Morgunblaðið - 27.11.1975, Side 5

Morgunblaðið - 27.11.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1975 5 Sveik hálfa milljón út úr bankakerfinu A FÖSTUDAGINN tókst óþekkt- um manni að svfkja 500 þúsund krónur út úr Alþýðubankanum með þvf að notfæra sér veilu á bankakerfinu. Rannsóknarlög- relan leitar nú þessa aðila. Svikin voru þannig fram- kvæmd, að umræddur maður fór fyrst í Alþýðubankann, aðal- banka, og stofnaði þar bók með 50 þúsund króna innleggi, sem hann g'reiddi I reiðufé. Því næst fór hann með bókina í útibú bankans, lagði inn I hana 550 þúsund krón- ir, þar af 50 þúsund í peningum og 500 þúsund með ávisun, sem síðar kom í ljós að var fölsuð. Síðan fór hann aftur í aðalbank- ann og tók út þær 600 þúsund krónur sem í bókinni voru og hafði þannig á einni dagstund 500 þúsund krónur úr krafsinu, þ.e. 600 þúsundin að frádregnum 100 þúsund krónum í peningum sem hann hafði lagt inn i bank- ann. Falska ávísunin reyndist vera úr hefti sem maður nokkur týndi á skemmtistað kvöldið áður, en sá maður gat ekkert nánar sagt um hvarf heftisins. Hér sýnum við samstæðu, sem mundi sóma sér vel, hvar sem væri, GRUNDIG Studio 1600 ásamt tveim- ur SCANDYNA M-5 hátölurum. Studio 1600 er hvorttveggja í senn útvarpsmagnari og plötuspilari. Útvarpið er vandað og næmt, og er það með FM- stereobylgju, langbylgju, miðbylgju og stuttbylgju. Magnarinn er 2x12,5 sínus/RMS wött, og býður hann upp á hvort heldur er stereo- eða fjórviddar (4 — D = Four Dimensions) notkun. Fékk þessi magnari hæstu einkunnir, sem gefnar voru, i próf- un, sem fram fóru í fyrra á 26 útvarpsmögnurum á vegum norsku neytendasamtakanna (sjá Forbruker- Rapporten nr. 8 1973 — RTV 800). Plötuspilarinn er 2ja hraða og gerður fyrir hand- eða sjálfvirka notk- un. Er hann með Shure M75-D segulþreif. SCAN- DYNA M-5 hátalararnir standa einnig vel fyrir sinu. Er flutningsgeta hvors þeirra allt að 25 wöttum og tónsvið 60—20.000 rið. — Verðið á þessari glæsi- legu samstæðu er kr. 166.700,00, og er þá fótur fyrir Studio 1600 ekki reiknaður, en hann kostar kr. 11.900,00. Sambærilega fætur er líka hægt að fá fyrir hátalarana á kr. 8.200,00 (stk.). — Er þetta ekki einmitt samstæðan, sem þú hefur verið á hnotskóm eftir!? NESCO HF Letöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja. Verzlun Laugavegi 10 Reykjavik. Simar: 19150- 19192-27788 ssss anum í Saltvík? Varstu í reiðskól- sonar, sem skilaði Morgunblaðinu gagnrýni af tónleikum fyrir mið- nætti flutningsdags. Liðin er sú tið er Morgunblaðið birti gagn- rýnina daginn eftir tónleikahald. En f Morgunblaðinu 22. nóvem- ber var ekki sagt frá tónleikum Kammermúsikklúbbsins í Bústaðakirkju, heldur endur- tekning á flutningi sömu aðila á því efni sem flutt var fyrir Kammermúsikklúbbinn og fyrir tilstuðlan hans. Vegna Kammer- músikklúbbsins verður ekki hjá þvf komist að bera fram kvörtun, ekki vegna frétta af þeim tón- leikum sem greint er frá, heldur vegna þess að ekki þótti ástæða til að greina frá tónleikum klúbbsins f Bústaðakirkju eftir þá, þótt þeir hafi verið forsenda fyrir þeim síðari. Reyndar er ánægjulegt að skólar fái aðgang að jafngóðu efni og hér er um að ræða en það er ekki atriði í þessu máli. Að lokum: Klassískir tónleikar eru gott fréttaefni auk þess er það hlutverk fjölmiðla að hlúa að menningarstarfsemi með þvf að vekja athygli á henni. Ef merkilegur flutningur á klassískri tónlist þykir ekki við- burður, erum við komin af leið. 25. nóvember 1975 Guðmundur W. Vilhjálmsson I SUMAR var starfræktur í Salt- vík á Kjalarnesi reiðskóli á veg- um Hestamannafélagsins Fáks og Æskulýðsráðs Reykjavíkur og var hann fjölsóttur. 1 kvöld, fimmtudag, kl. 20.00 verður efnt til skemmtikvölds fyrir þá krakka, sem reiðskólann sóttu á síðast liðnu sumri. Verður skemmtikvöld þetta í Félagsheim- ili Fáks v/ gamla skeiðvöllinn. Margt verður til skemmtunar og má þar nefna að kosinn verður vinsælasti hestur sumarsins úr hópi hesta reiðskólans, sýndar verða hestamyndir og þar á meðal mynd, sem tekin var í Saltvík í sumar. Ekki er ósennilegt að Ket- ill Larsen leikari, láti eitthvað frá sér heyra, en framhaldssögur hans kannast flestir við, sem dval- ið hafa f Saltvík. Kammermúsik — Gagnrýni nk. laugardag Nýlega var hér í Morgun- blaðinu vitnað til tómlætis fjöl- miðla gagnvart viðburðum í tón- listarlífi og fleiri listviðburðum hérlendis. Því er heldur óskemmtilegt að kvarta f tilefni þéss, sem gert er á þessu sviði, en reyndar er kvört- unin aðallega vegna þess sem ekki var gert. Sunnudaginn 16. nóvember s.l. hófst í Bústaðakirkju á vegum Kammermúsikklúbbsins flutningur á flaugusónötum Bach og verða þær allar fluttar á veg- um klúbbsins á tvennum tónleik- um f vetur. Vetrarstarfsemi klúbbsins var fyrir nokkru kynnt fjölmiðlum og var þeirri kynningu reyndar vel komið til skila, en þar komu áður- greind áform fram. Að vanda var öllum dagblöðum bæjarins boðið að senda svo- kallaða tónlistargagnrýnendur á tónleikana í Bústaðakirkju. Ætlun er að þeir vitni um það sem fram fer og varni þannig því að þau verði örlög klúbbsins, að hann týnist, gleymist. Þannig eru frásagnir fulltrúa fjölmiðla af tónleikum næring nauðsynleg til viðhalds slíkrar starfsemi. Nú birtist laugardaginn 22. nóvember í Morgunblaðinu gagn- rýni um flutning á flautusónötum eftir Bach, fluttum af Manuelu Wiesler, Helgu Ingólfsdóttur og Pétri Þorvaldssyni. Greinin var auðkennd svo sem venja er um tónlistargagnrýni á vegum blaðsins. Við lestur fyrir- sagnarinnar: Kammertónleikar, gerði ég ráð fyrir að fjallað yrði um tónleika Kammermúsik- klúbbsins í Bústaðakirkju. Viku- gamlar fréttir þykja ekki gamlar fréttir af slíku uppfyllingarefni. Liðin er tfð Arna Thorsteins- FÉLAG frfmerkjasafnara heldur fyrsta frfmerkjauppboð sitt á þessum vetri í ráðstefnusal Hótel Loftleiða nk. laugardag. Uppboð félagsins hafa verið mjög vel sótt undanfarin ár. Að þessu sinni er • óvenjumargt ágætra og fágætra frfmerkja í boði. Flest skildinga- frfmerki eru þar, bæði almenn og þjónustu. Eru þau óstimpluð eins og mikill hluti uppboðsefnis, sem eru 224 númer. Á uppboðinu eru tvö yfirprent- uð frímerki frá 1897 (þrir- merki), og fylgja þeim vottorð frá Grönlund. Nú eru svo í fyrsta skipti boðin upp hjá F.F. öll þrjú merkin úr hópflugi Itala 1933, mjög góð eintök, og fylgja þeim einnig vottorð Grönlunds. Segja má að frá merkjum Kristjáns IX. 1902 — 04 séu á uppboðinu öll íslenzk frfmerki fram undir 1970. Má þar sérstak- lega nefna alþingishátíðarmerkin frá 1930, bæði almennu og þjónustu. Nokkur sjaldgæf fyrstadagsum- slög verða boðin upp, svo sem stöku afmælismerkin frá 1937, Geysir 1938, Heimssýningin 1939 og lýðveldismerkin 1944. Allt þetta frimerkjaefni verður til sýnis uppboðsdaginn á Hótel Loftleiðum frá kl. 10—14, en þá hefst uppboðið stundvíslega. Uppboðsskrá geta menn fengið keypta við vægu verði hjá F.F. eða frímerkjaverzlunum. Aðalfundur L.Í.Ú. AÐALFUNDUR Landssambands íslenzkra útvegsmanna hefst að þessu sinni að Hótel Sögu mið- vikudaginn 3. desember n.k. og hefst hann í hliðarsal kl. 14. Mörg mál verða á dagskrá og þá fyrst og fremst hin stórfelldu vandamál sjávarútvegsins. Frímerkjauppboð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.