Morgunblaðið - 27.11.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1975
Gerðadómurinn
féll Vísi í hag
GERÐARDÖMUR Vfsis og Dag-
biaðsins um hver skyldu verða
viðskiptakjör blaðanna í Blaða-
prenti var birtur í gærmorgun.
Varð niðurstaðan sú, að Vísir
skyldi njóta viðskiptakjara á
kostnaðarverði samkvæmt stofn-
samningi Blaðaprents en Dag-
blaðið hafði krafist þess sér til
handa. Stjórnarfundur var hald-
inn í Blaðaprenti f gær þar sem
gerðardómurinn var lagður fram,
en engar ákvarðanir voru teknar.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. aflaði sér í gær mun á
næstunni fjallað um þau við-
skiptakjör sem Dagblaðið eigi að
njóta hjá Blaðaprenti, en prent-
smiðjan mun geta krafist þess að
blaðið borgi samkvæmt taxta,
sem er allmiklu hærri en blöðin
greiða sem prentuð eru á kostn-
aðarverði. Þá mun einnig verða
fjallað um það á hvern hátt verði
farið með hlutabréf þau í prent-
smiðjunni, sem eru á nafni Vfsis
samkvæmt stofnsamningi, en
Dagblaðsmenn fara nú með um-
boð fyrir f Blaðaprenti.
Ingimundur Sigfússon, stjórn-
arformaður Reykjaprents hf., út-
gáfufélags Vísis, hafði eftirfar-
andi að segja um málið í gær:
„Þetta er sú niðurstaða sem við
Vísismenn bjuggumst við. Þetta
gat ekki á annan veg farið. Þessi
niðurstaða héfur þær breytingar
helstar í för með sér fyrir okkur,
að við losnum við margvísleg
óþægindi sem blaðið hefur orðið
fyrir að undanförnu sérstaklega i
sambandi við prentun. Við erum
t.d. ekki lengur bundnir af því að
geyma blaðið til klukkan 13.15
eins og verið hefur.“
„Á þessu stigi liggur ekki ljóst
fyrir hvort þessi úrskurður
gerðardómsins muni hafa breyt-
ingar í för með sér fyrir okkur.
Við eigum eftir að semja við
Blaðaprent um greiðslur fyrir
preniþjónustu," sagði Jónas
Kristjánsson, ritstjóri Dagblaðs-
ins, þegar Mbl. ræddi við hann í
gær.
Jónas sagði að Dagblaðið hefði
hingað til borgað álag fyrir prent-
un og gróft reiknað væri það tæp-
lega 20 milljónir króna á árs-
grundvelli umfram önnur blöð
sem prentuð væru í Blaðaprenti.
Þegar Jónas var að því spurður
hvort niðurstaða gerðardómsins
gæti haft í för með sér að Dag-
blaðið leitaði annað með prentun
eða setti sjálft upp prentsmiðju
svaraði hann þvi til, að þegar út-
gáfa blaðsins hefði verið í undir-
búningi hefðu verið lagðar inn
pantanir hér og þar á ýmsum
tækjum. Þetta hefði verið gert til
að komast í forgangsröð, en
nokkur afgreiðslufrestur er yfir-
leitt á slikum tækjum. „Það er svo
matsatriði hvort við tökum þessar
vélar og það hefur engin ákvörð-
un verið tekin um það enn og
verður ekki fyrr en málin skýrast
varðandi Blaðaprent," sagði
Jónas.
Jónas var loks að því spurður
hvort Dagblaðið hefði fest kaup á
húsnæði. Hann sagði að svo væri
Þriðja uppboðið
-ef enginn hreyf-
ir mótmæhim
BÆJARFÖGETINN f Hafnar-
firði hefur ákveðið að nýtt
uppboð fari fram á húseign
þeirri, sem slegin var Ingvari
Björnssyni lögfræðingi og
hlaðaskrif hafa orðið út af.
Einar Ingimundarson sagði að
hann hefði skrifað aðilum
málsins og sagt að þriðja upp-
boðið færi fram í desember.
Sagði Einar að uppboðið færi
fram ef enginn hreyfði mót-
mælum. Ef mótmæli bærust
hins vegar, yrði að úrskurða í
málinu. Veðhafar í húsinu,
þ.á m. ríkissjóður hafa sam-
þykkt fyrir sitt leyti nýtt upp-
boð. i
ekki. en hús hefðu verið skoðuö.
Þá sagði Jónas ennfremur að
hann fyrir hönd Dagblaðsins
Framhald á bls. 20
Sinfónían:
en
Rut einleikari
Wodiczko stjórnar
Rut Ingólfsdóttir
RUT Ingólfsdóttir fiðluleikari
verður einleikari á fimmtu reglu
legum tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands sem verða í
Háskólabíói í kvöld og hefjast kl.
20.30. Stjórnandi verður Bohdan
Wodiczko. Fluttur verður for-
leikur eftir Stanislaw Moniuzko,
skozk fantasia fyrir fiðlu og
hljómsveit eftir Max Bruch og
Sinfóniu nr. 10 eftir Sjosta-
kovitsj.
Rut hefur einu sinni áður verið
einleikari með Sinfóniuhljóm-
sveitinni en þeð var árið 1971.
Hún er fædd í Reykjavík 1945 hóf
fiðlunám fimm ára gömul hjá
Ruth Hermanns en stundaði síðan
nám hjá Einar Sveinbjörnssyni og
Birni Ölafssyni í Tónlistarskólan-
um í Reykjavik jafnframt því sem
hún stundaði nám við M.R. og
lauk þaðan stúdentsprófi vorið
1965. Árið 1965—66 stundaði hún
síðan nám áfram hjá Einari við
Musikkonsveratoriet í Málmey og
haustið 1966 hóf hún nám við
Cosvervatoire Royal de Musique í
Brússel, þar sem André Geertler
var kennari hennar. Þaðan lauk
hún prófi og hlaut verðlaun frá
skólanum.
Rut hefur oftsinnis komið fram
á tónleikum bæði hérlendis og
erlendis, og hún er einn af stofn-
endum Kammersveitar Reykja-
víkur og hefur verið formaður
hennar frá upphafi. Rut hefur
leikið I Sinfóníuhljómsveitinni
frá þvi að hún lauk námi fram til
þessa starfsárs, að hún hefur
verið í ársfríi frá störfum og
kennir við Tónlistarskólann í
Reykjavik.
Stjórnandann Bohdan Wod-
iezko þarf naumast að kynna
íslenzku tónlistaráhugafólki.
Hann var aðalhljómsveitarstjóri
Sinfóniuhljómsveitar Islands frá
1965—68, en hljómsveitinni
stjórnaði hann fyrst starfsárið
1960—61. Hann er nú hingað
kominn til að stjórna uppfærslu á
óperunni Carmen í Þjóðleikhús-
inu og stjórnar nú Sinfóníuhljóm-
sveitinni á þessum tónleikum
hennar. Annars er Wodiczko for-
stöðumaður og aðalstjórnandi
Ríkisóperunnar i Varsjá
-H-ELLESENS
RATHLttWJR
HLAÐNAR 0RKU
Það þekkja allir HELLESENS rafhlöðurnar.
HELLESENS rafhlöður skiptast í þrjár tegundir, rauðar — bláar — og gulllitaðar.
Kaupið HELLESENS rafhlöður, þá fáið þið þá orku sem þarf.
o
Nú hefur Hellesens tekið upp á
þeirri nýjung að merkja á
bak rafhiaðanna, hvar þær koma
að bestum notum.
Merkingarnar eru þannig,
að undir skýringarmyndum
eru krossar:
1 kross = góðar.
2 krossar = betri.
3 krossar = bestar.
Til þeirra nota, sem skýringar-
myndir sýna.