Morgunblaðið - 18.09.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975
3
Einstœður kínversk-
ur fjöllistaflokkur
kemur í heimsókn
Mun sýna í Laugardalshöllinni
EINN kunnasti fjöllistaflokkur
Kína. TIENTSIN, kemur f
heimsókn til Islands 16. októ-
ber n.k. en flokkurinn sem tel-
ur 70 manns eru nú á sýningar-
ferð um Norðurlönd og hefur
honum verið mjög vel tekið í
Finnlandi og Svfþjóð, þar sem
hann er búinn að sýna. Hefur
sýningarflokkurinn vakið
mikla athygli og samkvæmt
upplýsingum kfnverska sendi-
ráðsins í Reykjavík sáu bæði
forsætisráðherra Finnlands og
Svfþjóðar sýningu hjá lista-
mönnunum. Hingað til lands
kemur Tientsin á vegum
Iþróttabandalags Reykjavfkur,
Kínversk-fslenzka menningar-
félagsins og kfnverska sendi-
ráðsins. Tientsin er talinn einn
af fremstu fjöllistaflokkum
Kína og er þó um að ræða rót-
gróna listgrein þar og íþrótt,
eða allt að 2000 ára gamla.
Hópurinn leikur hinar
ótrúlegustu listir sem bæði
reyna á þjálfaða samvinnu
og svo á getu einstakl
ingsins. Dagskrá sýningar-
flokksins byggist á gamalli
hefð f þessari list, en þó ávallt
síungri, þvf inn eru tekin
atriði, sem tengjast nýjum
tfma, m.a. hjóla tólf manns á
einu reiðhjóli.
Tientsin er nú á leið til
Noregs þar sem flokkurinn
mun sýna f tvær vikur, sfðan
heldur hann til Danmerkur og
þaðan kemur hann til lslands
16. okt. og dvelur hér til 24. okt.
Samkvæmt upplýsingum
Kristjáns Jónssonar hjá IBR
mun fjöllistaflokkurinn koma
nokkrum sinnum fram á sýn-
ingum f Laugardalshöllinni, en
meðal þeirra ' 65—70 manns
sem f flokknum eru, er 15
manna hljómsveit. Kvaðst
Kristján vilja undirstrika
ómetanlega aðstoð kfnverska
sendiráðsins við undirbúning
og framkvæmd þess að fá hing-
að þennan frábæra sýningar-
flokk, sem héðan mun halda f
sýningarferðalag til Spánar.
Öryggi — leikni.
Þrjár konur úr Tientsin leika
jafnvægislistir.
Það er ugglaust ekkert grfn að
leika þetta eftir.
Borið á borð f tilefni
kvennaárs.
Teygt úr sér eftir flug f gegnum báða hringina.
bólgan. Þetta væru raunar einu
málin, sem fjallað væri um i
kosningabaráttunni, um utan-
ríkismálin væru engar skiptar
skoðanir, allir styddu núver-
andi stefnu á því sviði. Sagði
sendiherrann, að í kosninga-
skrifum finnsku blaðanna væri
ekkert minnst á utanrikismál.
Vöruskiptajöfnuður Finna
hefði að undanförnu verið mjög
óhagstæður og f ár væri gert
ráð fyrir að hallinn yrði um 5
milljarðar finnskra marka eða
um 210 milljarðar ísl. kr. Eink-
um hefði það valdið Finnum
erfiðleikum að útflutningur
þeirra á byggingarvörum hefði
stórdregist saman, verðið hefði
ekki lækkað aðeins magnið
minnkað. Finnar þurfa að
flytja inn 70% af eldsneytinu,
sem þarf til að fullnægja orku-
þörf sinni og er langmestur
hlutinn keyptur frá Sovét-
ríkjunum og öðrum austan-
tjaldslöndum. Sagði hann að
Finnar hefðu nú fullnýtt alla
virkjunarmöguleika sína og nú
væri verið að byggja fyrsta
kjarnorkuverið, sem taka á til
Framhald á bls. 35
Rœtt viö Olavi Munkki sendiherra Finnlands á íslandi
„ÞAÐ er ekki búist við miklum
breytingum í þingkosningum,
sem fara fram f Finnlandi nk.
sunnudag og mánudag, en þó
bendir ýmislegt til að smá-
fiokkarnir muni tapa og fólkið
þjappast meira um stóru flokk-
anæ sagði Olavi Munkki sendi-
herra Finnlands á tslandi er
Mbl. hitti hann að máli f gær,
en sendiherrann er nú staddur
hér á landi f heimsókn. Hann
hefur aðsetur f Ósló, en sagðist
reyna að koma hingað einu
sinni til tvisvar á ári til við-
ræðna við fslenzka ráðamenn.
Hann hefur gegnt núverandi
embætti sfnu f þrjú ár.
Sendiherrann sagðist hafa
rætt ýmis mál varðandi norr-
æna samvinnu við utanríkisráð-
herra og ráðuneytisstjóra í
þessari ferð í sambandi við
aukaþing Norðurlandaráðs,
sem haldið verður í Stokkhólmi
um miðjan nóvember og lagði á
það áherzlu að þáttur Islands í
norrænni samvinnu hefði auk-
ist mjög á undanförnum árum
og starf Islands á þeim vett-
Olavi Munkki sendiherra
vangi ákaflega jákvætt. Þá
ræddi sendiherrann einnig
fiskveiðimálin og sagði að
Finnar skildu vandamál Islend-
inga og styddu þá eins og oft
hefði komið fram.
Um viðskipti Islands og Finn-
lands sagði sendiherrann að
þau væru ekki mjög mikil, en
færu þó stöðugt vaxandi.
Aðspurður um helztu vanda-
málin í Finnlandi sagði Munkki
sendiherra að það væru efna-
hagsmálin og þá einkum verð-
Skriður kom-
inn á verð-
merkingar
SAMKVÆMT upplýsingum
Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra
hafa kaupmenn hafið vörumerk-
ingu af fullum krafti í búðar-
gluggum og þar sem kveðið er á
um, að vörur skuli verðmerktar,
en verðlagsstjóri kvað þá hafa
orðið vara við að kominn væri
skriður á þetta mál. Ekki kvað
verðlagsstjóri hafa verið kannað
ennþá hver viðbrögð veitingahúsa
væru við tilmælum um skrá yfir
verð veitinga utan dyra.
Kjarvalsstaðir:
5000 sáu
LJÓS 75
LJÓSMYNDASÝNINGUNNI
LJÓS 75 lauk á Kjarvalsstöðum í
fyrrakvöld og sáu 5000 manns
sýninguna og 25 myndir seldust.
Um helgina opnar Pétur Frið-
rik listmálari sýningu þar sem
mun standa i þrjár vikur.
Tafl og bridge
VETRARSTARF Tafl- og bridge-
klúbbsins hefst í kvöld með 5
kvölda tvimenningskeppni í
Domus Medica. Keppnin hefst kl.
20.