Morgunblaðið - 24.08.1975, Síða 7

Morgunblaðið - 24.08.1975, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. AGUST 1975 7 Sr.BOLLI GÚSTAFSSON í Laufási: „Sæl eru þau augu, sem sjá það, sem þérsjáið." Þessi eru upphafsorð guðspjallsins í dag. Sjáum við þá eitthvað, sem gleðuraugun? Hörm- ungar úti í friðvana heimi, ömurlegar afleiðingar nátt- úruhamfara, dapurlegan mis- mun lífskjara, harðstjórn, rangsleitni, ofbeldi, sjálf- skaparvíti, eiturneyzlu, mannlega niðurlægingu. „Sæl eru þau augu, sem það sjá, sem þérsjáið." Beinir Jesús þessum orðum til okk- ar? Eigum við að blekkja okk- ur sjálf, breiða yfirallt, sem miður fer, en lifa í dagdraum- um ofar myrkum og ógeð- felldum staðreyndum jarðlífs- ins. Það væri í mótsögn við kærleikskenningu Krists. Al- bert Schweitzer sagði: „Það, sem ég veit, gerir mig böl- sýnan, það sem ég vil og vona, gerirmig bjartsýnan." Hann benti og á, að hinn rétti skilningur á Jesú sé að skilja hvað hann vill og vilja það. Það gjörir augu okkar sæl, ef við sjáum og þráum þetta markmið, sem Schweitzer leggur áherzlu á. Reynslan hans var mikil og hugur hans glímdi sífellt við það við- fangsefni, aðfinna og ryðja leiðir er stefndu að velferð alls mannkyns. Hann kvað þá hugsun hafa orðið sér að áttvita, „að hið eina, sem við getum skilið af þessu vanda- máli sé það, að okkur beri að ganga lífsbrautina sem menn, er vilja leysa vanda annarra. " Schweitzer gekk aldrei áhugalaus fram hjá bágstöddum fremur en Sam- verjinn í dæmisögu Jesú (Lú'<. 10, 23—37). Hann gekk aldrei fram hjá heldur leitaði þá uppi, sem voru hjálpar þurfi. Hann þurfti ekki að spyrja eins og lögvitr- ingurinn forðum: „Hver er þá náungi minn?" Fjölmargir menn, sem telja sig sann- kristna, virðast eigi betur á vegi staddiren hann. Þeir eru ein þyngsta byrði kristin- dómsins, mennirnir, sem þykjast geta vísað náungan- um út í yztu myrkur, enda þótt þeir heyri angistaróp hinna ráðvilltu. Þaðereng- inn frelsunarstimpill til, engin óyggjandi tilfinning, sem al- tekur manninn og veitir hon- um vissu um það, að hann sé kominn í örugga höfn synd- leysis. Kristin sál á í sífelldri baráttu í þessum heimi; efa- semdir og freistingar láta hana aldrei í friði og hún finnur til vanmáttar án hand- leiðslu Guðs. Þess vegna sendi Guð son sinn inn í þenna ráðvillta heim, þvi gaf hann okkur heilagan anda sinn. Við þurfum ekki aðra anda. Guð gefi, að andatrú- armenn fái skilið það. Þeir gleyma sér í rökkvuðu her- bergi miðilsins. ímynda sér að þarverði öllum æðstu þrám þeirra fullnægt, brýn- ustu spurningum svarað og mestrar göfgunar hugarfars- ins að vænta, þar séu þeir þétttakendur í heilagri guðs- þjónustu. Guðfyrirgefi þeim, að þeir skuli ekki átta sig og vilja taka við gjöf hans í stað þessa steinrunna misskiln- ings. Guð gefur okkur bæn- ina, farveginn til sín, milli- liðalaust samband; orðið, sí- frjótt og lifandi; blessun heil- agra sakramenta. Hann ætl- ast til þess, að i veikleika okkarséum við umburðar- lynd gagnvart náunga okkar. Það lærum við, ef við rækj- um guðsþjónustu kirkjunnar. Þess vegna er það sorglegt, þegar skynsamt fólk gerir lít- ið úr þeirri þjónustu eins og hún hefur verið rækt um aldir í sígildu, listrænu formi, sem er látlaus umgerð um guð- dómlegar gjafir, er veitast hverjum þeim, er nálgast þær með sannri auðmýkt og trúartrausti. Fátt sannarbet- ur haldleiðslu Guðs hér á jörð ersú staðreynd, að kristin kirkja skuli hafa staðið af sér þau gjörningaveður stundar- fyrirbæra, sem þröngsýni og ofstæki einstaklinga og á- kveðinna hópa innan kirkj- unnar hafa látið dynja á stofni hennar. Þröngsýni var eitt af vandamálum á vegi dr. Alberts Schweitzer, þegar hann ákvað að helga líf sitt líknarmálum og trúboði á meðal heiðingja. Um þá örð- ugleika ritaði hann: „Sá, sem tekst á hendur að starfa í þjónustu hins góða, má ekki búast við því, að aðrir menn fari þess vegna að tína grjót- ið úr götu hans. Hann verður þvert á móti að vera undir þau örlög búinn, að menn leggi stein í götu hans." Þessum hindrunum ruddi Schweitzer úr vegi með hóg- værð. Hann var sannmennt- aður og lét því ekki sverfa til stáls við þröngsýnismennina. Hann var svo sannmenntað- ur, að hann gat talað á Ijósu og einföldu máli við fávís börn frumskógarins, þannig að þau skildu til hlýtar boð- skap hans. Og mildum hönd- um miskunnsama Samverj- ans fór hann um hin margvís- legu mein þeirra. Ævistarf Alberts Schweitzers er stór- brotið í látleysi sínu. Sjálfur sagði hann: „Sá einn, sem finnst áform sitt vera sjálf- sagt, en ekki frábært, ekki hetjudáð, helduraðeins skylda, sem hann gengst undir í alsgáðum eldmóði, sá einn er hæfur til þess að verða einn þeirra andlegu ævintýramanna, sem heim- urinn þarfnast. Hetjurafreka eru engar til, aðeins hetjur sjálfsafneitunar og þjáningar —i— þær eru margar, en fæst- um kunnar." Ljósið yfir Lambarene, minningin um Albert Schweitzer bregður slíkri birtu yfir þau orð Jesú, sem eru hugleiðingarefni þessa helgidags, að við get- um nefnt hana nýtt guð- spjall. Sá fagnaðarboðskapur ætti að verða okkur öllum hvatning, þjóðum til friðar, einstaklingum til umburðar- lyndis í samskiptum við ná- ungann og trúmennsku við guðs heilaga orð og kristna guðsþjónustu. Bölsýni þekkingar og bjartsýnn vilji Útsala Síöasti dagur útsölunnar er á morgun enn má gera góö kaup Verzlunin Karfan Hofsvallagötu 16 Þér verður hlýtt til hans Þurrkarinn frá ENGLISH ELECTRIC i er ómissandi í íslenskri veöráttu. Tvær hitastillingar. 5 kg. afköst. Einfaldur öryggisbúnaöur. Útblástursbarki einnig fáanlegur. Yfir 20 ára reynsla hérlendis. Varahluta- og viögeröarþjónusta frá eigin verkstæöi. (íMjrfNsi Laugavegi 178 Sími 38000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.