Morgunblaðið - 23.09.1975, Síða 14

Morgunblaðið - 23.09.1975, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 Rabbað við fulltrúa á SUS-þingi í Grindavík Jón Gauti Jónsson. „Endurskoðun sveitarstjórna- mála verði samrœmd” SVEITARSTJÓRNARMÁL voru nokkuð til umræðu á þingi SUS og samþykkti þingið sérstaklega ályktun um endurskoðun sveitar- stjórnarlaga. Jón Gauti Jónsson er sveitarstjóri á Hellu en var áður sveitarstjóri á Fáskrúðsfirði. Við spurðum Jón Gauta um inn- tak ályktunar þingsins um sveitarstjórnarmál. „I ályktuninni er megin áherzla lögð á að allar ákvarðanir um endurskoðun sveitarstjórnarmála verði samræmdar en ekki sé verið að taka einn þátt út úr og afgreiða hann. I vetur átti að setja lög um landshlutasamtök sveitarfélaga en þessi lagasetning var ekki vegna endurskoðunar á sveitar- stjórnarlögum heldur vegna þess að með setningu grunnskólalag- anna var búið að áetla þessum landshlutasamtökum verkefni án tekjustofna. Endurskoðun á verk- efnaskiptingu milli hinna ein- stöku þátta stjórnsýslunnar verður að vera samræmd en ekki framkvæmd af handahófi." Nú var ákveðið hér á þinginu að höfuðverkefni SUS næstu tvö ár verði barátta fyrir samdrætti í ríkisbákninu. Telur þú að sparn- aður verði við að færa verkefni frá ríkinu til sveitarfélaganna? „Já, ég hef ástæðu til að ætla að svo verði. Það hiýtur að verða einn þáttur í samdrætti ríkis- báknsins að færa verkefni til sveitarfélaganna og einfalda um leið samskipti þessara tveggja stjórnsýsluaðila. Heimamenn geta betur gert sér grein fyrir þörfum sínum og möguleikum til athafna en aðilar á skrifstofum í Reykjavík." Er ætlunin að SUS taki sveitar- stjórnarmál til sérstakrar umfjöll- unar á næsta starfstímabili? „Á þinginu var samþykkt til- laga um að SUS héldi fund með ungum sjálfstæðismönnum, sem starfa að sveitarstjórnarmálum og tel ég að þannig gætu menn frá ólíkum stöðum kynnst misjöfnum þörfum sveitarfélags, en þarfir þeirra eru eins ólíkar og þau eru mörg. Allt, sem verður til að víkka sjóndeildarhring sveitar- stjórnarmanna, ætti að hafa góð áhrif en því miður er sjóndeildar- hringur þeirra oftast takmarkaður við staðbundin viðfangsefni.“ „Engar veiði- heimitdir innan 50 mílnanna” „ÉG ER algjörlega sammála þvi að ekki verði samið um neinar veiðiheimildir innan 50 mílnanna og ég tel að við verðum sem fyrst að láta semja áætlun um nýtingu fiskstofnanna umhverfis landið,“ segir Sverrir Jónsson frá Akur- eyri, þegar við spyrjum hann um afstöðuna til samninga við erlend- ar þjóðir um veiðiheimildir innan 200 milnanna. Sverrir á sæti í stjórn Félags ungra sjálfstæðis- manna á Akureyri, Verði og gegn- ir embætti ritara en hann er bankastarfsmaður. Við spyrjum næst um annað mál, sem töluvert hefur verið rætt á þingi og er það kjördæma- málið. Ert þú sammála þeirri á- lyktun, sem hér hefur verið gerð um kjördæmamálið? „Það verður að segjast að ég vildi gjarnan ganga lengra og fara alveg yfir i einmenningskjör- dæmi. Ég vil hrein einmennings- kjördæmi en ekki bæði einihenn- ingskosningar og hlutfallskosn- ingar, eins og ályktun þingsins gerir ráð fyrir. Þessi ályktun er þó spor í rétta átt og sennilega er þetta sú aðferð við kjör fulltrúa á Alþingi, sem allir geta orðið á- nægðir með.“ Hér á þinginu hefur mikið verið rætt um ríkisbáknið og ýmislegt því tilheyrandi. Því er oft lýst yfir að ekkert sé hægt að gera í sam- drætti rikisbáknsins, þar sem bú- ið sé að binda svo marga þætti þess í lögum. Með hvaða þætti telur þú, að hægt sé að draga úr umfangi verkefna ríkisins? „Að mínum dómi er nauðsyn- Iegt að láta gera heildarúttekt á Sverrir Jónsson starfsemi ríkisins og stofnana þess og ég efast ekki um að þá kæmi ýmislegt í Ijós, sem auðvelt ætti að vera að lagfæra. Sérstak- Iega er reksturskostnaður ríkis- stofnanna orðinn hár. Einn er sá málaflokkur, sem ég held að mætti koma í betra horf en það eru tryggingamál. Þessi orð mín má ekki skoða á þann veg, að ég sé á móti almannatryggingum. Á tryggingamálunum var gerð stór lagfæring þegar barnalífeyri var breytt. En þannig mætti eflaust breyta fleiri þáttum og hætta að miða við ákveðna krónutölu á hvert höfuð. Tökum sem dæmi ellilífeyri en margt gamalt fólk á eignir og hefur ágæta tekju- stofna, þó það sé komið á ellilíf- eyrisaldur en þessi hópur fær sömu krónutölu og þeir, sem ekk- ert þak eiga yfir höfuðið. Þá held ég að koma mætti við aukinni hagræðingu innan stofnana ríkis- ins og færa til ýmis verkefni." Raforkumál Norðlendinga hafa mjög verið til umræðu að undan- förnu. Telja Akureyringar að með virkjun í Kröflu sé fundin lausn á raforkuvanda þeirra? „Rafmagn frá KrÖflu ætti að koma í góðar þarfir en Akureyr- ingar hafa átt það á hættu á liðn- um árum að missa rafmagnið ef komið hefur smá hríðarmugga. Hefur þetta komið sér sérstaklega illa fyrir allan atvinnurekstur og þá sérstaklega fyrir iðnaðinn en hann er mikill á Akureyri. En ég held að fólki sé sama hvaðan raf- magnið kemur, bara það fái raf- magn.“ „ Viðurkenning á 200 mílunum megin málið” LANDHELGISMÁLIÐ var eitt þeirra mála, sem þingið ályktaði sérstaklega um og var þar lýst fullum stuðningi við baráttu þjóð- arinnar fyrir fullum og óskorðuð- um yfirráðum yfir 200 mílna fisk- veiðilögsögu en jafnfram minnti þingið á nauðsyn þess, að sem fyrst verði gerð áætlun um vernd- un og nýtingu fiskstofnanna um- hverfis landið. Þá var í ályktun þingsins minnt á nokkur atriði, komi til samninga um veiðiheim- ildir erlendra fiskiskipa innan 200 mílna og ber þar hæst að samningsaðilar viðurkenni rétt íslands til 200 mílna fiskveiðilög- sögu og að ekki verði samið um neinar veiðiheimildir innan 50 mílnanna og dregið verði stórlega úr aflamagni erlendra skipa. Við tókum tali einn þeirra Vest- firðinga, er þingið sátu. Úlfar Ágústsson er kaupmaður á Isa- firði og við spurðum hann um afstöðu hans til samninga við er- lendar þjóðir um veiðiheimildir erlendra fiskiskipa innan 200 mílnanna. „Vestfirðingar eru eins og allir aðrir Islendingar einhuga um út- færslu landhelginnar en hvað snertir skoðanir mínar um veiði- heimildir innan 200 mílnanna, þá er það mitt álit að við getum ekki nýtt ' miklu auðlindir, sem við töku kar vörslu með útfærsl- unni. Benda má á að eftir útfærsl- una í 200 mílur er það landsvæði, sem íslendingar ráða, orðið um- fangsmesta landsvæði, sem ein þjóð ræður yfir í Evrópu. I um- ræðum hér á þinginu hefur komið fram, að innan hugsanlegrar 200 mílna landhelgi Breta mætti veiða þrisvar sinnum meira fisk- magn en nú er veitt á íslandsmið- um. Það má gera ráð fyrir að innan 200 mílna landhelgi okkar séu fyrir hendi fiskstofnar í lík- ingu við þetta og fullvíst getur talist að við erum ekki undir það búnir að nýta þessi fiskimið sjálf- ir. Ég tel því sjálfsagt að gefa öðrum þjóðum kost á að veiða á þeim miðum sem við nýtum ekki sjálfir gegn viðurkenningu á meg- B Úlfar Ágústsson. inmálinu, sem er 200 mflna fisk- veiðilögsagan. Ég vil vara ein- dregið við þeirri einangrunar- stefnu, sem ég tel að kommúnist- ar hafi mótað með þjóðinni." >9Enn mikill munur á launum karla og kvenna” MEÐAL þeirra mála, sem þing SUS fjallaði um að þessu sinni voru jafnrétti og jafnstaða karla og kvenna. I ályktun þingsins er lögð á það áhersla að tryggt verði eftir því sem kostur er að konur og karlar taki fullan og jafnan þátt í ákvarðanatöku og stefnu- mótun bæði í héraði, á þjóðlegum og alþjóðlegum vettvangi. Ekki ósjaldan hefur verið rætt um að konur skipi næsta fá sæti i stjórn- Stefanfa Sigmundsdóttir. um félaga og samtaka, en þetta hefur þó breyst verulega á síð- ustu árum. Við kjör stjórnar SUS á þinginu í Grindavík hlutu fimm konur kosningu f stjórnina en alls skipa stjórnina 21. Ekki hafa áður jafn margar konur átt sæti í stjórninni, þó þeim hafi farið fjölgandi á síðustu árum. Stefanía Sigmundsdóttir frá Akureyri er ein þeirra fimm kvenna, sem kjörnar voru í stjórn SUS, og við spurðum hana hvað henni fyndist um jafnrétti karla og kvenna á vinnumarkaðnum. „Ég held að fyrst verði að benda á að enn er mikill munur á launum karla og kvenna og þá jafnvel við sömu störf. Það er ekki hægt að segja, að við eigum erfiðara með að fá vinnu, en karl- mönnum er sýnt meira traust. Þeir eru settir í hærri stöður, þó beir hafi jafnvel ekki eins langan iii '•fsaldur að baki og konur, sem við . ';ð þeirra vinna. Hingað til hefur i.i<t of hefðbundin verka- skipting milli k">rla og kvenna og kemur þessi verkaskipting víða fram. Það er mín skoðun að mjög nauðsynlegt sé að kynna kven- fólki strax f skóla betur þær leið- ir, sem þær geta farið í námi, þannig að þær einblíni ekki á hefðbundnar námsgreinar kvenna „eins og hárgreiðslu eða leggi í mesta lagi út í gullsmíða- nám.“ En hvað með aðra þætti menntamála? „Að mínum dómi verður að leggja sérstaka áherslu á að jafna þann mun, sem í dag er á milli verknáms og bóknáms, sérstak- lega á framhaldsskólastigi og á ég þar við þann mikla mun, sem er á fjárveitingum til iðnnáms annars vegar og menntaskólanáms hins vegar. Ég tel það rétta stefnu, að kennsla á framhaldsskólastig fari fram í fjölbrautaskólum, en hafa verður í huga að hæfileikar hvers og eins fái að njóta sín í námi.“ „íbúum Grinda- víkur hefur fjölgað um helm- ing á síðustu 15—20 árum” Þing SUS var að þessu sinni haldið í Grindavík. Við tókum einn heimamanna tali og ræddum stuttlega við hann um málefni staðarins. Viðmælandi okkar heitir Alexander G. Eðvarðsson og er nemandi I Verzlunarskól- anum í Reykjavík yfir vetrarmán- uðina en í sumar hefur hann starfað við netaviðgerðir i Grinda- vík. Hefur ekki orðið veruleg íbúa- fjölgun hér í Grindavík á sfðustu árum? Jú, hér hefur fjölgunin verið að jafnaði um 4%, þegar fjölgunin yfir landið í heild hefur verið 1,28%, og á síðustu 15 til 20 árum hefur fbúunum fjölgað um helm- ing. Þessi öra fjölgun hefur kallað á aukið húsnæði, enda hefur mikið verið byggt hér á siðustu árum. Hafa byggst upp tvö hverfi, annars vegar Þórkötlustaðahverfi og hins vegar Járngerðarstaða- hverfi, sem enn er í byggingu. Þá er bærinn að byrja á holræsa- framkvæmdum og unnið er að undirbúningu lagningar varan- legs slitlags á götur bæjarins. Á sfðustu árum hafa staðið yfir miklar framkvæmdir við hafnar- mannvirki hér f Grindavík og hafa þetta verið fjárfrekar fram- kvæmdir. I kjölfar Vestmanna- eyjagossins fékk bærinn 600 millj. króna lán til að bæta hafnaraðstöðuna og er enn verið að vinna fyrir þetta fé.“ Þessi öra fjölgun fbúa hér í Grindavík, hlýtur aðhafa kallað á aukið skólahúsnæði? - „Já, það er rétt, hér eru mikil vandræði með skólahúsnæði. Hér er starfræktur barna- og ungl- ingaskóli og í vetur verður í fyrsta sinn kennt hér nemendum þriðja bekkjar gagnfræðastigs en áður urðu unglingar strax að loknum öðrum bekk að fara f heimavistarskóla út um land eða í gagnfræðaskóla í næstu bæjum. Búið er nú að byggja tvær færan- legar kennslustofur á lóð skólans. Fyrirhugað var að hefjast handa Alexander G. Eðvarðsson við framkvæmdir við byggingu nýs skólahúsnæðis hér á staðnum í ár en af því getur ekki orðið vegna niðurskurðar á framlagi ríkisins til byggingarinnar." En hvernig er háttað aðstöðu til íþróttaiðkana hér á stao.iu: .? „Við höfum malarvöll en íþróttahús vantar tilfinnanlega. Nú er unnið að undirbúningi byggingar íþróttahúss fyrir staðinn og hafa fyrirtæki á staðnum gefið loforð um að styrkja þessar framkvæmdir og það sama hefur bærinn lofað að gera. Sundlaug var byggð hér fyrir nokkrum árum og var hún að miklu leyti byggð fyrir framlög fyrirtækja á staðnum en auk þess iagði bærinn til fjármagn. Hingað til hefur nær allt fjármagn sveitarfélagsins farið til hafnar- framkvæmda en nú hefur þetta breyst." Hvað getur fjölgunin haldið lengi áfram? „Ég sé ekki að fjölgunin geti ekki haldið áfram svo lengi sem útgerðin getur séð íbúunum fyrir atvinnu en hér lifa allir á sjávar- útvegi í einhverri mynd. Ef út- gerð fer að dragast saman þá er þetta fyrsti síaðurinn, þar sem samdráttar fer að gæta.“ Á liðnum vetri var menningar- líf Grindvíkinga mikið til um- ræðu af sérstökum ástæðum. Er það rétt að hér hafi verið stofnað leikfélag i haust? „Já, hér var stofnað leikfélag I haust og er það að hefja starfsemi um þessar mundir. Fyrst verður hér leiklistarnámskeið og strax að því loknu verður hafist handa við að koma á fjalirnar leiksýningu. Þá voru nýlega teknar upp hér kvikmyndasýningar og hefur það bætt úr brýnni þörf á starfi fyrir unglinga hér á staðnum. Leikfé- lag var starfandi hér fyrr á árum en starfsemi þess lagðist niður, því fólk hafði engan tíma frá vinnu sinni, sjórinn og fiskurinn kallaði."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.