Morgunblaðið - 18.09.1975, Qupperneq 36
INNIHURÐIR
Cæöi í fyrirrúmi
SIGURÐUR
ELÍASSONHF.
AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI,
SÍMI 41380
AUGLÝSINtiASÍMINN ER:
22480
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1975
Vopnaleit á öllum
farþegum til Banda-
ríkjanna eftir 9. okt.
IIINN 9. október n.k. ganga í gildi
mjög strangar reglur um vopna-
leit f flugvélum sem lenda í
Bandarfkjunum. Kveða þær á um
að ekki fái neinar farþegaflug-
vélar lendingarleyfi nema full-
komin vopnaleit hafi farið fram
áður en véfin lagði af stað f
flugið. Þetta hefur það m.a. í för
með sér, að frá og með 9. október
verður vopnaleit í öllum farþega-
fiugvélum sem fara frá Kefla-
\ íkurflugvelli til Bandarfkjanna.
Sigurður Helgason forstjóri hjá
Flugleiðum hf. tjáði Morgunblað-
inu í gær, að þessi leit myndi fara
fram áður en vélar félagsins
legðu upp .í áætlunarflug til
Bandaríkjanna. Hann sagði að nú
þegar færi slík leit fram áður en
vélar Flugleiða fara frá Luxem-
Framhald á bls. 35
Fékk 60 tunnur af
síld í Lónsbugt
REKNETABÁTURINN Snæfugl
frá Reyðarfirði fékk 60 tunnur af
síld í Lónsbugt í fyrrinótt og í
gærmorgun fór Gunnar frá
Reyðarfirði yfir fallegar sfldar-
torfur á þessum slóðum. Morgun-
blaðið hafði samhand við Jakob
Tilboð komin
í hitaveitulögn
í Grindavík
„NIÐURSTAÐA gerðardóms
varðandi álit á eðlilegu verði
Svartsengis er væntanleg f okt.
n.k.,“ sagði Jóhann Einvarðsson
bæjarstjóri í Keflavík þegar
Morgunblaðið innti hann í gær-
kvöldi eftir fréttum af hitaveitu-
málum þeirra á Suðurnesjum.
„Hins vegar," sagði Jóhann, „eru
verklegar framkvæmdir að kom-
ast f fullan gang. Það er búið að
bjóða út 1. áfanga í hitaveituupp-
byggingunni, en það er lagning
dreifikerfis í um það bil helming
Grindavíkurbyggðar og verða til-
boð opnuð n.k. föstudag. Þegar
það er búið er að koma vinnunni
af stað og ljúka við lagningu
kerfis í Grindavík, en þegar
niðurstaða gerðardóms liggur
fyrir munu þessi inál skýrast og
þá getum við lagt niður áætlaðar
tímasetningar annarsstaðar.“
Jakobsson leiðangursstjóra á
Bjarna Sæmundssyni og spurði
hann hvort það væri óvenjulegt
að síld fengist á þessum slóðum.
Jakob sagði, að hér fyrr á árum
hefði það komið fyrir, að sfldin
hefði gengið langt austur með
fjörðum og því væri ekkert ein-
kennilegt við að síld fyndist á
þessum slóðum. Þeir á Bjarna
væru nú að fara á þessar slóðir og
kanna hve mikið magn væri um
að ræða þarna.
Þá sagði hann, að búið væri að
kanna svæðið kringum Ingólfs-
höfða og Hrollaugseyjar og í fyrri
nótt hefðu fundizt þar torfuræm-
ur, en ekki stórar. Þá hefðu einn-
ig fundizt torfur nokkuð úti í
Breiðamerkurdýpi.
Tveir hringnótabátar voru að
koma á síldarmiðin í gærkvöldi,
voru það Ásberg frá Reykjavík og
Helga Guðmundsdóttir frá
Patreksfirði. Þá var Jón Garðar
tilbúinn að leggja af staðtil veiða.
Myndin var tekin fyrir nokkrum dögum á Hornafirði þar sem skip-
verjar á Steinunni SF 10 voru að landa silfri hafsins, hinni umdeildu
sfld. Garðar Axelsson er þarna á pallinum.
Ljósmynd Mbl. Arni Johnsen.
Síldarverðsdeilan:
Vilja stýri-
manna- og
vélstjóra-
nám í Eyjum
„VÉLSKÓLINN átti samkvæmt
viðtali mfnu við Birgi Thorlacius
ráðuneytisstjóra menntamála-
ráðuneytisins að taka til starfa nú
í haust f Eyjum með 10 nemend-
ur,“ sagði Sigfinnur Sigurðsson
bæjarstjóri f Vestmannaeyjum f
viðtali við Morgunblaðið f gær-
kvöldi þegar hann var spurður
um það hvort Stýrimannaskólinn
yrði einnig starfræktur þar á ný í
vetur.
„Okkur þótti það hart,“ hélt
hann áfram," hér í einni af
stærstu verstöðvum á norðurhveli
jarðar að ek.ki skyldi vera unnt að
starfrækja stýrimannaskóla og
því auglýstum við nú fyrir
skömmu eftir umsóknum í stýri-
mannanám. 5 umsóknir bárust
þegar og vitað er um fleiri á leið-
inni og ef 10 nemendur eru í
hvorum skóla þá styður það mikið
hvað annað varðandi kennslu og
fleira. Hins vegar komst ég að
raun um í Reykjavík í gær hjá
Vélskóla Islands að það væri
óráðið hjá honum hvort af skóla-
haldi yrði í Eyjum í vetur. Þar
sem ráðuneytisstjóri mennta-
málaráðuneytisins er erlendis
Framhald á bls. 35
Síldarseljendur vilja 4% af
útflutningsgjaldi til skipta
Mikil fundahöld á Hornafirði - Skipstjórar frestuðu
heimsiglingu að tilhlutan óskar formanns LÍÚ
SEINT f gærkvöldi stóðu enn yfir
fundir sjómanna og útvegsmanna
Landhelgin:
Fleiri jiýzkir - færri brezkir
54 brezkir togarar voru að veiðum
í gær við Iandið og 13 togarar frá
Vestur-Þýzkalandi, en sama dag í
fyrra voru 62 Bretar að veiðum
við Iandið en ekki nema 5 vestur-
þýzkir togarar. Allir vestur-þýzku
togararnir héldu sig utan við 50
mílna mörkin, en margir þeirra
voru nálægt þeim. Tveir voru úti
af Breiðafirði, 3 út af Reykjanes-
inu, tveir á siglingu við Suður-
land, 2 í Rósagarðinum úti af Suð-
austurlandi, eða 60—70 mílur úti
af Hvalbak á vinsælu veiðisvæði
þar.
á Hornafirði vegna sfldarverðsins
og var þeim ekki lokið þegar
Morgunblaðið fór f prentun. t
Sindrabæ voru milli 90 og 100
sjómenn á fundi með sfnum
mönnum úr Verðlagsráði og
Ingólfi Ingólfssyni og öðrum
forsvarsmönnum, og í Ráðhúsinu
voru skipstjórar og útvegsmenn á
fundi með Kristjáni Ragnarssyni
formanni Ll(J og Ingólfi Stefáns-
syni framkvæmdastjóra FFSl, en
3 fyrrgreindir menn eiga allir
sæti f yfirnefndinni.
Samkvæmt upplýsingum frétta-
ritara Morgunblaðsins á Höfn
voru málin rædd fram og
Geir Hallgrímsson í viðtali við Sjómannablaðið Víking:
Verðum að meta, hvort við höfum ör-
uggari stjórn á hagnýtingu fiskimiða
- með eða án samninga
HAFA tslendingar öruggari
stjórn á hagnýtingu íslenzkra
fiskimiða með eða án samninga
og verður hlutfall okkar af afla
af tslandsmiðum hærra með
eða án samninga — eru spurn-
ingar, sem Geir Hallgrímsson,
forsætisráðherra, segir f viðtali
við Sjómannablaðið Víking, að
tslendingar verði að leita svara
við og meta „af kaldri skyn-
semi“. Forsætisráðherra segir
jafnframt, að leiða megi rök að
þvf, að hlutfall okkar f bolfisk-
afla innan 50 mllnanna hafi
ekki vaxið að neinu ráði fyrr en
eftir samningana við Breta.
Geir Hallgrimsson segir í við-
talinu við Víking, sem nýlega
er kominn út:
„Spurningin er hér annars
vegar, hvort og aó hve miklu
leyti aðrar þjóðir muni virða
útfærsluna og hins vegar, í
versta faili, að landhelgisgæzla
okkar geti knúið þær til þess
með valdi.
I öðru lagi verðum við að
gera okkur grein fyrir hvaða
hag við höfum að því að veiða
innan fiskveiðimarka annarra
þjóða.
1 þriðja lagi verðum við að
meta hverju við töpum á því að
geta ekki selt fiskafurðir á
þeim mörkuðum, sem við helzt
kjósum.
I fjórða lagi hljótum við að
vilja stuðla að eðlilegri verka-
skiptingu milli þjóða og draga
úr þeirri viðleitni, sem vart
verður hjá öðrum, að styrkja
sjávarútveg sinn. Slík þróun
leiðir til þess að markaðsverð á
fiski verður óraunhæft og við,
sem ekki getum styrkt okkar
sjávarútveg, hljótum að bera
þar skarðan hlut frá borði.
öll þessi mál verðum við að
ræða við þær þjóðir, sem telja
sig hafa hagsmuni af því að fá
að stunda veiðar í lögsögu
okkar. Samningar við þær, ef
til þeirra kemur, eiga ekki að
verða einhliða á þann veg, að
við látum af hendi og fáum ekki
neitt í staðinn. Menn verða að
gera sér fulla grein fyrir því, að
viðræður verða að byggjast á
gagnkvæmni."
Um viðskiptaþvinganir segir
forsætisráðherra undir lok
viðtalsins við Sjómannablaðið
Víking:
„. . . Framkoma Vestur-
Þjóðverja gagnvart okkur í
þessu máli er óviðunandi og
áhrif þau, sem Vestur-
Þjóðverjar hafa haft á Efna-
hagsbandalagið í málinu, eru
þess eðlis, að það vekur furðu.
Islendingar munu ekki láta
„hótanir um viðskiptaþvingan-
Framhald á bls. 35
aftur á báðum fundunum,
en hjá sjómönnum
sagði hann að hljóðið
hefði verið mjög í þá átt að menn
myndu ekki sætta sig við annað
en 30 kr. fyrir kg á síld undir 32
sm og 40 kr. yfir 32 sm. og auk
þess hefur verið rætt um 10%
ofan á síld sem fer til beitu.
Undir miðnætti náðum við sam-
bandi við Helga Einarsson skip-
stjóra á Hring þar sem hann var á
fundinum i Ráðhúsinu. „Þetta er
allt í hnút hérna," sagði hann,
„þeir eru hérna Kristján og
Ingólfur að reyna að sannfæra
okkur um eitthvað, en við getum
ekki fallizt á það verð sem Verð-
lagsráð er að bjóða 24 kr. fyrir
smærri síldina og 38 kr. fyrir þá
stærri. Við teljum hins vegar að
ef útflutningsgjöld lækki um 4%
og komi beint til skipta, þá sé
málið leyst, en það virðist lítil von
til þess. Það er að kvikna í þessu
öllu, sjómennirnir sem flestir eru
hér aðkomumenn, vilja ekki
hanga hér í erjum og ráðamenn
fyrir sunnan eru alveg steinsof-
andi. Skrifstofubáknið þar hefur
engan áhuga á því þótt hér séu
200 sjómenn að berjast fyrir lífi
sínu.
Framhald á bls. 35
Alvarlegt
umferðarslys
ALVARLEGT umferðarslys varð
um kl. 23 í gærkvöldi á mótum
Suðurlandsbrautar og Holtavegar
er ung stúlka varð fyrir bifreið.
Var stúlkan þegar flutt á slysa-
deild Borgarspítalans og var hún
enn til meðferðar hjá læknum er
blaðið fór i prentun.