Morgunblaðið - 24.08.1975, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 24.08.1975, Qupperneq 48
PLAST ÞAKRENNUR ^ Sterkar og endingagóðar q Hagstætt verð. \ V" Æ) Nýborg? O Armula 23 — Sími 86755 ALÍÍLYSINGASÍMINN EK: 22480 BUrðimblntiiti SUNNUDAGUR 24. AGUST 1975 „Hef ennþá von um að hljóta eitt af efstu sætunum” — segir Margeir Pétursson, einn af yngstu keppendunum á HM unglinga í skák „MÉR HEFUR ekki gengið nógu vel f tveimur sfðustu skákunum, hef gloprað vinningi niður f jafn- tefli í þeim báðum. Efsti maður er bara með l'A vinning meira en ég og 7 jmferðir eftir svo ég hef alls ekki gefið upp vonina um að hreppa eitthvert af efstu sætun- um,“ sagði Margeir Pétursson hinn ungi og efnilegi skákmaður f sfmtali við Morgunblaðið í gær. Margeir teflir sem kunnugt er á heimsmeistaramóti unglinga um þessar mundir, en mótið fer fram f Tjentistc f Júgóslavfu. Að lokn- um 6 umferðum er Hollendingur- inn Van Der Sterren efstur með 5 Framhald á bls. 47. Engar l.flokks kart- öflur úr Þykkvabæ? Islenzkar kartöflur á markað á næstu dögum „ÞAÐ HEFUR orðið ákaflega lftil framför á kartöflunum og upp- skeran ætlar greinilega að verða með allra minnsta móti f ár og kartöflurnar smáar," sagði Magnús Sigurlásson fréttaritari Mbl. í Þykkvabænum er Mbl. ræddi við hann um uppskeru- horfur f þessu mesta kartöflu- ræktarhéraði landsins. Sagði Magnús að þeir bændur scm Tók áhættu — og tapaði UMFERÐARSLYS varð í Nóatúni við Þórskaffi skömmu eftir mið- nætti f fyrrinótt. Drukkinn maður hljóp þá skyndilega út á götuna og í veg fyrir bíl sem þar var á ferð. Skall hann framan á bílinn og síðan á framrúðuna svo hún brotnaði. Maðurinn slapp án telj- andi meiðsla en bílstjórinn, kona, var flutt á lögreglustöðina, grunuð um ölvun við akstur. Það getur verið varasamt að taka áhættu á því að fara drukkinn heim á bflnum sínum. LÍFIÐ ER SALTFISKUR — V, •* K? Æfeíí*, <j „■„ Ljósm. Mbl.: Friðþjófuf hefðu kfkt undir grös sfðustu daga segðu að kartöflurnar hefðu nú aðeins náð 3. flokks stærð og Ifklega næðí sáralftið eða kannski ekkert af uppskerunni f haust 1. flokks stærð. Við Eyjafjörð er uppskeran aftur á móti mjög góð, samkvæmt þeim upplýsingum sem blaðið aflaði sér hjá Jóhanni Jónassyni forstjóra Grænmetis- verzlunarinnar og fyrstu fslenzku kartöflurnar væntanlegar á mark- að á Akureyri á næstu dögum. „Það vantar fyrst og fremst birtu. Kartöflurnar spretta ekki í endalausum sudda þótt hlýtt sé í veðri,“ sagði Magnús Sigurlásson. Sagði hann að einungis gjörbreyt- ing á veðri gæti gefið vonir um að uppskeruhorfur breyttust til batnaðar. En það er ekki aðeins á íslandi sem kartöfluuppskeran ætlar að bregðast. Vegna þurrk- anna í Evrópu hefur uppskera þar verið með allra minnsta móti og sagði Jóhann Jónasson hjá Grænmetinu, að hann hefði ekki kynnzt eins miklum erfiðleikum í kartöfluinnkaupum í þau 19 ár sem hann hefur unnið við þessi Framhald á bls. 47. Kröfluvirkjun: Áætlaður kostnaður 8 milljarðar króna AÆTLAÐUR kostnaður við bygg- ingu Kröfluvirkjunar mun nú vera kringum 8 milljarðar króna, en fyrsti áfangi virkjunarinnar á að vera tilbúinn til notkunar á næsta hausti, sá hluti á að skila 35 mw orku, en í fullri stærð á virkjúnin að vera 70 mw. Nú er þegar búið að bora eina holu og orkan sem fæst úr henni er um 5 mw. Verkfræðingar Orkustofn- unar gera sér vonir um, að meiri orka fáist úr næstu holum, sem boraðar verða, en á þessu ári er gert ráð fyrir að 4 eða 5 holur verði boraðar og síðan verði hald- ið áfram á næsta ári. Ef 5 mega- wött fást að jafnaði úr hverri liolu, þarf að bora 14 holur til þess að virkjunin geti skilað fullri orku. Jón Sólnes, formaður Kröflu- nefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að vinna við byggingu stöðvarhússins hefði gengið mjög vel, en Kröflunefnd Framhald á bls. 2. Friðrik á mót með 11 stórmeisturum Ný þjónusta Morgunblaðsins: Móttaka smáauglýs inga og verðlagning EINS OG lesendum Morgun- blaðsins og viðskiptavinum cr kunnugt tók Morgunblaðið fyr- ir nokkrum mánuðum upp flokkaðar smáauglýsingar, sem mælzt hafa vel fyrir. Nú hcfur Morgunblaðið ákveðið að verð- leggja smáauglýsingar með nýjum hætti, jafnframt þvf, sem viðskiptavinum verður gert kleyft að senda smáaug- lýsingar til blaðsins með pósti eða afhenda þær víða á höfuð- borgarsvæðinu. % Framvegis verða smáaug- lýsingar verðlagðar pr. línu og kostar hver lína 150 krónur. 0 1 Morgunblaðinu verður að staðaldri birt sérstakt eyðu- blað, sem nota ber til að fylla út smáauglýsingar og á þessu formi getur viðskipta- vinur séð um leið hvað aug- Iýsingin kostar. Eyðubiaði með smáauglýs- ingu er hægt að koma með þrennum hætti til blaðsins ásamt staðgreiðslu: í pósti Vinsamlega birtiö effirtarandi smáauglýsingu í Morgunblaöinu þann Auglýsmgm móftekm af til 10 verzlana á höfuðborg- arsvæðinu eða á auglýsingadeild Morgunblaðsins. I þessum 10 verzlunum liggja einnig frammi eyðublöð fyrir smáauglýsingar og er tekið við þeim, ásamt greiðslu í viðkom- andi verzlun. Þær eru: REYKJAVÍK, Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2, Sláturfélag Suður- lands, Háaleitisbraut 68, Kjöt- búð Suðurvers, Stigahlfð 45—47, Hólagarður, Lóuhólum 2—6, Sláturfélag Suðurlands, Álfheimum 74, og Árbæjar- kjör, Rofabæ 9. HAFNAR- FJÖRÐUR, Gjafa- og Ijós- myndavörur, Reykjavfkurvegi 64, og Verzlun Þórðar Þórðar- sonar, Suðurgötu 36. KÓPAVOGUR, Ásgeirsbúð, Hjallabrekku 2, Borgarbúðin, Hófgerði 30. Framhald á bls. 47. FRIÐRIK Ólafsson stórmeistari heldur um næstu helgi til Englands þar sem hann teflir á afar sterku skákmóti sem hefst f Middlesborough 1. september og stendur til 19. september. Ekki færri en 12 stórmeistarar eru skráðir til leiks en þátttakendur eru alls 16. Er þetta eitt sterkasta skákmót sem Friðrik hefur teflt á. Friðrik kvaðst í samtali við Mbl. f gær hafa verið að undirbúa sig fyrir mótið að undanförnu enda þýddi ekki að fara utan með öðru hugarfari en að standa sig vel. Að þessu móti loknu verður mánaðarhvfld, en þá tekur við svæðamótið sem haldið verður f Reykjavfk. Samkvæmt upplýsingum Frið- riks eru eftirtaldir skákmenn skráðir til leiks i mótinu í Middlesbrough. Rússarnir Bron- stein, Geller og Smyrslov, Banda- rikjamennirnir Kavlek og Lombardy, Hort frá Tékkóslóva- kíu, Húbner frá Vestur- Þýzkalandi, Ljubojevic frá Júgó- slaviu, Georgiu frá Rúmeníu, Timman frá Hollandi og Sax frá Ungverjalandi, en allt eru þetta stórmeistarar auk Friðriks. Þá verða 4 Bretar með í mótinu, Hartson, Miles, Keene og Steen, en þeir eru flestir ef ekki allir alþjóðlegir meistarar. Mót þetta er haldið til minningar um skák- manninn og skákblaðamanninn C.H.O’d. Alexander og er mjög til þess vandað á allan hátt, eins og sjá má á þvi úrvali skákmann sem keppir. Guðrún Árnadóttir skáld- kona frá Lundi látin GUÐRÚN B. Árnadóttir skáld- kona frá Lundi lézt f fyrradag 88 ára að aldri. Hún var ein kunnasta skáldkona tslendinga og bækur hannar nutu mikilla vinsælda með fslenzku þjóðinni. Guðrún fæddist í Lundi í Fljótum í Skagafirði 3. júní 1887, dóttir hjónanna Baldvinu Ásgrimsdóttur og Arna Magnús- sonar bónda. Hún fór ung í kaup- mennsku, en gekk árið 1910 að eiga Jón Þorfinnsson frá Skagafirði. Þau stofn- uðu bú 191.3 að Þverárdal i Bólstaðarhlíðarl.reppi og bjuggu þar í tvö ár, siðan að Vala- björgum í Skagafirði í sjö ár og loks að Ytra-Mallandi í Skagafirði Framhald á bls. 47. Guðrún frá Lundi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.