Morgunblaðið - 23.09.1975, Page 21

Morgunblaðið - 23.09.1975, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 21 „Ung saga liðsins er ævintýraleg” Keflvíkingar leika gegn Dundee Utd. í kvöld og er það 13. Evrópuleikur ÍBK á 19 ára ferli t tilefni af þátttöku sinni í Evrópukeppninni í knatt- spyrnu hafa Keflvíkingar gefið út 8-síðna blað, þar sem þeir fjalla um liðin tvö sem eigast við í Kefla- vík í kvöld og fyrri þátt- töku ÍBK í Evrópumótun- um. Er leikmenn tBK hlaupa inn á völlinn f kvöld, er það í 13. skipti sem þeir taka þátt í Evrópukeppni og hafa þeir ásamt Valsmönnum leikið flesta Evrópuleiki íslenzkra liða. ÍBK hefur þegar tryggt sér þátttöku f Evrópumóti næsta ár, en það tókst Valsmönnum hins vegar ekki og síga Keflvfkingar því fram úr. Meðal efnis í blaði Keflvíking- anna er rakin saga IBK í Evrópu- mótum og er þar ýmsan fróðleik að finna. I upphafsorðum greinar- innar segir: „Keflavíkur-liðið er ungt að árum, aðeins 19 ára gamalt. Þrátt fyrir að það sé ný- búið að slíta „barnsskónum" er það búið að skipa sér á bekk með sterkustu félagsliðum, sem ísland hefur átt — ung saga liðsins er ævintýraleg. Keflvíkingar hafa tryggt sér Is- landsmeistaratitilinn alls fjórum sinnum sl. áratug og þá tryggðu þeir sér bikarinn fyrir nokkru er þeir unnu sigur, 1:0 yfir íslands- meisturunum frá Akranesi á Laugardalsvellinum. Keflavíkurliðið hefur verið víð- förult á undanförnum árum. Far- ið í víking um Evrópu og leikið gegn sterkustu félagsliðum Ung- verjalands. Englands, Spánar, Skotlands og Júgóslavíu við mjög Portúgölum heitt 1 hamsi NÁBÚAUPPGJÖR "milli Lissa- bon-liðanna Sporting og Atletic varð að stöðva þegar 10 mínútur voru til loka leiksins vegna þess að æstir áhorf- endur óðu inn á völlinn. Til- drögin voru þau að er staðan var 2:2 var dæmd vítaspyrna á Sporting 10 mínútum fyrir leikslok. Dómarinn stöðvaði þegar leikinn og neitaði að byrja aftur fyrr en honum og línuvörðunum hefði verið tryggð örugg vernd. Þegar svo hafði ekki verið gert eftir 20 mínútur og mannskapurinn var enn með ólæti inni á vellin- um, flautað hann leikinn af. Knattspyrnuyfirvöld í Portú- gal munu taka ákvörðun um það i vikunni, hvernig leikur- inn verður dæmdur, eða hvort hann skal leikinn að nýju. Þorsteinn Ólafsson hefur oft varið stórkostlega I leikjum tBK f Evrópumótunum. Hamish McAlpine er markvörður Ðundee Utd. og vonandi fær hann nóg að gera f leiknum f kvöld. góðan orðstír. Keflavíkurliðið á sér stutta, en skemmtilega sögu í Evrópukeppninni i knattspyrnu." Fyrsti Evrópuleikur IBK var gegn Ferencvaros frá Búdapest árið 1965. Leikurinn á Laugar- dalsvellinum tapaðist 1:4 og leikurinn ytra 1:9. Árið 1971 lék IBK gegn ensku meisturunum Everton. Friðrik Ragnarsson gerði sér lítið fyrir í þeim leik og skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins 11 mínútur. Adam var þó ekki lengi í paradís. Ieikmenn Everton tóku við sér og unnu 6:2 en Friðrik skoraði einnig seinna mark IBK. Ensku blöðin eyddu miklu rúmi í skrif sín um þennan leik og einkum var það Þorsteinn Ólafsson markvörður sem vakti athygli þeirra, en hann átti stór- kostlegan leik og stjörnur Arsen- al féllu i skuggann fyrir mark- verði ÍBK. Næstu mótherjar IBK voru svo Tottenham árið eftir, en nú gekk Keflvíkingunum ekki eins vel og liðið tapaði 1:6 á Laugardalsvéllinum og 0:9 á White Hart Lanes i Lundúnum. „Áhorfendur fengu að sjá að það er mikill munur á áhugamanna- liði frá litlum fiskibæ á norður- hjara veraldar og atvinnumanna- liði frá stórborginni London.“ Þannig segja Keflvíkingar sjálf- ir frá þessun leik í blaði því sem áður er nefnt. Þess má geta að þetta ár bar Tottenham sigur úr býtum i UEFA-keppninni. Madrid var næsti viðkomustað- ur Keflvíkinganna og leikið var gegn hinu heimsfræga liði Real Madrid árið 1972. Leikurinn í Madrid endaði með 3:0 sigri Madrid-liðsins. Á Laugardals- vellinum leit út fyrir jafntefli, þvi er aðeins örfáar sekúndur voru til loka leiksins var staðan 0:0, en úr siðustu spyrnu leiksins skoraði Real Madrid eina mark leiksins. Hibernian frá Edinborg var mót- herjinn 1974 og lauk viðureignum liðanna með 3:1 sigri Skotanna, eftir skemmtilega leiki. I fyrra lék IBK gegn Hadjuk Spilt og lék liðið báða leiki sína ytra, en það var nokkuð sem þeir höfðu ekki gert áður. Leikirnir töpuðust 1:7 og 0:2. Eins og sjá má á upp- talningunni hér að framan þá hafa Keflvikingar enn ekki unnið leik i Evrópukeppni og hafa aðeins einu sinni náð jafntefli. I Ólafi Júliussyni tókst að skora gegn Pat Jennings f marki Tottenham á sínum tfma — spurningin er hvort hann verður á skotskónum f kvöld. leiknum i kvöld er þö margt ólík- legra en að þeir nái að minnsta kosti öðru stiginu. Lið Dundee United er að vísu í einu af efstu sætunum i skozku „toppdeild- inni“ og hefur hlotið jafn mörg stig og Celtic. En Keflvíkingarnir hafa mikla reynslu að baki og hafa sótt í sig veðrið í síðustu leikjum sínum. Þeir ætla sér stóran hlut og ekki dregur það úr áhuga þeirra á að standa sig að leikurinn fer fram á þeirra heimavelli og búist er við á að gizka 4000 áhorfendum sem örugglega láta ekki sitt eftir liggja yið að hvetja sína menn til dáða. Spárnar eru góðar ÞAÐ var gott hljóðið í Hafsteini Guðmundssyni formanni íþrótta- bandalags Keflavíkur er Morgun- blaðið hafði samband við hann I gær. Sagði Ifafsteinn að forsalan hefði gengið vel og þegar væru seldir á þriðja þúsund miðar. Veðurspáin væri góð fyrir kvöldið og menn leyfðu sér að spá því í fullri alvöru að Keflvíkingar næðu stigi eða stigum í Ieiknum. — Undirbúningsvinnu fyrir leikinn er nú að mestu Iokið, sagði Hafsteinn. — Leiðin frá búningsherbergjunum að vell- inuin hefur verið girt og lokið verður við það fyrir leikinn að byggja bráðabirgðastúkur. Völl- urinn er eins góður og hann getur frekast verið á þessum árstíma og strákarnir eru ákveðnir I að gera sitt bezta. Ekki hafði Keflavíkurliðið end- anlega verið valið í gær, en búist var við að liðsuppstillingin yrði sem hér segir: 1. Þorsteinn Ólafsson 2. Ástráður Gunnarsson 3. Hjörtur Zakaríasson 4. Gísli Torfason 5. Einar Gunnarsson 6. Grétar Magnússon 7. Ólafur Júlíusson 8. Karl Hermannsson 9. Steinar Jóhannsson 10. Hilmar Hjálmarsson 11. Jón Ólafur Jónsson Leikmenn Dundee Utd. komu til landsins í gærkvöldi. Þeir léku gegn Motherwell á laugardaginn og gerðu jafntefli. Leikur IBK og Dundee Utd. hefst f Keflavík klukkan 18.00 1 kvöld. Lið Dundee United.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.