Morgunblaðið - 27.11.1975, Page 32
<0
SILFUR-
Í( )S SKEIFAN
U U BORÐSMJÖRLÍKI
SMJÖRLÍKIÐ
SEM ALUtt ÞEKKJA
alXa
DAGA
_____ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1975 _
Gunnar Thoroddsen á Alþingi í gær:
Lúðvík vildi bjóða 54 þúsund
fkm. veiðisvæði innan 50 mílna
80 þúsund tonn og engin takmörk á þorsk
GUNNAR Thoroddsen félagsmálaráðherra upplýsti í
umræðum á Alþingi í gær um þingsályktunartillögu
ríkisstjórnarinnar um samninga við V-Þjóðverja, að í
marzmánuði 1974, hefði Lúðvík Jósepsson, þáverandi
sjávarútvegsráðherra, ritað utanríkisráðuneytinu bréf,
þar sem hann lagði til, að V-Þjóðverjum yrði gert
eftirfarandi tilboð um veiðiheimildir innan 50 mflna
fiskveiðimarkanna:
Lúðvík vildi leyfa V-
Þjóðverjum að veiða
80.000 tonn af fiski á
tslandsmiðum.
Lúðvfk setti engin tak-
mörk á þorskveiðar V-
Þjóðverja.
Lúðvfk vildi bjóða V-
Þá minnti Gunnar Thor-
oddsen á í ræðu sinni, að
Lúðvík Jósepsson og allir
þingmenn Alþýðubanda-
lagsins hefðu árið 1973
greitt atkvæði með 130.000
tonna árlegri veiðiheimild
Breta, þar sem meginuppi-
staðan eða um 80% hefði
verið þorskur.
Félagsmálaráðherra
sagði í ræðu sinni, að sam-
komulagsdrögin við V-
Þjóðverja veittu tryggingu
fyrir því, að V-Þjóðverjar
mundu veiða minna magn
af fiski en án slíkra samn-
ingsákvæða. Nánari frá-
sögn af ræðu Gunnars
Thoroddsens er á bls. 19 í
Morgunblaðinu í dag.
HEILL A HUFI — Hér sést hvar slökkviliðsmenn bera Jónmund Einarsson, 73ja
ára að aldri, út í sjúkrabifreiðina, en hann var hinn eini af 4 mönnum er voru í
rishæð hússins að Óðinsgötu 4, sem bjargaðist úr eldsvoðanum þar í gærkvöldi.
Segir nánar frá því á forsíðu. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
Gunnar Thoroddsen
Þjóðverjum 54.000
ferkílómetra veiðisvæði
innan 50 mflna mark-
anna, en skv. samkomu-
Iagsdrögum núverandi
ríkisstjórnar er fyrir-
hugað veiðisvæði V-
Þjóðverja innan gömlu
50 mflna markanna
25.000 ferkílómetrar.
Tókst að svíkja 4 milljón-
ir út úr Landakotsspítala
Falsaðir matvælareikningar greiddir út frá árinu 1973
I LJÚS hefur komið, að frá árinu
1973 hafa verið sviknar tæpiega
fjórar milljónir króna út úr
Landakotsspítala á þann hátt að
senda spítalanum falsaða reikn-
inga fyrir matvæli. Upp komst
um svikin fyrir u.þ.b. þremur
vikum þegar spítalanum barst
reikningur uppáskrifaður af
einni systranna, sem spftalann
reka en hún hafði þá um nokkuð
langan tfma dvalið erlendis og gat
Gunnar Ólafsson, skipherra á Ægi:
„Freigátan ruglaffist í ríminu
og við klipptum á togvírana”
„Við gerðum þrjár tilraunir
til þess að klippa og það tókst
í þeirri þriðju," sagði
Gunnar Ólafsson, skipherra
á varðskipinu Ægi, f við-
tali við blaðamann Morg-
unblaðsins í gær. „£g held
að freigátan hafi ruglazt
á okkur og dráttarbát-
unum, sem þarna voru og
það ásamt þvf að við höfum
hér gott skip og góða skips-
höfn, gerði okkur þetta kleift."
Blaöamaður Mbl. ræddi við
Gunnar klukkan 12.15 f gær,
Gunnar Olafsson,
skipherra áÆgi
HMwMMMn
en þá var skipið statt við
Langanes, skammt fyrir vestan
mikinn þokubakka, sem
brezku Jandhelgisbrjótarnir,
freigátan Leopard og fjórir
dráttarbátar földu sig í. Þoku-
bakkinn var á fremur tak-
mörkuðu svæði norður af
Langanesi og þar voru 15
togarar að veiðum í þröngum
hóp. Við spurðum Gunnar,
hvar Leopard hefðist við.
Hann svaraði:
„Herskipið er úti i þokunni
Frambald á bls. 20
..... ■■■-I.iwm-
því ekki hafa kvittað fyrir mót-
töku matvælanna. Fyrrverandi
starfsstúlka við spítalann hefur
setið f gæzluvarðhaldi s.l. hálfan
mánuð á meðan rannsókn hefur
staðið yfir og hefur hún játað að
hafa tekið við peningunum, en
kveðst hafa gert það fyrir aðila
sem hún segist ekki kunna að
nefna. Það liggur ljóst fyrir, að
reikningarnir voru merktir póst-
hólfi sem reyndist vera á hennár
vegum.
Eins og að framan segir hafa
þessi svik viðgengist frá árinu
1973. Þá fóru að berast til spítal-
ans reikningar fyrir matvæli,
aðallega kjötvörur og egg og voru
þeir greiddir út þar sem á þeim
var móttökukvittun einnar systr-
anna sem við spítalann starfar, en
hún vinnur í bakarfi spítalans.
Bakarí og eldhús eru hlið við hlið
í kjallara spftalans og kom það
stundum fyrir að starfsfólk baka-
rísins kvittaði fyrir móttökur mat-
væla þegar enginn var við í eld-
húsinu. Vakti það þvf engar grun-
semdir þótt nafn systurinnar, sem
vinnur í bakaríinu stæði á mat-
vælareikningunum.
Þessir fölsuðu reikningar hafa
borizt nær mánaðarlega frá árinu
1973 og sá síðasti kom fyrir u.þ.b.
þremur vikum. Samkvæmt
honum. hafói umrædd systir
kvittað fyrir móttöku matvæl-
anna, en í þetta sinn gat það ekki
staðist þar sem hún hafði dvalið
erlendis um nokkuð langan tíma.
Sakadómi Reykjavíkur var falin
Framhald á bls. 21
Ungir ávís-
anafalsarar
TVEIR 13 ára piltar voru
gripnir um sfðustu helgi við
ávfsanafals. Þótt ungir væru
að árum og réttritun ekki
þeirra sterkasta hlið eftir ávfs-
ununum að dæma, runnu ávfs-
anir þeirra út eins og heitar
lummur í fyrirtækjum í borg-
inni.
Tókst þeim að svíkja út 25
þúsund krónur á fimm
ávísanablöðum sem þeir höfðu
stolið. Höfðu þeir venjulega
þann háttinn á að kaupa ein-
hvern hlut á u.þ.b. 500 krónur,
borga með 5000 króna ávísun,
fá 4500 krónur til baka og
henda sfðan hlutnum, sem i
einu tilfelli var aðventukrans
sem þeir keypt'u í blómabúð i
borginni.
Að sögn lögreglunnar er það
allt of algengt að starfsfólk
fyrirtækja taki við ávísunum
sem augsýnilega er stórlega
bogið við, t.d. nafn framselj-
anda ekki einu sinni rétt
skrifað.
*