Morgunblaðið - 18.09.1975, Síða 27

Morgunblaðið - 18.09.1975, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975 27 Kristín Bjarnadóttir bókavörður - Minning KRISTÍN Bjarnadóttir bókavörö- ur í Borgarbókasafni Reykjavíkur er til moldar borin í dag. Hún lézt hinn 10. þ.m. eftir erfitt sjúk- dómasumar, 68 ára að aldri. Kristín er sannarlega harm- dauði okkur öllum sem störfuðum með henni í Borgarbókasafni, því að hún var bæði vinsæl af öllum sem hún starfaði með og viðfelld- in i samstarfi. Enda lézt hún vissulega fyrir aldur fram — ein- mitt þegar hún virtist hafa orðið öll ytri skilyrði til að eiga mjög ánægjurika daga hefði heilsan enzt. Og ekki skorti þá innri skil- yrði til þess heldur — hún átti svo mörg áhugamál og kunni vel að njóta lífsins, ekki með skemmtun- um, heldur með bóklestri, tóniðk- un eða í samvistum við blóm og steina heima i garðinum sínum eða úti í náttúrunni. Auk þess að vera mikill náttúruunnandi, eins og hún átti kyn til, var hún mikill lista- og fegurðardýrkandi — og þeir sem þroska með sér slíka eiginleika láta sér ekki leiðast. Sjálfsagt hefur tónlistin átt meiri ítök í Kristinu Bjarnadóttur en aðrar listir, enda var hún mjög fær í þeirri grein, lék ágætlega á píanó og kenndi píanóleik um skeið. Verður hennar sárt saknað á næstu árshátíðum starfsmanna bókasafnsins, því að þar var hún jafnan hrókur alls fagnaðar með píanóleik sínum. Kristín Bjarnadóttir var hæg í fasi, sjálfstæð í skoðunum og bar þá persónu sem eftir var tekið. Og hún hafði til að bera marga þá eiginleika sem gerðu hana góðan bókavörð í almenningsbókasafni. Hún var fjölfróð og víðlesin, ljúf í framkomu við hvern sem hún átti og vildi hvers manns vandræði leysa. Nokkur síðustu árin starfaði hún eingöngu í lestrarsal bókasafnsins í Þingholtsstræti. Þangað berst jafnan mikið af fyrirspurnum um ólíklegustu efni, og var Kristín sérlega lagin við að finna svör við þeim enda þótt þau lægju síður en svo alltaf á lausu. Og hún gerði sér mjög far um að bæta skilyrði lestrar- salarins til upplýsingaöflunar þau ár sem hún starfaði þar og varð vel ágengt í þeim efnum. Borgarbókasafn Reykjavíkur þakkar Kristínu Bjarnadóttur tuttugu og tveggja ára óeigin- gjarna og ágæta þjónustu. Og fyrir hönd okkar allra samstarfs- manna hennar f bókasafninu þakka ég henni frábæra sam- vinnu og ánægjulega við- kynningu. Hún skilur hér á safninu eftir sig góðar minningar sem munu endast okkur þó að árum fjölgi. Eiríkur Hreinn Finnbogason. Mágkona mín, Kristín Bjarna- dóttir, Þingholtsstræti 14, lézt á Borgarspítalanum hinn 10. þ.m. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag. Frú Kristín var fædd hinn 4. júlí 1907. Voru foreldrar hennar Bjarni Sæmundsson, náttúru- fræðingur og yfirkennari við Menntaskóla Reykjavíkur og kona hans, Steinunn Sveinsdóttír Guðmundssonar, kaupmanns á Búðum, og konu hans Kristínar f. Siemsen. Kristín lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum 1923. Næstu árin lagði hún stund á tónlist og tungumálanám, m.a. hjá frú Katrínu Viðar, Jóni Öfeigssyni, Páli Sveinssyni og Önnu systur sinni í enskri tungu og bók- menntum. Sfðan fór hún til Kaup- mannahafrrar og stundaði nám í píanóleik hjá Haraldi Sigurðs- syni. Heim komin stundaði hún píanókennslu og skrifstofustörf. Hún aðstoðaði og föður sinn við úrvinnslu rannsóknarefna hans, prófarkalestur o.fl. Hinn 8. júnf 1935 giftist 'hún Marteini Guðmundssyni mynd- höggvara. Eignuðust þau hjón- fjögur börn, sem öll lifa. Þau eru: Steinunn Sigríður listakona, gift Sverri Haraldssyni listmálara, Guðrún Ásta, gift Þórði Hafliða- syni flugmanni, Bjarni arkitekt, kvæntur Guðborgu Kristjáns- dóttur, læknis Sveinssonar, og Þóra, gift Einari Gíslasyni raf- virkja. Barnabörn hennar eru 10. Kristín missti mann sinn 23. júlí 1952. Stóð hún þá ein uppi með börnin sfn fjögur. Hún lagði þó ekki árar í bát, heldur vann fyrir heimilinu eftir getu. Það var henni mikill styrkur, er hún fékk starf við Borgarbókasafn Reykja- víkur. I þessum erfiðleikum sem öðru var Þóra Guðnadóttir, er verið hafði á heimili tengdaföður míns og síðan hennar í rúm 30 ár, ómetanleg hjálp. Kristín mágkona mfn var gáfuð kona, eins og hún átti ætt til, og hámenntuð. Hún las mjög mikið góðar bókmenntir, bæði á ís- lenzku og erlendum málum, og fylgdist vel með á því sviði. Hún hafði mikinn áhuga á myndlist og tónlist. Hún ferðaðist mikið um landið og kunni vel að meta fegurð þess. Kristín lifði kyrrlátu lífi, en var hrókur alls fagnaðar í vinahópi, og þá naut hin skemmtilega tón- listargáfa hennar sín frábærlega vel. Að lokum þakka ég Kristínu mágkonu minni áratuga samfylgd og vináttu við mig og mipa. Gefi henni nú Guð alla raun minum orðum betri. Einar Guðnason. Ekki kom mér til hugar þegar ég kvaddi móðursystur mína fyrir réttum tveimur mánuðum í dá- litlu fjölskyldusamkvæmi í tilefni afmælis móður minnar, að þetta væru síðustu samfundir okkar hérna megin tjaldsins mikla. Að vísu var Stína frænka nýkomin á kreik eftir erfiða sjúkrahúsvist og án þess að heyja sjúkdómsbaráttu eins og svo margir þurfa að gera. Já, sannarlega var guð honum góður. Hann gaf honum svo margt sem Helgi kunni að meta. Og hvað er betra en vera ánægður með sitt, öfundarlaus, heilsugóður og hafa getað miklu fremur unnið gagn en öfugt. Og mér sem átti þá gæfu að vinna með Helga eins og áður er sagt verður oft hugsað til genginna daga. Það var gaman og átök oft því það er nú einu sinni svo að góð málefni krefjast miklu meira en það sem miður fer. Það er heiðríkja í huga mínumer ég lít til baka og eitt hið besta sem maður eignast 1 þessum synduga heimi eru góðir vinir. Þetta skild- um við Helgi báðir. Þakkarefnin eru þvi yfirgnæf- andi þegar ég kveð Helga og þakka honum góðu og gömlu dagana og óska honum alls vel- farnaðar á öðrum vettvangi. Konu hans og börnum sendi ég innileg- ar samúðarkveðjur. Stykkishólmi 29. ág. 1975 Arni Helgason. sagðist ekki hafa náð sér til fulls, en margir fara á sjúkrahús og fá þar fulla bót meina sinna þó stundum taki það nokkurn tíma. Mér datt ekkert alvarlegt í hug og við kvöddumst eins og venjulega. Því brá mér mjög þegar móðir mín hringdi fyrir tveimur vikum og sagði, að Stína frænka lægi mjög veik á sjúkrahúsi og að eng- in von væri um bata. Síðastliðinn miðvikudag var okkur sagt að skammt væri að bíða úrslita. Um kvöldið hringdi pabbi, Stina frænka var dáin. Slík fregn kemur ætíð róti á hugann, þó hún sé ekki óvænt. Sinn tíma tekur að átta sig á hvað gerst hefur. Kona, sem verið hef- ur snar þáttur hins nánasta per- sónulega umhverfis er skyndilega horfin. Við vitum þó, að ekki einu sinni þessi skilnaður ér endanleg- ur, því fyrr eða síðar hljótum við, sem yngri erum, að leggja upp í þessa sömu ferð. En í vitund okk- ar er hún samt svo órafjarri. Hugsanir okkar snúast jafnan um lífsbaráttu og framtið hérnameg- in og líkamsdauðinn virðist okkar svo óskaplega endanlegur. Því ná tilfinningar sorgar og saknaðar yfirhöndinni þegar ástvinur er kvaddur hinstu jarðnesku kveðju, því vissulega höfum við mikið misst. Samt vitum við, að í innsta eðli sinu eru þessar tilfinningar fyrst og fremst af eigingjörnum rótum runnar, þvi sú, sem við syrgjum og söknum, hefur náð fundi horfinna ástvina í betri heimi, þar sem algóður guð leiðir hana á ljóssins vegum. Kristín Bjarnadóttir fæddist 4. júlí 1907. Foreldrar hennar voru dr. Bjarni Sæmundsson fiskifræð- ingur og kona hans, Steinunn Anna Metta Sveinsdóttir. Kristín ólst upp í foreldrahúsum að Þing- holtsstræti 14, Reykjavík, þar sem hún bjó alla ævi sfna. Systurnar voru þrjár, móðir mín, A,nna Bjarnadóttir, Kristín og yngri systur, sem dó ung. Kristín gekk í Menntaskólann í Reykjavik og fór sfðan til tónlistarnáms i Dan- mörku. Hinn 8. júní 1935 gekk hún að eiga Martein Guðmunds- son myndhöggvara frá Merkinesi í Höfnum. Þau eignuðust fjögur börn, Steinunni Sigríði listakonu sem gift er Sverri Haraldssyni listmálara, Guðrúnu Ástu, sem gift er Þórði Hafliðasyni flug- manni, Bjarna arkitekt, sem kvæntur er Guðbjörgu Kristjáns- dóttur og Þóru, sem gifter Einari Gislasyni bifvélavirkja. Barna- börn Kristindar eru orðin tíu. Kristin og Marteinn bjuggu að Þingholtsstræti 14. Marteinn var mikill listamaður og stundaði list sfna, tréskurð og höggmyndagerð, jafnframt kennslu. Kristín kenndi píanóleik og hefur margt mætra karla og kvenna numið hjá henni. Oft var lifsbaráttan erfið, en í þeirri baráttu nutu þau Krist- ín og Marteinn frábærrar aðstoð- ar Þóru Guðnadóttur frá Sval- barðseyri, sem verið hefur með- limur fjölskyldunnar í Þingholts- stræti frá því hún var ung stúlka. Þegar Marteinn andaðist 23. júlí 1952 var islenska þjóðin að sjá á bak ágætum listamanni löngu fyr- ir tímann, en ekkjan í Þingholts- stræti 14 stóð uppi með barnahóp- inn. Næstu ár voru erfið. Öll spjót varð að hafa úti til að afla lífsvið- urværis. Kristín og Marteinn áttu hálft Merkines í Höfnum. Þar höfðu þau sumarbústáð og rækt- uðu grænmeti til sölu og stund- uðu heyskap. Kristín, Þóra og börnin héldu þessu starfi áfram, jafnframt því sem Kristín stund- aði píanókennsluna. Þetta var hörð barátta, en með dugnaði og þrautseigju voru erfiðleikarnir yfirunnir. Og aftur birti í Þing- holtsstrætinu þegar Kristín hóf störf í Borgarbókasafninu, þar sem hún vann til æviloka. Kristín var sérstaklega bókhneigð og störfin í bókasafninu hæfðu henni mjög vel. Sérstaka ánægju hafði hún af að aðstoða námsfólk, sem leitaði til safnsins við nám og ritgerðasmíð, og munu mörg þeirra minnast Kristínar með þakklæti. En það, sem þarna kom fram, voru sérstæðir hæfileikar hennar til að ná sambandi við að umgangast ungt fólk. Mér er þetta sérstaklega hugstætt þegar ég lít um öxl til hinna mörgu samverudaga okkar Stínu frænku, því ég er einn þeirra, sem nutu þessara hæfileika henn- ar í ríkum mæli. Bilið á milli kynslóðanna er nú í tísku sem umræðuefni og vanda- mál æskunnar eru í brennidepli. Ekki skal dregið í efa að þetta sé raunveruleg vandamál. Að veru- legu leyti eru þetta afleiðingar streitusamfélagsins. Örþreyttir foreldrar vilja nota sinn litla frí- tíma til hvildar eða í eigin þágu og hafa hvorki tíma né áhuga á andlegu samfélagi við börn sín og ýta þeim út af heimilinu út á götuna til að hafa frið. Þessu var öðruvisi farið í Þingholtsstræti 14 Þar var kynslóðabilið óþekkt hugtak. Þar stóðu dyrnar opnar, ekki einungis börnunum á heimil- inu og okkur systkinunum, held- ur og vinum og kunningjum barn- anna og okkar. Og ekki var látið þar við sitja. Okkur og kunningj- um okkar var sýndur áhugi og alúð á svo eðlilegan hátt, að ald- ursmunur gleymdist, kynslóðabil- ið hvarf. Það var mér mikil gæfa, sveitadrengnum, sem kom einn til hinnar ógnvekjandi höfuðborgar til að setjast á skólabekk, að eiga Stínu frænku að og eiga athvarf á heimili hennar. Að vísu hafði samband verið náið á milli fjöl- skyldnanna í Reykholti og í Þing- holtsstrætinu og gagnkvæmar heimsóknirtíðar. Égsótti þvíekki á ókunnar slóðir. En að fara einn á brott úr foreldrahúsum er mikið átak, og þá kom sér vel að eiga heimili í Reykjavík. Og við systk- inin áttum alltaf heima í Þing- holtsstrætinu þegar við vorum í skóla, þ„egar við vorum þar til heimilis og einnig síðar, þegar við bjuggum annars staðar i borginni. Oft var gaman í Þingholtsstræt- inu. Stina frænka tók þátt í um- ræðum okkar um allt milli himins og jarðar og þegar glaðst var, var hún hrókur alls fagnaðar. Tónlist- arhæfileikar hennar reyndust af- ar vel í hvers kyns gleðskap. Hún var snjall undirleikari og átti létt með að leika eftir eyranu. Og oft var sungið í kringum píanóið hennar Stínu langt fram á nótt. Nú, þegar lokið er samvistar- dögum þessa heims, er þakklætið efst í huga. Og þar tel ég, að ég mæli ekki einungis fyrir eigin munn og minna systkina, heldur fyrir munn allra, er sem ungling- ar áttu athvart i Þingholtsstræti 14 og sóttu þangað hlýju, vin- semd, skilning og þátttöku í dag- legum vandamálum. Ég er viss um, að allur þessi hópur sendir þakkir og fyrirbænir með Krist- inu yfir landamærin miklu. Ég sendi börnum Kristínar, fjölskyldum þeirra og Þóru Guðnadóttur innilegustu samúð- arkveðjur mfnar og fjölskyldu minnar og við biðjum almáttugan guð að blessa og vernda Kristínu á leið hennar um ljóssins vegu. Akureyri 14. september 197-5. Bjarni Einarsson. Helgi Sigurðsson Eskifirði — Minning Við andlát þessa góða vinar fer ekki hjá því að margar minningar vakni, minningar um samstarf að hugsjónamálum, um falslausan áhuga á að gera sitt til að brautir samborgaranna gætu verið án sárra hugsana og tilfinninga. Helgi hafði séð hversu mörg lff sem lofuðu svo mikilli framtíð fóru í súginn í sogi eiturnautna og þess er skaða veldur bæði líkama og sál. Við áttum langa samleið f stúkunni Björk á Eskifirði og slysavarnafélaginu og einlægari félaga gat ekki. Hægur og hugs- andi, alltaf tilbúinn þegar á var kallað, og afstaða hans í hverju máli var vel fgrurrduð. Ég sé hann enn fyrir mér skipa sitt sæti og ræða áhugamálin. Þá voru margir fundirnir á heimili hans, því það var opið hugsjónaheimili. Kona hans, Guðrún Kristjánsdóttir, var í baráttunni með honum. Hjá þeim voru málin oft rædd. Þar var svo hlýtt og elskulegt að maet- ast. Þessi vinátta okkar varð varanleg eins og hún verður milli þeirra sem leggja sinn skerf til að gera umhverfið bjartara og vinna að velferðarmálum. Helgi lagði mörgum góðum málum lið. Þau málefni sem áttu stuðning hans voru áframtíðarvegi. Þaðvar sama hvort þau voru hagsmuna- eða hugsjónamál. Gætu þau miðað til góðs þá var Helgi með. Hann var einn af frumherjum Pöntunar- félags Eskifirðinga og Hraðfrysti- hússins svo nokkuð sé nefnt. Helgi var alinn upp við sjó- mennsku og landbúnað. Hann var fæddur að Kolmúla við Reyðar- fjörð 14. sept. 1895. Kolmúli var í röð fremstu heimila og sá skóli sem Helgi fékk í föðurhúsum ent- ist honum vel, enda var ekki um langskólagöngu á öðrum vett- vangi að ræða. Helgi kvæntist árið 1920 Sigríði Jakobínu Sig- urðardóttur og áttu þau saman einn son, Sigurgeir, sem býr á Eskifirði. Konu sína missti Helgi eftir þriggja ára sambúð, en kvæntist aftur 1925, Guðrúnu Þórsteinu Kristjánsd., sem þá var ekkja. Hafði misst mann sinn í bátstapa á Eskifirði nokkru fyrr. Hún átti eina dóttur, Rósu, og saman eignuðust þau Helgi dótt- ur, Söru, og eru öll þessi börn indæl og mannvænleg og sýna vel á hvaða heimili þau mótuðu líf sitt. Við Helgi störfuðum saman tæpan áratug, en þá lágu leiðir hvor í sína áttina, ég yfirgaf Austurland, Helgi varð eftir. Hann átti svo margt eftir ógert. Var lika búinn að koma sér svo vel fyrir og Eskifjörður var búinn að vinna hug hans. Nokkrum sinnum var ég á ferðinni fyrir austan og þá var auðvitað skropp- ið upp á Hólinn. Handtakið var æ hið sama, alúðin sem í það var lögð fylgdi langt á leið. Ég fann glöggt að hann var enn hinn sami og ég hafði átt leið með um skeið. Það var gaman að ræða við þau hjónin. Helgi var nærri 80 ára er hann lést 30. júní sl. Bognaði ekki en brast. Guði sé lof að hann fékk að lifa langa ævi og ljúka dagsverki t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÁKI JAKOBSSON, sem lést 1 1 september, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 1 9. september kl, 3 00 síðdegis. Helga Guðmundsdóttir, Guðmundur Ákason, Jóna Gunnarsdóttir Valgerður Ákadóttir, Jörundur Ákason, Dagmar Jónsdóttir Jón Börkur Ákason, Sigríður Þorgeirsdóttir Margrét Ákadóttir, James Wilson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.