Morgunblaðið - 23.09.1975, Síða 25

Morgunblaðið - 23.09.1975, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 25 „Ef víð hefðum ætlað að safna í sjóðí, liefði ekkert verið byggt” Samtal við Ásgrím Hartmannsson sem var bæjarstjóri á Ólafsfirði í 29 ár ÓLAFSFJÖRÐUR fékk kaup- staöarréttindi fyrir 31 ári, eftir að ágreiningur reis um ábyrgðir vegna lántöku til hafnargerðar þar. Sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu neitaði að ganga i ábyrgð fyrir Ásgrfmur Hartmannsson. lánunum og upp úr því spannst það, að byggðarkjarninn í firðin- um fengi kaupstaðarréttindi. Síöan hefur mikið áunnizt I upp- byggingu staðarins, ráðizt var í hafnarframkvæmdir, hitaveita lögð og rafveitu komið á fót, barnaskólahús reist og síðar gagn- Þótt stórveldistími Norður- landa sé nú löngu liðinn eiga þau enn hlutverki að gegna í sjálfs sín þágu, sameiginlegra hagsmuna og fyrir heimsbyggðina alla. Ég hef við aðra norsk-fslenzka hátíð vitnað til þess, að Ibsen seg- ir frá því í leikriti sínu „Kong- ungsefnin“ þegar Skúli jarl hafði tekið sér konungsnafn og biður íslenzka skáldið Jatgeir að ganga sér í sonarstað. Jatgeir hafnar, en býðst síðar til að vera fyrstur til að fórna sér fyrir Skúla, þegar að Skúla er sótt. Þá segir Skúli konungur: „Du som okke ville leve for meg“, en Jatgeir svarar: „En mann kan falle for en annens livsværk; men skal han bli vek á leve, sá má han leve for sit eget.“ Saga Noregs og fslands og sam- skipti Norðurlanda eru lýsandi dæmi um sannleiksgildi þessara orða. Örlög Norðurlanda hafa á ýms- an hátt verið samofin, en reynsla aldanna hefur sýnt, að sterkast standa Norðurlöndin hvert fyrtr sig og í einni heild, þegar hvert þeirra er sjálfsætt, óháð og sjálfs sin herra, — og þá er vináttan mest og samvinnan bezt þeirra á milli. Það, sem gildi hefur í samskipt- um Norðurlanda innbyrðis getur einnig verið fordæmi meðal annarra þjóða. Vandamál okkar á Norðurlönd- um er nú í umróti átaka að halda reisn okkar og sjálfstæði sérkenn um okkar og menningu — ekki eingöngu sjálfra okkar vegna heldur og leyfum við okkur að álíta það auðga heimsmyndina alla. Við viljum með orðum norska skáldsins búá „i et land hvort hver skal være förer for sen egen skjeben, hövding i sitt eget sinn“ og við viljum sama megi gilda í samskiptum þjóða á milli. í þeirri lífsbaráttu er ómetan- legt fyrir ísland að eiga slíkan bróður sem Noreg. Megi vinátta okkar eflast og styrkjast um alía fra'mtíð. Ég bið yður að Iyfta glösum og drekka skál Noregs og norsku þjóðar. fræðaskóli, félagsheimili reist og götur steyptar og nú er í undir- búningi að reisa sjúkrahús, elli- heimili og heilsugæzlustöð undir einu þaki í kaupstaðnum. Um sxðustu áramót lét Ásgrím- ur Hartmannsson af starfi bæjar- stjóra eftir að hafa gegnt því í 29 ár, eða frá því í ársbyrjun 1946. Hefur hann því átt mikinn þátt í því uppbyggingarstarfi, sem unnið hefur verið á Ólafsfirði. „Hvernig þetta allt hefur verið gert get ég ekki almennilega svarað, því að svo lengi sem ég man hafa útsvarstekjurnar aðeins dugað fyrir skyldugreiðslunum. En ef við hefðum ætlað að bíða eftir því að safna f sjóði og hafa nógu tryggan grundvöll fyrir að borga þetta, þá held ég að megi segja, að ekkert hefði verið byggt." Þannig fórust Ásgrími orð I samtali, sem fréttamaður Morgunblaðsins átti við hann á Ólafsfirði fyrir skömmu. Var einkum rætt um framþróun mál- efna byggðarlagsins, enda er Ásgrímur ekki hættur afskiptum af bæjarmálefnum, þótt hann hafi látið af starfi bæjarstjórans. Hann á sæti í bæjarstjórninni og hefur raunar setið í henni allt frá því að Ólafsfjörður varð kaup- staður. „Ólafsfirðingar hafa alltaf trúað á sitt byggðarlag og það er aðalástæðan fyrir því, að hér er byggð. Þótt blásið hafi á fram- þróunina hafa Ibúarnir ekki misst kjarkinn,“ sagði Ásgrímur enn- fremur. „Og ég hef þá trú, að það hafi alla tíð hjálpað okkur við framkvæmdir og þróun, að bæjar- stjórn og almenningur hafa alltaf verið sammála um stærri málefni og enginn pólitískur ágreiningur verið þar um.“ BYLTING í ATVINNULlFI Mikil breyting, nánast bylting, hefur orðið i atvinnulífi á Ólafs- firði í þrjátíu ára sögu kaup- staðarins. Mikið atvinnuleysi var landlægt þar á árunum frá 1945 til 1960. Hafnarskilyrði voru léleg og stærri bátar fóru því suður á vertíð og margir menn fóru til vinnu við uppbygginguna á Kefla- víkurflugvelli. Var jafnvel um fækkun ibúanna að ræða á þessu tímabili. „Meginástæðan fyrir því að fólk hélzt þó á staðnum var sú, að hitaveitan var ódýr,“ sagði Ásgrímur. „Við höfum alltaf þurft að keppa við Reykjavík og helzta vopn okkar hefur verið ódýrt heitt vatn og ódýrar lóðir.“ En nú er öldin önnur í atvinnu- málunum og fremur að Ólafsfirð- ingar anni ekki verkefnunum en hitt. Undirstaðan i atvinnulífinu er fiskveiðar og fiskverkun og með tilkomu skuttogaranna tveggja, Ólafs bekks og Sólbergs, hefur komizt á stöðugleiki í at- vinnumálum. Fyrir nokkrum árum var tímabundið atvinnu- leysi yfir háveturinn, vegna þess að smærri bátarnir gátu ekki sótt sjóinn, en togararnir færa nú afla að landi jafnt og þétt allan ársins hring og þegar mikill afli berst að, anna fiskvinnslustöðvarnar því tæplega að vinna hann. Hefur t.d. oft verið unnið á kvöldin og um helgar við fiskvinnslu að und- anförnu. Nokkur landbúnaður er inni í firðinum og nægir mjólkurfram- leiðslan bæjarbúum. Þjónustu- verkstæði eru nokkur á Ólafs- firði, t.d. bílaverkstæði, rafvéla- verkstæði, vélsmiðja, trésmíða- verkstæði o.fl., en hins vegar er ekki um að ræða beinan verk- smiðjurekstur með fjöldafram- leiðslu. Ásgrímur var spurður að því, hvort hann teldi, að einhver breyting gæti orðið á atvinnulff- inu í framtíðinni. „Ég býst við, að útgerð og fisk- vinnsla verði áfram uppistaðan í atvinnulífinu," sagði hann. „En hér eru miklir möguleikar fyrir nýjar atvinnugreinar. Við erum t.d. afskaplega vel í sveit settir gagnvart ferðamálum. Hér er hægt að stunda skíðaíþróttir allan ársins hring. Hér væri hægt að nýta heita vatnið til að koma á útibaðströnd. Unnt væri að reisa mótel-gististað og veita ferða- mönnum ýmsa þjónustu, t.d. sjó- stangaveiði. Vatnið hér er gott veiðivatn og unnt að stórauka fiskgengd í því með ræktun. Þar má fá lax og silung, t.d. fæst þar úrvalsbleikja. Á sviði fiskiræktar eru raunar miklir möguleikar á Islandi og væri æskilegt, að Islendingum tækist að snúa þróuninni til betri vegar, að rækta fiskinn í stað þess að stunda rányrkju. Hér vantar léttan iðnað, en aðstaðan er fyrir hendi. Það veltur á mönnum, hvernig slíkur rekstur gengur. Töluvert hefur Benti hann á í því sambandi, að árið 1943 var heita vatnið leitt til bæjarins og var komið í öll hús árið eftir. Forsaga hitaveitunnar á Ólafs- firði er sú, að vitað var um heitt vatn í landi Garðs og Skeggja- brekku, en ekki var talið, að þar væri um mikið vatn að ræða, helzt að það gæti hitað upp eina sund- laug eða svo. Ungmennafélagið fékk þá hitaréttindin ókeypis og hóf að reisa sundlaug, en fékk svo heimild til að ráðstafa umfram- vatninu, ef eitthvað væri, til hús- hitunar. Síðan var borað eftir meira vatni og bar sú borun þann árangur, að nægt vatn fékkst fyrir allan bæinn. En eftir því sem hann stækkaði fór að bera á vatnsskorti og árið 1962 kom til Ólafsfjarðar Norðurlandsborinn svonefndi. Boraði hann um 600 metra djúpa holu og þar fengust þegar frá leið 30'sekúndulitrar af 57 gráðu heitu vatni. „Ég var í Reykjavík þegar frétt- in barst um árangurinn," sagði Ásgrímur, „og mér er það ákaf- verið reynt til að koma slikum iðnaði á og vonandi eru menn ekki orðnir þreyttir á því. Það þarf unga menn til að gera slikt, bæjarfélagið gerir það ekki. Til dæmis mætti hugsa sér að koma á iðnaði sem nýtti heita vatnið og þá eins kannski ylrækt. Vöxturinn er mjög mikilvægur fyrir svona litinn bæ. Ég hef alltaf sagt, að Ólafsfjörður væri of lítill bær til að rekstur hans gæti verið hagkvæmur. Fyrir tveimur árum sagði ég, að við ættum að geta náð íbúatölunni 2000 manns eftir 10 ár og ég held, að það geti enn náðst,“ sagði Ásgrimur. Ibúatalan er nú rúmlega 1100 og hefur aukizt verulega síðustu þrjú árin. Lengi stóð ibúafjöldinn í stað, um 700 manns, og fækkaði jafnvel á köflum. HITAVEITAN EFLIST Það vakti mikla athygli fyrr í sumar, er varmamagn hitaveit- unnar í Ólafsfirði nánast tvö- faldaðist á einni nóttu, er heitt vatn streymdi upp úr nýrri bor- holu skammt frá bænum. Tals- verður skortur var orðinn á heitu vatni í bænum, t.d. hafði ekki verið unnt að veita vilyrði fyrir heitu vatni f nýjustu íbúðarhúsin i bænum og ýmis fyrirtæki höfðu ekki fengið heitt vatn nokkur undanfarin ár. En nú hefur rætzt úr þessu. „Við Ólafsfirðingar höfum viljað halda þvi fram, að hita- veitan okkar væri sú elzta i land- inu eða a.m.k. jafngömul þeirri i Reykjavík, sem löngum hefur verið sögð elzt,“ sagði Ásgrímur. fjörð, þá hefur höfnin þó alltaf verið stærsta málið, lífæð byggðarinnar. „Hún var alltaf sæmileg fyrir smábáta, en er ekki örugg fyrir skuttogarana tvo. Dýpkunarskip hafa verið hér nokkrum sinnum og dælt sandi úr höfninni upp á svonefndar Flæðar til að skapa aðstöðu fyrir húsbyggingar. Nú í sumar hefur verið dælt á þann stað, þar sem flugvöllurinn á að vera. Við reikn- um með að ljúka gerð hans á næsta ári,“ sagði Ásgrimur. — Þess má geta, að fyrir fáum dög- um keypti bæjarfélagið ösbrekkuland fyrir 6,5 milljónir króna, en í því landi verður flug- völlurinn. — En svo að athyglinni sé beint aftur að höfninni: „Hafnargerðin var mikið mál á striðsárunum," segir Ásgrímur, „og menn sáu, að hér yrði ekki byggilegt nema að höfnin yrði gerð. Það hefur ætíð verið erfitt að fjármagna hafnargerðina, en þó er annað sem enn erfiðara er að fá, en við höfum alltaf átt nóg af: Það eru sjómenn. Við höfum alltaf átt alveg sérstaka sjómenn,“ sagði Ásgrímur. Það er oft tekið sem dæmi um hnignun byggðarlaga úti á landi, að unga fólkið flytjist þaðan á brott og leiti helzt í þéttbýlið á Suðvesturlandi. En þessu er ekki þannig farið með Ólafsfjörð. „Hin siðari ár hefur unga fólkið yfirleitt setzt hér að og margt brottflutt fólk skilað sér hingað aftur. Síðari árin varð ég var við það sem bæjarstjóri, að alltaf var Séð yfir Ólafsf jörð. lega minnisstætt. Þetta var alveg stórkostlegur árangur." Síðan var boruð önnur hola á svæðinu og vildi Gunnar Böðvars- son, sem stjórnaði borununum, láta bora niður á 1000 metra dýpi og að litið yrði á holuna sem til- raunaholu og hún greidd af rík- inu sem slík. En áður en af þvf yrði fluttist Gunnar af landi brott og holan varð aldrei svo djúp. Síðar hafa verið boraðar nokkrar holur í leit að heitu vatni, en aldrei dýpri en 600 metrar, þar til nú í sumar, að Kristján Sæmunds- son jarðfræðingur Iagði mikla áherzlu á að ein holan yrði dýpk- uð niður f 1200 metra. Á rúmlega 1100 metra dýpi gaf hún mikið af heitu vatni og við síðustu mæl- ingu reyndist þar vera um að ræða 18 sekúndulítra af 65 gráðu heitu vatni, en var nokkru meira í upphafi. Sú borhola er í landi Skeggjabrekku og sagði Ásgrím- ur, að bæjaryfirvöld hefðu vitað, að þar væri mikið vatn að finna og því keypt jörðina á sínum tíma. „Ég hef alltaf verið sannfærður um að meira fyndist af heitu vatni," sagði hann. „Við vorum raunar orðnir vondaufir nú f sumar, en ég held því fram, að það sé meira vatn að finna á þeim slóðum ofan við Skeggjabrekku, þar sem holan var boruð 1962. Annars á bærinn aðra jörð inni i firðinum, 14 km frá bænum, og þar er líklega ennþá meira heitt vatn.“ HÖFNIN STÆRSTA MALIÐ En þó að hitaveitan hafi vissu- lega verið mikilvæg fyrir Ólafs- verið að leita eftir að flytjast hingað, bæði frá Reykjavik og annars staðar að, en húsnæðis- skortur hefur nokkuð hamlað þessu,“ sagði Ásgrimur. „En ég veit ekki annað en að aðkomu- fólkið kunni vel við sig hér. að visu segist það aldrei hafa séð snjó áður í samanburði við það sem hér gerist og ég hef raunar heyrt ungt fólk, sem fluttist héðan til Reykjavíkur, segja, að það sem það saknaði mest héðan væri snjórinn." Og þá beindist samtalið að sam- göngunum. Ásgrfmur er úr Skagafirði og kveðst hafa verið dálítið lengi að venjast innilokun- 'inr.i á Ólafsfirði á vetrum. Nokkur bót varð fyrir Ólafsfirð- inga, að veginum yfir Lágheiðina, en með tilkomu Múlavegar varð gjörbylting í samgöngumálunum. Þó vantar tæki á Ólafsfjörð til að halda veginum um Múlann opn- um sem lengst. Ásgrímur benti á, að verkfræð- ingur hefði reiknað út, að með fjórum fullkomnum snjóblásur- um væri unnt að halda aðalvegum á Norðurlandi opnum 90% timans yfir veturinn. Og einn blásari, sem hefði bækistöð á Ólafsfirði, gæti haldið opnum hringnum frá Ólafsfirði út f Skagafjörð, yfir Öxnadalsheiði til Akureyrar og út vestanverðan Eyjafjörðinn að Ólafsfirði. „Ég hef alltaf haldið því fram,“ sagði hann, ,,að allir þeir, sem búa úti á landi, eigi jafnan rétt til góðra samgangna og þeir á höfuð- borgarsvæðinu. Og það er og Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.