Morgunblaðið - 05.12.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.12.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975 að kljást við Bretann” • „Mér finnst þetta oft skemmtilegt, en stundum er þaé líka afar erfitt. I mínum verkahring er að bera á borð og taka af borðum, þvo upp, sápa, skúra og ryksuga og ég hef aldrei þurft að vinna svona mikið og lengi áður á minni lífsfæddri ævi. Þetta eru stund- um hálfssólarhringstarnir. En þetta er oft spennandi þegar við lendum í sviptingum við Bretann.“ Sá sem þetta segir er einn af okkar vösku varðskips- mönnum sem nú standa í ströngu í þorskastrfðinu. Hann hefur þó þá sérstöðu að hann er svissneskur að uppruna, en ákvað að varpa hlutleysisstefnu lands síns fyrir róða og ganga í lið með tslendingum á þennan hátt. Markus Loosli heitir Jfismynd Ól.K.M Markus Loosli segir ungur Svisslendingur sem er nú messagutti á Tý og ætlar í sumar að sigla á kajak á Jökulsá á Fjöllum hann, ungur piltur og er messa- gutti á Tý. Markus kom til Islands í júlí í sumar sem skiptinemi á vegum þjóðkirkjunnar og hefur þegar náð furðu góðum tpkum á fs- lenzkunni. Upphaflega hafði hann ætlað að fara til Nýja- Sjálands, en bæði síðasta þorskastríð og ummæli nokk- urra vina hans um ísland urðu þess valdandi að hann ákvað að koma hingað. Fyrst sótti hann hér námskeið i íslenzku, vann um tíma á barnaheimili en fékk loks stöðu um borð í Tý 1. októ- ber og að því hafði hann alitaf stefnt. „Það bezta við varð- skipsvistina finnst mér vera hversu góðir menn eru í áhöfn- inni,“ sagði hann, „og ég hef sannarlega ekki orðið fyrir von- brigðum." „í fyrstu ferðinni varð ég að vísu sjóveikur og gat ekkert borðað fyrr en eftir þrjá daga, en þá vorum við í 10 vindstig- um. í annarri ferðinni var sjó- veikin minni og svo í þeirri þriðju sem ég var að koma úr kenndi ég einskis.“ Markus kvaðst mundu verða með í næstu ferð Týs en halda síðan heim til Sviss í jólafrí. Eftir jólin fer hann á lýðháskólann í Skálholti þar sem hann verður í þrjá mánuði, en í sumar hyggst hann reyna að komast á bónda- bæ, — helzt fyrir austan. Mark- us er mikill áhugamaður um kajaksiglíngar og hann, ásamt frægum svissneskum kajaksigl- ingamanni, ætlar að reyna að sigla á íslenzkum fljótum á kaj- ak, og hafa þar helzt í huga Jökulsá á Fjöllum. Einnig hef- ur Markus áhuga á að kenna íslendingum að smíða og sigla kajökum. Síðan heldur hann aftur heim til Sviss undir haustið. Athugasemd frá formanni HÍP MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi athugasemd frá for- manni Hins fslenzka prentara- félags, Ólafi Emilssyni: Vegna viðtals, sem birtist í Morgúnblaðinu í gær, varðandi atvinnuástand í prentiðnaði, vil ég undirritaður fara þess á leit við blaðið að það birti eftir- farandi: I viðtalinu segir, að Isdafoldar- prentsmiðju skorti rekstrarfé og að hún sjái sér ekki fært að endurnýja vélakost sinn. I þessu sambandi vil ég taka fram, að hér er aðeins átt við endurnýjun á hluta setningartækja, því prent- smiðjan hefur endurnýjað vélar hjá sér bæði í prentún og bók- bandi. En ég vil undirstrika það alveg sérstaklega, að fjárskortur háir ekki þessu eina fyrirtæki, heldur öllum prentsmiðjum f landinu. Prentiðnaðurinn hefur á undan- förnum árum ekki notið þeirrar fyrirgreiðslu um rekstrarfé sem hann þarf til að vera þess umkom- inn að fylgjast með hinni öru þróun í prentiðnaðinum um heim allan. Haft er eftir mér í viðtalinu, að ekki verði leyft að óiðnlært fólk vinni við setningu á innskriftar- borð á meðan prentarar gangi at- vinnulausir. Til að fyrirbyggja misskilning skal tekið fram, að ekki er átt við þá sem nú vinna á innskriftarborð og eru löglegir félagsmenn, heldur þá sem hyggjast hefja slík störf. Með þökk fyrir birtinguna. Ólafur Emilsson Verzlunin Vísir 60 ára VERZLUNIN Visir, Laugavegi 1, á sextiu ára afmæli i dag. en þetta er ein eizta verzlun borgarinnar og liklega fátitt að verzlun hafi verið jafnlengi til húsa á sama stað og Visir. Það voru þeir Sigurbiörn Þorkels- son og Guðmundur Ásbjörnsson sem stofnuðu verzlunina þennan dag fyrir 60 árum i fjórða hluta hússins að Laugavegi 1. en það byggði Jón Pétursson háyfirdómari 1 827 Þeir ráku verzlunina til ársins 1 943 en þá tók Sigurbjörn Björns- son við henni og rak til dauðadags Á þessum tima var myndað hluta- félag um verzlunina þar sem ýmsir hafa komið við sögu en nú rekur Þórir. sonur Sigurbjörns Björnsson- ar, verzlunina. en hann hefur starfað við hana sl 20 ár Visir hefur jafnan stundað verzlun á sviði nýlenduvara og er liklega ein þekktasta verzlun þeirrar tegundar i Reykjavik, enda stendur hún nærri hjarta borgarinnar Þótt verzlunin hafi alla tíð verið á sama stað, hefur hún þó flutzt aðems til í húsinu og hefur heldur þrengt að henni eftir öll þessi ár, að þvi er Þórir tjáði Morgunblaðinu Sullur finnst á ný í tveimur sláturhúsum Talið var að sullinum hefði verið útrýmt, þar sem hann hafði ekki fundist um áratuga skeið UNDANFARNAR 2—3 sláturtíð- ir hefur það gerst, að fgulsullur eða öðru nafni höfuðsóttarsullur hefur fundizt I tveimur sláturhús- um á landinu. Þessi sullur hafði þá ekki fundist um áratuga skeið og var talið að honum hefði verið útrýmt. A ráðstefnu sem Dýra- læknafélag tslands hélt fyrir skömmu, voru dýralæknar sam- mála um að ástæða væri til auk- innar árvekni hvað vörnum gegn sullaveiki viðvfkur. Hvöttu dýra- læknar bændur að gefnu tilefni til að grafa öll hræ jafnóðum, og fóðra ekki hunda sína á hrámeti. Morgunblaðið ræddi í gær við Birni Bjarnason, héraðsdýra- lækni á Höfn, um þetta mál, en hann er jafnframt ritari Dýra- læknafélags Islands. Birnir sagði, að á síðustu sláturtið hefðu fund- ist 11 kindur með ígulsull í einu sláturhúsi, og voru allar kindurn- ar frá sama bæ. Tvær sláturtíðir þar á undan hafði orðið vart við sull í kindum frá þessum sama Dagskráin verður ekki endurflutt ÚTVARPSRÁÐ hefur tekið fyrir á fundi þá ósk Guðmundar Garðarssonar alþm., sem hann bar fram á alþingi, að dagskrá stúdenta 1. desember s.l., sem var útvarpað þann sama dag, yrði endurflutt. Að sögn Þórarins Þórarinssonar, formanns útvarps- ráðs, greiddi enginn ráðsmanna atkvæði með tillöginni og var þá ekki leitað mótatkvæða, þar sem hún var talin fallin. Verður dag- skráin því ekki endurflutt. bæ. Þá fannst ígulsullur frá öðr- um bæ í öðru sláturhúsi nú í haust, og hafði ekki orðið vart við sull á þessum bæ áður. Birnir sagði að fyrir mörgum áratugum hefði mikið borið á þessum sulli en sfðan hefði honum alveg verið Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Bækur Jakobínu og Olafs Jóhanns iagðar fram ÞAÐ hefur verið ákveðið, að skáldsagan „Lifandi vatnið" eftir Jakobfnu Sigurðardóttur og Ijóðabókin „Að brunnum eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson verði að þessu sinni lagðar fram af fslands hálfu vegna bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs. Dómnefnd sú, sem úrskurð- ar hver fær verðlaunin, kemur saman í Reykjavík í janúar og mun tilkynna úrskurð sinn 13. janúar. Af Islands hálfu eiga sæti i nefndinni Ólafur Jóns- son ritstjóri og Vésteinn Óla- son lektor. Þeir hafa einnig valið fslenzku verkin sem lögð verða fyrir dómnefndina. \'erðlaunin, sem nema 50 þúsund dönskum krónum eða um 1,3 milljónum íslenzkra króna, verða afhent á fundi Norðurlandaráðs í Kaup- mannahöfn 29. febrúar n.k. Verðlaununum eru nú úthlut- að í 15. skipti, og hefur Islend- ingur aldrei hlotið þau. Isröndin aðeins 20 sjó- mílur frá Straumnesi útrýmt þar til honum skýtur nú upp að nýju. Sagði Birnir að enn væri á lífi fólk sem væri með sull frá fyrri árum, en honum er ekki hægt að ná, aðeins hægt að halda honum í skefjum. Hundurinn er afar mikilvægur í llfskeðju orms- ins því hann ber hann frá kind til manns, og sagði Birnir að þvi væri afar mikilvægt að halda hundum frá hrámeti og grafa öll hræ. Brezki flotinn á norðurleið LANDHELGISGÆZLUFLUG- VÉLIN SÝR fór I könnunarflug I gær. Töldu starfsmenn gæzlunnar 54 brezka togara á veiðum við landið. Voru þeir á svæðinu frá Héraðsflóadýpi og suður að Hval- bak. Voru þeir flestir á bilinu 30—50 mflur frá landi og f góðri gæzlu herskipa og dráttarbáta. Virtist flotinn vera á norðurleið. A þessum slóðum voru tvær freigátur, Brighton og Falmouth, dráttarbátarnir Star Sirius, Lloydsman og Euroman, auk birgða- og aðstoðarskipa. Euroman hefur ekki áður verið við Islandsstrendur, en hann er stór og kraftmikill dráttarbátur, 1182 lestir að stærð. Varnarliðið sá ís 45 mílur útaf Reykjanesi LANDHELGISGÆZLAN lét f gær gæzluflugvélina SÝR kanna haffsinn undan Vestfjörðum. Revndist ísinn nú vera miklum mun nær landi en hann hefur verið að undanförnu, og er um að kenna stöðugum vestanvindi að undanförnu. Var íshrafl næst landi um 20 sjómílur út af Straumnesi, og er fátftt að fs sé svo nærri landi á þessum árstíma. Þá tilkynnti varnarliðið I gær að fs hefði sést 45 sjómflur útaf Reykjanesi. Ætlar Landhelgis- gæzlan að kanna þetta nánar f dag. Landhelgisgæzluvélin SÝR kom að ísjaðri 306 gráður, 36 sjómílur útaf Bjargi. Tilkynnti vélin að ísinn lægi að mestu í 230 gráður og 30 gráður. Sem fyrr segir var ísinn næst landi útaf Straumnesi, aðeins um 20 sjómílur frá landi. Væntanlega mun Landhelgisgæzl- an fylgjast áfram með fsröndinni útaf Vestfjörðum á næstu dögum. Orustuflugvél frá varnarliðinu sá í gær ís 45 sjómílur útaf Reykjanesi. Varð vélin fyrst vör við ísinn í gærmorgun. Síðar um daginn var einnig flogið þarna yfir og hafði ísinn þá rekið um 10 sjómilur í norðurátt. Landhelgis- gæzlan mun kanna þetta í dag, en það mun vera afar fátítt að þarna sé ís að finna. AÐ UNDANFÖRNU hafa verið kveðnir upp f Borgardómi Reykjavfkur þrfr dómar í málum sem aðstandendur „Varins lands“ höfðuðu vegna skrifa um þá f hlöðum. Voru málin höfðuð gegn Arna Björnssyni þjóðháttafræð- ingi, Degi Þorleifssyni blaða- manni og Garðari Viborg fuli- trúa. KONAN SEM LÉZT — Þetta er konan sem lézt f fyrradag, eftir að hafa lent I átökum við 16 ára gamlan pilt f verzluninni Brautarnesti f Keflavfk. Hún hét Guðbjörg Öskarsdóttir, Faxa- braut 38D f Keflavfk. Hún var 21 árs gömul, fædd 2. febrúar 1954 og lætur eftir sig eiginmann og tvö ung börn. I málinu gegn Árna Björnssyni féll dómur á þá lund, að ummæli hans voru dæmd ómerk, en þau birtust i Þjóðviljanum. Þá var hann dæmdur til að greiða 25 þúsund krónur í málskostnað og gert að sjá um birtingu á forsend- um dóms og dómsniðurstöðu f Þjóðviljanum. Ummæli Dags Þorleifssonar birtust einnig í Þjóðviljanum. Þau voru dæmd ómerk f heild og Degi gert að greiða 25 þúsund króna sekt til ríkisins, en til vara í 5 daga varðhald. Dagur er sá eini sem hefur fengið sektardóm í málaferlum aðstandenda „Varins lands“. Þá var hann dæmdur til að greiða 120 þúsund krónur í málskostnað og auk þess gert að sjá um birtingu á forsendum dóms og dómsniðurstöðu í Þjóð- viljanum. Dómur í máli Garðars Viborg var kveðinn upp í gærmorgun og er ekki hægt að skýra frá honum hér, þar eð hann hefur ekki verið tilkynntur aðilum málsins. Hrafn Bragason borgardómari kvað upp þessa þrjá dóma. Þórir Sigurbjörnsson og kona hans Kristbjörg Oddgeirsdóttir í verzluninni Vfsi. (Ljósm. ÖI. K.M.) Þrír dómar í mál- um „Varins lands”

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.