Morgunblaðið - 27.08.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1975
Drápu laxinn
með dínamíti
4 piltar viðurkenna verknaðinn
Nýr doktor í
stœrðfrœði
Dr. Kristfn Halla Jónsdóttir.
NÝLEGA lauk Kristfn
Halla Jónsdóttir stærð-
fræðingur doktorsprðfi f
hreinni stærðfræði við
háskólann í Houston f
Texas f Bandaríkjunum.
Bar doktorsritgerðin
heitið „Holoidal Com-
pactifications of Uni-
quely Divisible Semi-
grups“.
Dr. Kristín Halla Jónsdóttir er
31 árs gömul, fædd í Reykjavik
22. nóvember 1943, dóttir Jóns
N. Jóhannssonar og Vilborgar
G. Guðjónsdóttur. Hún Iauk
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum f Reykjavík 1963 en
gerði þá um hrið hlé á námi.
Síðan hóf hún nám i Háskóla
Islands og lauk þar BA-prófi í
stærðfræði og eðlisfræði 1971
og hefur siðan lagt stund á
stærðfræði við háskólann í
Houston.
Kristín Halla Jónsdóttir er gift
Sigurði B. Þorsteinssyni lækni
og eiga þau tvær dætur.
Nessókn:
„Dreifibréfið sóknar-
nefnd óviðkomandi”
LÖGREGLAN á Blönduósi
handtók í gærmorgun 4
pilta vegna gruns um að
þeir hefðu sprengt dfnamft
í hyl í Ytri-Laxá í Austur-
Húnavatnssýslu. 1 yfir-
heyrslum síðdegis f gær
viðukenndu piltarnir svo
verknaðinn, en þeir munu
hafa haft 4 laxa upp úr
krafsinu.
Upphaf rannsóknarinnar var
það, að á sunnudaginn fannst
dauður lax í ánni og mátti af útliti
hans greina að hann hefði verið
deyddur með sprengju. Beindist
grunur að umræddum piltum. Við
yfirheyrslur hjá Karli Helgasyni
fulltrúa kváðust þeir hafa komið
að hyl í ánni um miðjan dag á
föstudaginn og sprengt þar tvær
dínamitshvellhettur. Stoppuðu
þeir stutt við ána og hirtu þá fiska
sem upp flutu, en þeir reyndust
Guðmundur á
jafna biðskák
London 26. ágúst — einkaskeyti
til Morgunblaðsins frá AP.
EFTIR fimm klukkustunda bar-
áttu fór skák Guðmundar Sigur-
jónssonar gegn Bretanum Jeff
Horner í bið. Er skákin tefld f 9.
umferð alþjóðaskákmótsins I
London. Það var eftir 41 leik, sem
skákin fór f bið, en staðan er
álitin jöfn.
Bezta skákin í 9. umferð var
skák þeirra Jan Timntans frá Hol-
landi gegn Andras Adorjan frá
Ungverjalandi, sem er í efsta
sæti. Timman bar sigur úr býtum.
Skák Englendingsins Tony Miles
og ungverska stórmeistarans Gy-
ula Sax fór f bið og hefur Miles
betri stöðu. Stefnir hann nú að
þvi að ná stórmeistaratitli, fyrstur
Breta, en til þess þarf hann sjö
vinninga. Nái hann þeim titli bfða
hans meðal annars háar f járhæðir
frá brezka fjármálamanninum
Jim Slater, sem hann hefur heitið
þeim Breta, sem fyrstur nær stór-
meistaratign.
Staðan eftir níu umferðir er
þessi: 1—2. Adorjan og Timman
5,5 vinninga. 3. Miles 5 vinninga
4.—5. Sax og John Nunn, Eng-
landi, 4,5 vinninga. Guðmundur
er í 10 sæti með 2,5 vinninga.
Sigurður Ingason
framkv.stjóri BÚH?
UTGERÐARRÁÐ Hafnarfjarðar
hefur undanfarið fjallað um eftir-
mann Einar's Sveinssonar í stöðu
framvkæmdastjóra Bæjarútgerð
ar Hafnarfjarðar. Morgunblaðið
hefur frétt, að ráðið hafi einróma
mælt með Sigurði Ingasyni skrif-
stofustjóra fyrirtækisins. Hann er
viðskiptafræðingur að mennt og
hefur starfað sem skrifstofustjóri
BÚH um rúmlega eins árs skeið.
Bæjarráð og bæjarstjórn munu á
næstu dögum fjalla um ráðningu
framkvæmdastjórans.
SEXMANNANEFNDIN svokall-
aða hefur að undanförnu unnið
að útreikningum á nýju verði á
landbúnaðarvörum sem sam-
kvæmt venju hafa tekið gildi f
september. Guðmundur Sigþórs-
son ritari nefndarinnar tjáði Mbl.
í gær, að útreikningarnir yrðu
væntanlega tilbúnir í vikulokin
og yrðu þeir síðan lagðir fyrir
ríkisstjórnina. Það yrði svo henn-
ar ákvörðun hvenær hið nýja verð
vera fjórir. Höfðu piltarnir sig á
brott hið skjótasta með fenginn.
Lítið mun hafa verið af laxi í
hylnum þegar þeir frömdu
verknaðinn, en hylur þessi er neð-
an við laxastiga sem gerður var í
ána nýlega. Piltunum var sleppt
að lokinni yfirheyrslu í gær.
r
Avísanafals-
ari gripinn
LÖGREGLUMENN frá miðbæjar-
stöðinni handtóku f gærkvöldi at-
hafnasaman ávfsanafalsara.
Hafði hann sfðdegis f gær stolið
vcski og ávfsanahefti frá stúlku
sem vinnur á skrifstofu í miðbæn-
um og þegar hann náðist vantaði f
heftið 10 ávísanaeyðublöð en tvö
var maðurinn búinn að fylla út cn
ekki búinn að selja, aðra að upp-
hæð 7 þúsund og hina að upphæð
12 þúsund. Má af þessu ætla að
maðurinn hafi falsað fyrir eitt-
hvað á annað hundrað þúsund
þessa dagstund f gær. Stúlkan
sem átti heftið var ckki farin að
sakna þess þegar lögreglan
hringdi til hennar f gærkvöldi, og
fékk hún þvf fréttirnar frá lög-
rcglunni, sem þarna var heldur
betur snör f snúningum. Maður
þessi hefur áður verið tekinn
fyrir svipuð afbrot.
Grundartangi:
Fundur á
morgun?
EKKERT nýtt var að frétta af
samningaviðræðum á Grundar-
tanga þegar Mbl. hafði samband
við Skúla Þórðarson formann
Verkalýðsfélag Akraness í gær-
dag. Sagði Skúli að fundur yrði
hugsanlega haldinn í dag, mið-
vikudag.
Tónlist Leifs
flutt annað kvöld
A FIMMTUDAGSKVÖLD 28.
ágúst kl. 21 verða haldnir tónleik-
ar í Félagsheimili stúdenta við
Hringbraut á vegum Háskóla Is-
lands. Þar verða eingöngu flutt
verk eftir Leif Þórarinsson tón-
skáld og stjórnar hann sjálfur
flutningi þeirra. Hafa langfæst
þessara verka verið flutt opinber-
lega á Islandi áður. Fjögur þeirra
eru samin á þessu ári. Meðal
þeirra er Faðir vor við kvæði séra
Hallgríms Péturssonar og
Angelus Domini við kvæði eftir
Halldór Laxness. Ruth Little
Magnússon syngur og félagar úr
Kammersveit Reykjavíkur leika.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
tekur gildi.
Venjan hefur verið sú, að nýtt
verð á mjólk og mjólkurvörum
hefur tekið gildi í byrjun sept-
ember, en nýtt vérð á dilkakjöti
og kjötvörum um miðjan sept-
ember, þegar nýtt kjöt kemur á
markaðinn. Þá hefur nýtt verð á
kartöflum einnig tekið gildi um
miðjan september enda þótt nýjar
kartöflur hafi þá venjulega verið
á markaðnum um nokkurn tíma.
MORGUNBLAÐIÐ skýrði I gær
frá dreifibréfi sem 12 fbúar f Nes-
sókn sendu f hús I sókninni vegna
fyrirhugaðra prestkosninga þar,
en f bréfinu lýsa þeir yfir stuðn-
ingi við sr. örn Friðriksson „sem
boðbera hins frjálslynda kristin-
dóms“, eins og komizt er að orði f
bréfinu. Þá var f gær birt umsögn
mótframbjóðanda sr. Arnar, sr.
Guðmundar Óskars Ólafssonar,
enn ekki náðist f sr. örn f fyrra-
kvöld til að fá hans umsögn.
Hins vegar náðist f sr. örn f gær
og fara ummæli hans um bréf-
ið og efni þess hér á eftir. Enn-
fremur ræddi Mbl. f gærkvöldi
við Þórð Ágúst Þórðarson for-
mann sóknarnefndar Nessóknar,
en nefndin hélt fund f gærkvöldi
þar sem dreifibréfið var til um-
ræðu. Las Þórður upp eftirfar-
andi bókun sem nefndin gerði f
gær: „Sóknarnefnd Nessóknar er
sammála um, að áminnzt dreifi-
bréf sé henni óviðkomandi." Að
öðru leyti vildi Þórður ekkert tjá
sig um málið.
Svör sr. Arnar Friðrikssonar
um dreifibréfið og efni þess fara
hér á eftir:
„Tekið er fram í bréfinu að ég
sé frjálslyndur, og ég vona að það
sé satt. En þá vaknar auðvitað sú
spurning hvort ekki séu fleiri
frjálslyndir.“
— Nú er gefið í skyn I dreifi-
bréfinu að kosningarnar muni
snúast um tvær trúarstefnur ekki
síður en um tvo frambjóðendur.
Hvert er þitt álit?
„Þetta er ákaflega erfið spurn-
ing. Þessar prestskosningar eru
þegar búnar að tengja okkur sr.
Guðmund Óskar vináttuböndum.
Við höfum náið samband okkar á
milli og mér virðist hann alger-
lega öfgalaus maður og einstak-
lega geðfelldur. Við erum sam-
mála um að reyna að heyja þessa
Litlar líkur á
sumarslátrun
EINN aðili hefur sótt um leyfi til
sumarslátrunar, að þvf er Gunn-
laugur Lárusson hjá Framleiðslu-
ráði landbúnaðarins tjáði Mbl. f
gær. Sagði Gunnlaugur að afstaða
yrði tekin f málinu f dag og benti
allt til þess að leyfi til sumarslátr-
unar yrði ekki veitt f ár.
Ástæðuna kvað Gunnlaugur
vera þá, að nægar birgðir væru af
kindakjöti í landinu og myndu
þær fyllilega nægja þar til nýtt
kjöt af haustslátruðu kemur á
markað. Um síðustu mánaðamót
voru til 1238 Iestir af dilkakjöti í
landinu, en það er 497 lestum
meira en á sama tíma f fyrra, og
433 lestir voru til af kjöti af full-
orðnu, eða 120 lestuni meira en í
fyrra.
kosningabaráttu á þann hátt, að
við getum verið vinir framvegis.
Mjög óæskilegt kosningafyrir-
komulag veldur því, að viss bar-
átta er óhjákvæmileg, ef menn
vilja fá prestsembætti f Reykja-
vík. En fáir munu skilja hvílík
raun það er t.d. fyrir prest utan af
landi að verða að fara frá heimili
sínu og skyldustörfum jafnvél
mánuðum saman, stofna til kostn-
aðar, sem þeim er hulin ráðgáta,
hvernig þeir eiga að fara að
greiða og leggja á vini sfna enda-
lausa vinnu og fyrirhöfn — allt f
mjög svo tvísýnni von um að ná
kosningu.
1 LJÓS hefur komið, að nýtt stál-
þil, sem rekið var niður í Ólafs-
fjarðarhöfn f fyrrasumar, er ónot-
hæft vegna skemmda, að þvl er
greint er frá í Vikublaðinu, sem
gefið er út á Ólafsfirði. Segir þar,
að rífur hafi komið í stálþilið f
vesturkvf hafnarinnar og jarðveg-
urinn runnið í gegnum þær.
Þetta kom í Ijós er dýpkunar-
skipið Hákur var að dæla sandi úr
höfninni á Ólafsfirði f sumar, því
að þá fór að síga úr uppfylling-
unni við stálþilið. Hafa nú mynd-
azt stórar dældir í uppfyllinguna.
Flugfreyjudeilan
SlÐDEGIS f gær var þingfest í
Félagsdómi deilumál Flugleiða
hf. og Flugfreyjufélags Islands
um túlkun á kjarasamningi. Aðil-
ar málsins lögðu fram gögn og
sfðan var lögmanni Flugfreyju-
félagsins veittur tveggja vikna
frestur til að semja greinargerð.
1 Félagsdómi við afgreiðslu
þessa máls, eiga sæti Guðmundur
Ég er ákaflega þakklátur öllum
þeim, sem sýnt hafa mér velvild
og hjálp I þessu máli, og svipað
mun mótframbjóðandi .minn ör-
ugglega líka segja fyrir sitt leyti.
En við erum hjartanlega sammála
um það, að þakklátastir verðum
við, ef hægt verður að reka hina
óhjákvæmilegu kosningabaráttu
á þann hátt, að allir geti að kosn-
ingum loknum fellt sig við þann
prest, sem kjörinn verður. Aðal-
tilgangur okkar er sem sé ekki sá
að vinna kosningar heldur að fá
að starfa sem kristnir prestar hjá
kristnum söfnuði."
Alls eru rifurnar sex talsins.
Kafari kannaði skemmdirnar og
hefur skýrsla um málið verið
send Vita- og hafnamálaskrifstof-
unni, en er Mbl. leitaði upplýs-
inga þar í gær, var engar frekari
fregnir að fá af málinu í bili.
Hefur ekki verið tekin ákvörðun
um viðgerð á þessum skemmdum.
I Vikublaðinu, sem gefið er út-af
13 ára pilti á Ólafsfirði, Helga
Jónssyni, er sagt, að nokkrar
trillur hafi legið við þennan við-
legukant, en um aðra aðstöðu þar
hafi ekki verið að ræða.
þingfest í gær
Jónsson borgardómari, sem er
dómsforseti, Bjarni Kr. Bjarna-
son borgardómari, Sigurður Lin-
dal prófessor, Guðmundur Vignir
Jósefsson gjaldheimtustjóri og
Árni Guðjónsson hrl. Lögmaður
Flugleiða hf. er Einar Arnason og
lögmaður Flugfreyjufélagsins er
Ragnar Aðalsteinsson.
Ljósmynd Sv. Þorm.
AREKSTUR — Harður árekstur varð milli tveggja fólksbíla á mótum
Grensásvegar og Bústaðavegar síðdegis í gær. Litil meiðsli urðu á fólki
í þessum árekstri, en tjón á bílum var töluvert eins og myndin sýnir.
Nýtt verð á landbúnað-
arvörum brátt tilbúið
Skemmdir á stálþili
í Ólafsfjarðarhöfn