Morgunblaðið - 27.11.1975, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1975
Freigátan og dráttar-
bátarnir duldust 1
þoku við Langanes
BREZKIR togarar að ólöglegum
veiðum innan íslenzkrar fisk-
veiðilandhelgi höfðu dreift sér
allnokkuð f gær, en stærsti hópur-
inn, 15 togarar, var að veiðum
þröngt á takmörkuðu þokusvæði
norður af Langanesi. Létu togar-
arnir þokuna skýla sér, en í þok-
unni voru einnig fjórir dráttar-
bátar, sem vinna að því að vernda
togarana við óloglegar veiðar, svo
og freigátan Leopard F 14. Alls
voru því 20 brezk skip á þoku-
svæðinu. Alls voru 39 brezkir tog-
Sjómaðurinn
á batavegi
MORGUNBLAÐIÐ hafði f gær
samhand við gjörgæzludeild
Borgarspítalans og spurðist
fyrir um líðan 17 ára piltsins,
sem fluttur var í skyndingu
með þvrlu af miðunum útaf
Revkjanesi á mánudag, eftir
að hann hafði höfuðkúpu-
brotnað f slysi um borð í bát
sínum Verði ÞH. Fengust þær
upplýsingar, að pilturinn væri
kominn til meðvitundar og
væri hann á batavegi.
Ennfremur spurðist blaðið
fyrir um líðan tveggja ungra
manna sem liggja á gjörgæzlu-
deildinni eftir umferðarslys,
en annað þeirra varð á Djúpa-
vogi en hitt í Reykjavík.
Reyndist líðan beggja vera
óbreytt og eru þeir enn meðvit-
undaflausir.
Loks spurðist blaðið fyrir
um líðan drengsins 10 ára sem
slasaðist í umferðarslysi á Bú-
staðavegi á þriðjudaginn.
Fengust þær upplýsingar að
hann væri kominn til meðvit-
undar og væri búið að flytja
hann af gjörgæzludeild.
arar að ólöglegum veiðum við
landið.
Morgunblaðið fór í flug með
Landhelgisgæzlunni í gærdag og
var flogið austur að Ingólfshöfða
og þaðan austur með landi. Sá
togari, sem var sýðstur á svæðinu
fyrir austan, var 24 sjómílur suð-
ur af Hvalbak. I námunda við
Hvalbakinn voru 5 til 6 togarar,
allir að veiðum. Tveir nyrstu tog-
ararnir voru að hala inn veiðar-
færi sín og ástæðan kom í ljós, er
komið var nokkru norðar. Þar var
varðskipið Þór á hraðri leið í átt
til togaranna, sem voru að veiðum
án nokkurrar verndar. Varðskipið
átti ófarnar 12 sjómílur til togar-
anna og raunin varð sú, að togar-
arnir höfðu allir híft inn veiðar-
færin er það kom á vettvang.
Norður með Austfjörðum voru
togarar á stangli að veiðum og
tala þeirra, sem kannaðir höfðu
verið, var orðin 10, er kom í þoku-
beltið norður af Langanesi. Þar
voru 20 skip, sem sáust á ratsjá og
samkvæmt upplýsingum varð-
skipsins Ægis, sem var í grennd-
inni, voru það 15 togarar, 4 drátt-
arbátar og freigátan. Voru skipin
í um það bil 33ja mílna fjarlægð
frá landi.
Strax og komið var vestur fyrir
Langanes létti þokunni. Á Sléttu-
grunni voru 9 brezkir landhelgis-
brjótar að veiðum og mun varð-
skipið Ægir hafa ætlað að fara að
stugga við þeim. Fleiri brezkir
togarar voru ekki fyrir Norður-
landi, en nokkrir íslenzkir togarar
voru að veiðum þar og flestir er
komið var á Hornbanka. Þar voru
7 íslenzkir togarar að veiðum. Þá
voru tveir brezkir togarar að ólög-
legum veiðum 57 mílur vestur af
Látrabjargi. Fyrir norðan Horn
var allmikill sjór og talsvert
hvassviðri. Að öðru leyti var gott
veður á miðunum umhverfis Iand-
ið í gær.
14 starfsmenn mótmæla bréfí Hafrannsóknastofnunar:
„Hreint faglegt mat á valkost-
um, sem fyrir hendi eru”
a/ urspeglar almennt efnisinni-
— segir Jón Jónsson
Ladgartorgsfundurinn um
landhelgina kl. 2 í dag
ÚTIFUNDUR um land-
helgismálið sem Samstarfs-
nefnd um verndun land-
helginnar hefur boðað til
hefst á Lækjartorgi kl. 2 '
dag. Að samstarfsnefni
inni standa sem kunnu;
er verkalýðs- og sjómann
samtök landsins ásar
Félagi áhugamanna u
sjávarútveg og hafa þau >
hvatt félagsmenn sína
að fjölmenna til þessa i
fundar.
Efni fundarins er að því er Pét-
ur Guðjónsson, formaður Félags
áhugamanna um sjávarútveg,
tjáði blaðinu — landhelgismálið
og innrás brezka flotans í íslenzka
landhelgi. Fundarstjóri á úti-
fundinum í dag verður Björn
Jónsson, forseti Alþýðusambands-
ins, en ræðumenn verða þrir, þeir
Pétur Guðjónsson, sem fyrr er
nefndur, Öskar Vigfússon, for-
maður Sjómannafélags Hafnar-
fjarðar, og Guðmundur J.
Guðmundsson, nýkjörinn for-
maður Verkamannasambands ís-
lands.
EINS OG Morgunblaðið skýrði
frá í gær hefur 'Hafrannsókna-
stofnun með bréfi lil sjávarút-
vegsráðuneytis lýst þeirri skoðun
sinni, að samningar við V-
Þjóðverja á grundvelli þeirra
samkomulagsdraga, sem fyrir
Iiggja, séu skásti kosturinn frá
fiskifræðilegu sjónarmiði. I gær
sendu 14 starfsmenn Hafrann-
sóknastofnunar frá sér bréf, þar
sem þeir telja að þetta mat stofn-
unarinnar sé rökleysa. Af þessum
14 eru 10 fiskifræðingar. t hópi
þeirra eru hins vegar ekki þrír
fiskifræðingar, sem starfa við
Hafrannsóknastofnun, þeir Sig-
fús Schopka, Jakob Magnússon
sem er sérfræðingur i karfastofn-
inum og Aðalsteinn Sigurðsson. I
samtali við Morgunblaðið í gær,
sagði Jón Jónsson forstöðumaður
Hafrannsóknastofnunar, að fram-
angreint mat stofnunarinnar á
samkomulagsdrögunum við V-
Þjóðverja byggðist á hreinum
fiskifræðilegum atriðum og mót-
mælir hann eindregið að annað
liggi að baki.
Hér fer á eftir bréf hinna 14
starfsmanna Hafrannsóknar-
stofnunar svo og athugasemd
Jóns Jónssonar við það bréf:
— Yfirlýsing —
I tiltfni af bréfi Hafrannsókna-
stofnunarinnar til Sjávarútvegs-
ráðuneytisins, sem Morgunblaðið
birtir 26. nóvember viljum við
undirritaðir sérfræðingar taka
fram eftirfarandi:
1. Við höfum ekki átt neinn þátt í
að semja nefnt bréf, enda end-
hald þess ekki sjónarmið okk-
ar.
2. Við teljum, að í bréfi þessu séu
fiskifræðileg rök mjög svo
undir áhrifum persónulegra
skoðana semjenda á því,
hvernig standa skuli að stjórn-
málalegri lausn landhelgis-
málsins.
3. Við teljum, að sú skoðun, sem
fram kemur í umræddu bréfi
að samkomulagsdrögin við V-
Þjóðverja sé skársti kosturinn
sem við eigum völ á í dag frá
fiskifræðilegu sjónarmiði, sé
rökleysa.
Hafrannsóknastofnunin hefur
i skýrslu sinni um ástand fiski-
stofna gert grein fyrir hvaða
valkostir séu skárstir fyrir
fiskistofnana, frá fræðilegu
sjónarmiði.
Af þessum sökum er engan
veginn hægt að fullyrða, að samn-
ingsdrögin við V-Þjöðverja sé
skársti fiskifræðilegi valkostur-
inn, þar sem það kemur fyrst í
Framhald á bls. 20
Falmouth F 113, sem væntanleg er á Islandsmið á laugardag, ásamt
systurskipi sfnu, freigátunni Briehton F 106.
Brezkum herflug-
élum bannað flug
nn í ísl. lofthelgi
Birgðaskipið Tidepool, sem verður freigátunum til aðstoðar.
Freigáturnar Falmouth og
Brighton koma á laugardag
TVÆR freigátur til viðbótar
þeirri, sem þegar er komin til að
gæta brezkra landhelgisbrjóta,
leggja af stað frá flotastöðinni í
Rosyth á Skotlandi á fimmtudag.
Freigáturnar eru Falmouth F 113
og Brighton F 106. Fyrir er á
Islandsmiðum freigátan Leopard
F 14. Skipunum fylgir birgðaskip-
ið Tidepool A76.
Búizt er við því að freigáturnar
verði komnar á Islandsmið á laug-
ardag. Freigáturnar Brighton og
Falmouth eru systurskip, 2800
rúmlestir að stærð og eru þær
báðar smíðaðar á árunum 1959 til
1961. Þær geta siglt með 30 hnúta
hraða og eru því talsvert hrað-
skreiðari en freigátan Leopard,
sem aðeins siglir með 24 hnúta
hraða. Hins vegar eru þessar tvær
freigátur búnar eldflaugum og
þær hafa þyrlur um borð. Fall-
byssur hafa þær tvær með 115
mm hlaupvídd og tvær með 20
mm hlaupvídd. Þá eru þær einnig
búnar djúpsprengjuvörpum.
Birgðaskipið sem fylgir freigát-
unum, Tidepool er 17.400 rúm-
lestir að stærð. Skipið var smfðað
á árunum 1961 til 1962 og afhent
flotanum í júnímánuði 1963.
Nauðsynlegt mun vera að hafa
birgðaskipið með freigátunum,
þar sem þær eyða gífurlegu
magni af olíu á hverjum sólar-
hring.
KVÆMT upplýsingum flug-
larstöðvarinnar á Reykja-
flugvelli kom ein Nimrod-
herþota brezka flughersins upp
að austurströnd Iandsins snemma
f gærmorgun og var á sveimi yfir
brezka togaraflotanum þar til kl.
15.45 í gær. Vegna flugs þessara
véla hér við land hefur sam-
gönguráðið nú gripið til sams
konar ráðstafana og 1 sfðasta
þorskastríði og Iagt fyrir flug-
málastjórn að gefa þau fyrirmæli
til starfsmanna flugstjórnarstöðv-
arinnar á Reykjavíkurflugvelli
svo og starfsmanna flugturna og
flugradíóstöðva á alþjóðlegum
flugvöllum hér á landi að neita
loftförum, sem eru f eigu eða
flugi fyrir brezk hernaðaryfir-
völd, um leyfi til flugs innan fs-
lenzkrar lofthelgi eða að 4 sjó-
mflum frá grunnlfnum og lend-
ingar á íslenzkum flugvöllum.
1 fréttatilkynningu frá sam-
gönguráðuneytinu um þessa
ákvörðun segir ennfremur:
Undantekning frá ofangreindu
er aðeins heimil, ef hlutaðeigandi
flugstjóri lýsir yfir neyðarástandi
og að hann þurfi þess vegna að
lenda á fslenskum flugvelli. Flug-
taksheimild verði ekki veitt,
nema að fengnu leyfi utanríkis-
eða samgönguráðuneytis.
Þá hefur ráðuneytið með sím-
skeyti til hafnarstjórna f 17 höfn-
um, víðsvegar um land, mælst til
Framhald á bls. 20
Ekið á bíl
AÐFARARNÓTT s.l. sunnudags,
eða frá klukkan 18 á laugardag
fram á sunnudagsmorgun, var
ekið á bifreiðina R 44088, sem er
Volkswagen 1500 fastback, þar
sem bifreiðin stóð í Ingólfsstræti,
gegnt Aðventkirkjunni. Miklar
skemmdir urðu á vinstri hliðar-
hurð og rúða brotin. Þeir sem
geta veitt einhverjar upplýsingar
um þessa ákeyrslu eru beðnir að
hafa samband við umferðardeild
rannsóknarlögreglunnar.