Morgunblaðið - 18.09.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975
15
Egill Hauksson eðlisfræðingur, Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur og
Sveinbjörn Björnsson eðlisfræðingur. Myndin er tekin á Raunvísinda-
stofnun Háskðlans. Egill hefur umsjón með mælingum norðanlands,
Páll með mælingum sunnanlands en Sveinbjörn fylgist fyrst og fremst
með jarðhræringum á Reykjanesskaga. Unnið er að því að koma
tölvuúrvinnslu mælinganna f fast form og starfar Egill að þvf verk-
efni.
ströndum. Hérlendis koma skilin
á land á Reykjanesskaga og þaðan
má rekja þau að Kleifarvatni án
erfiðleika. Ekki hefur tekizt að
rekja slóðina örugglega frá Kleif-
arvatni en vitað er að skilin halda
áfram í átt til Hengilssvæðisins
en þar virðast þau greinast. Ligg-
ur önnur greinin líklega um Þing-
velli, en hin ölfus og Suðurlands-
undirlendi í gegnum miðhálendið
og norður í land. Norðanlands eru
margföld skil, og er m.a. vitað af
slíkum skilum við Húsavxk og
Grímsey. Eins og áður sagði er
lögð mikil áherzla á að „fylla í
gatið“ og rekja slóð skilanna sem
nákvæmlegast frá Kleifarvatni
um Suðurland og norður yfir. Á
Reykjanesskaga frá Reykjanesi
að Kleifarvatni eru mjög tíðir
jarðskjálftar en þeir eru oftast
vægir. Á Suðurlandsundirlendinu
eru skjálftarnir aftur á móti fáir
en því sterkari. Þar hafa komið
stærstu jarðskjálftar sem orðið
hafa á íslandi. Hérlendis hafa
orðið jarðskjálftar allt upp í 7—8
stig á Richterkvarða, en slíkir
skjálftar eru mjög harðir. Þegar
skjálfti er orðinn 3 stig verða
menn hans greinilega varir og
styrkleikinn eykst hröðum skref-
um við hvert stig.
Nú er lokið við að setja upp
jarðskjálftamæla á flestum veiga-
mestu jarðskjálftasvæðum lands-
ins. Eftir er þó að bæta við mæl-
um á nokkrum stöðum, m.a. vant-
ar mæla á miðhálendinu, I Ölfusi,
í Hornafirði og í öræfasveit.
Sagði Páll Einarsson að þegar
þessir mælar væru komnir væri
hægt að segja að þessi mál væru
komin í viðunandi horf. Þess má
geta að flest jarðskjálftamælitæk-
in eru smíðuð hérlendis, en tæki
þessi eru þannig að sinna verður
þeim daglega. Unnið er nú að því
að smíða tæki hér á landi sem
ekki þarf að hafa jafnmikið eftir-
lit með og sem gætu safnað upp-
lýsingum í Iangan tíma án þess að
þeim væri sinnt.
Þessi mynd sýnir hvar jarðskjálftamælar voru á Islandi f júlf. Bætt
hefur verið inn á myndina nýjustu mælunum á Hrauni á Skaga og á
'Siglufirði. Má af myndinni nokkuð ráða hvar helztu jarðskjálftasvæð-
in hérlendis eru og hvar mest er unnið að mælingum á þeim.
Hægt að hefja byggingu
Þjóðarbókhlöðunnar 1976
UNDIRBUNINGUR að Þjóðar-
bókhlöðunni, sem á að sameina
Landsbókasafn og Háskólabóka-
safn, er f gangi og miðað við að
hægt verði að byrja byggingu
sumarið 1976, ef ákvörðun er
tekin um fjárveitingu,
Byggingarnefnd, bókaverðir og
arkitektar hafa tekið ákvarðanir
um alla mótun byggingarinnar og
komið að því að byrja á bygg-
ingarnefndarteikningum, að þvf
er Finnbogi Guðmundsson lands-
bókavörður tjáði Mbl., er spurt
var um hvað Þjóðarbókhlöðumál-
inu liði.
Staðsetning byggingarinnar
hefur verið ákveðin á Melunum í
Reykjavík. Borgaryfirvöld hafa
samþykkt staðinn með ákveðnum
skilyrðum, sem þarf að fullnægja
áður en byrjað er að byggja. Eiga
borgin og menntamálaráðuneytið
eftir að semja um það.
Byggingarnefnd gerði það að
tillögu sinni við ráðuneytið að
byrjað yrði á byggingunni
sumarið 1976 og gert yrði ráð
fyrir því í fjárhagsáætlun. En
siðan er það stjórnvalda að
ákveða hvort þau vilja leggja út I
stórar fjárveitingar til þess, sagði
Finnbogi Guðmundsson.
— Þetta er mikið og vandasamt
verk, sagði Finnbogi, og ég held
að við höfum farið skynsamlega
að, reynt að vinna það vel og
hrapa ekki að neinu. En nú eru
hugmyndir fullmótaðar um það
hvað þarna eigi að vera og hægt
að ganga i gerð byggingar-
nefndarteikninga. Arktitektar
eru Þorvaldur Þorvaldsson og
Mannfreð Vilhjálmsson.
Ólafur Jens Pétursson:
Aþenska lýðræðið og sófistar
Stutt athugasemd
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að í ræðu og riti beita menn
oftar en skyldi alhæfingum á
grundvelli hefðbundinna
skoðana, sem þeir hafa tileinkað
sér gagnrýnislaust. Þetta gerist
ekki sfst í dagblöðunum. Þó að
blaðamönnum geti verið vorkunn
í amstri hins rúmhelga dags,
verður að gera vissar Iágmarks-
kröfur til fræðimanna, sem láta
Ijós sitt skfna á síðum blaðanna.
I Morgunblaðinu fimmtud. 11.
þ.m. sýnist mér dr. Jón Gíslason
einmitt falla i gryfju órökstuddr-
ar alhæfingar með því að skipa
öllum sófistum í einn og sama
flokkinn og kenna þeim að
nokkru a.m.k. um hrun hins
aþenska lýðræðis á 5. öld f.Kr.
Þetta er svo sem ekki f fyrsta
sinn, sem sófistar eru hafðir fyrir
rangri sök, ef litið er á þá sem
eina heild. Skal nú reynt að bera
nokkurt blak af þessum
„alræmdu" mönnum.
Eins og dr. Jón Gfslason bendir
réttilega á, var eitt einkenni 5.
aldarinnar f.Kr. „hinn ótrauði
rannsóknárandi og bjartsýni á
getu manna til að leysa hvers
konar vanda". Hér á dr, Jón vafa-
Iaust við þá menn, sem höfnuðu
goðsögulegum skýringum á tilurð
og eðli heimsins, en leituðu nátt-
úrulegra skýringa á fyrirbærum
efnisheimsins og kallast þvi
gjarnan „náttúruspekingar".
Þetta var samt aðeins eitt ein-
kenni 5. aldarinnar. Annað ein-
kenni og kannski grundvöllur
annarrar menningarviðleitni
grikkja var tilraun þeirra til lýð-
ræðislegra stjórnarhátta. Lengst
náði þessi viðleitni í Aþenu.
Megineinkenni hins aþenska lýð-
ræðis var bein þátttaka frjálsra
karlmanna í stjórn ríkisins og
fjörugar umræður þeirra um
landsins gagn og nauðsynjar. Að
vísu hafði aðeins tíundi hluti fbú-
anna þennan rétt f reynd, eða
svipaður hundraðshluti og hér á
Islandi fyrir tæpum hundrað
árum. En þrátt fyrir svo takmark-
að lýðræði, varð ekki undan þvf
vikist að uppfræða almenning og
þá ekki síst í rökfimi og mælsku-
list. Þeir sem fengust við slíka
kennslu voru einu nafni kallaðir
sófistar. Þó að þeir létu sig eink-
um varða samfélagsmálefni og
siðfræði, leyna sér ekki áhrif nátt-
úr spekinga á hugsunarhátt
þeirra.
Auk viðleitni sinnar til að auka
alþýðumenntun, snerust sófistar
öndverðir gegn hleypidómum í
garð annarra þjóða og boðuðu frið
með mönnum. Þeir settu einstakl-
inginn í öndvegi gagnvart ríkis-
valdinu og lögðu áherslu á
mannúð og umburðarlyndi.
A.m.k. einn þeirra barðist opin-
berlega gegn þrælahaldi. Síðast
en ekki sfst réðust þeir á þá trú,
að nokkur maður gæti þekkt
algildan sannleika, því að mann-
leg þekking yrði að byggjast á
reynslu. Manninum væri með öllu
ókleift að sanna eða afsanna
tilvist guðanna, af því að hann
skorti allan þekkingarfræðilegan
grundvöll til þess. Þannig má með
góðum rökum segja, að með
sófistum komi tii sögunnar
vfsindaleg efahyggja.
Vanmat og rangtúlkun á kenn-
ingum sófi^ta á sér ýmsar orsakir.
Það var t.a.m. ógæfa þeirra, að
einhver áhrifamesti andans
maður fornaldar, Platón
(427—347 f.Kr.), leit þá heldur
betur skjálgu auga. Æ síðan hafa
sófistar verið óvinsælir með þeim
mönnum, sem trúa á einhvers
konar „stórasannleik“, hvort
heldur hann er opinberaður eður
ei. Þeir lögðu ofurkapp á réttan
skilning og beitingu hugtaka í
rökræðum, og hver skyldi lá þeim
það nú? Hins vegar er það sjálf-
sagt rétt, að sumir þeirra hafi
gengið svo langt, að saka mætti þá
um orðhengilshátt og útúrsnún-
inga, þó að fjarri lagi sé að telja
slíkt „eina meginorsök þess, að
lýðræði beið ósigur í Aþenuborg“,
eins og dr. Jón Gislason gerir for-
málalaust. E.t.v. hefur þar verið
um að ræða eitt veikleikamerki
lýðræðisins, en fráleitt dauðann í
brjósti þess.
Andstæðingar hins aþenska lýð-
ræðis unnu sigur og umræður
voru hnepptar í spennitreyju
ofstækis og afturhalds. Og það er
táknrænt, að bæði náttúruspek-
ingurinn Anaxagóras og sófistinn
Prótagóras, sem voru jafnaldrar,
dóu í útlegð árið 428 f.Kr.
Eins og hér hefur verið bent á,
eru hinar hefðbundnu skoðanir á
sófistum reistar á næsta veikum
grunni. Full ástæða er til að
rannsaka slíkar hugmyndir
nánar, áður en við þeim er gleypt
án minnstu gagnrýni.
Kópavogi, 14. sept. 1975
Ólafur Jens Pétursson.
Þjóðhöfðingjar
hjá Sameinuðu
þjóðunum
FRA því hefur verið skýrt I aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna að
Hirohito Japanskeisari komi í
heimsókn til aðalstöðvanna
meðan á Allsherjarþinginu stend-
ur. Keisarinn mun ekki ávarpa
þingheim, aðeins skoða sig um á
svæði samtakanna og hitta Wald-
heim að máli. Þá er einnig von á
Ölafi Noregskonungi f heimsókn
4. október og mun konungur
flytja ræðu. Þá er einnig gert ráð
fyrir að Sadat Egyptalandsforseti
muni heimsækja aðalstöðvarnar í
október og einnig Sihanuk
Kambódíuprins.
Nánari
athugun
leiöir ýmislegt í ljós
"VIÐERUM
REYNSLUNNIRÍKARI"
Skólagötu 26 Simi 26866
Fljótt á litið virðist allt tvöfalt gler vera eins. f dag er aðeins um að
rœða fyrsta flokks flotgler á markaðnunt. Gler, sem síðan er sett saman á
mismunandi hátt með álrömmum, tilheyrandi þéttiefnum og rakavamar-
efnum. Afhverju er Cudoglerþá dýrara?
■ Cudogler h/f. byggir framleiðslu sína á dýrum efnum
og vandaðri samsetningu. Cudogler h/f. notar aðeins
Terostat þéttiefni, og um það bil helmingi meira af
þéttiefni eivaörir. Efnismiklir álrammar með sérstakri
skörun tryggja að ryk úr rakavarnarefnum komist ekki
milli glerja, en rammarnir eru fylltir tvenns konar
rakavarnarefnum. sem hindra móðumyndun. Terostat
hefur ótrúlegan sveigjanleika. og meiri viðloðun en
önnur sambærileg þéttiefni.
/BSumir framleiðendur nota stærri og þynnri álramma,
sem gefa mun minna rúm fyrir þéttiefni. Aðeins tvær
hliðar álrammans eru fylltar rakavarnarefni. Þeir þurfa
að verja yfirborð efnisins, til að foröast neikvæð
efnaáhrif á samselningu glersins. Venjuleg gerð álramma
býður alltaf heim hættu á ryki úr rakavarnarefnum milli
glerja, þar sem rúður eru alltaf á stöðugri hreyfingu.
Þeir, sem meta öryggi og vandaða vinnu, vilja fremur
borga heldur meira fyrir viðurkennd gæði. Þeir vita, aö
endurísetning tvöfalds glers er kostnaðarsöm, þó að
glerið sé i ábyrgð framleiðanda, þegar galli kemur fram.
Verðgildi byggingar hækkar við ísetningu tvöfalds
glers frá framleiðanda, sem nolar aðeins Terostat
þéttiefni, sparar hvergi til við samsetningu glersins, og
gefur 10 ára ábyrgð á framleiðslunni.
Þess vegna borgardu heldur rneira fyrir
Cudogler — þú ert að fjárfesta til frambúðar.