Morgunblaðið - 13.08.1975, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGUST 1975 23
Slys við Höfn
Höfn, 12. ágúst.
SlÐASTLIÐINN laugardag
slösuðust skozk hjón er bfll
þeirra valt við svokallaðan
Bjarnanesafleggjara á Nesjavegi.
Þau voru send með flugvél frá
Flugstöðinni til Reykjavfkur
næsta dag. Maðurinn var með
skurði á höfði en konan virtist
hafa meiðzt innvortis og ér ef til
vill rifbrotin.
I gær lærbrotnaði 17 ára piltur
þegar hann stökk ofan af hey-
vagni við ræktunarsvæðin á
Steinasandi í Suðursveit. Hann
var sendur með Flugfélagsvél til
Reykjavíkur f morgun. Héraðs-
læknirinn á Höfn gerði að meiðsl-
um fólksins til bráðabirgða.
— fréttaritari.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
byltingarráðinu, en þeir kalla
brottvikninguna ólöglega og segja
að aðeins byltingarráðið sjálft
geti rekið þá.
I kvöld héldu sósíalistar fund í
bænum Evora í Mið-Portúgal þar
sem einn helzti foringi andófs-
manna f heraflanum, Pedro Pez-
ara Correira hershöfðingi, hefur
bækistöðvar og sá fundur fylgir í
kjölfar mikilla uppþota gegn
kommúnistum f nótt, er leiddu til
þess að minnst einn maður beið
bana og 12 særðust.
Kommúnistar efndu til mót-
mælaaðgerða gegn fundinum og
fjölmennt herlið var sent á vett-
vang.
Gagnsókn var hafin í dag til að
treysta stöðu Goncalves forsætis-
ráðherra og fyrir henni stóð
fimmta herfylkið, sem er áróðurs-
deild heraflans. 1 yfirlýsingu frá
henni voru hófsömu herforingj-
arnir sakaðir um að „spilla fyrir
byltingunni" og auka hættu á þvf
að „núverandi stjórnmálakreppa
drægist á langinn."
Þó var talið ólfklegt að yfirlýs-
ingin gæti dregið úr vaxandi and-
stöðu gegn stefnu Goncalves því
fullvíst er talið að að minnsta
kosti 85% heraflans styðji hóf-
sömu herforingjana. Þeir halda
þvf fram að þeir njóti bæði stuðn-
ings Costa Gomes forseta og Car-
valho hershöfðingja, sem er yfir-
maður leynilögreglunnar.
Það varð enn til að auka stjórn-
málaóvissuna í dag að herforingi,
sem er handgenginn Goncalves en
talinn fylgja hófsama arminum að
málum, Duarte Pinto Soares hers-
höfðingi, sagði af sér embætti yf-
irmanns herskólans í Lissabon og
sagði sig jafnframt úr byltingar-
ráðinu. Öljóst er hvort hann hef-
ur með þessu lýst sig fylgjandi
eða andvfgan andófsmönnunum f
heraflanum.
Andstæðingar Goncalves réðust
í dag á skrifstofur þriggja vinstri-
flokka f Viseu f Norður-Portúgal
og um 15 særðust, fjórir alvar-
lega. Múgur réðst inn f skrifstof-
ur vinstriflokks í bænum Vila
Verdo, rændi gögnum og kveikti
í. Árás var einnig gerð á skrifstof-
ur vinstri flokks í Prior Velho
skammt frá Lissabon.
— Eldsúla
Framhald af bls. 1
ur-Þýzkaland. 8.000 slökkvi-
liðsmenn og sjálfboðaliðar
taka þátt f slökkvistarfinu.
Fimm hafa farizt, og að
minnsta kosti 10.000 ekrur
skóglendis hafa eyðilagzt.
— Samningar
Framhald af bls. 1
Rossene úr utanrfkisráðuneytinu
komu ásamt Simcha Dinitz sendi-
herra til utanríkisráðuneytisins
til .að ræða orðalag samninganna
við Joseph Sisco aðstoðarutanrík-
isráðherra. Þar var svo mikið af
sjónvarpsmyndavélum að það var
líkast því að erlendir þjóðarleið-
togar væru á ferðinni.
Viðræðurnar munu standa I
nokkra daga og sennilega snúast
um orðalag tvenns konar skjala:
opinbera samninga um stöðu her-
sveita á Sinaiskaga og leynileg
bréfaskipti Egypta og Banda-
rfkjamanna og Bandarfkjamanna
óg Israelsmanna.
1 hinum opinbera samningi
verða ákvæði um stærð vopnlauss
svæðis milli herliða Israelsmanna
og Egypta á Sinaiskaga þar sem
friðargæzlusveitir Sameinuðu
þjóðanna verða á veröi. I bréfun-
um sem skipzt verður á munu
Egyptar lofa Bandaríkjamönnum
að draga úr efnahagslegum
aðgerðum og áróðri gegn tsrael.
Þeir vilja ekki gefa opinber lof-
orð svo að róttækari ríkisstjórnir í
Árabaheiminum saki þá ekki um
svik f baráttunni gegn zfonisma.
önnur fsraelsk sendinefnd
kemur til Washington á morgun
til viðræðna um beiðni um 3.000
milljón dollara aðstoð, þar af
2.100 milljón dollara hernaðarað-
stoð. Talið er að Israelsmenn
verði að kaupa olfu fyrir 350
milljón dollara ef þeir missa olfu-
svæðin á Sinaiskaga, en ekki er
vitað hvort þeir fá fjárhagsaðstoð
til þess frá Bandaríkjamönnum.
Dr. Kissinger mun hafa sagt
vinum sínum að verið geti að
hann fari til Miðausturlanda í
næstu viku til að ganga endanlega
frá nýjum samningi. Israelsmenn
segjast ekki hafa fengið endan-
legar tillögur Egypta, en eru viss-
ir um að samningar takist.
— Minnis-
peningar
Framha|d af bls. 24
rfkisféhirði árið 1961. Nafnverð
hans er 500 krónur, en hann var
seldur á 750 krónur við útgáfu. I
dag er verð hans úr verzlun hér-
lendis um 50 þúsund krónur.
— Kastali
Framhald af bls. 1
sjóleiðina, þar sem höfnin er ekki
lengur f hættu.
450 FNLA-hermenn til viðbótar
verða fluttir frá herbúðum f
Luanda í dag og á morgun til
Norður-Angóla sem er á valdi
hreyfingarinnar. Allar frelsis-
hreyfingarnar höfðu hermenn í
Luanda þar sem f ráði var að
stofna sameinaðan her, er her-
menn Unita hörfuðu frá borginni
fyrr í vikunni eftir árás MPLA á
stöðvar hreyfingarinnar.
Bollalagt er hvort samkomulag
FNLA og MPLA hafi f raun og
veru í för með sér skiptingu
Angola f þrjú svæði þannig að
FNLA ráði norðurhlutanum,
Unita suðurhlutanum og MPLA
Luanda-svæðinu. Líklegt væri að
það riði efnahag landsins að fullu,
en atvinnuvegirnir eru nú þegar í
kaldakoli.
I Róm var sagt f dag að 55 lestir
af matvælum að verðmæti 200.000
dollarar yrðu fluttar til Angola á
vegum S.Þ.
— Hafa fleiri
Framhald af bls. 24
tekur að sigla vestur fyrir 4.
gráðu og til Danmerkur aftur.
Fjögur skip seldu I Hirtshals
og Skagen í fyrradag og voru
það: Súlan EA, sem seldi 23
lestir fyrir 950 þús. kr„ meðal-
verð kr. 43,00, örn KE seldi
75,5 lestir fyrir 3,4 millj. kr„
meðalverð kr. 45,39, Vörður
ÞH seldi 17,5 tonn fýrir 755
þús. kr., meðalverð kr. 43,55 og
Skarðsvík SH seldi 48 lestir
fyrir 2,1 millj., meðalverð kr.
44,42.
— Anker
Framhald af bls. 11
ekki fara til Portúgal. Hann eiga
konu og börn,“ sagði maðurinn og
lagði tólið á.
Jörgensen sagði í viðtali við
blaðið: „Við verðum öðru hverju
fyrir barðinu á hótunum og það er
auðvitað óþægilegt. Meira vil ég
ekki segja.“
Lögreglan sagði að hótunin
hefði að sjálfsögðu verið tekin
alvarlega og séð yrði til þess að
forsætisráðherrann og fjölskylda
hans fengju vernd. Jörgensen fór
til Portúgals á sunnudag og ræddi
í gær við Gosta Gomes forseta.
Hann sagði að aðstoð Efnahags-
bandalagsins við Portúgal væri
háð því skilyrði að áfram miðaði f
lýðræðishorf.
— Stöðvun
Framhald af bls. 11
Sigurðar hafi fyrst heyrt um
ákvörðun SR að taka ekki víð
loðnu undir 12 sm-mörkunum
þegar þeir voru komnir til Siglu-
fjarðar með aflann sl. sunnudags-
kvöld 10. ágúst. Þeim var bæði
tilkynnt um það f gegnum LlU 1.
ágúst og hjá okkur 2. ágúst.“
Jón Reynir sagði í samtali við
Mbl. f gær, að SR hefðu ekki sent
skipstjórum bátanna „hálfgerða
áskorun“ um að halda þessum
veiðum áfram, eins og gefið væri í
skyn í Mbl. Tilraun skipstjóranna
á þessum skipum til þessara
sumarveiða á loðnu væri afar
virðingarvert fyrirtæki og þeim
bæri að þakka fyrir framtakið, en
nú væri ljóst að tilraunin hefði
mistekizt og ekki væri grundvöll-
ur fyrir þessum veiðum vegna
þess hve loðnan væri smá alls
staðar þar sem veitt hefði verið.
Jón sagði að hvorki væri grund-
völlur fyrir veiðum þessarar smá-
loðnu fyrir bátana né verksmiðj-
urnar. Nýting smáloðnunnar f
mjöl væri aðeins 13,6% miðað við
15,5% meðalnýtingu að vetrinum,
og nýting hennar ‘í lýsi væri
1,8—2% miðað við 4,5—5%
nýtingu vetrarloðnunnar. Þar að
auki væri saltið í þessari smá-
loðnu meira en f stærri loðnu,
vegna þess hve í henni væri
mikill sjór og væri hún fyrir þær
sakir enn óhentugri til vinnslu.
Jón sagði að SR hefðu þegar tekið
við um 3000 tonnum af smáloðnu
og fyrir helgi hefði verið búið að
bræða um 2600 tonn. Sagðist Jón
vera fullviss um að mun meira af
þessari loðnu hefði komið á land
hefðu verksmiðjurnar ekki til-
kynnt' það strax 2. ágúst, að þær
tækju ekki við frekari smáloðnu.
Að sögn Jóns er þessi smáloðna
aðeins 2—5 grömm að þyngd, en
loðna sú sem vanalega er veidd er
um og yfir 30 grömm að þyngd. Þá
sagði Jón að sú loðna sem vana-
lega væri veidd að vetrinum væri
3—4 ára gömul og 14—20 sm en
loðnan sem nú hefði komið á land
væri á 2. ári.
Jón Reynir gaf Mbl. einnig þær
upplýsingar að verðlag á lýsi og
mjöli hefði verið mjög óstöðugt að
undanförnu og erfitt væri að
segja til um markaðshorfur. Vafa-
laust mætti þó selja þetta sem
komið hefði út úr smáloðnunni,
þar sem um svo lítið magn væri að
ræða.
Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um verðlag á sumar-
loðnu og hefur yfirnefnd
verðlagsráðs nú það mál til
meðferðar. Ekki vissi Jón Reynir
hvenær ákvörðunar nefndarinnar
væri að vænta.
— Timor
Framhald af bls. 11
svæða sem séu á valdi flokksins.
Fjölskyldur portúgalskra her-
manna á Timor verða fluttar með
skipi til Ástralíu, að sögn yfir-
valda í Lissabon. Fréttir frá
Darwin herma að skipið heiti
MacDili og sé væntanlegt þangað
á fimmtudag með 272 manns, að-
allega Portúgala.
— Mótinu lokið
Framhald af bls. 11
hópum verða 60—70 þátttakend-
ur.
Einnig mun verða farið í styttri
ferðir., þ.e. dagsferðir. 400—500
manns munu fljúga til Vest-
mannaeyja og skoða Heimaey. Þá
munu 400—500 manns fara f
dagsferð um Gullfoss—Geysis-
svæðið. 20 manns fara um Borgar-
fjörð og 40 manns munu fara í
gönguferðir um Reykjanessvæð-
ið.
Ekki er talið að matareitrun,
sem upp kom á stúdentamótinu
aðfaranótt þriðjudagsins, 12. ág-
úst, muni breyta miklu varðandi
þessar ferðir.
Faðir okkar. t
BJARNI R. ÁRNASON,
Byggðarenda 13,
andaðist mánudaginn 1 1. ágúst.
Synir hins látna.
t
Konan mln.
ÁSLAUG Á HEYGUM
Granaskjóli 19, Reykjavlk,
andaðist að morgni þess 1 2. ágúst 1 975.
Magnús Magnússon.
t
Útför mannsins mlns, bróður okkar, og fósturföður,
SIGURÐAR PÁLSSONAR,
vélstjóra,
er lézt I Sjúkradeild Elliheimilisins Grund, þann 7. þ.m. fer fram frá
Dómkirkjunni I Reykjavík, fimmtudaginn 1 4. ágúst kl. 15.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeir sem vilja minnast hins látna láti
Hjartavernd njóta
Ingibjörg Kristinsdóttir, frá Hlemmiskeiði
Ólafía Pálsdóttir, Guðrún P. Crosier,
Hilmar Sigurjón Petersen, Ólafur Pálsson.
t
öllum þeim vinum, sem studdu og styrktu mig og aðra ástvini með
öllu móti I veikindum og við andlát mannsins míns
ÞÓRÐAR MÖLLER,
læknis.
Þakka ég meira en orð tjá.
Guð blessi og launi.
Hann gjaldi einnig læknum og hjúkrunarliði Kleppsspltalans einstæðan
drengskap við hjúkrun og umönnun.
Fyrir hönd vandamanna, Krjst[n Mö||er
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför
GUÐJÓNS GUÐMUNDSSONAR
fyrrum bónda I Saurbæ,
Vatnsnesi
Aðstandendur.
t
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ELINBORGAR JÓNSDÓTTUR
frá Sauðárkróki.
Böm, tengdaböm og barnabörn.
t
Hjartans þakkirtil allra, sem heiðruðu minningu
SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR
frá Broddanesi
og sýndu okkur samúð og vináttu vegna fráfalls hennar.
Ragnheiður Viggósdóttir Sigurbjöm Sigtryggsson
barnaböm og systkini.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall móður
okkar, tengdamóður og ömmu
GUORÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Skeiðarvogi 139, Reykjavlk
Guðmundur Pétursson Jóna Pétursdóttir
Vilborg Pétursdóttir Jón Danfelsson
Gunnar Pétursson Guðný Pétursdóttir
Guðbjörg Júliusdóttir Þórunn Óskarsdóttir.
Guðbjöm Pétursson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og útför móður
minnar og systur okkar,
SIGRÍÐAR B.
HALLGRÍMSDÓTTUR,
Sólvöllum 19,
Akureyri
Sérstakar þakkir færum við
læknum og hjúkrunarliði lyf-
læknisdeildar Fjórðungssjúkra-
húss Akureyrar. Einnig læknum
og starfsliði deildar 3D, Land-
spltalans fyrir frábæra umönnun
I veikindum hennar.
Þórhallur Ægir og systkini
hinnar látnu.