Morgunblaðið - 23.09.1975, Page 40
au«lVsin(;asíminn ER:
22480
A ENSKU í VASABROTI
BOKA
HUSIO
LAUGAVEGI ;78.
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1975
Ljósmynd Br.H
PÍRAMÍTAABSTRAKSJÓN — Nú er lokið smíði Asmundar Sveinssonar, „Pýra-
mítaabstraksjón", sem sett verður upp á Akranesi á næstunni. Það er Vélsmiðjan
Þrymur, sem séð hefur um smíðina undir leiðsögn listamannsins. Ásmundur sagði
í samtali við Mbl. í gær, að hann væri mjög ánægður með hversu til hefði tekizt og
lauk miklu lofsorði á smiðina, sem stóðu að verkinu. Frummyndin sést hér við
myndina, sem sett verður upp á Skaganum. ,,Pýramíta-abstraksjón“ er gerð úr
járni og kopar.
ára maður
hafi drukknað
Morgunblaðið fékk þær upp-
lýsingar hjá Umferðarráði í
gær, að tvo fyrstu mánuði
þessa árs hefði enginn beðið
í Fáskrúðsfirði
VlÐTÆK leit hefur staðiö yfir á
Fáskrúðsfirði f tvo daga að 26 ára
gömlum manni, Gunnari Ragn-
arssyni sjðmanni f Vfkurgerði við
Fáskrúðsfjörð. Ekkert hefur til
hans spurzt sfðan aðfararnótt s.l.
sunnudags, en óttazt er, að hann
hafi þá um nóttina farið út á
fjörðinn á litlum árabát, fallið
útbyrðis og drukknað. Báturinn
fannst á sunnudaginn marandi f
hálfu kafi 414 sjómflu frá landi.
Gunnar Ragnarsson fór ásamt
fleira fólki frá Fáskrúðsfirði og
nágrenni á dansleik í samkomu-
húsið á Stöðvarfirði á laugardags-
kvöld. Varð hann samferða því
heim aftur og skildi við það um
nóttina á hlaðinu heima hjá sér. Á
Framhald á bls. 39
bana í umferðarslysi. Síðan
hafa eitt eða fleiri banaslys
orðið í umferðinni á mánuði
hverjum að undanskildum
maf. Flest urðu banaslysin í
júni, 5 að tölu. 7 manns hafa
látið lífið í umferðarslysum í
dreifbýli það sem af er árinu
og 9 manns í umferðarslysum í
þéttbýli.
Kjaradómur í máli BHM og ríkissjóðs:
Prósentuhækkun í
stað f astrar greiðslu
KJARADÓMUR hefur fellt dóm f
máli Bandalags háskólamanna,
sem höfðaði mál gegn fjármála-
ráðherra fyrir hönd rfkissjóðs, er
ekki tókust samningar f júnf sfð-
astliðnum. Þessi dómur er örlftið
frábrugðinn þeim samningi, sem
BSRB gerði við rfkissjóð, þar sem
Kjaradómur kom nokkuð til móts
við BHM með dómnum og þau
Dagný seldi í Grimsby
fyrir 17,5 millj. kr.
sjónarmið, sem það lagði meginá-
herzlu á, þ.e. að prósentutölur
giltu, en ekki föst krónutala, þeg-
ar rætt var um kauphækkanir. 1
fyrsta sinn mun þvf hafa skapazt
nokkur munur á launatöflu BHM
og BSRB og nemur hann á hæstu
flokkunum 2 til 3 þúsundum
króna á mánuði, en mun eftir 1.
október fara upp f hartnær 4 þús-
und krónur.
Kjaradómur hefur litið breytt
fyrstu 12 launaflokkunum, nema
að tölur þar eru rúnnaðar af, en
síðan er á flokkana þar fyrir ofan
sett breytileg prósentuhækkun
ofan á launin eins og þau voru í
júnímánuði, en 1. júní hækkuðu
þau um 3%. Sú prósenta er látin
halda sér, en síðan eru breytileg-
ar prósentutölur, sem eru frá 6%
og upp í tæplega 10%
Eins og áður segir, getur mis-
munur á launaskala BHM og
BSRB farið upp f 4 þúsund krón-
ur eftir 1. október og ér þá
launaskali BHM hærri sem því
nemur en tilboð ríkisins var, en
það var miðað við samning BSRB.
Hinn 1. október hækka síðan
launaskalar BHM um 2% í stað
2.100 króna, sem hækkunin er hjá
BSRB. Sést af því að þessi regla
skiptir máli fyrir þá, sem hafa
laun hærri en 105 þúsund krónur
á mánuði, þar eð þeir, sem eru
fyrir ofan það mark, fá hærri
kauphækkun vegna prósentuá-
kvæðisins.
Framhald á bls. 39
Hætta síldveiðum
við ísland — Fara
til Norðursjávar
FLEST hringnótaskipin, sem
byrjuð voru á sfldveiðum við
Suðurland, hafa nú hætt veiðum,
þar sem þau hafa engar torfur
fundið, og eru sum þeirra farin af
stað til veiða f Norðursjó eða eru
rétt að halda af stað. Morgun-
blaðinu er kunnugt um að Skarðs-
vík SH, Jón Garðar GK, Jón
Finnsson GK og jafnvel Asberg
RE séu farin eða fari á sfldveiðar
f Norðursjó á næstunni og hafa
skipin sett allan söltunarútbúnað
á land og tekið sfldarkassa um
borð.
Hringnótaskipin voru búin að
leita að síld á stóru svæði um
helgina, en urðu ekki vör við
neinar torfur nema kolmunna og
smáýsu, sem þau fengu í nokkr-
um köstum. Hins vegar mun síld-
veiði í Norðursjó hafa verið sæmi-
leg um helgina.
Sem kunnugt er rennur
söltunarleyfi skipanna út 5. októ-
ber ef þau hafa ekki nýtt sér það
Óttazt að 26
fyrir þann tíma. Jón B. Jónasson
fulltrúi í sjávarútvegsráðuneyt-
inu sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að þetta atriði yrði
nú tekið til endurskoðunar og þá í
samráði við L.Í.Ú.
Afli reknetabáta frá Hornafirði
mun hafa verið sáralítill síðustu
daga, eina nóttina var t.d. svo
tunglskinsbjart á miðunum að
síldin lyfti sér ekki, ennfremur
hefur veður verið leiðinlegt.
16 hafa látizt
í umferðarslys-
um á þessu ári
16 MANNS hafa látizt f um-
ferðarslysum það sem af er
þessu ári, en f fyrra höfðu 14
manns látizt í umferðarslysum
á sama tfma. Allt árið f fyrra
létust 20 manns f umferðar-
slysum.
SKUTTOG A RINN Dagný frá
Siglufirði seldi 76,3 tónn af fiski f
Grimsby í gær fyrir 30.002 sterl-
ingspund og f dag selur skipið 76
tonn af heilfrystum fiski á föstu
verði fyrir 22.000 sterlingspund
eða rösklega 52 þús. sterlings-
pund alls. Verðmæti aflans er um
17,5 milljónir fslenzkra króna og
meðalverðið um 133 krónur, sem
er hæsta meðalverð í krónum tal-
ið, sem íslenzkur togari hefur
fengið fyrir afla f Bretlandi á
þessu ári. — Hæsta meðalverð
sem fslenzkt skip hefur áður
fengið í Bretlandi f pundum er
talið 26,18 pund fyir kittið, en það
verð fékk Haukafell frá Horna-
firði f fyrrahaust, en Dagný fékk
nú 25 pund fyrir kittið.
Framhald á bls. 39
Skuttogarinn Dagný við bryggju á Siglufirði
Hýrunni var stolið tvisvar
sinnum sama daginn og við
það rýmaði hún um 70 þús.
HONUM varð ekki eins mikið úr
aurunum sfnum og hann hafði
vonað, Sigöldustarfsmanninum
sem kom til höfuðborgarinnar á
föstudaginn eftir hálfsmánaðar
samfellda vinnu á hálendinu.
Aður en helgin var liðin var búið
að stela hýrúnni hans og það ekki
bara einu sinni hcldur tvisvar og
hafði hún heldur betur rýrnað við
þá meðferð.
Upphaf afskipta lögreglunnar
af þessu máli var það, að hún fór í
hús í miðborginni- vegna þjófn-
aðarkæru sem borizt hafði frá
hóteli í borginni og ekki talið ólík-
legt að lausnina að því máli væri
að finna í áðurnefndu húsi. Lög-
reglumennirnir voru við athug-
anir sínar þegar þeir heyrðu um-
gang mikinn í herbergi í húsinu
og út úr þvf brauzt maður sem
hafði Aierið lokaður þar inni.
Sagði hann farir sínar ekki
sléttar, kvaðst nýkominn frá Sig-
öldu þar sem hann hefði unnið
baki brotnu í hálfan mánuð og
uppskorið 93.459 krónur sem
hann hefði haft með sér í bæinn í
formi einnar ávísunar frá vinnu-
veitanda sinum. Nú væri búið að
Framhald á bls. 39