Morgunblaðið - 24.08.1975, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGUST 1975
sýningin
„Við reiknum með, að þróunin verði sú, að hingað
komi bara fólk sem hefur áhuga á listinni, að það kíki
hér inn öðru hverju og skoði það sem er til sýnis. Við
myndum ekki fara að setja upp glannastórt skilti
niður við Klúbb bara til að fá hingað 700 manns á einu
laugardagskvöldi...“
Ólafur Lárusson — anno 1975.
þó aó hér væri bara ein mynd
— og Ifka þótt gallerfið væri
bara lokað. Það væri prógramm
út af fyrir sig.
— Þeir hlutir, sem við erum
helzt að fást við og höfum mest-
an áhuga á, eru smáir. Þetta er
frekar hugmyndafræði en
fagurfræði eða formskynjun.
Til að koma slíkum hug-
ntyndunum á framfæri væri
jafnvel nóg að hafa bara eina
setningu. Setningin gæfi áhorf-
andanum tök á að búa til mynd-
ina í sínu eigin heilabúi.
— Aðsóknin hefur verið
merkilega góð, 73 gestir á fjór-
um dögum. Það þætti gott sums
staðar. Hér kostar ekkert inn.
Það er mikilvægt atriði f okkar
augum. Við viljum reyna að
reka þetta þannig, að fólk geti
komið hingað, litið á það sem
við sýnum, grúskað f hlöðum og
bókum án þess að þurfa að
borga óhemju fé fyrir það. 100
krónur geta verið óhemju fé f
sumum tilvikum. Þetta er ekki
gróðafyrirtæki.
— Hingað hefur komið alls
konar fólk og fæst af því vinir
eða kunningjar. Þetta er fólk,
sem býst við að eitthvað nýtt sé
á ferðinni og er að leita að
einhverju nýju. Það gefur til-
efni til að álykta, að slfka starf-
semi vanti hér. Þetta fólk er að
reyna að komast I tengsl við
aðrar aðferðir og annan hugs-
unarhátt en tfðkast hér.
— Hér hafa heyrzt undrunar-
raddir, þó ekki beint óánægju,
nema f einni konu, sem hálft f
hvoru rauk út. Hún var óánægð
bæði með verkin og stærð sýn-
ingarinnar. „Er þetta sýning-
in?“ spyr fólkið þó stundum.
— Næstur sýnir Helgi Frið-
jónsson Ijósrit og þeir sem
um engar áætlanir gert. Fjár-
málaáætlanir eru allar f skýj-
unum. Við reiknum þó með að
verða ekki bornir út, heldur að
við fáum að vera hér f vetur.
Plönin ná ekki lengra en fram f
maf. Þá tökum við sumarfrf og
sjáum svo til eftir það. Kannski
komum við upp útisýningu f
sumar, það er alveg eins góð
hugmynd og hver önnur.
— Nafnið OUTPUT fundum
við í bók sem við vorum að
fletta. Þar var málverk eða ein-
hver Ijót mynd sem hét þetta.
Þetta er ágætt nafn, ekkert
verra en hvað annað. Það er
líka framburðarhæft fyrir út-
lendinga. Það var enginn beinn
boðskapur hugsaður í upphafi f
sambandi við nafnið, en auðvit-
að geta menn klínfhvaða boð-
skap sem er á það.
— Við viljum helzt vera laus-
ir við að þurfa að sækja um
styrki, þó að slfkt gæti orðið í
sambandi við erlendar sýn-
ingar. Ef við fáum enga styrki,
þá er ekki hægt að núa okkur
þvf um nasir að við séum á
spena hjá rfki eða borg — og
þar með bundnir um leið að
vissu marki.
— Þetta cr bara hugsjóna-
starfsemi. Kostar að vfsu Iftið.
Húsnæðið er frftt og það gerir
okkur f rauninni kleift að
standa f þessu.
— Það gæti allt eins komið
til, að gallerfið gæfi út póstkort
eða jafnvel litlar bækur f sínu
eigin nafni. Kannski verður
þetta einhvern tíma — þó er
þetta meira hugmynd en raun-
veruleiki núna.
— Listamenn hafa tekið þess-
ari starfsemi mjög vel, þó að
við höfum reyndar ekki talað
við aðra en þá sem ætla að sýna
spyr fólkið, þegar það
kemur í minnsta
sýningarsal landsins,
rúmlega níu
fremetra stóran
Myndir: Fridþjófur
1 fbúðarhúsi að Laugarnes-
vegi 45 hefur verið opnað nýtt
sýningarhúsnæði fyrir mynd-
list. GALLERY OUTPUT heitir
það og er liðlega nfu fermetrar
að stærð. Fyrsta sýningin var
opnuð þar f sfðustu viku og
sýnir Ölafur Lárusson nú
fjögur verk, sem öll eru unnin
á þessu ári.
Sýningarhúsnæðið er f raun-
inni bara eitt lítið herbergi, en
framtíðaráætlanir — að svo
miklu leyti sem slfkar áætlanir
eru yfirleitt til — gera ráð
fyrir, að stofan hinum megin
við ganginn verði staður þar
sem fólk getur setzt niður f ró
og næði og gluggað í blöð og
bækur ummyndlist, sem þar
liggja frammi. Væntanlega
verður hægt að fá keyptar þar
handunnar bækur eftir ýmsa
listamenn, svo og sýningar-
skrár og annað slfkt.
Húsráðandi á Laugarnesvegi
45 heitir Þór Vigfússon. Þegar
Slagsfðan kom f heimsókn til
hans sl. fimmtudag, voru þrfr
aðrir f heimsókn: Ólafur Lárus-
son, sá er nú sýnir verk sfn þar
f húsi, Helgi Friðjónsson, sem
væntanlega sýnir næst, og Ólaf-
ur Gunnarsson, en engin sýn-
ing á næstunni er tengd nafni
hans.
Ólafur Lárusson hafði yfir-
leitt orð fyrir þeim félögum, en
hinir gripu fram f, ef þeim
þótti ástæða til. Ekki sér Slag-
sfðan ástæðu til að merkja
hverjum einstökum ummæli
hans f þeim samræðum sem
fram fóru og snerust um þá
starfsemi, sem nú er verið að
hefja að Laugarnesvegi 45, en
efnislega voru svör fjórmenn-
inganna þessi:
— Við lítum á þetta sem stað
sem kynnir nútfmalist. Hún á
mjög erfitt uppdráttar hér á
landi, nema helzt f S(JM. Þessi
starfsemi hér er þó alls ekki
hugsuð sem samkeppni við
S(JM.
— Stærð sýningarrýmisins
gefur mikla möguleika. Þannig
verða erlendar sýningar nú
fjárhagslega mögulegar. Hérna
þarf aðeins fá verk til að halda
sýningu, en í SÚM þarf mörg
verk. Ef um erlenda listamenn
er að ræða, þá eru þeir oft að
sýna verk sfn annarsstaðar á
sama tfma og geta þvf ekki fyllt
stóran sal hér af verkum
sfnum. Auk þess verður flutn-
ingskostnaðurinn miklu minni
vegna sýningar hér.
— Herbergið sjálft gefur
mjög góða möguleika á þvf, að
unnið sé sérstakt verk inn f
það. Slfkt er ógerlegt f S(JM —
bæði er S(IM of stórt og svo
myndi það kosta óhemju pen-
inga.
— Það er ekkert atriði, að
sýningarnar séu úttroðnar af
ógurlegum fjölda verka. Það er
ekkert atriði, að menn sýni allt
sitt lffsstarf. Hérna geta menn
bara sýnt hluta af því, það sem
þeir eru að fást við hverju
sinni, en géta svo bara sýnt
oftar f staðinn.
— Þetta hlýtur að standa
undir nafninu sýning, jafnvel
verða með sýningu á eftir
honum eru t.d. Jón Gunnar
Árnason, Arnar Herbertsson og
Níels Hafstein, þótt röð þeirra
sé ekki endanlega ákveðin.
— Salurinn er ekki til leigu.
Menn geta ekki bara komið
hingað og sagt: Eg ætla að taka
salinn á leigu f hálfan mánuð
og halda sýningu, hvað á ég að
borga? Við vitum ekki hvort á
að kalla þetta „sensúr“, en við
veljum sýningarnar frekar
sjálfir. Við komum saman og
ræðum málin, ræðum svo við
listamennina og annaðhvort
fáum þá til að sýna eða höldum
sýningu á verkum þeirra.
— Við — er óákveðinn hóp-
ur, gamlir skólafélagar og
kunningjar, ekkert félag eða
neitt slfkt. Þetta stendur varla
undir nafninu „grúppa“.
— Handfða- og myndlistar-
skólinn er upphafspunkturinn,
sem þetta er sprottið upp úr
eða út af.
— Þessi starfsemi hér verður
að vaxa af sjálfri sér. Við höf-
hér. Það hefur enginn neitað
ennþá. Það fólk, sem við höfum
talað við f sambandi við þetta,
hefur verið frekar bjartsýnt og
ánægt með svona starfsemi.
— Mesta málið er bara að
halda þessu gangandi, án þess
að fara að sýna eitthvert rusl
eða verk eftir menn, sem við
teljum ekki eiga neitt erindi
hingað.
— Það er erfitt að skilgreina
svona ritskoðun. Hún er bara
samkomulagsatriði og kemur
af sjálfri sér. Hún er kannski
meira byggð upp á þeirri stað-
reynd, að sá, sem kemur til með
að sýna hér, er að fást við ein-
hverja hluti af alvöru og upp-
fyllir einhverjar ákveðnar
gæðakröfur, sem liggja f loft-
inu og eru sjálfsagðar.
— Þeir sem eru á bak við
þetta, — eða kannski þeir sem
ekki eru á bak við þetta, —
halda enga fundi. Menn rekast
bara hér inn og ræða málin.
Hér er enginn ákveðinn starfs-
Framhald á bls. 16