Morgunblaðið - 24.08.1975, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1975
47
— Guðrún frá
Lundi
Framhald af bls. 48
og bjuggu þar fram til 1939, að
þau fluttust á Sauðárkrók. Mann
sinn missti Guðrún árið 1960 og
bjó eftir það hjá börnum sínum í
Reykjavík.
Kunnasta verk Guðrúnar frá
Lundi er án efa Dalalíf, sem kom
út í fimm bindum á árunum
1946—1951. Var það jafnframt
fyrsta skáldsaga Guðrúnar, en
hún hóf ekki ritstörf fyrr en árið
1942, 55 ára að aldri. Síðan komu
út margar skáldsögur, lengi vel
ein á ári. ‘
Guðrúnu og Jóni varð þriggja
barna auðið.
— Ný þjónusta
Framhald af bls. 48
Athygli þeirra, utan höfuð-
borgarsvæðisins, sem vilja aug-
lýsa í smáauglýsingum Morgun-
blaðsins, er sérstaklega vakin á
því, að handhægt er að nota
eyðublaðið, sem birtist að stað-
. aldri í blaðinu, og senda það í
pósti ásamt greiðslum og birt-
ingardegi auglýsingar.
Smáauglýsingar Morgun-
blaðsins og móttaka þeirra er
kynnt á alþjóðlegu vörusýning-
unni, sem nú stendur yfir f
Laugardalshöllinni. Þar er
einnig tekið á móti auglýs-
ingum.
— Engar
kartöflur?
Framhald af bls. 48
mál. Væri verðið þrefalt hærra en
hann hefði talið æskilegt að
greiða fyrir erlendu kartöflurnar.
Erlendu kartöflurnar munu þó
alveg duga þar til Islenzk upp-
skera kemur á markaðinn.
— Margeir
Framhald af bls. 48
vinninga en Margeir kemur ekki
langt á eftir með 3'A vinning.
Þessi góða byrjun Margeirs er
einkum athyglisverð fyrir þá sök,
að hann er einn af yngstu þátttek-
endum mótsins, aðeins 15 ára
gamall, en flestir toppmennirnir
eru 19 og 20 ára gamlir.
„Ég tefldi biðskákina við Spán-
verjann Pablo I morgun og sömd-
um við um jafntefli f 60. leik.
Þetta voru hörmuleg úrslit þvi ég
var með unna stöðu en fór I röng
uppskipti í 51. leik og staðan jafn-
aðist. Þetta sama kom upp í skák-
inni í 5. umferð á móti Dananum
Carsten, þá var ég með gjörunnið
rétt áður en skákin fór í bið en lék
henni niður I jafntefli. Líklega er
þetta þreyta I mér, þetta hefur
verið anzi stift undanfarið, teflt á
hverjum degi og auk þess þrjár
biðskákir í röð.“
Margeir lét vel að aðstæðum á
mótsstað og sagði að mótið vekti
mikla athygli og áhorfendur væru
fjölmargir á hverjum degi. Tefld-
ar eru 13 umferðir eftir Monrad-
kerfi og átti Margeir að tefla við
Henao frá Kólombíu í gær. Mar-
geir og aðstoðarmaður hans,
Bragi Kristjánsson, báðu að lok-
um fyrir kveðjur heim.
— Matareitrunin
Framhald af bls. 29
in eða viðkvæm matvæli. Geyma
þarf kaldan mat vel kaldan
(1—4°C) en heitan mat vel heit-
an (60°C eða þar yfir). Hand-
fjatla skal matinn sem allra
minnst og sjóða upp viðkvæma
rétti sem síðasta stig í matargerð.
4. Gagngera og reglulega
hreinsun og sótthreinsun þarf að
gera á öllum tækjum og áhöldum,
svo sem skurðbrettum, innrétt-
ingum og húsnæði.
5. Starfsfólk við vinnslu og
dreifingu matvæla þarf að við-
hafa fyllsta persónulegt hreinlæti
I hvívetna.
— Papadopoulos
Framhald af bls. 1
bæjarstjóra og fulltrúa í bæjar-
stjórnum og skipaði stuðnings-
menn herforingjastjórnarinnar i
þeirra stað og svipti með til-
skipunum Grikkja erlendis er
börðust gegn stjórninni grískum
borgararétti. Hann varð aðstoðar-
ráðherra 1971 en sagði af sér
þegar Papadopoulos varð forseti
1973 og skipaði borgaralega
stjórn sem Pattakos var mótfall-
inn. Hann var handtekinn í
janúar 1975.
Nikolas Makarezos var yfir-
maður leyniþjónustunnar 1967 og
skipulagði byltinguna. Hann var
efndhagsráðherra en var skipaður
aðstoðarforsætisráðherra 1971.
Hann sagði af sér í september
1973 vegna ágreinings við
Papadopoulos. Hann var handtek-
inn í janúar 1975.
Dimitrios Ionnides var yfir-
maður herlögreglunnar. Hann var
yfirmaður herforingjaskólans
þegar byltingin var gerð og átti
mikinn þátt í bví að byltingar-
menn náðu Aþenu á sitt vald.
Hann vildi ekki gegna ráðherra-
embætti en bar ábyrgð á hörku-
legum aðferðum sem var beitt við
yfirheyrslur á pólitiskum
föngum. Hann steypti
Papadopoulos af stóli í nóvember
1973 og kom á einræði sem leiddi
til þess að þúsundir voru hand-
teknar. Sagt er að hann hafi
skipulagt byltinguna gegn
Makariosi forseta á Kýpur í júlí
1974 er leiddi til innrásar Tyrkja.
— Sihanouk
Framhald af bls. 1
Pyongyang, höfuðborg
Kambódiu, þar sem hann hefur
dvalizt undanfarna þrjá mánuði.
Khieu Samphan, foringi Rauðu
Khmeranna, sem tóku völdin í
Kambódíu í april, hefur rætt við
Sihanouk fursta í Pyongyang.
Rauðu Khmerarnir hafa viður-
kennt Sihanouk sem þjóðhöfð-
ingja en hann hefur hingað til
ekki viljað snúa aftur til
Kambódíu þar sem hann hefur
óttazt um öryggi fjölskyldu sinnar
samkvæmt góðum heimildum.
Ekki er Ijóst hve lengi
Sihanouk dvelst I Peking en talið
er að hann ræði við Chou En-lai.
forsætisráðherra. Sihanouk sett-
ist að í Peking þegar honum var
steypt af stóli i apríl 1970 og Kin-
verjar hafa stutt hann.
Furstinn hefur oft lýst því yfir
á undanförnum mánuðum að
hann hyggist ekki gegna virku
hlutverki i stjórnmálum Kam-
bódíu. Sumir telja að hann dvelj-
ist ekki lengi í Kambódíu og muni
taka að sér hlutverk nokkurs kon-
ar „farandsendiherra" landsins.
Sihanouk hefur lýst því yfir að
hann ætli að fara aftur til
Pyongyang I október til að taka
þátt í hátíðarhöldum á 30 ára
afmæli norður-kóreska kommún-
istaflokksins. Þegar hann kom til
Peking í dag voru í fylgd með
honum Khieu Samphan og Penn
Nouth, forsætisráðherra
Kambódiu, sem er sjúkur.
Litið var látið bera á komu
Sihanouks og tjöld voru fyrir
gluggum bifreiðar sem ók honum
frá stöðinni. Kambódiumenn
vildu ekkert segja um ferð hans
annað en það að hann væri á
förum til Kambódiu.
— Það hefur
Framhald af bls. 2
„Þó munaði einu sinni litlu
að ég lenti á bil á Hlemmi. Það
munaði bara svona Iitlu,“ sagði
hún og brá tveimur fingrun á
loft. Ekki var bilið stórt á milli
þeirra. „Sú saga hefur gengið
fjöllum hærra í Kópavogi, að
annar kvenbílstjórinn hefði
keyrt á Volvo-bil og eyáilagt
hann. Ég frétti nýlega, að það
hefði átt að hafa gerzt á
Hlemmi. Þá vissi ég, að sagan
var um mig.“
Farþegarnir hafa tekið því
vel að hafa stúlku við stýrið.
„Sumir hafa verið að segja við
okkur, að við værum beztu bíl-
stjórarnir. Ég veit ekki hvað er
til i því,“ sagði hún og hló.
Strákarnir í Kópavogi hafa lfka
verið að grínast, þegar þeir
hafa séð hana við stýrið, talað
um „kellingu“ og annað í þeim
dúr. „Einu sinni komu tveir
strákar í vagninn. Þá sagði
annar: Heyrðu, það er kelling
sem keyrir. Þá svaraði hinn:
Nei, þetta er ekki kelling, þetta
er bara smástelpa."
Engin óhöpp hafa hent Aðal-
heiði, nema hvað eitt sinn
sprakk hjólbarði og hún varð að
fella niður ferðina til Reykja-
víkur. „Þá varð ein kona vitlaus
og skammaðist, sagði að fólk
treysti á ferðirnar og að
vagnarnir kæmust í bæinn á
réttum tíma. Hinir farþegarnir
sögðu ekkert. Þeir fengu bara
skiptimiða sem giltu til lengri
tima og tóku svo næsta vagn,“
saeði Aðalheiður.
En af hverju skipti hún ekki
bara um dekkið sjálf?
„Ég hefði kannski reynt, ef
varadekkið hefði verið með. En
það var ekkert bílnum, hvorki
dekk, tjakkur né annað,“ sagði
hún. Hún hefur raunar aldrei
skipt um dekk á svona stórum
bíl, „en ég mundi reyna að
skipta ef þess þyrfti, t.d. ef ég
væri með rútu uppi á heiði. Þá
væri ekki hægt að fara að næsta
bæ til að fá að hringja."
Það hefur ekki komið til tals,
að þær stöllur verði til fram-
búðar í starfinu. Þær voru bara
ráðnar til afleysinga i sumar og
Aðalheiður telur litlar líkur á
að þær verði ráðnar áfram. „Ég
vona það bara,“ sagði hún. „Ég
veit annars ekki hvernig það
verður að aka í snjónum á
veturna. Það væri þó allt í lagi
að prófa. Þetta er alla vegana
skárra en að vera leigubílstjóri,
held ég. Það er ljóta starfið.“
—sh.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
KLEPPSSPÍTALINN:
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRAR
ÓSKAST Á DEILDIR I. V og VI frá 1. október 1975.
Upplýsingar veitir forstöðukonan simi 381 60.
HJÚKRUNARSTJÓRI
óskast til starfa um óákveðinn tíma frá 1. október 1975.
Upplýsingar veitir forstöðukonan, sími 38160.
VÍFILSTAÐASPÍTALI:
SJÚKRALIÐAR
óskast til starfa á Vífilsstaðapitala sem allra fyrst. Upplýs-
ingar veitir forstöðukonan, simi 42800.
LANDSPÍTALINN:
2 FLUTNINGAMENN
Karla eða konur vantar frá 1. sept. Upplýsingar veitir
starfsmannastjóri, simi 1 1 765.
Reykjavik22. 8. 1975.
SKRIFSTOFA
RIKISSPÍTALANN A
EIRlKSGÖTU 5,SÍMI 11765
dan öll
Leitar sé góðrar skemmtunar saman, ——
og finnur hana — nema hvar, á
Alþjóðlegu vörusýningunni i Laugardal.
Fjölskylduferð í Laugardal sameinar gleði
og gagnsemi.
Opnaö k/. 1.30 í dag.
VINNINGUR DAGSINS í GESTAHAPP-
DRÆTTINU ERU:
Fjölskylduferd á Húsafelli 12. —14.
september.
Vinningshafi fær 4ra manna sumarhús til
ráðstöfunar, með sundlaug og gufubaði í
næsta nágrenni, og ef veður leyfir verður
farinn leiðangur á Langjökul, þar sem
hægt er að bregða sér á skiði ef vill.
Nýstárleg leiktæki fyrir yngstu kynslóðina
á útisvæðinu,
eða haldiði ekki að krakkarnir hafi þá
gaman af minkunum, sem eru i mismun-
andi litum.
W ALÞJOÐLEG VÚRUSÝNING REYKJAVÍK 1975