Morgunblaðið - 18.09.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975
17
Indónesar vilja ekki
Kúbuástand á Tímor
síðasta manns ef innrás verði
gerð í landið.
í kvöld sendu Indónesíu-
menn flotadeild að ströndum
Austur-Tímor til stuðnings öðr-
um herskipum sem þeir hafa
þegar sent þangað. Jafnframt
vöruðu þeir við hefndarárásum
stuðningsmanna sinna á Aust-
ur-Tímor. Sagt er að á bak við
búi uggur vegna þess að
Fretelin virðist hafa farið með
sigur af hólmi í bardögunum.
Yfirmenn herliðs Fretelin
sögðu vestrænum fréttamönn-
um að bardagarnir einskorðuð-
ust við lítinn hluta landsins.
Einn þeirra, Rogerio Lobato,
sagði að hermenn Fretelin
hefðu umkringt stuðningsmenn
Apodeti og UDT, sem virtust
hafa tekið höndum saman, í
Atsabe, nálægt landamærum
Framhald á bls. 35
Frá setningu 30. Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Á þinginu tóku sæti
fulltrúar þriggja nýrra ríkja sem öll eru fyrrverandi nýlendur Portúgala og
forseti þess var kjörinn Gaston Thorn, forsætisráðherra Luxemborgar.
GELLER líkleg-
asti sigurvegari
Friðrik í 8.—9. sæti ásamt Kavalek
MATVÆLI eru af skornum
skammti eftir bardagana á
Austur-Tímor að sögn frétta-
ritara Reuters og annarra vest-
rænna fréttamanna sem hafa
flogið þangað. Flest matvæli
eru innflutt og birgðir sem fyr-
ir liggja endast aðeins í hálfan
mánuð.
Vinstrihreyfingin Fretelin
kveðst hafa mestallan hluta
Austur-Tímor á valdi sínu eftir
bardagana, sem hófust fyrir
rúmum mánuði þegar hreyfing-
in UDT lagði undir sig helztu
mannvirki í landinu og krafðist
sjálfstæðis af Portúgölum, sem
hafa ráðið því í tæpar fimm
aldir.
Indónesar ráða vesturhluta
eyjunnar og njóta stuðnings
þriðju stjórnmálahreyfingar-
innar, sem vill sameiningu við
Indónesíu. Indónesar vilja ekki
að Austur-Tímor verði önnur
Kúba og hafa sagt að til mála
geti komið að þeir geri árásir á
stöðvar Fretelin á Austur-
Tímor.
Því er fyrir hendi sá mögu-
leiki að Indónesar grípi til
íhlutunar á Austur-Tfmor, en
foringjar Fretelin segja að þeir
séu þess albúnir að berjast til
Ættflokkastrfðsmenn hafa beitt frumstæðum vopnum í bardögun-
um I nýlendu Portúgala á Austur-Tfmor. Hins vegar hefur einnig
verið beitt nýtfzkulegri vopnum.
CIA prófaði eitur í
j árnbr autargöngum
Port Moreshy, 17. september. Reuter.
PAPÚA f Nýju-Guineu hefur
fengið sjálfstæði og I guðsþjón-
ustu af þvf tilefni hefur Karl
Bretaprins óbeint varað við að-
skilnaðarstefnu með þvf að vitna í
Pál postula þar sem hann segir
Rómverja að hlýða veraldlegum
yfirvöldum.
Aðskilnaðarsinnar á kopar-
auðugri eyju, Bougainville, hafa
einhliða lýst yfir aðskilnaði og
stofnun sjálfstæðs rfkis, ,,Lýð-
veldis Norður Solomon-eyja“.
Aðskilnaðarsinnar segjast njóta
stuðnings meirihluta 102.000 íbúa
Bougainville og biskup rómversk-
kaþólskra manna þar, Gregory
Singkai, hefur lýst yfir stuðningi
við þá.
Papúa er austurhluti Nýju-
Guineu að viðbættum eyjunum
Manus, Nýja-lrlandi og Nýja-
Bretlandi og nyrztu eyjunum í
Solomon-eyjaklasanum, Bougain-
ville og Buka. Þessi landsvæði
hafa verið undir stjórn Ástralíu-
manna í 60 ár.
Eitt þúsund ættflokkar búa f
þessu geysistóra hitabeltislandi.
Margir þeirra eru á steinaldar-
stigi og margir íbúanna er mann-
ætur.
NÚ ER aðeins einni umferð ólok-
ið á skákmótinu f Middlesbrough
og vcrður hún tefld f dag. t 14. og
næst síöustu umferðinni gerði
Friðrik Ólafsson Evrópumeistari
jafntefli við hollenzka stórmeist-
arann Timman eftir mjög
skemmtilega og tvísýna baráttu.
Sömdu þeir um jafntefli f gær-
morgun eftir að skákin hafði
farið f bið. t 13. umferðinni
sigraði Friðrik hinn nýbakaða
brezka stórmeistara Antony
Miles. Var þetta fyrsta vinnings-
skák Friðriks á mótinu, en hann
er aftur á móti ókrýndur jafn-
tefliskonungur mótsins með 11
jafntefli.
Staðan fyrir síðustu umferðina
er sú, að sovézki stórmeistarinn
Efim Geller (sá sem kom hingað
1972 sem aðstoðarmaður
Spasskís) er í efsta sæti með 9
vinninga af 13 mögulegum.
Washington, 17. september. AP. Reuter.
Neðanjarðarbrautin f New
York var vettvangur tilrauna sem
starfsmenn leyniþjónustunnar
CIA gerðu til að ganga úr skugga
um hvort járnbrautarkerfið gæti
staðizt árás sem yrði gerð á það
með eiturvopnum.
Yfir maður CIA, William E.
Colby, Ijóstraði upp um þessar
tilraunir I greinargerð sem var
birt f sambandi við yfirheyrslur
yfir honum fyrir leyniþjónustu-
nefnd öldungadeildarinnar.
Hann sagði að tilraununum hefði
verið hætt 1970.
Colby sagði að hættuleg efni
hefðu ekki verið notuð í tilraun-
unum. Hins vegar voru neðan-
jarðargöngin fyllt efnum sem
voru eftirlíking á banvænu gasi
en talin meinlaus.
I yfirheyrslunum sýndi Colby
eiturörvabyssu sem hægt er að
myrða með „hljóðlaust og spor-
laust“ af hundrað metra færi.
Hann var spurður um leyni-
legar eiturbirgðir CIA sem fund-
ust nýlega þótt eyða ætti öllum
banvænum eiturefnum sam-
kvæmt forsetaskipun frá 1970.
Colby sagði að CIA hefði eytt
þremur milljónum dollara á 18
árum til að framleiða eitur og
eiturvopn.
Hann sagði að 37 banvæn eitur-
efni hefðu fundizt í rannsóknar-
stofum CIA en skipunin frá 1970
hefði ekki náð til allra tegund-
Framhald á bls. 35
Steinaldarríki
fær sjálfstæði
Næstur honum er vestur-þýzki
stórmeistarinn Róbert Hiibner
með 8 vinninga. Nægir Geller
jafntefli í síðustu skákinni gegn
Framhald á bls. 35
Efim Geller
Schleimann fær
útvarpsstöðuna
Frá Jörgen Harboe.
Kaupmannahöfn í gær.
JÖRGEN Schleimann var I dag
kjörinn forstöðumaður frétta- og
fréttaþáttadeildar danska út-
varpsins eftir mikið pólitískt
stímabrak og harða samkeppni
við flokksbróður sinn úr flokki
sóslaldemókrata, Hans Jörgen
Jensen, fréttastjóra sjónvarps.
Jörgen Schleimann er
núverandi fréttastjóri útvarpsins,
en tekur við hinu nýja embætti 1.
janúar. Hann tekur við af Bendix
Madsen sem verður forstöðu-
maður Nordvisiondeildar.
ítalir selja
lúxusskip tíl
Þýzkalands
Róm, 17. scptember. AP.
ÞÝZKIR aðilar hafa keypt
ítölsku lúxusskipin, Michel-
angelo og Raffaello og
hyggjast breyta þeim í fljót-
andi krabbameinssjúkrahús.
Kaupverðið er 27 milljónir
dollarar.
Skipin hafa verið I eigu
ftalsa skipafélagsins Italia sem
er ríkisrekið. Þau eru 49.500
lestir og hafa veið í förum
milli Italíu og Bandaríkjanna.
Hans Jörgen Jensen var talinn
líklegastur til að fá stöðuna þegar
hún var auglýst laus til umsóknar
fyrir rúmum mánuði. En staða
hans veiktist þegar Schleimann
sótti líka.
Schleimann er sósíaldemókrati
en á hægra kanti. Pólitísku
flokkarnir ráða mestu í útvarps-
ráðí og í ljós kom að bæði sósíal-
istar og margir borgaralegir
fulltrúar í útvarpsráði gátu sætt
sig við Schleimann í stöðuna.
Mörgum útvarpsráðsfulltrúum
fannst það mæla með því að
Schleimann fengi stöðuna að
borgaraflokkarnir hefðu fengið
stöðu fréttastjóra sjónvarps ef
Hans Jörgen Jensen hefði verið
valinn forstöðumaður frétta- og
fréttaþáttadeildar útvarps.
Núverandi fréttastjóri sjón-
varps heitir Hans Morten Rubin.
Hann er úr flokki frjálslyndra,
Vinstri flokknum.
Meðal þeirra sem greiddu
atkvæði gegn Jörgen Schleimann
í dag var Jörgen Kleener, for-
maður útvarpsráðs. Fyrrverandi
stjórn Vinstri flokksins skipaði
hann formann útvarpsráðs.
Kunnugir búast ekki við að
Jörgen Schleimann geri stórvægi-
legar breytingar á starfsemi
frétta- og fréttaþáttadeildar út-
varps. Hann hefur verið raun-
verulegur fréttastjóri undanfarin
tvö ár og átti frumkvæði að skipu-
lagsbreytingum sem voru gerðar
á deildinni.
Dauðadómar í Víetnam
Saigon 17. sept. Reuler.
TVEIR fyrrverandi starfsmenn
suður-víetnömsku leynilög-
reglunnar hafa verið dæpidir til
dauða eftir að hafa verið fundnir
sekir um ýmis ákæruatriði, þar á
meðal samvinnu við CIA —
bandarísku leyniþjónustuna.
Dómar þessir voru kveðnir upp
af herrétti í Can Tho sem er f 120
km fjarlægð frá Saigon. Þeir
munu hafa verið kveðnir upp
fyrir nokkrum dögum en ekki var
sagt hvort þeim hefði verið full-
nægt.