Morgunblaðið - 24.08.1975, Síða 22

Morgunblaðið - 24.08.1975, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGUST 1975 umsjón: TRYGGVI GUNNARSSON Frá sýningu i Spánska reiðskólanum Í Vin. Hópferð á Evrópumótið: Spánski reiðskól- inn heimsóttur Sigurvegarar í B-flokki gæðinga. Talið frá v. Aðalsteinn Aðalsteinsson á Seif, Kristján Þorgeirsson á Goða og Páll Kristjánsson á Snerri. Ljósm. t.g. Kappreiðar Harðar: Unghross dœmd sérstaklega Eins og áður hefur verið sagt frá hér í þættinum verður Evrópumeist- aramót islenzkaettaðra hesta haldið i Semriach i Austurriki dagana 12.—14 september nk Kepp- endur á mótinu verða frá Íslandi. Danmörku, Noregi, Austurriki, V- Þýzkalandi, Hollandi, Frakklandi og Sviss. Hver þjóð sendir sjö keppnis- hross en meðal keppnisgreina er viðavangshlaup og sérstök skeið- keppm Ákveðið hefur verið að frá íslandi verði farin sérstök hópferð á þetta mót Það er Ferðaskrifstofan Úrval, sem annast skipulag þessarar ferðar, en fararstjóri verður Sigurður Árni Sigurðsson. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem þátturinn fékk hjá Úrval, er ekki hægt að taka við fleiri pöntunum vegna þess hversu skammt er þar til lagt verður upp i ferðina Skipulögð hefur verið tíu daga ferð og verður lagt af stað héðan að morgni hins 7 september og komið þann 16 september n.k Á öðrum og þriðja degi verður farið í skoðunarferðir um Vin og nágrenni hennar og verð- ur leiðsögumaður með i ferðinni Meðal þeirra staða, sem skoðaðir verða, er Spánski reiðskólinn en þetta er einn frægasti reiðskóli Evrópu Á fjórða degi verður farið til Semriach og verða á leiðinni skoðaðir ýmsir athyglisverðir staðir. Næsta dag verður borgin skoðuð og komið verður í heimsókn á hrossa- kynbótastöð. þar sem ræktaðir eru Lippizan-hestar, en þeir eru sá stofn, sem hestar Spánska reiðskólans eru af Eins og áður sagði stendur meist- Það sem af er þessu ári hafa verið fiuttir út frá íslandi um 300 hross. Mest hefur verið flutt út á vegum Sambands íslenzkra samvinnufélaga eða rúmlega 250 hross og hafa flest þeirra farið til V-Þýzkalands. Í samtali við Magnús Yngvason, sölufulltrúa hjá S.Í.S., kom fram að uppskerubrestur vegna þurrka ! Skandinavíu hefði valdið því, að hrossainnf lytjendur þar hefðu dregið saman seglin. Hrossaeig- endur f Svíþjóð, Danmörku og Noregi eiga nú f miklum erfið- leikum með að fá beit fyrir hross sfn og Ijóst er að fóðrun i vetur verður mjög dýr vegna heyleysis. Ljóst er þv! að á þessu ári verður vart um að ræða hrossaútflutning til þessara landa S.Í.S. ætlar í haust að standa fyrir auglýsinga- herferð í Svíþjóð og verða i þeim tilgangi fluttir út 3—4 góðir hestar og fyrirhugað er að halda þar mót, þar sem þessir hestar verða sýndir. Fyrr þessu ári samþykkti sænská rfkisstjórnin að fella niður aramótið yfir dagana 12.—14. september Hestarnir, sem fara frá jslandi, fara héðan 5 september með flug- vél til Rotterdam Þegar eru tveir þeirra komnir út en alls verða kepp- endur frá hverju landi sjö Hestarnir, sem komnir eru út. eru Dagur, sem fluttur var út fyrir nokkrum árum en er i eigu Sigurbjörns Eiríkssonar, og Skúmur, sem valinn var á úrtöku- mótinu hér heima í vor en var fluttur út fyrr í sumar. Báðir þessir hestar eru nú í þjálfun hjá Reyni Aðal- steinssyni, sem dvelur í V- Þýzkalandi Á þeim Evrópumótum, sem haldín hafa verið, hefur gengið á ýmsu með þá hesta, sem frá íslandi hafa farið Bæði hefur breytt fóður og loftslagsbreytingar haft áhrif á hestana og hitt að flutningur þeirra hefur oft verið erfiðleikum bundinn. Að þessu sinni ætla þeir, sem annast útflutning hestanna, að reyna að læra af reynslunni Frá Rotterdam verða hestarnir fluttir með bíl suður til Bayern ! Þýzkalandi en gert er ráð fyrir að það taki um 20 klukkustundir að aka þessa leið og á að aka fyrst i 10 tima og hvila hestana þá Þegar kemur til Bayern verða hestarnir settir f sótthreinsað hesthús og þarna hvilast þeir i sólar- hring en siðan verður haldið áfram til Semriach Á leiðinni út og á meðan á mótinu stendur verða hest- arnir fóðraðir á íslenzkum hey- kögglum til að koma í veg fyrir fæðubreytingar og afleiðingar þeirra Með hestunum, sem keppa á mótinu, fara 15 hestar, sem seldir hafa verrð til Austurríkis innflutningsgjöld á 300 hrossum frá islandi á þessu ári. Þessi niður- felling hefur i för með sér, að til muna er ódýrara að flytja hross til Sviþjóðar. Magnús taldi mjög ósennilegt að íslendingum tækist að nota þetta tækifæri til að auka útflutning hrossa til Svfþjóðar. Veldur þvi fyrrnefndur uppskeru- brestur vegna þurrkanna og hitt, að heimildin var ekki veitt fyrr en f júli og þá átti eftir að finna um- boðsmenn erlendis Það kom einnig fram hjá Magnúsi, að fyrir dyrum stendur sérstök augtýs- ingaherferð á íslenzka hestinum i Sviþjóð. Verða í þeim tilgangi fluttir út 3-—4 góðir hestar og haldið sérstakt mót fyrir fslenzk hross, þar sem þessir hestar verða sýndir. Magnús sagði að erfitt væri að segja um hversu mörg hross yrðu flutt út það sem eftir væri ársins. Meðalverð þeirra hrossa, sem flutt hafa verið út það sem af er þessu ári, hefur verið um 100 þúsund krónur og er þá ihiðað við tamda töltgenga hesta. 24 af 44 hryssum komust 1 ættarbók - rætt við Þorkel Bjamason UM SÍÐUSTU helgi héldu hesta- menn á Suðurlandi stórmót á Hellu Var ánægjulegt að fylgjast með sýningu þeirra hrossa, er þar koma fram Áður hefur verið sagt frá úrslitum mótsins i Mbl. Á mót- inu fór fram sýning kynbótahrossa og voru þar sýndar hryssur i þrem- ur flokkum og einn stóðhestur með afkvæmum. Þátturinn leitaði til Þorkels Bjarnasonar, hrossa- ræktarráðunauts og spurði hann álits á þeirri mynd, sem þarna birtist af hrossarækt á Suðurlandi. Hvernig var þessi sýning á Hellu i samanburði við Fjórðungsmótið að Faxaborg? „Ég verð að segja, að þessi sýning var til muna betri en á Fjórðungsmótinu og einkum þegar tekið er tillit til þess að hrossin voru ekki valin fyrir mótið á Hetlu. Útkoman i dómum hjá hryssunum var góð að minu áliti. Sýndar voru 44 hryssur og af þeim komust 24 í ættbók, þ.e. fengu I. eða II. verð- laun. Þrjár hryssur fengu fyrstu verðlaun og það er gott því þetta voru hryssur, sem ekki hafa komið áður til dóms. Af þessum tuttugu, sem ekki fengu I. eða II. verðlaun voru aðeins 3 til 4, sem voru ómögulegar og áttu ekkert erindi m Stjarni frá Bjóluhjáleigu á mótið. Hinai voru misjafnar en þó ýmislegt gott i þeim, og sumar góð reiðhross." En sýningin á Stjarna frá Bjólu- hjáleigu, sem þarna var sýndur með afkvæmum? „Þetta var með betri afkvæma- sýningum, sem fram hafa farið frá þvi að ég byrjaði i þessu starfi. Breiddin í afkvæmunum var mikil, sérstaklega hafa þau sótt sig mjög hvað snertir vilja. í þessum hesti mætast gamlir stofnar á Suður- landi en i föðurætt er hann af Kollukyni frá Kirkjubæ. Móður- ættin er út af Nasa en móðir Stjarna var undan Tvisti frá Skáldabúðum en hann var sterkur Nasahestur undan tveimur Nasadætrum." Ef dómsorð Stjarna eru skoðuð. verður ekki betur séð en afkvæmi Stjarna búi yfir þeim hæfileikum. sem henta vel til útflutnings Er Stjarni ef til vill kjörinn hestur til að rækta undan hross til útflutn- ings? „Það er rétt að sfkvæmi Stjarna búa öll yfir góðu brokki og tölti og stundum einnig ske:í>i en þetta eru þeir eiginleikar, sem útlend- ingarnir sækjast mjög eftir. Þá skemmir ekki fyrir að hrossin hafa góðan fótaburð og reisingu. Þessi hross, sem sýnd voru með honum, eru ung en vaxandi." KAPPREIÐAR Hestamannafélagsins Harðar i Kjósarsýslu fóru fram laugardaginn 16. ágúst á velli félagsins við Arnarhamar Þetta voru 25. kappreiðar félagsins en kapp- reiðar Harðar hafa flest árin verið siðustu kappreiðar sumarsins. Veður var gott og töluverður hópur fólks kom til að fylgjast með keppn- inni. Alls voru það um 50 hross, sem mætt var með til keppni. Gæðingakeppni fór fram i tveimur flokkum í A-flokki alhliðagæðinga sigraði Drottning, bleik, 14 vetra, eign Jóns M. Guðmundssonar á Reykjum. Hún hlaut einkunnina 8,13 og Gæðingsbikarinn. Drottn- ing stóð efst i flokki gæðinga hjá Herði fyrir nokkrum árum. Annar i A-flokki varð Geisli, brúnn, 10 v., eign Sigurlinu Gisladóttur. Meðal- felli, með einkunnina 8,03. Þriðji varð Hrani, rauður, 10 v., eign Hildar Valgeirsdóttur, með einkunn- ina 8,0. í B-flokki gæðinga stóð efstur Seifur, rauðblesóttur, 8 v., eign Sigurveigar Stefánsdóttur, Mosfells- sveit. Hann hlaut einkunnina 7,76 og Leosbikarinn til varðveizlu I eitt ár. Annar varð Goði, brúnskjóttur, 8 v., eign Kristjáns Þorgeirssonar, Mosfellssveit, með einkunnina 7,56 og þriðji varð Snerrir, jarpur, 8 v., eign Páls Kristjánssonar, Mosfells- sveit, með einkunnina 7,50. Fyrir nokkrum árum var tekin upp sú nýbreytni á kappreiðum Harðar að hafa sérstaka keppni unghrossa, þar sem hrossin eru dæmd með hliðsjón af tamningu þeirra. Verður ekki annað sagt en þessi sýning sé skemmtileg tilbreyting frá þessum hefðbundnu gæðingasýningum og ættu þær að opna augu manna fyrir hversu mikið vandaverk tamning hrossa er. Það er rétt, sem forsvars- maður dómnefndar unghrossanna sagði, er hann lýsti dómum þeirra, að nauðsynlegt er að fyrir hendi sé einhver dómstigi til að fara eftir við dóm þeirra. Það að hrossin eru sýnd á þessu stigi má ekki leiða til þess að farið sé að leita um of eftir kestum þeirra s.s. á gangi en slíkt kemur m.a. niður á höfuðburði hrossanna. Dómar unghrossanna fóru á þann veg að bezt var dæmd Hrefna, brún, 5 v., eign Kristjáns Þorgeirssonar' f flokki unghrossa voru alls sýnd 7 hross. í 250 m skeiði kepptu 7 hross og urðu úrslit þau, að fyrstur varð Hvinur, brúnstjörnóttur, 12 v., eign Sigurðar Sæmundssonar, á 24,9 sek. f öðru til þriðja sæti voru þeir Vafi, jarpur, 8 v., eign Erlings Ólafs- sonar, knapi Sigurður Ólafsson, og Máni rauður, 10 v., eign Sigurbjörns Eirikssonar, knapi Sigurður Sæmundsson. Báðir runnu hestarnir skeiðið á 25,0 sek. en dregið var um röð þeirra og hafnaði Vafi i öðru sæti. Úrslit i 250 m folahlaupi urðu þau að fyrstur varð Sleipnir, leirljós, 5 v., eign Harðar G Albertssonar en knapi Sigurbjörn Bárðarson, á 19,5 sek. Annar varð Léttir, jarpur, 6 v.. eign Binu Jónsdóttur, knapi Björg Stefánsdóttir, á 20,3 sek. Með þriðja bezta tímann voru tveir hestar, Magni Harðar G. Alberts- sonar og Grímir, eign Sigurbjörns Bárðarsonar f 300 m stökkinu sigraði Geysir, leirljós, 8 v., eign Harðar og Helga Harðarsonar, knapi Sigurbjörn Bárðarson, á 23,3 sek. Annar varð Goði, brúnskjóttur, 8 v., eign Kristjáns Þorgeirssonar, knapi Páll Þorgeirsson, á 23,3 sek og þriðji Mökkur, mósóttur, 8 vetra, eign Sigúrbjörns Bárðarsonar en knapi var Jóhann Tómasson, á 23,4 sek Þá var keppt i 400 m stökki og urðu úrslit þau, að fyrst varð Loka, rauð. 8 v., eign Þórdisar H. Alberts- dóttur, knapi Sigurbjörn Bárðarson, á 29,9 sek. Annar varð Óðinn, leir- Ijós, 7 y„ eign Harðar G. Alberts- sonar, knapi Jóhann Tómasson, á 30,6 sek. og þriðji Botna-Brúnn, brúnn, 8 v., eign Harðar og Sigur- björns, en knapi Hólmfríður Steinarsdóttir, á 31,3 sek í undan- úrslitum hlupu þau Loka og Óðinn á sama tima, 29,2, en það er sami timi og gildandi íslandsmet. Sérstök viðurkenning var veitt til handa bezta knapanum og hlaut hana Aðalsteinn Aðalsteinsson. Þvi má að lokum bæta hér við, að völlurinn var mjög þungur vegna bleytu. t.g. Það var hart barizt í undanúr- slitunum i 400 m stökki, en þau Loka og ÓSinn komu jafnt aS marki og á sama tima og gildandi fslandsmet. 300 hestar fluttir út það sem af er árinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.