móti tækjum og fæðu, — auk dreif- ingar á iðnaði — milli þessara tveggja samsteypa með 200 milljón íbúa hvor. Og þriðja samsteypan — svarti heimur- inn — gæti sem best tekið sæti þar við hliðina, eins og hug- mynd kom fram um nýlega í Dakar. Evrópubúar hafa hreint ekki áhuga á að standa árið 2000 andspænis 200 milljón fá- tækum, hungruðum og upprís- andi Aröbum sunnan megin við Miðjarðarhafið. Þriðja átakið, sem Arabar verða að gera, er af sálrænum toga spunnið. Arabar horfa gjarnan með tregablandinni eftirsjá aftur til fornrar frægð- ar, sem orðin er meira en millj- ón ára gömul. Það hefur sett sitt mark á þá sálrænt og menn- ingarlega og byrgt þeim sýn til nútímaþróunar. I hjarta sfnu hafa þeir innibyrgðan mótþróa gegn nútíma framförum. Arabar hafa verið þrúgaðir af efnahagslega lamandi stríði, sem gleypir allt þeirra framtak, og þannig misst 25 ár af þró- unarbrautinni, sem er raunar einasta leið þeirra til að lifa þetta af. Því er rétt að halda enn einu sinni áfram að endur- taka, að þeir hafa ekki nema 50 ár fyrir þetta stórkostlega verk- efni. Og aðeins nokkra mán- uði til að taka um það ákvarð- anir. Einhver olfuráðstefna þeirra getur veitt tækifæri til að taka stefnuna. Ef ekki, þá eru framtíðarhorfur Araba- landanna enn svartari en jafn- vel Indlands. — E. Pá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.