Morgunblaðið - 24.08.1975, Síða 21

Morgunblaðið - 24.08.1975, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. AGUST 1975 21 þvf yfir að hafsbotninn á djúp- sævi sé „sameiginleg arfleifð mannkynsins." En þessi yfir- lýsing gerir ekki meira en að rétt minnast á vandann. Hvernig á að bregðast við hagsmunaárekstrum einstakra þjóða og heimshluta eða aðstöðumuninum sem felst f mis- munandi tækniþekkingu? Leys- um við samkeppnisvandamál þetta með þvf að koma á nauðsyn- legri reglu? Bandaríkin þurfa ekki að kvfða samkeppni því tækniþekking okk- ar er meiri en annarra og sjóher okkar er nægilega sterkur til að vernda okkar hagsmuni. Verði ekki látnar rfkja grundvallarregl- ur um vinnslu þessara málma mun samkeppnin fyrr eða sfðar leiða til átaka. Kapphlaup um að búta niður hafsvæði fyrir einstök ríki til að vinna verðmæti hafs- botnsins, jafnvel án þess að að krafizt sé algers yfirráðaréttar, mun ógna siglingafrelsi og leiða til samkeppni á borð við þá sem nýlenduveldin stunduðu í Afríku og Asíu á síðustu öld. Við viljum ekki að þetta gerist. Það er tækifæri til að láta lög og rétt ráða ferðinni frá upphafi f nýrri samkeppni. Við teljum að hinn nýí haf- réttarsáttmáli verði að vernda þau réttindi til vinnslu auðæfa hafsbotnsins sem rfki og einstakir þegnar þeirra njóta samkvæmt núgildandi alþjóðalögum. Tillaga nokkurra þróunarlanda um að fela alþjóðlegri stofnun alla vinnslu á hafsbotnssvæðum er ekki framkvæmanleg. Þrátt fyrir það telja Bandaríkin eindregið að alþjóðleg lög eigi að gilda um starfsemi á þessu sviði. Mannkynið stendur frammi fyrir sögulegu tækifæri til að hagnýta sér þessi nýju auðæfi í samvinnu og nota afrakstur af vinnslu auð-' æfa í hafsbotni í þágu fátækra þjóða. Lausn sem byggir á sam- vinnu og réttlæti getur orðið upp- haf nýs samstarfs milli þróunar- landanna og iðnþróuðu rfkjanna. Hún myndi verða ferskur hvati til frekari framfara í sambúð iðn- aðarlandanna og hins svokallaða þriðja heims. Það lögfræðilega form sem komið verður á f sam- bandi við nýtingu auðæfa hafs- botnsins getur orðið vegvísir í lög- fræðilegri og pólítískri þróun samskipta þjóða heims. Tillögur Bandarfkjanna um hafsbotnsstofnun Bandaríkin hafa lagt mikla vinnu í athugun þessa máls. Við komum með eftirfarandi tillögur: — Komið verði á laggirnar al- þjóðastofnun til þess að setja regl- ur um námavinnslu á hafsbotni. — Þessi stofnun gæti réttar allra landa og þegna þeirra til að standa að þessari vinnslu. — Stofnunin gæti þess enn- fremur að skorið verði úr deilu- málum sem upp kunna að koma og að öryggi fjárfestingar verði tryggt. — Ríki og þeir þegnar þeirra sem stunda málmvinnslu á hafs- botni greiði tiltekinn hundraðs- hluta tekna þeirra til stofnunar- innar sem nota skal f þágu þróun- arlandanna. — Stjórn stofnunarinnar og at- kvæðisréttur einstakra ríkja sé f samræmi við þá hagsmuni sem þátttökuríkin eiga að gæta. Stofn- unin hafi ekki völd til að ráða verðlagningu eða framleiðslu- magni einstakra málma. — Sé fallizt á þessi grundvallar- skilyrði Bandarfkjanna getum við fallizt á að stofnunin standi einn- ig sjálf að vinnslu þessara málma f þágu þróunarlandanna. — Hin nýja stofnun verði mið- stöð samstarfs milli þeirra landa sem eru tæknilega háþróuð og þróunarlandanna. Bandarikin eru reiðubúin að kanna leiðir til að deila þeirri tækni sem þarf til vinnslu málma á hafsbotni með öðrum þjóðum. — Nefnd skipuð fulltrúum neytenda, þeirra er vinna málma á hafsbotni og þeirra er vinna sömu málma f námum á landi fyígist gaumgæfilega með þeim óheillavænlegu áhrifum sem vinnsla málma af hafsbotni kann að hafa á efnahag þeirra þróunar- landa sem háð eru útflutnings- tekjum af málmum sem einnig eru unnir úr hafsbotninum. Bandarfkin telja að þjóðir heims standi frammi fyrir gull- vægu tækifæri. Reglurnar um hafsbotnssvæðið geta hætt að vera aðeins til f hugum manna og orðið að veruleika. Bræðralagið sem mannkyninu hefur ekki auðnast að gera að veruleika á þurru landi kann að verða að raunveruleika f þessum reglum um hafið. Bandaríkin bíða, en ekki endalaust Bandaríkin munu halda áfram að vinna að því að endanlegur árangur náist þegar hafréttarráð- stefnan kemur saman að nýju á næsta ári. En við verðum að gera okkur ljóst að Bandaríkin geta ekki endalaust sniðgengið eigin hagsmuni sína og látið hjá líða að tryggja sér öruggt framboð mikil- vægra hráefna og beðið eftir sam- komulagi sem æ ofan f æ dregst á langinn. Við kjósum helzt að al- mennt alþjóðlegt samkomulag takist um lagalega hlið náma- vinnslu á hafsbotni áður en slík vinnsla hefst fyrir alvöru. Allar þjóðir bera jafna ábyrgð á því sjálfar aðslfktsamkomulag náist áður eh vinnsla hefst. Við getum sjálfir ekki beðið öllu lengur áður ken vinnsla okkar hefst. Með þetta í huga getum við og aðrir væntan- legir framleiðendur hugleitt hvaða skref er nauðsynlegt að stfga til að vernda þá fjárfestingu sem þegar hefur verið ráðist í. Hafréttarráðstefnan stendur einnig frammi fyrir öðrum mikil- vægum málefnum: — Finna verður leiðir til að auka enn rannsóknir á hafinu mannkyninu öllu til hagsbóta, þó þannig að gætt verði lögmætra Ihagsmuna strandríkja innan auð- ijindalögsögu þeirra. — Gera verður ráðstafanir til varnar gegn mengun hafsins. Við verðum að koma á fót alhliða al- þjóðlegum menungarstöðlum fyr- ir skip og leggja áherzlu á að alls staðar verði farið að reglum um umhverfisvernd á landgrunns- svæðum og við djúpsjávarvinnslu. — Tryggja verður aðgang land- luktra ríkja að hafinu. — Setja verður ákvæði um óhlutdrægan dómstól til að skera úr deilumálum, sem skylt verður að hlíta. Bandarfkin geta ekki fallizt á að ríki geti einhliða túlk- að ákvæði svo umfangsmikils sátt- mála né að alþjóðahafsbotnsstofn- unin ein geti það. Hin hraða tækniframrás, efna- hagsleg þörf og kröfur sem skap- ast hafa vegna hugmyndafræði og þjóðarmetnaðar hafa orðið til þess að hætta er á því að samn- ingaviðræðurnar sigli f strand. * Þess vegna telja Bandaríkin að réttlátar og hagstæðar reglur um höfin séu grundvallarnauðsyn ef halda á frið í heiminum. Eiginhagsmunir fjölda ríkja eru I veði. Fari samningaviðræð- urnar út um þúfur er hætta á að traust á víðtækum samningaum- leitunum almennt fari dvinandi og trú á alþjóðasamninga sömu- leiðis. Takist á hinn bóginn á ná samkomulagi um hafréttarsátt- mála yrði það nýr áfangi á leið mannkyns til víðtækara sam- starfs. Uggvænlegir atburðir minna okkur í sífellu á hversu vanda- málin eru aðkallandi. Mestur er vandinn í sambandi við fisk- veiðar. Viljum bráðabirgðasam- komulag um fiskveiðar. Bandaríkin geta ekki endalaust setið auðum höndum og látið er- lendar þjóðir óheft veiða fiskinn undan ströndum landsins án til- lits til ástands fiskstofna. Mörg- um fiskstofnum hefur verið nær útrýmt. vegna ofveiði erlendra skipa. Við höfum nýlega gert sam- komulag við Sovétríkin, Japan og Pólland semleiðamuntil minnk andi sóknar þessara þjóða á miðin og við höfum lengi átt gott sam- starf við Kanadamenn um vernd- un fiskstofna. En meira er þörf. I þinginu er lagt til að vanda- málið verði leyst með einhliða að- gerðum. Frumvarp var samþykkt í öldungadeildinni á siðasta ári sem gerði ráð fyrir útfærslu í 200 mílur og annað sama efnis er nú til afgreiðslu I fulltrúadeildinni. Stjórnin hefur sömu áhyggjur og þeir sam lagt hafa fram þessi frumvörp. En einhliða aðgerðir eru bæði stórhættulegar og að auki ekki í samræmi við afstöðu Bandaríkjanna til samninganna eins og henni hefur hér verið lýst. Bandaríkin hafa alltaf lagzt gegn einhliða kröfun annarra ríka og aðrar þjóðir munu áreið- anlega standa gegn okkar ein- hliða kröfum. Einhliða aðgerðir okkar munu nær örugglega verða til þess að aðrar þjóðir gera enn freklegri kröfur en við. Geta okkar til að semja um hagstætt alþjóðlegt samkomulag um auð- lindalögsögu mundi minnka til muna. Ef allar þjóðir setja sfnar eigin reglur og lög og reyna að þröngva þeim upp á aðrar er graf- ið undan grundvelli þjóðréttarins sem mun verða okkur sjálfum í óhag þegar fram í sækir. Við lýsum ánægju okkar með nýlega yfirlýsingu Trudeaus for- sætisráðherra Kanada þar sem áherzla var lögð á nauðsyn þess að ná samkomulagi á hafréttarráð- stefnunni frekar en með einhliða aðgerðum. Hann sagði: „Við ætt- um að gera okkur ljóst að við höfum mjög mikilla hagsmuna að gæta á hafréttarráðstefnunni og það væri fíflska að kasta þessum hagsmunum fyrir borð með að- gerðum sem yrðu einungis árang- ursrfkar á pappírnum og til bráðabirgða.“ Þessi afstaða mun einnig verða ráðandi um okkar aðgerðir. Bandaríkin munu gera bráða- birgðasamninga við aðrar þjóðir til að vernda fiskstofna og gæta hagsmuna sjávarútvegsins í landi okkar á meðan verið er að ná endanlegu samkomulagi í því skyni að tryggja lífsviðurværi sjó- manna okkar. Þessir samningar verða f gildi þar til endanlegt samkomulag um 200 mílna lög- sögu tekur gildi. Við litum svo á að það sé í hag þeim þjóðum sem veiða við strendur okkar að vinna með okkur í þessu tilliti. Við mun- um styðja viðleitni annarra ríkja til að leysa svipuð vandamál með hliðstæðum aðgerðum. Við mun- um freista þess að eiga gott sam- starf við þingið, fylkisstjórnir, al- menning og erlendar rfkisstjórnir i þvf skyni að framfylgja 200 mflna lögsögunni þegar sam- komulag hefur náðst á hafréttar- ráðstefnunni. Árangur verður að nást Einhliða löggjöf um þessi mál er sfðasta úrræðið. Heimurinn hefur ekki efni á því að láta vandamálin á hafréttarráðstefn- unni ráðast af hendingu einni. Við erum einmitt nú á einu af þeim sjaldgæfu augnablikum þegar þjóðir heims hafa hitzt til þess að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir deilur og ráða örlögum sfnum í framtíðinni í stað þess að leysa vandamál sem þegar eru risin eða fást við eftir leik strfðs. Þetta verður að takast-. Bandaríkin eru staðráðin í að aðstoða við að ljúka ráðstefnunni á árinu 1976 áður en atvikin taka frá okkur völdin og gera alþjóð- legt samkomulag endanlega að draumi sem aldrei rætist....“ Tæklfærlð má ekkl glalast Úrdráltur úr ræðu Henry Kisslngers utan- rlkisráðherra Bandaríkjanna um Dlóðarétt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.