Morgunblaðið - 24.08.1975, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 24.08.1975, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGUST 1975 13 1 Formenn félaga iðnrekenda á Norðurlöndum, talið frá vinstri: Martti Hovi, Finniandi, Onar Onarheim, Noregi, Aake Palm, Svíþjóð, Davfð Sch. Thorsteinsson, Islandi og H. Briiniche-OIsen, Danmörku. Lögregla hættir við verkfall San Francisco, 22. ágúst. Reute>. 1900 lögreglumenn og 1800 slökkviliðsmenn sem hafa verið I verkfalli 1 San Francisco sneru aftur til vinnu í dag. Þar með hefur verið bægt frá vaxandi hættu á skrílslátum, ránum og ofbeldi þótt embættismenn segi, að yfirleitt hafi verið rólegt í borginni þrátt fyrir verkfallið. Verkfallinu var aflýst þegar Joseph Alioto borgarstjóri lýsti yfir neyðarástandi í borginni til að knýja fram 13% launahækkun sem hann hafði samið um við fulltrúá verkfallsmanna. Borgarstjórn- in vildi ekki samþykkja þessa kauphækkun og virtist hafa almenningsálitið með sér. Borgarstjórinn náði samkomu- lagi við verkfallsmenn eftir langa og stranga samningafundi. Kaup- hækkunin tekur gildi 15. október. Sjö sækja um stöðu fræðslu- stjóra í Vestur- landsumdæmi MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ auglýsti hinn 23. f.m. lausa til umsóknar stöðu fræðslustjóra í Vesturlandsumdæmi með úm- sóknarfresti til 15. þ.m. Umsækj endur eru alls sjö og þeir eru: Dr. Bragi Jósepsson, Skipasundi 72, Reykjavik, Hans Jörgensen, skólastjóri, Ljósheimum 4, Reykjavfk, Hjörtur Þórarinsson, Kleppjárnsreykjum, Borgarf., Sr. Ölafur Jens Sigurðsson, sóknar- prestur, Hvanneyri., Sigurþór Hallsson, skólastjóri, Helgugötu 11, Borgarnesi, Snorri Þorsteins- son, kennari Hvassafelli, Mýra- sýslu, og Þorvaldur Þorvaldsson, kennari, Jaðarsbraut 37, Akra- nesi. Ráðstefna iðnrekenda á Norðurlöndum FÉLÖG iðnrekenda á Norður- löndum halda þessa dagana ráð- stefnu að Hótel Loftleiðum. Slík- ar ráðstefnur eru haldnar árlega og sitja þær formenn og fram- kvæmdastjórar, ásamt stjórnar- Borga milljarð í gjöld í Vestur- landskjördæmi SKATTSKRÁ Vesturlandskjör- dæmis var lögð fram fyrir skömmu. Heildargjöld f kjör- dæminu eru 997 milljónir króna, sem er töluverð hækkun frá þvi f fyrra. Hæsti skattgreiðandi ein- staklinga er Víglundur Jónsson, útgerðarmaður á Clafsvík, en hann á að greiða 10.707.886 krónur og mun hann vera hæsti skattgreiðandi landsins. Annar útgerðarmaður og fiskverkandi er annar á listanum, en það er Krist- ján Guðmundsson á Rifi með 4.184.712 kr. og f þriðja sæti er Sigurdór Jóhannsson rafverktaki á Akranesi með 2.349.747 kr. Af fyrirtækjum er Kaupfélag Borgfirðinga með hæst gjöld 13.302.923 kr. — Önnur félög eru tæpast til að tala um, sagði Jón Magnússon, skattstjóri á Akra- nesi, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann. mönnum og starfsmönnum iðn- rekendafélaganna. Fjöldi þátttakenda í ár er 30 og þar af 10 íslenzkir. A fundunum eru rædd sameiginleg málefni og sjónarmið samræmd eftir því sem við á. Ráðstefnan hófst með ræðu Gunnars Thoroddsen iðnaðarráð- herra um iðnað á Islandi og sam- starfsmöguleika á því sviði á Norðurlöndum, en síðan var gerð grein fyrir stöðu iðnaðarins I hverju landi fyrir sig. önnur helztu mál, sem rædd voru á ráð- stefnunni, voru samskipti iðnrek- endafélaganna við vinnuveitenda- samtök viðkomandi landa og hlut- verk iðnrekendafélaganna i mót- un iðnaðarstefnu í heimalandinu. Ráðstefnur þessar eru haldnar árlega til skiptis f löndunum. Verður næsta ráðstefna haldin í Svíþjóð 1976. BILL ARSINS GITROEN CX Þaö er engin leiö aö lýsa þessum bíl. Þetta er bíll sem þiö þurfiö aö sjá og Heimsækið sölumenn okkar, og þeir munu segja þér allt og sýna þér gripinn. reyna. o A G/obus? LAGMÚLI 5, SÍMI81555

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.