Morgunblaðið - 23.09.1975, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 23.09.1975, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975 Mao hress á fundi með Heath í Peking Peking, 22. september. Reuter. EDWARD Heath, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hef- ur átt óvæntan fund með Mao Tse-tung f Peking og segir að hann fylgist vel með og sé tiltölu- lega heilsugóður. Heath var á gangi á lóð sumar- hallarinnar I Peking, þegar kín- verskir embættismenn sóttu hann allt f einu f bifreið og fóru með hann á fund Maos. Hann sagði, að þeir hefðu átt gagnlegar viðræður um heims- málin og þróunina í Kína. Heath sagði að eins og venjulega teldi Mao þróunina heima fyrir ekki nógu hraða. Mao lagði áherzlu á, að Kínverjar bæru virðingu fyrir tilraunum Heaths til að auka sam- stöðu Evrópuþjóða gegn „sovézkri árásarstefnu." Aður hafði Heath verið sagt að Chou En-Iai forsætisráðherra hefði áhuga á að ræða við hann, en læknar Chous hefðu sagt hon- um að hann væri of veikur til að taka á móti Heath. Seinna fór Heath til Tokyo og þaðan fer hann til Hong Kong, Filippseyja og Singapore. „Þegar við ræðum vandamál líðandi stundar skoðar hann þau alltaf í Ijósi sögunnar," sagði Heath eftir fundinn með Mao, „og gerir samanburð við liðna atburði." Lokatilraun til að bjarga konu frá aftökusveit í Chad Frá nýbyrjuðu Allsherjarþingi. Nýkjörinn forseti þingsins, Gaston Thorn frá Luxemborg, f forsæti. Kurt Waldheim framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til vinstri og Bradford Morse aðstoðarframkvæmdastjóri til hægri. Shriver telur sig ekki varamann Kennedys París, 22. september. Reuter. UPPREISNARMENN f norður- hluta Chad í Mið-Afríku leiða frú Francoise Claustre, 38 ára fransk- an fornleifafræðing fyrir aftöku- sveit I dögun á morgun, ef til- raunir franskra yfirvalda til að bjarga Iffi konunnar bera ekki árangur á sfðustu stundu. Frakkar hafa boðizt til að greiða uppreisnarmönnum 10 milljón franka f lausnargjald. Svar hefur borizt frá uppreisnar- mönnum eftir tveggja sólar- hringa þögn en frá efni þess hef- ur ekki verið skýrt. Senditæki var varpað niður til uppreisnarmanna í felustað þeirra á Tibesti-eyðimörkinni fyr- ir helgi ásamt orðsendingu þess efnis, að lausnargjaldið yrði ekki greitt nema frú Claustre yrði sam- tímis látin laus. Sagt var, að pen- ingarnir yrðu afhentir á hlut- lausu svæði. Blaðamaður Le Figaro, Thierry Moskvu, 22. september. Reuter. MESTA sýning, sem haldin hefur verið f Moskvu á svokölluðum ó- opinberum Iistaverkum, aðallega „abstrakt-verkum", með leyfi stjórnvalda, er hafin þar sem listamenn og borgarstjórn hafa náð samkonulagi um fjölda þeirra verka, sem banna skuli sýningu á. Opnun sýningarinnar gekk tfðindalaust fyrir sig og bið- raðir mynduðust fljótlega fyrir utan menningarhöll þar sem sýn- ingin fer fram. Upphaflega átti sýningin að hefjast á laugardag, en skömmu Desjardins, segir í skeyti frá eyði- mörkinni, að uppreisnarmenn telji þessi skilyrði óaðgengileg, þar sem þeir vilji ganga úr skugga um, hvort þeir geta notað pen- ingana áður en þeir sleppa frú Claustre. Frakkar virðast reiðubúnir að greiða hluta lausnargjaldsins með jeppum, vörubifreiðum o.fl. en ekki með vopnum. Felix Malloum hershöfðingi leiðtogi herforingjastjórnar Chad, hefur farið hörðum orðum um samninga Frakka við Hissene Habre, foringja uppreisnar- manna. Hann segir, að Frakkar telji líf einstaklinga skipta meira máli en hagsmuni Chad og vinátta við landið. Uppreisnarmenn hafa einnig í haldi eiginmann Claustre, Pierre. Hann fór með flugvél til yfirráða- svæðis uppreisnarmann í síðasta mánuði til að reyna að fá hana leysta úr haldi. eftir opnun hennar var henni lok- að, þar sem listamenn fjarlægðu listaverk sín til að mótmæla þeirri ráðstöfun yfirvalda að útiloka 41 listaverk frá sýningunni. Eftir miklar samningaviðræður tókst samkomulag um, að aðeins 20 verk yrðu bönnuð og að lista- mennirnir fengju sjálfir að velja 14 þeirra. 164 listamenn eiga 800 listaverk á sýningunni, sem stend- ur í níu daga, og ríkisútvarpið hefur sagt þeim að segja frá henni. Aðstoðarforstöðumaður menn- ingardeildar borgarráðs Moskvu, Mikhail Shkodin, sagði: „Auðvit- Washington, 22. september. Reuter. SARGENT Shriver, sem hefur ákveðið að gefa kost á sér sem forsetaefni demókrata f næstu forsetakosningum, neitar þvf, að það sem fyrir honum vaki sé að búa f haginn fyrir mág sinn, Edward Kennedy. Hann kveðst að felli ég mig ekki við ailt sem hér er sýnt og tel það ekki list. En hér eru mörg áhugaverð verk sem ég held að sé þess virði að skoða.“ Yfirvöld féllust á að leyfa að sýnd yrði skopmynd er á að lýsa viðhorfi Rússa til Bandarfkja- manna. Hins vegar fengust þau ekki til að leyfa sýningu á tveim- ur skopmyndum af Mao Tse-tung, þar sem það gæti spillt sambúð- inni við Kínverja, og „hippa“- málverk, sem á að lýsa heimi án landamæra. Jafnframt féllust yfirvöld á að sleppa úr haldi listamanni að Framhald á bls. 39 staðráðínn f að berjast til sigurs. Kennedy hefur margoft lýst þvf yfir, að hann ætli ekki að gefa kost á sér og Shriver sagði: „Það er kominn tfmi til að taka hann trúanlega.“ Hann kvaðst hafa skýrt Kennedy frá ákvörðun sinni og hefði eftir Kennedy: „Allir munu segja að þú eigir að búa í haginn fyrir mig.“ Kennedy bætti við: „Mér er sama.“ Shriver var að því spurður, hvort hann mundi draga sig í hlé, ef Kennedy skipti um skoðun og gæfi kost á sér. Shriver svaraði: „Mundu ekki allir gera það?“ Allir meðlimir Kennedy- fjölskyldunnar nema Edward Kennedy hafa lýst yfir stuðningi við tilraun Shrivers til að verða valinn forsetaframbjóðandi. Kenndy telur hyggilegast að vera hlutlaus fyrst um sinn. Shriver er áttundi stjórnmála- maðurinn, sem hefur tflkynnt að hann gefi kost á sér. Talið er að þeir verði um tólf talsins þegar forkosningar hefjast í marz. Shriver er kvæntur Eunice, systur Edward Kennedys, og varð varaforsetaefni George McGoverns öldungadeildarmanns f kosningunum 1972, þegar Thomas Eagleton öldungadeildar- maður dró sig í hlé, þar sem í ljós kom, að hann hafði verið undir handleiðslu geðlæknis. Margir aðrir forystumenn demókrata vildu verða forsetaefni McGoverns og voru taldir líklegri en Shriver, þar á meðal Hubert Humphrey og Edmund Muskie. Lengi hefur verið vitað, að Shriver hefur hug á því að verða forseti, en hann skýrði ekki frá ákvörðun sinni opinberlega fyrr en um helgina í tilfinn- ingaþrunginni ræðu. Margir ungir og áhugasamir stuðnings- menn hans táruðust þegar hann greindi frá stefnuskrá sinni. „Eg berst fyrir heiðarlegri og einlægri stjórn f anda John Kennedys. Fallinn fáni hans fell- ur þeim í skaut sem hefur hann á loft. Ég geri það fyrir mína hönd og fjölskyldunnar sem stóð bak við hann.“ Gengið fellt í S-Afríku Pretoria, 22. september. Reuter. YFIRVÖLD i Suður-Afríku hafa ákveðið 17,9% gengisfellingu vegna lækkandi verðs á gulli og hættu á atvinnuleysi. Að sögn Owen Harwood fjármálaráðherra ætti gengisfellingin að binda enda á spákaupmennsku. Talið er að gengisfellingin geti tryggt rekstur náma, sem óttazt var að yrði að loka og atvinnu- öryggi verkamanna, aðallega blökkumanna. Ymsir fréttaritar- ar telja að Suður-Afríku stafi meiri hætta af verkföllum en fjandskap blökkumannaríkja. Flóð sovézkra vopna til Líbýu London, 22. september. Reuter. SOVÉZK vopn hafa flætt í svo stríðum straumum til Líbýu og með þeim Rússar sem eiga að kenna Líbýumönnum meðferð þeirra, að allt bendir til þess að landið verði aðalvettvangur Rússa á Miðjarðarhafssvæðinu að sögn blaðsins Sunday Telegraph. Foreldrar vilja leyfa dóttursinni að deyja Denville, New Jersey, 22. september. Reuter — AP. ÞRIGGJA barna kaþólskur fað- ir hefur beðið dómstól í New Jersey að leyfa 21 árs gamalli dóttur sinni að deyja. Dóttirin heitir Karen Ann Quinlan og er með ólæknandi heilaskemmd. Hún hefur verið meðvitundarlaus í fimm mánuði. Dularfullur sjúkdómur olli heilaskemmdinni og henni er haldið á lífi með öndunarvél. Faðir konunnar, Joseph Quinl- an, og fjölskylda hans eru á móti líknarmorðum og telja að Karen sé þegar látin ef frá sé skilin „starfsemi sem vélin annist." Þetta mál getur orðið próf- steinn á lög um liknarmorð. Lög i New Jersey og víðast hvar annars staðar í Bándaríkjunum skilgreina dauða þannig að hann tákni að allri líkamsstarf- semi sé lokið, þar á meðal hjart- slætti og andardrætti. Ef læknir tekur vélina úr sambandi væri hægt að ákæra Framhald á bls. 39 Karen Ann Quinlan, stúlkan, sem hefur legið meðvitundar- laus sfðan 14. apríl. Foreldrar hennar vilja leyfi dómstóla til þess að hún fái að deyja. Sýning á óopinberum málverkum í Moskvu J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.