Morgunblaðið - 23.09.1975, Side 1
40 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
305. tbl. 62. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunhlaðsins.
Svona var umhorfs í miðborg Beirut eftir átök helgarinnar.
Hvað þýðir
borgar-
skaeruliði?
Finnland:
Jafnaðarmenn töp-
uðu 2 þingsætum
Helsingfors 22. september NTB.
1 GÆRKVÖLDI, er um 75% at-
kvæða höfðu verið talin f þing-
kosningunum f Finnlandi, benti
flest til þess, að kommúnistar,
Miðflokkurinn og samsteypu-
flokkur fhaidsmanna hefðu unnið
nokkuð á, en jafnaðarmenn að-
eins tapað fyigi og mestur ósigur-
inn væri hjá Landsbyggðarflokki
Veikkos Vannamos. Kosninga-
spár bentu til þess, að jafnaðar-
menn myndu tapa tveimur þing-
sætum af 56, sem þeir höfðu en
Aiþýðudemókratar, sem komm-
únistar ráða, vinna 3 sæti. Reyn-
ist þessar spár réttar þýðir það, að
hlutfallið milli sósfalistaflokk-
anna og hinna flokkanna á þing-
inu verði 106 sæti gegn 94 sósfa-
listum f óhag.
Erfitt var í gærkvöldi að spá um
þingmannaskiptinguna milli
borgaraflokkanna vegna mikils
fjölda kosningabandalaga í flest-
um kjördæmum. Þó virtist mjög
líklegt að Miðflokkurinn, Sam-
steypuflokkur íhaldsmanna og
Kristilegi sambandsflokkurinn
myndu bæta við sig þingsætum.
Einingarflokkurinn, sem klauf
Framhald á bls. 39
Teikning úr réttarsalnum, er
Patty Hearst var formlega á-
kærð. Bannað er að taka mynd-
ir f bandarískum réttarsölum.
San Francisco 22. september.
Reuter.
LÍKLEGT er, að Patricia
Hearst komi fyrir dómara í
San Francisco í dag, þar sem
skorið verði úr um hvort rétt-
urinn sleppi henni heim til for-
eldra sinna gegn tryggingu,
meðan á rannsókn málsins
stendur. Er talið, að dómarinn
muni spyrja ungfrú Hearst
mjög ákveðinna spurninga
m.a. um skýringu á þvf hvers
vegna hún hafi við handtöku
sagzt hafa það að starfi að vera
borgaraskæruliði. Tryggingin
fyrir ungfrú Hearst var ákveð-
Framhald á bls. 39
Ford forseti slapp naum-
lega við morðingiakúlu
Kona í nunnuklæðum skaut á
forsetann í San Francisco
San Francisco 22. september
AP-Reuter.
GERALD Ford Banda-
ríkjaforseti slapp seint í
kvöld naumlega við bana-
tilræði, er 40 ára gömul
kona, Sarah Moore, í
nunnuklæðum, skaut einu
skoti að forsetanum af 12
metra færi, er hann var að
koma út úr St. Francishót-
elinu í San Francisco og
var að stíga um borð í bif-
reið sfna.
Öryggisverðir forsetans bók-
staflega köstuðu forsetanum inn í
bifreiðina, sem ók af stað með
ofsahraða í átt til San Francisco-
flugvallar. Sjónarvottar sögðu, að
SlÐUSTU FRÉTTIR —
Lögreglan í San Francisco skýrði
frá því um miðnættið, að Sarah
Moore hefði verið tekin til yfir-
heyrslu í fyrradag í öryggisskyni
en siðan sleppt. Hún er sögð
félagi ' róttækri hreyfingu
„Sameinuðu fangasamtökunum".
Þá skýrði lögreglan frá þvi
að ungur maður hefði einnig ver-
ið handtekinn á staðnum.
Stjóm Azevedos gagn-
rýnd úr öllum áttum
Lissabon 22. septembor Reuter—NTB.
HELDUR blés óbyrlega fyrir
hinni nýju rfkisstjórn Portúgals f
dag og varð hún fyrir stjórnmála-
legum árásum frá vinstrimönn-
um, hægri sinnum og frá eigin
mönnum úr hernum. Sprengja
sprakk f gærmorgun fyrir utan
byggingu f Lissabon, þar sem Aze-
vedo forsætisráðherra býr, en ráð-
herrann sakaði ekki. Nokkrar
skemmdir urðu á byggingunni.
Ókunnur maður hringdi sfðan f
erlenda fréttastofu f Lissgþon og
sagði að hægrisinnuð hreyfing
kölluð Portúgalski frelsisherinn,
hcfði komið sprengjunni fyrir.
Sagði maðurinn, að hreyfingin
hygðist ekki valda manntjóni á
næstunni, aðeins sýna að hún
hefði aðstöðu til að komast f gegn-
um sterkustu öryggisnet hersins.
Þá héldu 3 grímuklæddir menn,
sem sögðust vera fulltrúar ný-
stofnaðrar leynihreyfingar, blaða-
mannafund í Lissabon á sunnu-
dag. Sögðu mennirnir, að hreyf-
ingin „Hermenn, sem standa
saman, sigra“ myndi berjast gegn
þvf að stjórnin viki út af stefnu
byltingarinnar í landinu. Sögðu
mennirnir, að meðlimir hreyfing-
arinnar myndu í vikunni efna til
mótmælaaðgerða vegna hreins-
ana á vinstrisinnuðum herforingj-
um. Krefst hreyfingin þess að her
menn fái að halda fundi í her-
deildum sfnum er þeir vilja.
Kommúnistaflokkurinn, sem á
einn ráðherra i stjórn Azevedos,
hélt í dag áfram gagnrýni sinni á
stjórnina og stjórnarmyndunina.
Eru kommúnistar sagðir reiðir yf-
ir því að þeir fá mjög fáa ráðu-
neytisstjóra í sinn hlut, en til-
kynnt verður um þau embætti á
morgun, er stjórnin heldur sinn
fyrsta fund. Munu flest embættin
hafa verið skipuð jafnaðarmönn-
um og alþýðudemókrötum.
Þá lýsti Carvalho, yfirmaður
öryggissveita landsins, yfir þvi að
hann myndi fara í stjórnarand-
stöðu æf hin nýja stjórn sveígði of
mikið til hægri í stefnu sinni.
Carvalho á sæti í þrfeyki herfor-
ingjanna ásamt Costa Gomes for-
seta og Azevedo forsætisráðherra.
forsetanum hefði verið mjög
brugðið og að hann hefði kropið á
gólfi bifreiðarinnar er hún ók á
brott. Öryggisverðir þustu yfir
götuna og handtóku Sörhu Moore.
Hún var vopnuð 38 caliber
skammbyssu og að sögn lögregl-
unnar hafði einu skoti verið
hleypt af henni.
Forsetinn var að koma frá því
að ávarpa þing bandarísku verka-
lýðssamtakanna, AFL—CIO, er
árásin var gerð á hann. Nokkrum
klukkustundum áður hafði
lögreglan í San Francisco hand-
tekið 24 ára gamlan mann, Ronald
Carlo, frá Mobile, Alabama, fyrir
Framhald á bls. 39
Aframhaldandi
blóðbað í Beirút
Beirút 22. september
Reuter — NTB
BLÖÐUGIR bardagar geisuðu f
dag milli hægri og vinstrisinna f
Beirút, höfuðborg Lfbanons, þrátt
fyrir að leiðtogar deiluaðila
undirrituðu vopnahléssamkomu-
lag á föstudagskvöld fyrir til-
stuðlan Abdel-Halim Kaddems
utanrfkisráðherra Sýrlands.
Stjórnmálaleiðtogar f Lfbanon
hafa ásamt fulltrúum frá Sýr-
landi unnið allan sólarhringinn
að tilraunum til að kveða bar-
dagana niður, en þeim virðist lft-
ið hafa orðið ágengt enn sem
komið er.
Lögreglumenn og öryggisverðir
í Beirút fundu í dag lík 50 manna,
sem fallið hafa f átökunum sl.
sólarhring og hafa þá alls um 200
manns fallið á sl. 5 dögum og um
300 særzt. Nokkuð dró úr átökum
fyrrihluta dags í dag, en síðan
blossuðu þeir upp á ný er rökkva
tók og skýrði útvarpið í Beirút frá
þvf í kvöld, að vopnaðir hópar
hefðu sett upp götuvirki víða í
miðborginni og krefðu fólk um
nafnskírteini. Væri fólkið síðan
flutt á brott með valdi. Allir
Líbanonbúar verða að bera nafn-
skirteini, þar sem tekið er fram
hvort þeir eru kristnir eða
múhameðstrúar. Ríkisstjórnin í
landinu íhugar nú alvarlega að
sögn fréttaritara að kalla herinn
til borgarinnar til að bæla átökin
niður.
Khaddem utanríkisráðherra
kom í kvöld til forsetahallarinnar
Framhald á bls. 39
W
Ottast nýja
ógnaröld á
N-írlandi
Belfast, 22. september
Reuter — NTB.
HRYÐJUVERKAMENN stóóu f
dag fyrir 7 sprengjutilræðum á
N-Irlandi og óttast menn nú mjög
að vopnahlé það sem lrski lýð-
veldisherinn, IRA, lýsti yfir f
febrúar sl. sé á enda og ný ógnar-
öld hryðjuverka og morða sé f
uppsiglingu á N-lrlandi og f Eng-
landi. IRA lýsti f kvöld á hendur
sér ábyrgð vegna sprengjutil-
ræðis á lögregluvarðstöð fyrir
utan borgina Portatown fyrir
Framhald á bls. 39