Morgunblaðið - 23.09.1975, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.09.1975, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 *)Dg benson cundb Hed rorrt 'cavity wa!) Margir frægir kappar samankomnir: Tommy Jackson, Pat Rice, Pat Jennings, Chris Nichol, Dave Watson, Malcolm Mac Donald og Alan Hunter. Leikmenn sem eru f sviðsljósinu f brezku knattspvrnunni um þessar mundir. United og West Ham unnu og hafa hreina forystu MANCHESTER United og West Ham United hafa nú hreina forystu f ensku 1. deildar keppninni f knattspyrnu. Bæði liðin unnu leiki sfna á laugardaginn og hafa nú hlotið 13 stig eftir 8 umferðir og verður slfkt að teljast glæsilegur árangur. Hefur West Ham engum leik tapað til þessa, og er það aðeins eitt annað lið sem getur stært sig af slfku, Queens Park Rangers, sem er f þriðja sæti f deildinni með 11 stig. Að margra dómi skcra þessi þrjú lið sig nokkuð úr f ensku knattspyrnunni, eins og er, og þá sérstaklega Queens Park Rangers, sem sýnt hefur mjög glæsilega knattspyrnu í leikjum sfnum f vetur. Verður fróðlegt að sjá hvernig þessum félögum reiðir af á næstunni, þar sem það er álit margra, að um jól verði nokkuð hægt að marka hvaða lið það verða sem berjast um Englandsmeistaratitilinn f ár. Manchester United náði á laugardaginn ágætum leik gegn hinu sterka Ipswich-liði, sem fyrir mótsbyrjun var álitið að myndi blanda sér í baráttuna um titilinn í ár. Það var Stewart Houston sem skoraði fyrir Manchester á 28. minútu, og hann átti einnig bezta marktækifæri leiksins í byrjun seinni hálfleiks, er hann stóð einn fyrir opnu marki Ipswich, en þá brást honum bogalistin og skaut framhjá. West Ham var miklu betri aðilinn í leiknum við Sheffield United, sem situr nú á botninum í deildinni með aðeins 1 stig eftir 8 leiki. Leikmenn Sheffield lögðu alla áherzlu á vörnina, og var oft þröng á þingi fyrir framan mark þeirra. Tókst þeim að halda hreinu fram á 71. minútu að Tommy Taylor skoraði, og aðeins þremur mínútum síðar gerði blökkumaðurinn Clyde Best út um leikinn með þvi að bæta öðru marki við. Eftir atvikum hefði sigur West Ham átt að verða stærri, en vörn Sheffield-liðsins stóð sig yfirleitt með ágætum og verður að teljast líklegt að það fari að ná sér á strik hvað úr hverju, ef.tir hina herfilegu byrjun. Leeds United hafði mikla yfirburði I fyrri hálfleiknum gegn Tottenham, en tókst þó ekki að skora nema eitt mark og var það Peter Lorimer sem það gerði. I seinni hálfleiknum sneru hins vegar hinir ungu leikmenn Tottenham dæminu við, sýndu góð tilþrif og komu Leedsvörninni -oftsinnis í mikil vandræði. Þeim tókst þó ekki að skora nema eitt mark og var það John Patt sem það gerði. Fór því Lundúnaliðið með annað stigið frá Leeds og hafa áhangendur Tottenham ugglaust verið nokkuð ánægðir með það. Sigur Newcastle yfir Úlfunum vakti mikla athygli, ekki sízt þar sem Newcastle-liðið lék að þessu sinni án markakóngsins síns, Malcolm Macdonald. Hvað eftir annað í leiknum náði Newcastleliðið mjög vel skipulögðum og vel útfærðum sóknarlotum, og var vörn Ulfanna oft grátt leikin. Alan Gosling skoraði þrennu I leiknum, en hin mörk Newcastle skoruðu þeir John Tudor og Tom Cassidy. Birmingham City, sem í síðustu viku rak framkvæmdastjóra sinn, Freddy Goodwin, náði mjög góðum leik í seinni hálfleik á móti Burnley og skoraði þá fjögur mörk og vann þar með sinn fyrsta sigur i 1. deildar keppninni í ár. Var það Willie Bell sem stjórnaði liðinu í leiknum, og sagði hann eftir leikinn, að mestu hefði munað að nú hefðu leikmenn Birmingham haft þá trú á sjálfum sér sem nauðsynleg væri. — Þetta er aðeins upphafið af velgengni Birminghamliðsins I vetur, sagði hann. Svo virtist sem Everton ætti nokkuð vísan sigur í leik sínum við Arsenal, er staðan var orðin 2—0 í hálfleik. En í seinni hálfleik kom I ljós að „vopnabúrið" hafði verið opnað og skot Brian Kidd og John Stapleton rötuðu rétta leið, þannig að Arsenal náði öðru stiginu í viðureigninni. Ted Macdougall skoraði bæði mörk Norwich City í leiknum við Leicester City, og er nú markhæsti leikmaðurinn í fyrstu deild, hefur skorað 14 mörk. Svo virðist sem Norwich ætli að spjara sig bærilega í 1. deildar keppninni I ár, en sem kunnugt er vann liðið sig upp í deildina í fyrra. Aston Villa var þriðja liðið sem kom upp i fyrra, og varð það að þola 0—3 tap fyrir Liverpool á laugardaginn. Liverpool sótti til muna meira í þessum leik á Anfield Road, en tókst ekki að skora fyrr en i seinni hálfleiknum. Meistarar fyrra árs, Derby County mættu Manchester City. Virðist svo sem að óhætt sé að bóka að Manchester City ríði ekki feitum hesti frá útileikjum sínum. I fyrra gekk liðinu einstaklega illa á útivelli, og í ár hefur það ekki skorað eitt einasta mark á útivelli, en hins vegar ekki tapað leik á heimavelli, og þar er markatala þess 12:1. I leiknum á laugardaginn skoraði Francis Lee eina mark leiksins á 10. mínútu. I annarri deild hefur Notts County tekið forystuna og er með 12 stig eftir 7 leiki, en Sunderland er í öðru sæti með 11 stig eftir 8 leiki. Erfitt er að átta sig á stöðunni í deildinni vegna þess hve liðin hafa leikið mismunandi marga leiki. En Notts County er eina liðið í deildinni sem enn hefur ekki tapað leik, og þykir það sýna skemmtilega knattspyrnu. Hið sama má segja um lið Sunderland, sem talið er eiga góða möguleika á að hreppa 1. deildar sæti, en sem kunnugt er hefur munað litlu undanfarin ár að liðið næði þvf marki. Chelsea stendur sig einna bezt þeirra liða sem féllu niður I fyrra, er í nlunda sæti í deildinni, Luton er i 11. sæti en Carlisle hins vegar I fimmta neðsta sætinu, aðeins einu stigi fyrir ofan botnliðin. En meðal þeirra er skipa það er York-City, liðið sem kom hingað i heimsókn i fyrra og fór héðan ósigrað. Tvær af skærustu stjörnum West Ham-Iiðsins Alan Taylor og Billy Bonds. Lið þeirra er nú á toppnum f ensku 1. deildinni, og lfklegt til að halda sér þar f vetur. Það kom þvf meira en Iftið á óvart, þegar liðið náði aðeins jafntefli við finnska liðið Lahden Reipas f Evrópubikarkeppni bikarhafa. Liðin eiga eftir að mætast f Englandi og þá þarf varla að spyrja að leikslokum, enda margir sem veðja á West Ham sem sigurvegara f þessari keppni f ár. 1 ————1 1 1. DEILDI L HEIMA UTI stig Manchester United 8 3 1 0 10:4 3 0 1 5:1 13 West Ham United 8 4 0 0 7:2 1 3 0 8:7 13 Queens Park Rangers 8 2 2 0 5:2 1 3 0 8:4 11 Liverpool 8 3 1 0 9:4 1 1 2 4:5 10 Everton 8 3 0 1 9:4 1 2 1 6:8 10 Leeds United 8 2 1 1 5:4 2 1 1 7:5 10 Derby County 8 3 0 1 8:7 1 2 1 5:6 10 Newcastle United 8 3 1 0 12:2 1 0 3 5:10 9 Coventry City 8 1 2 1 3:4 2 1 1 6:3 9 Norwich City 8 3 1 0 12:6 0 2 2 7:11 9 Stoke City 8 1 1 2 6:7 2 1 1 5:4 8 Arsenal 8 1 2 1 5:5 1 2 1 3:4 8 Middlesbrough 8 3 10 6:0 0 1 3 2:10 8 Manchester City 8 3 1 0 12:1 0 0 4 0:5 7 Ipswich Town 8 2 1 1 6:5 0 2 2 2:6 7 Aston Villa 8 3 0 1 5:2 0 1 3 4:12 7 Burnley 8 1 3 0 9:6 0 1 3 2:10 6 Leicester City 8 0 4 0 8:8 0 2 2 2:7 6 Tottenham Hotspur 8 1 2 0 4:3 0 1 4 7:11 5 Wolverhampton Wanderes 8 1 2 1 4:4 0 1 3 3:11 5 Birmingham City 8 1 1 2 5:4 0 1 3 5:11 4 Sheffield United 8 ' 0 13 2:7 0 0 4 1:11 1 2. DEILDI L HEIMA UTI STIG Notts County 7 2 1 0 2:0 3 1 0 6:3 12 Sunderland 8 4 0 0 8:1 1 1 2 2:5 11 Fulham 8 2 1 1 7:2 2 1 1 7:6 10 Bristol City 8 3 1 0 9:2 1 1 2 5:8 10 Southampton 7 4 0 0 9:2 0 1 2 3:7 9 Bolton Wanderes 7 1 2 0 6:3 2 0 2 4:4 8 IIull City 7 3 0 1 6:3 1 0 2 2:4 8 Oldham Athletic 6 3 0 0 5:1 0 2 1 3:6 8 Chelsea 8 2 2 0 7:3 0 1 3 2:7 7 Blackpool 7 2 1 0 6:4 0 2 2 1:4 7 Luton Town 6 2 0 1 5:2 1 0 2 2:2 6 Notthingham Forest 6 1 0 2 3:3 1 2 0 2:1 6 Bristol Rovers 6 1 1 0 2:1 1 1 2 3:4 6 Blackburn Rovers 6 10 2 5:4 1 1 1 2:3 5 Charlton Athletic 6 1 1 1 4:4 0 2 1 1:2 5 Orient 7 1 2 1 3:3 0 1 2 1:3 5 Plymouth Argyle 6 2 1 0 3:1 0 0 3 0:4 5 Carlisle United 7 1 1 1 3:3 1 0 3 2:7 5 West Bromwich Albion 7 1 3 0 4:3 0 0 3 0:9 5 York City 6 1 0 2 4:5 0 2 1 4:5 4 Porthsmouth 6 0 2 1 2:4 1 0 2 3:4 4 Oxford United 8 1 1 2 4:5 0 1 3 4:10 4 I Knattspyrnuúrsiit I ENGLAND 1. DEILD: Arsenal — Everton 2—2 Blrmingham—Burnley 4—0 Coventry — Stoke 0—3 Derby — Manchester City 1—0 Leeds—Tottenham 1—1 Liverpool — Aston Villa 3—0 Manchester United — Ipswich 1 —0 Middlesbrough—Queens Park 0—0 Newcastle — Wolves 5—1 Norwich—Leicester 2—0 West Ham — Sheffield United 2—0 ENGLAND 2. DEILD: Blackburn Rovers — Sunderland 0—1 Blackpool—Southampton 4—3 Bolton—Orient 1—1 Bristol Rovers — Carlisle 0—1 Chelsea — Bristol City 1—1 llull — Fulham 1—2 Notts County — Luton 1—0 Oxford—Notthíngham 0—1 Plymouth — York 1—1 Portsmouth—Oldham 1—1 W.B.A. — Charlton 1—1 ENGLAND 3. DEILD: Aldershot — Preston 1—1 Cardiff — Halifax 0—0 Chester — Peterborough 1—1 Chesterfield — Hereford 2—3 Colchester — Brighton 2—0 Giilingham—Mansfield 3—1 Millwall — Southend 2—1 Port Vale — Swindon 3—0 Rotherham—Wrexham 2—1 Sheffield Wed. — Grimsby 4—0 Shrewsbury —Crystal Palace 2—4 Walsall — Bury 0—1 ENGLAND 4. DEILD: Bournemouth — Newport 2—0 Brentford—Stockport 2—1 Cambridge — Huddersfield 0—0 Crewe — Darlington 2—0 Lincoln—Exeter 4—1 Rochdale — Bradford 0—0 Scunthorpe — Torquay 3—1 Watford—Doncaster 2—1 Workington — Reading 0—2 SKOTLAND — ÚRVALSDEILD: Ayr—Dundee 2—1 Dundee United — Motherwell 1 —1 Hearts—Abtrdeen 2—2 Rangers — Hibernian 1—1 St. Johnstone — Celtic 0—2 SKOTLAND 1. DEILD: Airdrieonians — Falkirk 2—0 Arbroath—Queen of the South 3—2 Clyde — Dunfermline 0—2 Dumbarton — Partíck 2—3 East Fife — Kilmarnock 2—4 Hamilton — Morton 2—0 St. Mirren —Montrose 3—1 SKOTLAND 2. DEILD: Brechin—Alloa 2—3 Cowdenbeath —Albion Rovers 3—0 Meadowbank — Forf ar 1 —0 Queens Park — Raith Rovers 2—3 Stenhousemuir — Berwick 2—1 Stirling — East Stirling 3—2 Stranraer — Clydehank 0—1 AUSTUR ÞÝZKALAND 1. DEILD: Dynamo Berlín—Wismut Aue 1—0 Energie Cottbus — FC Magdeburg 2—2 Dynamo Dresden — Chemie Leipzig 5—0 Sachsenring Zwickau — Karl Marx Stadt 2—2 Rot Weiss Erfurt — Chemie Halle 1—2 Lok. Leipzig — Carl Zeiss Jena 1—1 Vorwaerts Frankfurt — Stahl Riesa 2—0 Dynamo Dresden er f forystu með 11 stig en Lok. Leipzig er með 10 og Dynamo Berlfn 8. VESTUR-ÞÝZKALAND 1. DEILD: Borussia Mönchengladbach — Bayern Miinchen 4—1 Kickers Offenbach — Hertha SC Berlin 2—1 Hannover96 — Eintracht Frankfurt 3—2 Schalke 04 — Eintracht Braunswick 5—1 Fortuna Diisseldorf — Karlsruher SC 0—2 HamburgerSV — Rot Weiss Essen 4—1 Bayer Uerdingen — Werder Bremen 2—1 FC Köln — MSV Duisburg 3—2 FC Kaiserslautern — VFL Bochum 2—1 SVISS 1. DEILD: Bienne — La Chauz-de-fonds 2—0 Chenois Geneva — Winterthur 5—1 Lausanne — Grashoppers 1 —3 Lugano — Servette Geneva 0—2 Neuchatel—Basle 2—2 St. Gallen — Sion 7—2 Zurich — YoungBoys 3—1 UNG VERJALAND 1. DEILD: Ujpest Doza — Vasas 1—0 Ferencvaros — Honved 4—3 Kaposvari — MT VM 1—0 Zalaegerszeg — Haladas 1—1 Videoton—Bekescsaba 3—0 Disogyoer — Szell 1 —0 Salgotarjan — Raba Eto 3—1 Tatabanya — Csepel Eftir 6 umferðir hefur Ferencvaros forystu með 10 stig, Videoton og Diosgyoer eru með 9 stig. IIOLLAND 1. DEILD: Go Ahead Eagles — NAC 0—0 Feyenoord — NEC 3—3 FC Amsterdam—MVV 0—0 FC Utrecht — Eindhoven 2—2 AZ67 —FCTwente 1—2 PSV — Ajax 6—2 Roda — Sparta 1—0 FC Haag — Excelsior 1—0 Eftir fimm umferðir er PSV í forystu með 9 stig, Feyenoord er með 9 og FC Twente með 8.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.