Morgunblaðið - 23.09.1975, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 23.09.1975, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 37 VELVAKAIMOI Velvakandi svarar í sima 10-100 kl. 14—1-5, frá mánudegi til föstu- dags. • Tania — Patricia Þorsteinn Guðjónsson skrifar: „Komdu sæll Velvakandi. Þá er Patricia Hearst komin undir lás og slá, að lokum. Og þar með er „herinn" sem hún gekk I, og ég hef leyft meðr að kalla „samræðis- frjálsræðisherinn“ — enda er það rétt þýðing — sagður að engu orðinn. Og er það vel ef svo er, þvf að hann var eitt hið skæðasta krabbamein mannlífsins sem komið hefur upp þar vestra, og er þó af mörgu að taka. Meira var á seyði þar þá en flesta grunaði. Ég var í San Fransisco kvöldið sem átti að hefja uppreisnina og sá hvernig götur og samgöngumiðstöðvar I miðborginni tæmdust af fólki á skammri stundu, á þann hátt, sem þeir sögðu að aldrei gerðist. Og ég skynjaði þetta einkennilega, hvernig uppreisnarhneigð og ótti breiðast út í hugum fólksins, og mér varð ljóst, að þar koma ekki áætlanir einar og framkvæmdakunnátta til greina. Og þar sem þetta var hugarástand, varð mér enn betur ljóst en áður, að með huganum mætti vinna gegn þvi — en þó ekki án þess að taka á sig nokkra áhættu. Einn einbeittur vilji gegn þessu, þáð mundi nægja, og ég taldi minn vilja vel mega vera þann, þar sem ég hafði kunnáttú til að bera. Ég vissi hvers eðlis ófreskjan „Tania“ var, og ég sá það glöggt, að það var ekki af engu, sem reynt var að koma þessu nafni á Patriciu, f hugum almennings. Það var beinlinis þetta sem baráttan stóð um, þvi ef það tækist að koma þvi fram, að fólk færi að hugsa um Patriciu sem „Töniu“, þá ætti óvætturin greiðari leið til að koma áhrifum sinum fram í gegnum hana. Ég hafði farið upp á „S.F. Examiner" (blað Hearsts) og lent í hálfgerðu þvargi við starfsliðið, sem auðvitað skildi ekki upp né niður í því, sem ég var að segja, en þó var þar roskin kona, sem sagðist eiga kunningjafólk i Reykjavik og vildi hún greiða fyrir mér. Hún ráðlagði mér að skrifa foreldrunum bréf, sem hún sagðist mundi koma áleiðis. Það gerði ég og ráðlagði þeim að halda miðilsfund, og varaði við „Töniu“, og veit ég síðan ekki meir, hvernig þvi bréfi reiddi af. En ekki liðu nema þrir dagar áður en sú frétt barst út um „Bay Area" (borgina I kringum flóann), að Hearst-hjónin hefðu farið til Edgars Mitchells geimfara (sem var í sjónvarpinu hér um daginn) og beðið mig um miðilsfund. eina ástæðan fyrir þessari upphringingu um kvöldið. Hitt voru allt brellur til að reyna að styrkja lögregluna I þeirri trú að upphringingin hefði frá honum komið. Þetta var sannast sagna snilldarlegt f öllum sfnum einfaldleika, en heppnin hafði verið með þeim f gervi Iftils drengs, sem skrópaði úr skólan- um og fór f gönguferð með hund- inn sinn. Það hafði gert strik f reikninginn og velt öllum áætlun- um morðingjans rækilega um koll. Þannig var málið þá vaxið eftir allt saman. Það var ekkcrt á móti þvf að lögrcglan kæmist að morðinu á Mariettu Shaw, en morðinginn hafði fyrir alla’muni ætlað að halda leýndu eins lengi og kostur væri morðinu á Arthur Talmey prófessor. 15. KALFI — Ég vona þér hafið ekki slas- azt alvarlega, Link, sagði Felix f hluttekningarrómi. — Nei, það tekur ekki að tala um það, svaraði David stuttara- lega. — Það þykir mér salt að segja afleitt! Ég hélt að ÞAÐ væri — Jæja, ég var ekki fyrr kominn út úr þeirri byggingu og upp i strætisvagn, sem flutti mig út úr borginni, en ég sé á vinstri hönd við mig fólksbíl, sem hafði ekki þrjá bókstafi í merkinu eins og venjulegast er, heldur fimm, og hvernig halda menn nú að þeir bókstafir hafi raðazt? TANIA! Þetta er eitt af þeim undarlegu atvikum, sem erfitt er að segja frá, vegna þess að hætt er við, að skýringar þyki langsóttar. Það fór á sama veg þegar ég fór seinna i útvarpsstöðina KPFA uppi í Shattuck-stræti I Oakland og fékk þeim „stefnuyfirlýsingu" mina um að unnt væri að losa Stúlkuna undan þessu valdi með hugareinbeitingu. Yfirlýsingin var borin fram i íslands-nafni á hendur samræðishernum og átti að lesa hana upp nokkrum minútum siðar (svona gerist allt fljótt í Ameriku). Ég var varla fyrr setztur upp í strætisvagninn sem bar mig þaðan en við mér blasir i nokkurri fj'arlægð með einhverjum þeim allra stærstu auglýsingastöfum, sem ég sá i ferðinni: ICELAND. Og þetta var einmitt á sömi mínútunum og þeir áttu að vera að lesa ÍSLANDS-yfirlýsinguna í útvarpið þarna rétt hjá. Ég var nærri þvi farinn að efast um hvernig ég ætti að fara með þetta, en þar sem ég treysti skynseminni fór ég að hugsa málið og skildi þá undireins, að það mundi vera skautahöll, sem bæri þetta nafn. Jæja, Velvakandi góður, ég ætla nú ekki að lengja málið um þetta efni, en mér er I rauninni vel við allar verur alheimsins, jafnvel „Töniu“, en það verður bara að -hefta þær, þegar þær eru í skaðsemdarhug. Og það var einmitt þetta sem ég gerði. Enda dreymdi mig litlu síðar, að ég sæi gráhærðan, fornmannlegan mann sveima yfir örlögum manna þar um slóðir. Við skulum vona að örlög manna snúist til hins betra. Þorsteinn Guðjónsson." % Biðröðin í Síberíu Húsmóðir skrifar: „Eftir þvi sem maður verður eldri og fræðist meira, þá finnst manni þörfin aukast á þvi að heimurinn losi sig við kommúnismann. I útvarpinu var sagt frá þvi, að herforingjastjórnin I Chile þyrfti að senda menn í frægan skóla í Brasiliu til að læra pyntingar, en ekki var nefnt hversu hátt væri skólagjaldið. Það er líklega af þvi að Lenin var búinn að koma syo góðu skipulagi á fangabúðamenninguna i Rúss- landi, að aldrei heyrðist, að Stalín hefði þurft að senda Bería í slíkan skóla. Fanga- búðamenningin rússneska var svo látin ganga til hinna komm- únistaríkjanna. Það sást á Mindzentty kardinála þegar hann slapp í Ungverjalandsbyltingunni að hann hafði orðið að þola meira en Þeódórakis, þegar hann fór til Parisar, enda fór hann galvaskur í kosningar þegar tækifæri gafst þótt hann fengi lítið fylgi. Grikkir muna ennþá þegar Stalín fékk kommúnista úr nágrannaríkjum til þess að ræna börnum og svo voru þau flutt til Rússlands. Islenzku kommúnistarnir afsökuðu þetta með þvi að verið væri að refsa Grikkjum af því að þýzki herinn hertók Grikkland. Hvaða refsingu fengu t.d. Danir hjá Vesturveldunum fyrir að vera herteknir lika? Þeir, sem afsaka Rússa, ættu að hafa á takteinum skýringar á því, hvers vegna fólkið flýr ekki frá þeim löndum, sem lúta herforingjastjórn- um og eru þó þau lönd ekki lokuð með gaddavír og Ber- línarmúrum. Skýringin er auð- vitað sú, að lífið er snöggtum skárra þar en í kommún- istaríkjunum og svo er alltaf von til þess að herfor- ingjastjórnir falli, en þar sem kommúnisminn er einu sinni búinn að taka völdin, þar sér KGB um að ekkert breytist, nema að einn Stalín tekur við af öðrum. íslendingar, sem farið hafa til Leningrað, lærðu þennan brandara: Rússneskur maður var spurður að því hvað hann mundi gera ef Rússland yrði opnað og allir fengju ferðafrelsi. Hann svaraði: „Ég mundi fara i biðröðina í Síberíu." Það yrði sem sé svo löng röðin af fólkinu, sem flýja vildi kommúnismann þar í sveit. Húsmóðir." HÖGNI HREKKVÍSI Blessaður gerðu það ekki að stórmáli þótt skólinn byrji aftur í dag. PHILIPS 30% meira Ijds á vinnuflötinn sami orkukostnartur PhilipsArgenta’ SuperLux kdluperan með (ívldjafnanlega birtuglugganum Lyftaradekk 23x5 25x6 27x6 18x7 29x7 500x18 21x8-9 600x9 700x9 650x10 750x10 825x10 27x10-12 700x12 600x1 5 700x15 750x15 825x15 AUSTURBAKKI11 fSIMi: 38944 DALE CARNEGIE NÁMSKEIÐHI í ræðumennsku og mannlegum samskipt- um er að hefjast. — Námsketðið mun hjálpa þer að: Öðlast hugrekki og sjálfstraust. -Á Bæta minni þitt á nöfn, andlit og stað- reyndir. ★ Láta í Ijósi skoðanir þínar af meiri sannfær- ingarkrafti í samræðum og á fundum. ★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þérvirðingu og viðurkenningu. ★ Talið er að 85% af velgengni þinni sé komin undir því, hvernig þér tekst að umgangast aðra. ★ Starfa af meiri lífskrafti — heima og á vinnustað. ★ Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða. Verða hæfari að taka við meiri ábyrgð án óþarfa spennu og kvíða. Okkar ráðlegging er því: Taktu þátt í Dale Carnegie námskeiðinu. FJÁRFESTING í MENNTUN GEFUR ÞÉR ARÐ ÆVILANGT. Innritun og upplýsingar í síma 82411 Stjórnunarskólinn Konráð Adolphsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.