Morgunblaðið - 23.09.1975, Page 19

Morgunblaðið - 23.09.1975, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 19 2ttoraiml>lnbft I Iprúttlr | GÓDUR ÁRANGUR STUDENTANNA GÓÐUR árangur náðist I flestum keppnisgreinum á heimsmeistara- móti stúdenta í frjálsum (þróttum sem fram fór I Róm fyrir og um sfðustu helgi. Mörg meistaramótsmet voru sett, en enginn Evrópu-né heimsmet. Svo sem vænta mátti voru það keppendur Austur- Evrópuþjóða sem voru einna atkvæðamestir á mótinu, en mjög fáir Bandarfkjamenn voru sendir til keppni á mótinu. Engir fslenzkir þátttakendur voru f mótinu, þó svo að þeir hefðu greinilega átt þangað erindi. Sá árangur sem hæst bar á mótinu náðist í langstökki, en í því sigraði Evrópumethafinn Menade Stekic frá Júgóslavíu og stökk 8,27 metra. Átti hann aðeins eitt annað stökk gilt í keppninni og var það 8.13 metrar. Þá náði finnska stúlkan Haggman ágætum afrekum I 200 og 400 metra hlaupum, en hún hlaut gullverðlaun í báðum þessum greinum, og ítalski spretthlauparinn Mennea sannaði hæfni sína með því að hreppa gullverðlaun í bæði 100 og 200 metra hlaupum. Helztu úrslit á mótinu urðu sem hér greinir: Sleggjukast: A. Spiridonov, Sovétrfkjunum 73,82 metra 400 metra grindahlaup: E. Ziegler, V-Þýzkal. 50,43 sek. 1500 metra hlaup karla: T. Wessinghage, V-Þýzkal 3:39,73 mín. Þrístökk: M. Joachimowski, Póllandi: 16,54 metra 100 metra grindahlaup kvenna: G. Rabsztyn, Póll. 13,14 sek. 1500 metra hlaup kvenna: E. Wellman, V-Þýzkal. 4:08.72 mfn. Kringlukast kvenna: M. Vergova, Búlgaríu 65,28 metrar Stangarstökk: F. Tracanelli, Frakklandi 5,20 metrar Hástökk kvenna: G. Filatova, Sovétríkjunum 1,88 metrar Fimmtarþraut kvenna: J. Frederick, Bandaríkjunum 4.442 stig 110 metra grindahlaup: C. Foster, Bandarfkjunum 13,83 sek. 200 metra hlaup kvenna: P. Haggman, Finnlandi 23,38 sek. 200 metra hlaup karla: P. Mennea, ítalíu 20,28 sek. 800 metra hlaup kvenna: N. Morgumova, Sovétríkjunum 2:01,94 mín. 100 metra hlaup karla: P. Mennea, Ítalíu 10,28 sek. 100 metra hlaup kvenna: L. Maslakova, Sovétrfkj. 11.31 sek. Kúluvarp kvenna: E. Stoyanova, Búlgaríu 19,99 metrar. Langstökk kvenna: J. Nigrinova, Tékkóslóvakfu 6,48 metrar. 3000 metra hlaup kvenna: N. Andrei, Rúmeníu 8:54,09 mín. Kúluvarp karla: B. Dolegiewicz, Kanada 19,45 metrar. 800 metra hlaup karla: W. Gondex, Póll. 1:50,04 mín. 10.000 metra hlaup: F. Fava, Italíu 28:37,92 mfn. Tugþraut: Josef Zeilbauer, Austurríki 7,857 stig. Langstökk: Menade Stekic, Júgóslavíu 8,27 metrar. Spjótkast kvenna: M. Yakubvioh, Sovétrfkjunum 61,72 metr.. 400 melra hlaup kvenna: Pirjo Haggman, Finnlandi 51,80 sek. Spjótkast karla: Gheroghe Megelea, Rúmenfu 81,30 metrar. 5000 metra hlaup: F. Fava, Italíu 13:37,56 mín. 3000 metra hindrunarhlaup: B. Malinowski, Póllandi 8:22,32 mín. Sovétmenn hlutu flest verðlaun á mótinu, 7 gull, 5 silfur og 11 brons, eða samtals 23. Rúmenfa hlaut 12 verðlaun: 2 gull, 6 silfur og 4 brons og Pólland hlaut 11 verðlaun, 7 gull, 3 silfur og 1 brons. Samtals hlutu 18 lönd verðlaun á mótinu. LILJA SETUR SITT TÍUNDA ÍSLANDSMET LILJA Guðmundsdóttir setti sitt tíunda Islands- met í hlaupum á árinu, er hún hljóp 1000 metrana á 2:58,0 á miðvikudaginn í síðustu viku. Eldra metið var 3:01,2, en bezti tími Lilju áður var 3:04. Slæm skilyrði voru til keppni f Norköbing á miðviku- daginn og tóku aðeins tvær þátt í hlaupinu, sænska stúlkan hætti eftir 250 metra hlaup og hljóp Lilja því keppnis- laust, en setti eigi að síð- ur nýtt met. Við betri skilyrði ætti Lilja að geta hlaupið undir 2:50. Met Lilju eru orðin 10 á árinu eins og áður sagði, Sex met hefur hún sett í 800 og 15 metra hlaupum, 2 í boðhlaupum og 2 innanhúss. Hún ætlar sér að bæta enn eitt metið er hún hleypur 3000 metra hlaup á morgun. Annars hafa rigningar í Svíþjóð að undanförnu farið illa með velli og eru brautirnar mjög erfiðar. En komi metið ekki á morgun þá fellur það örugglega næsta sumar, sagði Lilja í viðtali við Morgunblaðið. Ætlar Lilja sér að hlaupa á undir 10 mfnútum, en það er langt undir meti Ragnhildar Pálsdóttur. Lilja tók nýlega þátt í 800 metra hlaupi og fékk tfmann 2:12,4 i rigningu og roki. Síð- asta hlaup hennar utanhúss á árinu verður í lok mánaðarins, 4 km skógarhlaup, en síðan taka vetraræfingarnar við. Jón Alfreðsson fyrirliði ÍA skoraði mark Skagamanna í leiknum við Omonia á Kýpur á sunnudaginn. Skagamenn eiga mikla mögnleika þótt fyrri leiknrinn haii tapast 0:1 SKAGAMENN töpuðu sfnum fyrri leik f Evrópukeppni meistaraliða á sunnudaginn er þeir léku gegn Omonia Nikosia á Kýpur. Urslitin urðu 2:1 og skoraði Jón Alfreðsson mark Akurnesinganna og var það jafnframt fyrsta mark leiksins. Var vel að marki Jóns staðið og skallabolti hans illverjandi fyrir markvörð Omonia. Það sama verður ekki sagt um mörk þau sem Skagamenn fengu á sig, en bæði voru þau af ódýrari gerðinni. Litlar fregnir hafa borist af frammistöðu Skagamanna i leiknum, en Kýpurliðið mun þó hafa leikið mun betur, en Akur- nesingar áttu von á. Leikið var í 33 stiga hita og hafði hitinn slævandi áhrif á landann, auk þess sem 10 þúsund áhorfendur hvöttu heimaliðið mjög ákaft. Bezti maður Kýpurliðsins er ungur piltur sem Ieikið hefur með West Ham og kom hann vörn ÍA hvað eftir annað úr jafnvægi í leiknum. Beztu menn IA að þessu sinni voru þeir Jónarnir Alfreðsson og Gunnlaugsson, Jóhannes Guðjónsson og Davíð Kristjáns- son markvörður sem lék síðasta hluta leiksins. Þó Skagamenn hafi tapað fyrri leiknum og Kýpurbúarnir verið sterkari en reiknað hafði verið með þá eru Skagamenn ákveðnir f að vinna seinni leikinn og komast í aðra umferð Evrópu keppninnar og nægir þeim 1:0 sigur í seinni leiknum, sem fram fer á Laugardalsvellinum á sunnu- daginn. Af sem áður var Islendingar síðastir í Norrænu sundkeppninni NOREGUR varð sigurvegari f Norrænu sundkeppninni 1975, en tslendingar sem oftast hafa verið í fremstu röð f þessari keppni eða sigurvegarar urdu nú lang- sfðastir. Hlutum við nú aðeins rösklega fjórðung þeirra stiga sem sigurvegararnir fengu. Astæðan fyrir svo slakri frammi- stöðu Islands f keppninni að þessu sinni var fyrst og fremst sú, að keppnisreglur voru okkur f óhag, og eins kemur til að mjög lftill áróður var rekinn fyrir Slæmt útlit hjá Guðgeiri ef tir enn eitt tap ENN dökknaði útlitið hjá Guð- geiri Leifssyni og félögum hans f belgfska liðinu Charlesroi er þeir um helgina töpuðu enn einum leiknum í belgísku 1. deildinni. Hefur liðið enn ekki unnið leik og er eitt og yfirgefið á botninum með aðeins 1 stig. Liðið tapaði fyrir CS Brugge á útivelli á Iaugardaginn 0:3. Ásgeir og félagar hans í Standard töpuðu einnig um helgina, 0:1 á útivelli gegn Waregem. Úrslitin í belgisku 1. deildinni urðu þessi: Racing Malines—Anderlecht 1:2 FC Liegeois — Beringen 4:1 Lierse — Lokeren 1:2 Louviere — FC Brugge 1:1 Beveren — Antwerp 5:5 CS Brugge — Charleroi 3:0 Waregem — Standard Liege 1:0 Berchem — Ostende 1:1 Beerschot — Malinois 2:1 keppninni að þessu sinni, og meira að segja ekki vfst að allir hafi vitað að hún stóð yfir. Noregur hlaut samtals 2.017.489 stig f keppninni. Danir urðu f öðru sæti með 1.593.063 stig, Finnar f þriðja sæti með 1.511.000 stig, Svfar hlutu 929.037 • stig og tslendingar 642.633 stig. Að þessu sinni var keppt um bikar sem forseti íslands, herra Kristján Eldjárn gaf til keppn- innar, en bikar þessi var gerður af Hreini M. Jóhannssyni. Var bikarinn afhentur formanni norska sundsambandsins við upphaf Sundmeistaramóts Noröurlanda sem fram fór í TurkU í Finnlandi 22.—24. ágúst sl. Sömu daga fór einnig fram sundþing Norðurlanda, og kom Norræna sundkeppnin þar mikið til umræðu. Var að lokum sam- þykkt tillaga frá dönsku fulltrúunum á þinginu að hætta við keppnina. Var þvf sú keppni sem fram fór sl. sumar sfðasta Norræna sundkeppnin. Sveinamet í fimmtarþraut Gunnar Gíslason, KA, setti á laugardag glæsilegt islandsmet I fimmtarþraut pilta ð innanfélagsmóti KA. Gunnar hlaut 2141 stig, en eldra metiS átti Ásgeir Þ. Eiríksson, ÍR, og var það 1807 stig. Árangur Gunnars varð þessi I eirrstökum greinum: Langstökk, 5.08 m, spjót- kast, 38.89 m (fullorðinsspjót), 200 m hlaup, 27.3 sek, kringlukast. 30.28 m (sveinakringla) 20.19 (full- orðinskringla) og 1500 m hlaup, 4.58.2 mín. Ef stigin eru reiknuð með full- orðinskringlunni hefði Gunnar hlotið 1889 stig, sem jafnframt væri met. Þá vekur árangur Gunnars í spjót- kastinu og athygli þvi hann er betri en gildandi Islandsmet. Gunnar Gislason hefir viðar látið að sér kveða á Iþróttasviðinu en I frjálsum iþróttum, þvl hann hefir skorað alls 51 mark I þeim knatt- spyrnuleikjum sem hann hefir tekið þátt I I sumar, en hann er einn aðal maðurinn I liði 4. flokks KA, sem lék til úrslita I Islandsmótinu gegn Breiðabliki. Þá er Gunnar og snjall handknattleiks og skiðamaður og verður fróðlegt að fylgjast með þess- um garpi I framtiðinni. Auk keppninnar I fimmtarþraut var keppt I 1500 m hlaupi og urðu úrslit þessi: 1. Jónas Clausen, KA, 4.31.5 min, '2. Þórir Snorrason, UMSE, 4.33,2 mln. 3. Steindór Helgason, KA, 4.37.8 mln. 4. Steindór Tryggvason, KA, 4.43,2 mln. Sigb.G. Reykjavfkurmót I handknattleik í íþróttahöllinni í Laugardal f KVÖLD Meistaraflokkur karla: KL. 20.15 KR — LEIKNIR KL. 21.30 VALUR — FYLKIR H.K.R.R

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.