Morgunblaðið - 24.08.1975, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. AGUST 1975
45
VELVAKANDI
Velvakandi svarar í sírna 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Hvernig verðlags-
eftirlitið virkar
á Austf jörðum
Herdfs Hermóðsdóttir,
Eskifirði skrifar:
„Svo er mál með vexti, að há-
marksverð á franskbrauðum er
auglýst hækkað úr 60 krónum í
65. Það verð erum við austfirzkar
húsmæður búnar að greiða í
marga mánuði fyrir formbökuð
franskbrauð, en fyrir hin höfum
við greitt 62 krónur á sama tíma
og hámarksverð í Reykjavík og
væntanlega annars staðar, ef
dæma má af auglýsingum verð-
lagsyfirvalda, er krónur 60. Nú
eru franskbrauð, formbökuð,
hækkuð upp í 73 krónur, en hin
eru komin i 68 krónur. A sama
tíma og verðlagsyfirvöld auglýsa
hækkun á rúgbrauðum úr 78
krónum í 90 erum við búin að
greiða i marga mánuði kr. 118.
Tekið skal fram, að það eru seydd
brauð. Nú er verðið sett upp i 136
krónur hér.
Smjörlíki og jurtasmjörlíki
lækkar svo hinn 15. ágúst. Nýtt,
sem sjaldan gerist. Það er að vísu
enn á sama verði hér, það er að
segja, við höfum í marga mánuði
greitt fyrir eitt kg af jurtasmjör-
liki 450 krónur, þótt auglýst há-
marksverð væri 396 krónur. Sé
svona verðlagning réttlætanleg og
það á vöru, sem er háð hámarks-
verðlagningu, og sé þetta svo
víðar en hér, þá sýnist mér tíma-
bært að leggja niður hið svo-
nefnda verðlagseftirlit. Og í
annan stað er forkastanlegt, að
fólkið, sem býr við þyllikan verð-
mismun á verðlagi nauðsynja-
vöru, skuli vera látið greiða sömu
skattprósentu og þeir, sem við hin
betri kjör búa.
Með þökk fyrir birtinguna,
Herdís Hermóðsdóttir."
0 Tollaafsláttur
til leigubílstjóra
Hreiðar Þórhallsson skrif-
ar:
„Kæfi Velvakandi.
Mig langar til að senda nokkrar
linur út af óánægju þeirri, sem
komið hefur upp hjá leigubílstjór-
um út af mælum þeim, sem
margir þekkja undir nafninu
„kjaftakerlingarnar" og þeir eiga
nú að fá á bíla sína.
ja — mikið vill meira.
Þessi stétt fær mörg hundruð
þúsund króna afslátt á bilum sin-
um er þeir kaupa þá. Þetta er
ívilnun I sambandi við tolla, en að
lega vfs að hegðun hennar átti sér
aðrar orsakir. Hún var stolt, sjúk-
lega stolt og hrokafuli. Ég hef
beðið fyrir henni, ákallað guð al-
máttugan um hjálp, en það iila f
henni var of sterkt. Ég hef að eins
einu sinni f öll þessi ár lagt hend-
ur á hana og það var kvöldið sem
ég fann hana með Jamie Goaelick
á ófélegu hóteli. Ég dró hana með
mér heim, og iamdi hana eins og
vitlaus maður. Ég viðurkenni það
að ég var trylltur, en hún sagði
ekki eitt einasta orð, grét ekki,
heyrðist ekki frá henni stuna.
Loks sleppti ég henni, en hún var
hrædd um ég myndi ráðast á sig
aftur og hopaði f áttina að elda-
véiinni. Yzt á vélinni stóð ketill
mcð sjóðandi vatni, en tunga mfn
var sem lömuð, ég fékk ekki ráð-
rúm til að aðvara hana, áður en
ketilinn steyptist yfir hana. Hún
hrópaði upp yfir sig eínu sinni,
en neitaðí að leyfa mér að hjálpa
sér.
Hún sagði móður sínni aldrei
hvaö gerzt hefði, hvorki um refs-
ingu mfna né að hún hefði
brcnnzt á lærinu. Hún róaðist dá-
lítið eftir þetta kvöld, en ég vissi
að hún beið ... beið ... Ég varð
sannspár, daginn sem hún hafði
vísu þurfa leigubílstjórarnir að
eiga bílana í þrjú ár. Mér er ekki
kunnugt um,- að aðrir, hvorki
vörubilstjórar né aðrir með bíla
eða vélar f vinnu, fái þennan
óafturkræfa afslátt.
Nú kom i dagblöðum fyrr í
sumar það undarlega, að þegar
bensinverð hækkaði svo mjög, þá
hafi „bensinleigubilstjórar" ekki
séð sér annað fært, ef reksturinn
ætti að borga sig, en að kaupa sér
dieselbila. En þegar staðið er upp
i árslok, kemur í ljós, að útkoman
hafði eftir allt saman ekki verið
neitt betri. Hvernig má það vera,
þegar það er vitað mál, að olia er
margfalt ódýrari en bensin?
Er hér ekki verið að hagræða
sannleikanum?
Leigubílstjórar eiga að greiða
kr. 2,80 á kílómetra samkv. mæli í
þungaskatt frá og með 25. ágúst.
Aki leigubílstjóri 50 þús. km. á ári
verða það um 140 þús. krónur,
sem hann á að greiða í þunga-
skatt, eða 384 krónur á dag, aki
hann 365 daga á ári.
Nú sýnist manni, samkv. álögð-
um sköttum a.m.k., að flestir
þessara manna aki ekki nema
35—30 þús. km. á ári, þannig að
þeir ættu þá að greiða 190—210
krónur á dag.
Nú heyrist það af vörum
þessara manna, að þeir muni
þverskallast og ætli sér að halda
áfram að aka, án þess að láta setja
mæla í bilana á tilsettum tima. Ég
fæ ekki séð, að leigubílstjórar eigi
að vera nein sérréttindastétt, og
furða mig þvi stórlega á þessari
frekju. En þarna sannast hið forn-
kveðna, að „sjaldan launar kálfur
ofeldið“.
Með þökk fyrir birtinguna,
Hreiðar Þórhallsson.“
0 Húsmóðurraunir
og brauðkaup
Húsmóðir ein fyrir vestan
læk kom að máli við okkur og
fórust henni m.a. svo.orð:
„Ég verzla að staðaldri í sömu
verzluninni, þar sem hægt er að
fá alla algenga matvöru, kjöt
brauð og annað, sem maður þarf
yfirleitt að kaupa daglega. í
þessari búð fást ágæt brauð og
koma þau venjulega um hádegis-
bilið. Eitt er það I sambandi við
þessa brauðsölu, sem ég á ákaf-
lega bágt með að sætta mig við,
enda þótt ég sé nú orðin svo klók
og útsmogin af langri reynslu, að
það bitni ekki á mér. Þeir, sem
ríkjum ráða í þessari verzlun hafa
það nefnilega fyrir sið, að setja
brauðin, sem afgangs urðu daginn
áður, fremst á hilluna, en nýju
brauðin eru falin bák við. Að mín-
um dómi er hér um óviðurkvæmi-
lega verzlunarhætti að ræða. Það
brauðverð, sem ákveðið er af
verðlagsyfirvöldum, miðast við
vöru í fyrsta flokks ástandi, en
ekki dagsgömul, þurr og hörð
brauð. Með þvi að ota gömlu
brauðunum að viðskiptavinum,
en fela hin er verið að gabba fólk.
Fyrir nokkru var ég stödd inni í
þessari búð til að kaupa brauð.
Við hilluna stóð lítil telpa og tók
hún eitt af fremstu brauðunum,
franskbrauð frá deginum áður.
Ég sneri mér að henni og sagði:
„Þú skalt láta þetta brauð eiga
sig, en taka heldur nýtt brauð,
sem er á bak við.“ Telpan leit á
mig undrandi, en fór svo að ráð-
um mínum. Starfsstúlkan i
verzluninni fylgdist með þvi, sem
fram fór, og sagði með þjósti:
„Það er ætlazt til þess, að nýju
brauðin séu ekki tekin fyrr en hin
eru búin.“
Samt lét hún sig hafa það að
afgreiða bæði mig og telpuna, en
þetta þótti mér svo mikil ósvífni,
að ég hef varla kynnzt öðru eins.“
HÖGNI HREKKVISI
Ég ætla sjálf að lesa á vigtina!
SlGeA V/öGA í 1/LVtRAM
Petta gerðist líka..
Sitt lítið af hverju
EFTIR úrhellisrigningu, sem batt enda á sex ára þurrkaskeið í Spænsku
Sahara. ákvað Mohamed Aliud að baða sig i einni af tjörnunum. sem
myndazt höfðu skammt frá þorpinu Smara. Hann drukknaði ... I fyrsta
skipti í sögunni hafa lögregluþjónar Lundúnaborgar fengið að vinna
störf sfn á götum úti bindislausir. Hitasvækjan hefur gert þeim erfitt
fyrir eins og öðrum og til að gera þeim lifið léttara hafa þeir fengið að
taka af sér bindið — en bara þangað til hitastigið lækkar á ný . . .
Flugstjóri hjá British Airways hefur auglýst eftir einbýlishúsi í dýrasta
verðflokki og setur eitt skilyrði fyrir kaupum: Garðurinn þarf að vera
hæfilega stór til að þar geti lent þyrla . . . Lögreglan í París handtók tvo
þjófa. þar sem þeir sátu I bll sínum og voru að skipta feng sínum —
700 kllóum af smápeningum sem þeir höfðu stolið frá fyrirtæki sem
selur sælgæti I sjálfsölum vlða um París . . .
Ráðherrann snýr sér
að fyrirsœtustörfum
Elizabeth Bagaya prinsessa, fyrrverandi utanrlkisráðherra Uganda og
Amins, hefur fengið leyfi til að setjast að I Bretlandi og vonast nú til að
geta tekið upp að nýju fyrirsætustörfin, sem öfluðu henni tekna og
frægðar þar I landi áður en hún varð ráðherra. Elizabeth af Tore kallaði
hún sig, þegar hún var i þessu starfi I gamla daga. enda var hún
prinsessa lítils konungsríkis I Uganda, er Toro hét, en konungsríkið var
afnumið og faðir hennar llflátinn
fyrir einum átta árum. Idi Amin
gerði stúlkuna að utanrlkisráð-
herra sínum I febrúar I fyrra og
vakti mikla athygli með þvl vali.
Forveri hennar I starfinu hafði
hins vegar fundizt steindauður á
floti I á I Uganda. En I nóvember
sl. var Elizabeth umsvifalaust rek-
in úr embættinu og gaf Amin
henni m.a.að sök að hafa sóað
sjóðum ríkisins, látið taka af sér nektarmyndir og haft samband við
brezka og bandaríska njósnara. En fyrir utan allt þetta gerði hún Amin,
að hans sögn, ógurlega reiðan, er hún „átti kynmök við ókunnan
Evrópumann á salerni á Orly-flugvelli I Parls," sagði Amin. Sllkt athæfi
niðurlægði orðstlr kvenna I Uganda, taldi hann.
Hann á að leika Jesús
Fyrir fimm árum lagði Robert Powell á ráðin um það. hvernig bezt
væri að útrýma sér, og komst að þeirri niðurstöðu, að bezta leiðin væri
sú að láta tæta sig I sundur I ógurlegri sprengingu. Þannig tókst honum
að losa sig við sjónvarpshetju. sem var farin að fara I taugarnar á
honum — Toby Wren. Robert var nefnilega
leikari i vinsælum sjónvarpsþáttum i Bretlandi
— Doomwatch. En það eina sem hann hafði upp
úr því að láta sprengja sjónvarpshetjuna i loft
upp var sex mánaða atvinnuleysi og mörg
hundruð mótmælabréf frá óánægðum aðdáend
um. — Nú er Robert Powell að flestra dómi einn
fremsti ungi leikarinn i Bretlandi og hann stend-
ur nú á þröskuldi heimsfrægðar. Hann hefur sem sé verið valinn í
hlutverk Jesú Krists i sjónvarpsþáttaflokki, sem brezka sjónvarpsfyrir-
tækið ATV og italski kvikmyndaleikstjórinn Franco Zeffirelli ætla að
hefja töku á innan tiðar. Þættirnir verða alls sex talsins, klukkustundar-
langir, og er búizt við, að sýning þeirra hefjist i Bretlandi um jólin
1976.
Brjóstin mega sjást í Frakklandi
Franska vikuritið L'Express hefur birt niðurstöður skoðanakönnunar,
sem sýnir, að 76% Frakka hneykslast ekki lengur, þótt þeir sjá
berbrjósta kvenmann á almannafæri. Fyrir aðeins einu ári sýndi svipuð
könnun blaðsins France Soir, að helmingur Frakka var enn mótfallinn
berum brjóstum á baðströndum landsins. Hefur þvi orðið mikil hugar-
farsbreyting á skömmum tima. i könnun L'Express reyndust ekki færri
ein 93% fólks á aldrinum 18—34 ára vera hlynnt þvi, að kvenfólk væri
berbrjósta i sólbaði. Hitt er þó jafnvel enn þýðingarmeira, að næstum
helmingur kvæntra manna á öllum aldri kvaðst hlynntur því, að
eiginkona sln sýndi ber brjóst sin á almannafæri. — Allar helztu
baðstrendur I Frakklandi leyfa nú kvenfólki að spóka sig með brjóstin
ber án afskipta lögreglunnar, en fyrir nokkrum árum var öldin önnur
Þá var jafnvel komið upp dómstólum á hjólum, sem óku um strendurn
ar og sektuðu berbrjósta konur! — Hitt er svo annað mál, að i könnun
L'Express kom fram, að tveir af hverjum þremur Frökkum myndu
hneykslast, ef þeir sæju allsberan karlmann á almannafæri!
Allsber stúlka á ströndinni
Dómstóll i New Jersey i Bandaríkjunum tók fyrir skömmu fyrir kæru
miðaldra manns á hendur stúlkunni Jessicu Santos fyrir að hafa verið
að striplast allsnakin á baðströnd þar i riki. Þar eru i gildi lög sem kveða
á um allt að 100 dala sekt og 90 daga fangelsi fyrir athæfi sem þetta
en Jessica slapp við allt slikt. Hún heillaði dómarann með framkomu
sinni, enda þekkilegasta stúlka i svo stuttu pilsi, að glitti í röndóttar
nærbuxur innanundir. Það sem þó réð úrslitum um algera sýknun
hennar af kæruatriðinu var, að hún er aðeins þriggja ára!
VEM M£NN £R0 \ ^ÖON^A MlMUí ERO VEIZ
Amwoxr von\R iw w&Lowm m tawn-
lmmyi wmm $ sía wwswmw
sííga o?an á Lmmrow 06 m/\ \ Lon-
Y\Ö<ofOYl om I &%T4RTuYJmm