Morgunblaðið - 24.08.1975, Page 33

Morgunblaðið - 24.08.1975, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGUST 1975 33 — Bílar Framhald af bls. 8 séu lfkur á leka. T.d. pollur undir bílnum. Mikilvægt er að næg olía sé á vélinni (og auð- vitað einnig á drifi og gír- "kassa), sömuleiðis vatn/frost- lögur á kælikassa ef um vatns- kældan bíl er að ræða. Þá geta menn sjálfir prófað hvort bíllinn gengur á öllum (strokkum) með því að taka einn kertaþráð úr sambandi í senn og athuga hvort ganghljóð bílsins breytist við það. Ef engin breyting verður gengur bíllinn ekki á viðkomandi strokk en ef breyting verður á ganghljóðinu er væntanlega allt í lagi. Menn geta þó þurft að hlusta vel ef um 8 strokka vél er að ræða. Einnig getur komið fyrir að bíll gangi ekki á öllum meðan hann er kaldur en slikt þarf ekki að vera nein alvarleg bilun. Mikilvægt er að reyna öll öryggistæki bílsins þannig að líkur séu á að hann fari í gegn um skoðun, ef menn eru þá á annað borð að kaupa ökufæran bíl, þar eð ávallt á að skoða bíl við umskráningu. Æskilegt er að láta seljandann fara með bíl- inn í gegn um skoðun ef menn vilja vera vissir um að helztu tæki séu í góðu lagi. Seljandi verður að varast að láta umskráningu af hálfu kaupanda dragast þar eð selj- andi er ábyrgðarmaður bilsins þar til umskráning hefur átt sér stað. Mjög vel verður að gæta að ryði, sérstaklega ef bíllinn er orðinn nokkurra ára. Oft getur leynzt ryð undir nýlegu lakki. Bíllinn kann að hafa lent i hörðum árekstri og getur hugsanlega hafa skekkzt eitt- hvað eða misfarizt við það sem ekki hefur tekizt að laga. Yfir- leitt má sjá einhver merki meiriháttarárekstra ef um þá hefur verið að ræða, svo sem brotið lakk eða annan litblæ á hluta bílsins. Skökk vélarhlíf eða skottlok geta sömuleiðis verið afleiðing áreksturs. Endursprautun vill oft brotna upp fyrr en upphaflegt lakk og er full ástæða til að spyrja hvort notaður bíll hafi verið sprautaður allur eða að hluta og hvers vegna. — Ymislegt getur tfnzt til er lækkar verð bílsins. Slitin dekk eru stórt atriði þar eð dekkjagangurinn kostar tugi þúsunda undir venjulegan fólksbíl. Með því að taka á fram- hjólunum og skaka þeim til má finna hvort los er á þeim. Þó gamall bíll skrölti þarf ekki að vera mikið að, a.m.k. er sjálfsagt að byrja að kanna hvort það stafar ekki frá laus- um hlutum f farangursgeymslu eða hanzkahólfi. Á framdrifnum bílum er sér- staklega vert að gefa gaum að gírkassanum og kanna hvort skiptingar eru óeðlilegar stirðar. Það kemur strax í ljós í prufukeyrslu. Þá kemur einnig í ljós hvort bremsur taka skakk: í. Ve. ð notuðu bílanna er yfir- leitt f hámarki yfir sumarið en lækkar með vetri, sérstaklega á elztu bílunum, nema þegar gengisfellingar hækka verð nýju bílanna upp úr öllu valdi. Á sumrin er hins vegar oft mesta úrvalið af notuðum bílum. br. h. Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morg- unblaðið á Húsavík. Upplýsingar á afgr. Mbl. á Húsavík, sími 41155 eða á Akureyri 23905 eða í Reykjavík í síma 10100. lÍFÁNDi MfáiRl Á morgun mánudaginn 25. ágúst verður hin umdeilda heimildarmynd „ERN EFTIR ALDRI'' (27 mín. 16 mm. litmynd) eftir Magnús Jónsson frumsýnd í Laugarásblói. f myndinni er fjallað um spúrninguna: Hvað sameinar þjóðina? M.a. svara þessari spurningu þau: Eyvindur Erlendsson, Jón Böðvarsson, Þóra Friðriksdóttir, Krist- björg Kjeld og Sigurður A. Magnússon. Þá flytur Bryndís Schram hagfræðilegan fróðleik og Böðvar Guðmunds- son syngur einn af sínum alræmdu söngvum. Myndin verður sýnd á klukkutímafresti, kl. 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 og 11 I Laugarásbíó. AÐEINS ÞENNAN EINA DAG f EF ÞAÐ ER FRÉTT- / NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Toyota stærsti framleiðandi Japans i lyfturum býður eitt fjölbreyttasta úr- val vörulyftara í stærðum frá 700 kg. til 30 tonna lyftigetu Drifnir með Rafmagni, Gasi, Berzíni og diesel. Sem og Toyotabílar hafa Toyota vörulyftarar náð vinsældum, fyrir styrkleika og góðan frágang. Skoðið og kynnist Toyota vörulyft- ara á Vörusýningunni í Laugardals- höll útisvæði nr. 120 í8*»n;. Nýbýlavegi 10 sími 44144. \ TOVOtfc Tovon tÖtoTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.