Morgunblaðið - 23.09.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.09.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 5 Veðrið skiptir ekki máli þeg- ar réttir eru annars vegar EKKERT virðist geta komið í veg fyrir að fólk sæki réttir a.m.k. tókst veðurguðunum ekki að stöðva fólk i að sækja Hafravatns- rétt í gærmorgun, í einhverri mestu rigningu þessa árs. Fjöldi barna og unglinga úr Reykjavík var kominn i réttirnar upp úr kl. 9 og þeir sem ekki voru í góðum regnfötum voru á augabragði orðnir holdvotir, en flestir létu það ekkert á sig fá. Þegar Morgunblaðsmenn komu á vett- vang stóð féð heldur hnipið f al- menningnum og reyndi lítt að hreyfa sig, enda með nokkur aukakíló af vatni í ullinni vegna úrkomunnar. Svað var orðið mik- ið I almenningnum og óðu menn forina upp undir hné, en létu það ekki á sig fá. Tveir tólf ára gamlir piltar virt- ust vera hvað röskastir við að draga ærnar í dilka, nema á stundum þegar þeir voru ekki al- veg vissir á mörkunum. Þeir sögðu okkur, að þeir hétu Garðar Helgason og Lárus Hreinsson. Báðir sögðust þeir hafa farið í göngurnar I fyrradag og gengið lengstu leiðina. Það hefði verið ofsagaman, en þeir hefðu verið orðnir þreyttir þegar þeir komu til byggða á ný eftir 10 tíma göng- ur. Báðir sögðust þeir eiga kind- ur, annar fjórar og hinn þrjár, enda feður þeirra bændur. Skömmu áður en Mbl. kom i réttirnar ókum við fram á þrjá unglingspilta, sem hjóluðu allt hvað þeir gátu i átt að réttunum. Sögðust þeir heita Þorsteinn Þór- hallsson, Arni Baldursson og Jón Steinar Jónsson. Höfðu þeir lagt af stað úr Reykjavík skömmu eftir kl. 8 og voru ákveðnir i að verja deginum í réttunum, þrátt fyrir úrfellið. — Enda skiptir það engu máli, við erum þegar gegn- blautir og höfum gott af þessu, sagði Jón Steinar. Ekki sögðust þeir eiga neinar kindur, en það væri ofsalega gaman að vera í réttunum. _ Móna Steinarsdóttir og Lilja Ragnarsdóttir sátuáeinum rétt- arveggnum þegar við gengum að þeim. Þær sögðu, að þær væru 12 ára gamlar og hefðu bara kom- ið til að skoða féð í réttunum, enda fátt skemmtilegra. Hvort þær hefðu verið í sveit. — Já, ég hef verið á Egilsá í Skagafirði, sagði Lilja, en ég veit ekki hvort ég vildi búa í sveit alla ævi, ann- ars er mjög gaman að vera í sveit. Ingibjörg ívarsdóttir heitir lítil hnáta, sem stóð við eitt hliðið og hjálpaði til við að koma kindun- um inn í dilkinn. Við spurðum hana hvort hún væri hér með einhverju skyldmenni. Ekki kvað hún svo vera, aðeins komið hingað til að skoða kindurnar og lömbin, og ekki sæi hún eftir því þrátt fyrir að hún væri holdvot. Fyrir utan réttirnar var stór hópur barna frá barnaheimilinu Barónsborg og þau, sem við rædd- um við, sögðu að þetta væri gasa- lega gaman, þau væru ekkert blaut, enda öll I „pollagöllum“. Ingibjörg Ivarsdðttir LÆKJARGÖTU 2 SIMJ FRA SKIPTIBORÐI 281 55 Móna Steinarsdöttir og Lilja Kagnarsdottir Lárus og Garðar með verðlaunahrút, sem Lárus á. — Veðrið skiptir engu máli sögðu Þorsteinn Þörhallsson, Arni Baid- ursson og Jón Steinar Jónsson ljósm Mbl.: Sv.Þorm MiKlð úrval af kápum TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS KARNABÆR AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a SIMI FA SKIPTIBOPÐI 2tí155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.