Morgunblaðið - 27.11.1975, Side 17

Morgunblaðið - 27.11.1975, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. NOVEMBER 1975 17 din er tekin í húsi Carls Nielsens tónskálds í að sumri til. Gunnarsson var fyrstur Norðurlandabua, er tyrjöldina, þar sem honum var veitt sérstök iminum. Bunnarssonar og fjölskyldu hans. Til gamans )úð á Gammel Kongavej í Frederiksberg, þar ku höfðu fyrr búið, en þeir voru Holger Idið er í fyrsta bilnum sínum, frú Franzisca um það að hann er í þessu geysimarg- brotna verki að segja þroskasögu sjálfs sín. En að hinu leytinu er Fjallkirkjan skáldsaga fyrst og fremst að þar er hverju atriði hagrætt í samræmi við kröfur verksins. Ferill Ugga Greipsson- ar: frá því að staulast Iítill kútur heima á Ófeigsstað til þess að vera rithöfundur í Danmörku — er á hinn bóginn ævintýri líkastur. Hvergi nýtur sín betur frásagn- arlist höfundarins. Honum gefst slík töfrasýn inn í mannlegt líf að ekkert atriði sýnist undan bera. Þess vegna skírskotar Fjallkirkjan til allra jafnt: óþroskaðra unglinga á skólabekk sem lærðustu og kröfuhörðustu ritskýrenda. Og ekki munu breyttir lifnaðarhættir rýra lífsannindagildi hennar. Með Fjall- kirkjunni bættist íslenskum bókmennt- um nýtt höfuðverk, skáldverk samið af djúpri reynslu en jafnframt eftir hörð- ustu listrænum kröfum samtímans. Nú tók Gunnar Gunnarsson meðal annars að heyja sér efni á víð og dreif úr sögu þjóðarinnar. Svartfugl varð til, sú skáldsaga Gunnars Gunnarssonar sem flestir íslendingar hafa að öllum líkind- um lesið eða kynnst með öðrum hætti. Þar leitast höfundurinn við að kafa ofan I myrkur mannssálarinnar — kannski með óbeinni hliðsjón af uggvænlegum horfum í veröldinni því sagan var samin mitt á milli heimsstyrjalda, dæmin um taumlausa áfergju, grimmd og heift voru því nærtæk og því ekki að furða þó skáldið leitaði til liðinna tíma eftir hlið- stæðum dæmum — svo sem til saman- burðar? Eða hvað var'það í mannlegu eðli sem hratt af stað harmsögulegri atburðarás eins og þeirri sem gerðist á Sjöundá forðum? Og hver var ábyrgur? Furðuleg var leit mannsins að gæfu sinni. Allt í einu stóð hann frammi fyrir þeim úrslitakostum að verða að ryðja öðrum úr vegi til að hreppa hnossið sjálfur! Þá gerast eindæmin — sem málshátturinn segir að séu verst. Mikil- fengleg erharmsagaþeirra, Bjarna og Steinunnar. Svartfugl er einföld saga í frásögn og aðgengileg til lestrar en eigi að síður stórbrotin í einfaldleik sínum og mun þvl ávallt teljast meðal mestu verka sins höfundar. Sé fleira nefnt i hinu mikla ritsafni sem Gunnar Gunnarsson lætur eftir sig mætti röðin gjarnan koma að Vikivaka. Margir, sem mætur hafa á verkum hans, nema staðar við þá bók með spurn á vör en þar beitti hann sýnu djaflegastri tækni við uppbygging skáldsögu en í nokkurri annarri bóka sinna. Hygg ég fáar bækur Gunnars Gunnars- sonar sýni þó betur hugkvæmni hans sem skáldsagnahöfundar. En vist mun Vikivaka jafnan talin til sérkennileg- ustu verka hans. Ég nefni líka Heiða- harm sem hann skrifaði á íslensku eftir að heim kom, eftirmæli hinna afskekktu byggða á Norð-Austurlandi sem höfðu mestan part lagst í eyði meðan höfund- urinn dvaldist erlendis. Ævi Gunnars Gunnarssonar mótaðist af þeim háleitu hugsjónum sem menn ólu í brjósti á morgni aldarinnar. Ungur hvarf hann af landi brott en skildi eftir tvær litlar bækur Móóurminning og Vor- Ijóð. Sem hann hafði náð tindi fræðgar- innar erlendis hvarf hann aftur heim og gerðist bóndi á átthögunum. Hvort tveggja Iýsti ræktarsemi hans við upp- runa sinn. Hann færði út landmörk is- lenskrar orðlistar bæði í eiginlegum og óeiginlegum skilningi. En fyrsti og síð- asti hvati að verkum hans var manngild- ishugsjónin. Hann var því alla tíð mál- svari hins frjálsa orðs; frelsi bókmennt- anna var óskráð boðorð hans. Erlendur Jónsson. Þegar ég hóf störf hjá Almenna bóka félaginu á öndverðu ári 1960 hafð. Gunnar Gunnarsson beðizt undan endur- kjöri þar sem hann taldi, að hvorki tími hans né heilsa leyfði, að hann bætti á sig þeim aukastörfum, sem formennska I bókmenntaráði krafðist. Kynni mín af Gunnari urðu því lítil í upphafi, en á því varð brátt mikil breyt- ing. Það kom í minn hlut að gera við hann samning fyrir Almenna bóka- félagið um útgáfu á skáldverkum hans I átta stórum bindum. Ekki var laust við, að ég kviði nokkuð þessari samningsgerð þar sem þekking mín á bókaútgáfu var ekki upp á marga fiska, en ég vissi að Gunnar Gunnarsson var þar öllum hnútum kunnugur og örugglega vanur því erlendis, að hljóta betri ritlaun en ég gæti boðið. En þessi kvíði minn reyndist ástæðulaus, Raunar fór Gunnar ekki i launkofa með, hvernig hann óskaði samninginn orðaðan, en hann benti mér líka á atriði, sem mér höfðu yfirsézt og voru Almenna bóka- félaginu óhagstæð. Þannig var Gunnar Gunnarsson, ákveðinn en réttsýnn. Rétt var rétt, annað kom ekki til álita hver, sem í hlut átti. Hann tók þvi ekki með þögninni að á hans hlut væri gengið, en ábyrgðartil- finning hans og afdráttarlaus heiðarleiki var ofar öllu i heilsteyptri skaphöfn hans. Eindæma reglusemi hans og sjálfs- ögun var við brugðið. Ég heimsótti þau oft, Gunnar Gunnars- son og frú Francisku konu hans á heimili þeirra á Dyngjuvegi 8, og naut þar gestrisni þeirra og heimilishlýju. Oft ræddum við Gunnar um viðskipti okkar, þvi að útgáfa og sala skáldverka hans hefur aukizt ár frá ári. En langoftast ræddúm við um bókaútgáfu Almenna bókafélagsins eða þá innlend og alþjóð- leg stjórnmál. Hann fylgdist með af- Gunnar Gunnarsson f vinnustofu sinni á Friðarhólmi og fyrir aftan hann líta eiginkona hans, Fran- zisca, og sonur þeirra hjóna, Gunnar, í bók. Með hámenningu Evrópu að leiðarljósi Skarð það sem Gunnar Gunnarsson skilur eftir sig verður seinfyllt. Ekki svo að skilja að ég álíti að þjóðin eignist ekki mikil skáldog rithöfunda hér eftirsem hingað til, en mann eins og hann eignumst við varla framar — svo kom hann mér a.m.k. fyrir sjónir. Hann bar í senn svip íslenzks bændahöfðingja af gamla skólanum og var heimsborgari með hámenningu Evrópu að leiðarljósi. Hann gerði skilyrðislausar kröfur um- fram allt til sjálfs sín og listar sinnar — en einnig til annarra — um heiðarleik ög sannleika og var um leið mildur og um- burðarlyndur. Hann var strangari við sjálfan sig um vinnu og vinnubrögð en nokkur annar sem ég hef kynnzt, hik eða frestun verkefna voru honum framandi og óskiljanleg og í því efni var eins og ekkert gæti aftrað honum, jafnvel ekki líkamlegar þjáningar. Hann stóð í sífelldri baráttu fyrir þvi sem hann áleit rétt, lognmolla og hlutleysi voru honum fjarri skapi. Hann var þakklátari en aðr- ir menn ef honum fannst einhver gera sér greiða, slíku virtist hann aldrei geta gleymt. Áfram gæti ég talið mörg fleiri ein- Sjá náestu síðu FRIÐARHÓLMUR. — Hús Gunnars Gunnarssonar, þar sem hann var búsettur, uns hann flutti aftur til íslands. Fáum mönnum á Almenna bóka- félagið meira að þakka en Gunnari Gunnarssyni skáldi. Hann var tvímæla- laust einn helzti forgöngumaðurinn að stofnun félagsins og réð mestu um val útgáfubóka félagsins fyrstu árin meðan hann gegndi formennsku i bókmennta- ráði þess. Þannig markaði hann félaginu þá stefnu, sem skilaði því farsællega yfir erfiða byrjun og hefur æ síðan verið höfð að leiðarljósi í stöðugt vaxandi starfsemi félagsins. Kveðja frá Almenna bóka- félaginu brigðum vel með þeim málum fram til síðasta dags. Þótt Gunnar væri fastur fyrir í skoðunum sat þó fróðleiksfýsn hans og þrotlaus leit hans að sannleikanum ætið í fyrirrúmi, og honum var lítt um þá menn gefið sem töldu sig hafa höndlað allan sannleikann og vita lausn á öllum vanda. Aldrei minnist ég þess að hafa heyrt Gunnar Gunnarsson hallmæla nokkrum manni, en hann lét hins vegar einarðlega og óhikað í ljós dóm sinn um skoðanir manna og álit, en þó þvi aðeins, að hann hefði heyrt þær skoðanir sjálfur eða séð þær á prenti. Svo orðvar var hann, heiðarlegur og sannur. Það hefur verið Almenna bóka- félaginu heilladrjúgt að eiga hann að forgöngumanni. Slíkt verður aldrei fullþakkað. Baldvin Tryggvason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.