Morgunblaðið - 24.08.1975, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.08.1975, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. AGUST 1975 Fallegt handbragð. Neðst er grjóthleðsla og ofar hlaðinn strengur. Stefán Stefánsson frá Brennigerði og Stefán Friðriksson frá Glœsibæ hlaða vegginn, sem hylur burðarvegg úr steinsteypu, sem hafður er til að gera bygginguna endingarbetri og mun ekki sjást. Stefán Friðriksson frá Glæsibæ kann sýnilega handtökin við að skera torfið. Ljósm. ÓI.K.Mag. Sögualdarbærinn er að rísa á Skeljastöðum í Þjórsár- dal, og verður væntanlega tilbúinn í haust eða vetur. Bæinn teiknaði Hörður Ág- ústsson, en stærðir eru ná- kvæm eftirlíking af þeim bæ, sem grafinn hefur verið upp á Stöng. Ástæðan fyrir því að bærinn er reistur í landi Skeljastaða en ekki Stöng er fyrst og fremst sú, að dýrt hefði orðið að hafa þar gæzlu, en Landsvirkjun er í námunda við Skeljastaði og mun hafa umsjón þar, að þvi er Steinþór Gestsson á Hæli, formaður byggingarnefndar, tjáði okkur. Þá er þarna hægt að koma við loftræstingu, sem nauðsynleg er, svo timb- ur ekki skemmist. Og einnig er alltaf hægt að komast að Skeljastöðum til að skoða bæinn, sem ekki er,hægt að Stöng, þegar mikið er í ám. Skeljastaðir eru sögustað- ur og kirkjustaður. Þar var grafinn upp kirkjugarður á sínum tíma. Er talið að byggð hafi verið þar í um 100 ár, og getur ekki hafa staðið lengur en til 1104. Munn- mæli eru um að Hjalti Skeggjason hafi búið á Skeljastöðum og þá væntan- lega byggt fyrstu kirkjuna, enda kristinn maður. Og nú er þarna að rísa aftur bær, eins nákvæm eftir- líking af hinum forna bæ og unnt er. Þjóðhátíðarnefnd 1974 kom málinu á hreyf- ingu, en síðan bundust sam- tökum um að reisa bæinn þjóðhátiðarnefnd Árnes- þings, Gnúpverjahreppur og Landsvirkjun, og nú hefur alþingi samþykkt fjárveit- ingu, 2,1 millj. kr. í fimm ár til þessa verks. úr torfi og streng ;,»- .................. ............." ........v Sögualdarbærinn að rísa á Skeljastöðum í Þjórsárdal, þar sem Heklugos eyddi byggð 1104 og er bærinn eins góð eftirlíking af þeirra tlma bæ og unnt er. Bærinn er hlaðinn úr-torfi og streng, sem við létum skera hér í nágrenninu og þurrka, sagði Steinþór. Grjót- hleðsluna gerir Gunnar Tómasson, garðyrkjumaður í Laugarási, en veggina hlaða tveir Skagfirðingar, Stefán Friðriksson frá Glæsibæ og Stafán Stefánsson frá Brennigerði. Bærinn er timbraður og er allt timbur gefið af skógræktarfélögum í Noregi, og unnið með sömu aðferðum sem notaðar voru áður en hefill og sög urðu til. Er timbrið rifið, höggvið og skafið og verið að vinna það hjá Landsvirkjun í Reykjavík. Steyptir veggir eru inni i hleðslunum, en koma ekki til með að sjást. Til að tryggja endingu bæjarins eru burðar- veggirnir úr steinsteypu. Steinþór sagði, að áætlað hefði verið að Ijúka verkinu i september, en smávægilegar tafir hefðu orðið á vinnslu á viðnum og því ekki víst að bærinn yrði tilbúinn fyrr en í vetur. — Það verður sennilega skemmtilegt að virða þennan bæ fyrir sér og bera saman við það, sem verið er að gera erlendis, sagði Steinþór. í Noregi og Danmörku hafa svipuð verk verið unnin og þá leitað upplýsinga hér á landi. Þegar fréttamenn komu að Skeljastöðum var verið að skera torfið til og hlaða streng. Var skemmtilegt að sjá handbragðið, sem er orð- ið nútímafólki svo framandi, og virða fyrir sér þessa fall- egu veggi, sem eru hreinustu listaverk í línum og formi. — E.Pá. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.