Morgunblaðið - 18.09.1975, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975
Þýzki hópurinn ásamt nokkrum forystumönnum Vöku og Sjálfstæðisflokksins.
Fylgi hægrisinnaðra
stúdenta vex í háskól-
um í V-Þýzkalandi
14 þýzkir stúdentar í heimsókn hérlendis
Fjórir þýzku stúdentanna sem dvalið hafa I Reykjavtk á vegum Vöku.
AÐ undanförnu hafa dvalizt
í Reykjavík 14 þýzkir stú-
dentar, fulltrúar Ringkrist-
lich Demokratische Stud-
enten (RNDS), sem eru
samtök stuðningsmanna
Kristilega demókrataflokks-
ins í röðum stúdenta.
Gerðu þau stuttan stanz
hér á landi á leið sinni til
Bandaríkjanna, en fyrir-
greiðslu fyrir hópinn hér
annaðist Vaka, félag lýð-
ræðissinnaðra stúdenta í
Háskóla íslands. Ferðaðist
hópurinn um nágrenni
Reykjavíkur og skoðaði
einnig markverða staði í
borginni. Þá áttu stúdent-
arnir fundi með islenzkum
skoðanabræðrum sínum
m.a. Friðrik Sófussyni for-
manni Sambands ungra
sjálfstæðismanna, Birni
Bjarnasyni, deildarstjóra í
forsætisráðuneytinu og al-
þingismönnunum Ellert B.
Schram og Albert Guð-
mundssyni.
Mbl. hitti að máli fjóra af
þýzku stúdentunum og bað
þá að skýra frá samtökum
sínum og því helzta sem bor-
ið hefði á góma i viðræðum
hér á landi. Þau sem rætt var
við voru Friedbert Pluger,
varaformaður RNDS, Barbara
Schardt, Hildegard Boucsein
og Bernhard Spies.
Þau sögðu m.a. að samtök
þeirra væru stærstu stú-
dentasamtök í V-Þýzkalandi
og ættu þau itök i um 100
háskólum í landinu. Samtök-
in eiga aðild að ..European
Democratic Students", sem
er samband stúdentasam-
taka er styðja kristilega
demókrataflokka og skylda
stjórnmálaflokka í álfunni, en
Vaka er einnig aðili að þess-
um samtfokum. Samtökin
starfa fyrst og fremst á vett-
vangi beinna hagsmunamála
stúdenta en láta eirjnig
stjórnmál nokkuð til sín taka.
Þau eiga meirihluta i stú-
dentaráðum i mörgum há-
skólum i V-Þýzkalandi, eink-
um í Bæjaraiandi og i Rínar-
héruðunum en mynda einnig
meirihluta með öðrum sam-
tökum í stúdentaráðum i fjöl-
mörgum öðrum háskólum
annars staðar i landinu. Að
sögn fjórmenninganna hefur
fylgi samtakanna í háskólum
V-"Þýzkalands farið vaxandi
undanfarin ár, enda hafa þau
einbeitt kröfum sinum að
hagsmunamálum stúdenta á
meðan vinstri sinnuð stú-
dentasamtök hafa alveg látið
þau mál afskiptalaus en held-
ur reynt að fá atkvæði sam-
stúdenta sinna út á almenn
stjórnmálaviðhorf.
Barbara Spies sagði að
talsverðar umræður hefðu
farið fram innan þýzkra stú-
dentasamtaka um hvert um-
boð þeirra væri til stjórnmála-
afskipta i nafni allra stúdenta
og legðist RNDS gegn slíkum
afskiptum almennt séð. Hún
sagði að mikið áhugaleysi
væri yfirleitt ríkjandi hjá
þýzkum stúdentum um önn-
ur mál en þeirra eigið nám og
þátttaka i stúdentakosning-
um væri yfirleitt lítil, sjaldan
meiri en 40%.
Það kom einnig fram hjá
fjórmenningunum að þýzkir
stúdentar njóta mjög góðra
styrkja frá þýzka ríkinu til að
stunda nám sitt. Er tekið mið
af tekjum hvers stúdents og
einnig af tekjum foreldra
hans, þegar úthlutað er
styrkjum og getur styrkupp-
hæð farið í 500 mörk (rúm-
lega 30000 ísl, kr. ) hæst á
hverjum mánuði. Horfið var
fyrir nokkrum árum að mestu
frá því að veita námslán og i
stað þeirra veittir styrkir, en
nú hefur verið nokkuð rætt
jm að hverfa aftur til lánafyr-
rkomulagsins, því það er tal-
ð vera meira hvetjandi fyrir
lámsmenn.
Friedbert Plúger sagði að í
viðræðum hérlendis við ís-
lenzka stúdenta og stjórn-
málamenn hefði landhelgis-
málið borið mest á góma.
Hann sagði það hafa verið
mjög gagnlegt að koma hing-
að og kynnast viðhorfum ís-
lendinga af eigin raun. Hann
sagðist telja mjög nauðsyn-
legt að þetta eina mál hafi
ekki spillandi áhrif á annars
mjög góð samskipti land-
anna tveggja. Ljóst væri að
báðar þjóðir yrðu eitthvað að
slaka á í landhelgismálinu til
að ná samkomulagi og leggja
yrði tilfinningar á hilluna I
málinu. Hann sagði íálend-
inga ekki alltaf gera sér grein
fyrir mikilvægi úthafsfisk-
veiða Þjóðverja fyrir um
40000 manns sem í sjávar-
útvegi landsins vinna og
lausn málsins yrði að byggj-
ast á því að ekki yrði enn
aukið við tölu atvinnulausra í
V-Þýzkalandi, sem nú væru
ein og hálf milljón.
Við inntum Plúger eftir
þvl, hvort samtök hans
mundu reyna að hafa áhrif á
stefnu Kristilega demókrata-
flokksins í landhelgismálinu,
en stefna flokksins hefur til
þessa farið saman við stefnu
ríkisstjórnar Jafnaðarmanna-
flokksins. Hann sagði að
samtökin ættu mjög erfitt
með að hafa nokkur áhrif á
stefnu flokksins I máli sem
þessu, enda væru þau ekki
skipulagslega séð hluti af
flokknum, þótt formaður
samtakanna sæti í miðstjórn
hans. Hins vegar mundi
verða tekin saman skýrsla
um viðræðurnar hér og hún
afhent skrifstofu flokksins.
Eins og áður sagði hélt
hópurinn héðan til Bandaríkj-
anna þar sem þau verða í
rúmar tvær vikur. Þeir sem
við ræddum við í hópnum
létu mjög vel yfir móttökun-
um hér á landi, hér hefðu
þau eignazt góða vini og átt
gagnlegar viðræður. Báru
þau að lokum fram þakkir til
Vökumanna fyrir þátt þeirra i
að gera heimsóknina eftir-
minnilega.
Heimsmeistarinn
af velli lagður
Eins og fram hefur komið af
strjálum blaðafregnum, hefur
að undanförnu staðið yfir mjög
sterkt stórmeistaramót í Mílanó
á Italíu. Mótið var með nokkuð
öðru sniði en almennt gerist. I
upphafi var 12 stórmeisturum
boðið til þátttöku og tefldu þeir
allir við alla samkvæmt hefð-
bundnum reglum. Fjórir efstu
menn tefidu síðan undanrása
einvígi, og síðan tefla sigur-
vegararnir saman um 1. og 2.
sæti og þeir sem töpuðu um 3.
og 4. sæti.
Úrslit tólf manna mótsins
urðu sem hér segir: 1. Portiseh
(Ungv.l.) 7 v., 2.—4. Karpov og
Petrosjan (Sovétr.) og
Ljubojevic (Júgósl.) 6,5 v., 5. J.
Smejkal (Tékkósl.) 6 v., 6.—7.
W. Browne (U.S.A.) og M. Tal
(Sovétr.) 5,5 v., 8.—11. U. And-
ersson (Svíþjóð), B. Larsen
(Danm.), S. Gligoric (Júgósl.)
og W. Unzicker (V.-Þýzkai.) 5
v., 12. S. Mariotti (Italía) 2,5 v.
Eins og þessi upptalning ber
með sér var þetta mjög jöfn og
hörð keppni, þar sem aðeins
tveir vinningar skilja 1 og 11
mann. Sigur Portisch þarf eng-
um að koma á óvart, hann hefur
verið í röð fremstu skákmanna
heimsins um árabil. Um
Karpov er það að segja, að auð-
vitað telzt það alltaf til tíðinda
þegar heimsmeistarinn er ekki
f efsta sæti. En heimsmeistar-
arnir eru líka menn og þess
vegna geta þeir ekki alltaf
unnið. Það vissi Fischer.
Árangur Jan Smejkal er
gleðilegur vottur þess, að hann
hefur nú að fullu náð sér eftir
veikindi, sem hrjáðu hann á
síðastliðnu ári. Arangur
Browne kemur nokkuð á óvart,
og sama er um Tal að segja. Ulf
Andersson sigraði bæði
Portisch og Karpov, en aftur á
móti gekk honum iakar gegn
„botninum“, tapaði t.d. bæði
fyrir Larsen og Gligoric. Hinir
tveir síðasttöldu mega muna
sinn fífil fegri, en um Larsen er
það að segja, að í þessu móti
ætlaði hann sér stundum helzti
mikið.
I undanrásaeinvígunum átt-
ust við þeir Portisch og
Ljubojevic annars vegar, og
Karpov og Petrosjan hins
vegar. Portisch og Karpov sigr-
uðu og tefla því um efsta sætið,
en Petrosjan og Ljubojevic um
þriðja sætið. Um úrslita-
keppnina hefur ekkert frétzt er
þetta er ritað. Sem fyrr sagði
sigraði Andersson Karpov, og
var það fyrsta tapskák Karpovs
eftir að hann varð heims-
meistari. Skákin fer hér á eftir.
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Hvítt: A. Karpov.
Svart: U. Andersson.
Sikileyjarvörn.
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4
— cxd4, 4. Rxd4 — Rc6, 5. Rb5
— d6, 6. c4 — Rf6, 7. Rc3 —
a6, 8. Ra3 — Be7, 9. Be2 — o-o,
10. o-o — b6, 11. Be3 — Bb7, 12.
IIcl — He8, 13. Db3 — Rd7, 14.
Hfdl — Hc8, 15. Hd2 — Dc7,
16. Ddl — Db8, 17. f3 — Ba8,
18. Dfl — Rce5, 19. Rabl —
Rf6, 20. Khl — h6, 21. Hdl —
Bf8, 22. Rd2 — Hcd8, 23. Df2 —
Red7, 24. a3 — d5, 25. cxd5 —
exd5, 26. exd5 — Bd6, 27. Rfl
— IIxe3, 28. Rxe3 — Bxh2, 29.
Rfl — Bf4, 30. Hc2 — b5, 31.
Bd3 — Rb6, 32. Be4 — Rc4, 33.
a4 — He8, 34. axb5 — axb5, 35.
He2 — Be5, 36. Dc5 — Rd6, 37.
Ra2 — Rdxe4, 38. fxe4 — Bd6,
39. Dc2 — He5, 40. g3 — De8,
41. Hdel — Bb7, 42. Kgl —
Rh7, 43. Rcl — Rg5, 44. Rd2 —
Bb4, 45. Kf2 — Bxd2, 46. Hxd2
— Rxe4+, 47. Hxe4 — Hxe4, 48.
Re2 — Bc8, 49. Rc3 — Hel, 50.
Re2 — Hal, 51. Hd4 — Dd8, 52.
Dc6 — Bd7, 53. Dd6 — De8, 54.
Df4 — Dc8, 55. b4 — Bh3, 56.
De4 — Bf5, 57. De3 — Dc2, 58.
g4 — Bd7, 59. De4 — Db3, 60.
Dd3 — Db2, 61. De4 — IIa8, 62.
De3 — Ha2, 63. d6 — Ha8, 64.
He4 — Bc6, 65. Dd4 — Dbl, 66.
He7 — Dhl, 67. Df4 — Dg2+,
68. Kel — Hal+, 69. Kd2 —
Dd5+, 70. Dd4 — Ha2+, 71. Kc3
— Df3+, 72. He3 — Ha3+, 73.
Kd2 — Ha2+, 74. Kel — Dhl+,
75. Kf2 — Dg2+, 76. Kel —
Dhl+, 77. Kf2 — Hal, 78. He3
— Dg2+, 79. Ke3 — Df3+ og
Karpov gafst upp.