Morgunblaðið - 27.08.1975, Blaðsíða 24
PLAST
ÞAKRENNUR
Sterkar og endingagóðar q i,
Hagstætt verð.
Nýborgp
Ármúla 23 — Sími 86755 J
auí;lVsiní;asímí\n er.
22480
JH#r0unbt«t>ií>
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÍJST 1975
Maður beið bana og
annar stórslasaðist
— í hörðum árekstri
á Vesturlandsvegi
LIÐLEGA þrftugur maður
beið bana og annar maður
stórslasaðist í mjög hörð-
um árekstri á Vesturlands-
vegi, skammt vestan við
Korpúlfsstaði um klukkan
12.30 í gærdag. Þrír fólks-
bílar skemmdust meira og
minna f árekstrinum:
Nafns mannsins sem lézt
verður ekki birt að svo
stöddu, þar eð ekki hafði
tekizt að ná f alla ættingja
hans í gærkvöldi.
Slysið varð með þeim
hætti, að bifreið af Cort-
inugerð var á leið eftir
Vesturlandsvegi í átt til
Kröflulínan
kostar 700
milljónir kr.
AÆTLAÐUR kostnaður við að
leggja lfnu frá Kröfluvirkjun
til Akureyrar og uppsetning á
spennistöð á Akureyri er nú
700 millj. krðna. Kom þetta
fram í viðtali, sem Morgun-
blaðið átti við Valgarð
Thoroddsen rafmagnsveitu-
stjóra rfkisins í gær.
Valgarð sagði, að Ieggja
þyrfti 132 kw. Ifnu frá Kröflu
til Akureyrar og á Akureyri
þyrfti að setja upp sérstaka
spennistöð, og ennfremur við
Kröflu, en spennistöðin þar
yrði sett upp á vegum
virkjunaraðila en ekki
Rafmagnsveitnanna.
Hann sagði einnig, að Raf-
magnsveiturnar hefðu aðeins
fengið fjármagn til þess að
mæla út lfnustæðið og það
væri búið að gera, en fjárveit-
ing fyrir Ifnulögninni hefði
enn ekki fengizt. Eitt ár tæki
að leggja þessa Ifnu, en hann
sagðist halda að þegar til
kæmi, myndi ekki standa á
fínulögninni.
Reykjavíkur. Sjónarvottar
segja, að annað framhjól
bifreiðarinnar hafi skyndi-
lega lent utan steypta
vegakantsins og við það
hafi bifreiðarstjórinn
misst vald á bifreið sinni.
Skipti engum togum að bif-
reiðin þeyttist yfir á hinn
vegarkarrfinn lenti þar á
Framhatd á bls. 23
Rússneskur
dráttarbátur
á sveimi við
Reykjanes
SOVÉZKUR dráttarbátur hefur
undanfarna daga lónað undan
Reykjanesi án þess að nokkurt
verkefni fyrir hann sé sýnilegt.
Flugmenn Landhelgisgæzlunnar
urðu fyrst varir við bátinn, sem er
200—300 lestir að stærð, á sunnu-
dag, 36 mílur 236 gráður réttvís-
andi frá Reykjanesi og var hann
þá í hægri hringsólun. Á mánu-
dag var hann á svipuðum slóðum
og í gær var hann 34 sjómílur 304
gráður réttvísandi frá Reykja-
nesi. Ekkert annað sovézkt skip
er á þessum slóðum, en fyrir
nokkrum dögum lá þarna stórt
sovézkt birgðaskip og voru skips-
menn að mála skipið að utan.
Auk þess má nefna að í fyrradag
kom stór sovézkur togari tii
Reykjavíkur, degi á undan heim-
sókn fastaflota Atlantshafsbanda-
lagsins.
GULLFOSS — Þessi mynd var tekin við Gullfoss á dögunum og eru þeir eflaust fáir
ljósmyndararnir sem hafa myndað hann frá þessu sjónarhorni. Ljósm. Mbl. Friðþjófur
Látinn borga 100 þús.
króna toll af kostinum
Skemmdi fyrir
hundruð þúsunda
LÖGREGLAN handtók snemma f
gærmorgun 22 ára gamlan mann f
húsakynnum ferðaskrifstofunnar
Sunnu við Lækjartorg. Hafði
maðurinn gengið berserksgang á
skrifstofu fyrirtækisins, brotið
þar allt og bramlað, stórskemmt
og eyðilagt skrifstofuvélar og
hent bókhaldsgögnum út um allt.
Er tjónið sem maðurinn olli met-
ið á hundruð þúsunda króna.
ÞEGAR sfldveiðiskipið Gfsfi Arni kom heim frá síldveiðum í Norður-
sjó fyrir skömmu ákvað tollgæzlan, að útgerð skipsins yrði gert skylt
að borga um 100 þús. krónur f toll af kosti skipsins, en slfkt mun ekki
hafa tfðkazt áður, þar sem þetta eru matvæli, sem ætluð eru til neyzlu
um borð f skipinu. ÍJtgerðarstjóri skipsins fór fram á það við tollyfir-
völd, að matvælageymslur skipsins yðru innsiglaðar, þar til skipið færi
út til veiða á ný, en þvf hefur verið neitað.
Júlfus Ingibergsson útgerðar-
stjóri Gísla Árna sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann f
gær, að alls væri upphæðin, sem
þeir ættu að borga, kr. 98.276 og
þar af þyrftu þeir að greiða kr.
1.108 í vátryggingakostnað og
5.035 krónur í flutningsgjöld.
Slíkt hefði hann aldrei heyrt áð-
ur, og hætt væri við að þetta
kæmi illa við marga útgerðina.
Tollgæzlan taldi allar þær vör-
ur, sem voru f birgðageymslum
Gísla Árna og er allt talið til sem í
geymslunum var eins og t.d. 20
kg. af nautakjöti, 15 kg af svína-
læri, 5 kg af smjöri, 1 dós appel-
sínumarmelade, 4 túbur af kaví-
ar, 5 kg kaffi, 18 1 mjólk, 2 pakkar
af grófu salti, 6 pakkar af búðing-
um, 12 kassar af kjúklingum, 4
dósir af steiktum lauk, 24 dósir af
blönduðum ávöxtum o.s.frv. Þá er
tekið fram í skýrslu tollgæzlunn-
ar, að gizkað hafi verið á þyngd
kílóvarnings, þar sem engin vigt
hafi verið til staðar.
Morgunblaðið hafði samband
við Kristinn Ölafsson tollgæzlu-
stjóra í gær og spurði hann hvers
vegna matarbirgðir þessa eina
Framhald á bls. 23
Undirmenn sömdu
Verkfalli á kaupskipunum frestað
SAMNINGAR tókust um kvöld-
matarleytið í gær með samninga-
nefndum skipafélaganna og
undirmanna á kaupskipunum.
Var samkomulag undirritað með
venjulegum fyrirvara um sam-
þykki félaga. Hefur verkfallinu á
kaupskipaflotanum, sem undir-
menn höfðu boðað frá og með
Þorskklakið lélegt — síldar
og loðnuklak hinsvegar gott
HINUM árlegu rannsóknum Hafrannsóknarstofnunarinnar á magni og
útbreiðslu fiskungviðis er nú lokið, og kom rannsóknarskipið Arni
Friðriksson úr þeim til Reykjavfkur f gær. 1 þessum rannsóknum
hefur komið f ljós, að þorskstofninn frá þvf í vetur er undir meðallagi,
en þó hefur klakið heppnazt betur en f fyrra. Sfld fannst hins vegar á
stærra svæði en mörg undanfarin ár, og vekur það vonir hjá vfsinda-
mönnum um að stofninn sé á uppleið. Þá fúndust loðnuseiði á mjög
stóru svæði og verður árgangurinn að teljast nokkuð góður, þótt seiðin
virðist óvenjulega smá. Ungkarfi fannst einnig nokkuð vfða, en ekki f
eins rfkum mæli og í fyrra.
Morgunblaðið náði tali af
Hjálmari Vilhjálmssyni leið-
angursstjóra á Arna Friðrikssyni
í gær og spurði hann um þennan
árlega leiðangur. Hjálmar sagði,
að þátt i þessum rannsóknum
hefðu tekið þrjú skip, tvö frá ís-
landi og eitt frá Rússlandi, en
þetta er fjórða árið, sem Rússar
taka þátt í rannsóknunum, en
sjötta árið, sem rannsóknirnar
fara fram. Rússneska skipið var
mest við rannsóknir á sunnan-
verðu Grænlandshafi, en Árni
Friðriksson þar fyrir irorðan og á
grunnslóðum vestanlands og
norðan. Síðan rannsakaði Bjarni
Sæmundsson svæði úti fyrir Aust-
ur- og Suðurlandi. — Ennþá eig-
um við eftir töluverða vinnu við
að ganga frá niðurstöðum, en
samt sem áður vitum við að mestu
hvernig klak hefur heppnazt á
þessu ári, sagði Hjálmar.
Hann sagði að þorsksseiði hefðu
fundizt á stóru svæði frá Reykja-
nesi vestur um og norður og allt
suður á móts við Stöðvarfjörð. Oti
fyrir Norðurlandi fannst þorskur-
inn langt til hafs allt að 68° n. br.
en magn á hverjum stað var yfir-
leitt lítið, mest á fjörðum og
grunnsævi norðanlands, djúpt úti
af Kögri og vestur af Vestfjörð-
um. Eftir ætti að leggja endan-
lega dóm á stærð stofnsins, en
niðurstaðan yrði að llkindum sú,
að þorskárgangurinn 1975 yrði
undir meðallagi. Þar að auki væri
mikill hluti seiðanna smár og eft-
ir ætti að koma í Ijós, hvernig þau
slyppu frá vetrinum.
Aðspurður sagði Hjálmar, að
ástæðan fyrir þessum litlu seiðum
væri að líkindum sú að annað-
hvort hefði þorskurinn hrygnt
mikið úti fyrír Norðurlandi eða
klakið við SV-land, þaðan sem fal-
legustu seiðin eiga að koma,verið
misheppnað.
Þá sagði Hjálmar að útbreiðslu-
svæði loðnunnar væri mjög stórt
og I heild hefði loðna fundizt á
jafnstóru svæði og I fyrra, en þá
var um metárgang að ræða frá því
að rannsóknir á loðnustofninum
hófust árið 1970. Mest fannst af
Framhald á bls. 23
miðnætti annað kvöld verið frest-
að til miðnættis á þriðjudag, en
þá liggja fyrir úrslit atkvæða;
greiðslunnar hjá undirmönnum.
Guðmundur Hallvarðsson, einn
úr samninganefnd undirmanna,
tjáði Mbl. 1 gærkvöldi, að nefnd-
irnar hefðu setzt að samninga-
borði hjá sáttasemjara, Guðlaugi
Þorvaldssyni, klukkan 16.30 I
gærdag. Áður höfðu nefndirnar
setið á fundi frá því klukkan 14 á
mánudag til klukkan 7 í gærmorg-
un. Sem fyrr segir tókst sam-
komulag um klukkan 19 í gær-
kvöldi. Ekki vildi Guðmundur tjá
sig um efni samninganna annað
en það, að með þeim fengjust
ýmsar lagfæringar á fyrri samn-
ingi og tilfærslur milli aldurs-
flokka. Samkomulagið verður
skýrt á félagsfundi I Lindarbæ
klukkan 14 f dag og að loknum
fundi hefst atkvæðagreiðsla sem
stendur til klukkan 17 n.k. þriðju-
dag.
Siglfirðingar
fá stóra borinn
Siglufirði 26. ágúst.
ÞAÐ LYFTUST heldur betur
brúnir á Siglfirðingum þegar
fréttist í dag, að von væri á stór-
um bor nú í vikunni til að bora
eftir heitu vatni í Skútudal. Hing-
að til hafa aðeins litlir borar verið
þar að verki en nú fáum við stóra
borinn sem var I Ólafsfirði. m.j.