Morgunblaðið - 05.12.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975
15
Röndéttir
Rullukraga
bolir
48 v«i
V LAUGAVEGUR r\
TAA ®-21599
BANKASTRÆTI V
14275 iA
„Dísa frænka”
— eftír Stefán Jónsson
Hugþekk barna- og unglinga-
bók, Dísa frænka, sem er 8. bókin
í ritsafni barna og unglingabóka,
er Isafoldarprentsmiðja gefur út,
er nú komin í bókabúðir. Dísa
frænka kom fyrst út árið 1952 og
er þetta önnur prentun bókarinn-
ar. I henni eru fjórar sögur: Dísa
frænka, Inga Dóra, Snorri og
Feðgarnir á Völlum. Um þær
kemst höfundur svo að orði í inn-
gangi:
„Sögur þessar eru frá minni
hendi skrifaðar fyrir börn og
unglinga, — og svo auðvitað alla
þá, sem vilja gera mér þann
greiða að lesa þær. Hér er ekki
um smábarnabók að ræða. Sumir
kunna að álfta lengstu söguna
naumast við barna hæfi. Ég vona
hið gagnstæða. Eg held, að það sé
áreiðanlega skaðlegt, að barna- og
unglingasögur séu nær eingöngu
barnaskapur."
Komið er út annað bindi bókar-
innar Hundrað Hafnfirðingar
eftir Magnús Jónsson, kennara.
Fyrra bindi bókarinnar kom út
fyrir jólin 1973 og í því sem þessu
bindi eru birtar myndir af
hundrað Hafnfirðingum sem nú
eru látnir. Allir voru þeir kunnir
borgarar á sínum tíma og settu
svip á bæjarlífið, hver á sinn hátt.
Vísa fylgir hverju nafni og hefur
Magnús ort þær flestar. Þar dreg-
ur Magnús fram ýmislegt sem
auðkenndi hvern og einn, at-
vinnu, uppruna eða annað sem
hafa mátti til marks um manninn.
Gunnar Rúnar hefur tekið allar
myndir í báðum bókunum og
getur höfundur þess i formála
annars bindis, að farið sé að
sneyðast um myndir af þeim sem
látnir eru og því litlar lfkur til að
hér verði framhald á.
Bókin verður til sölu í Hafnar-
firði i Bókabúð Böðvars, Bókabúð
Olivers Steins og hjá höfundi.
Hundrað
Hafnfirðingar
— annað bindi
Aðalfundur æskulýðsnefndar
þjóðkirkjunnar í Hveragerði
HAUSTRÁÐSTEFNA æskulýðs-
nefndar þjóðkirkjunnar var hald-
in sl. laugardag í kapellu NFL í
Hveragerði. Ráðstefnuna setti
séra Ingólfur Guðmundsson.
Lagðir voru fram reikningar og
HUNDRAÐ
HAFNFIRÐINGAR
innfæddir og aðfluttir
II.
skýrsla æskulýðsfulltrúa. Þá voru
flutt erindi um „hlutverk safnað-
arins í æskulýðsstarfi“. Fram-
sögumenn voru séra Guðjón Guð-
jónsson, æskulýðsfulltrúi, frú
Ingibjörg Þorvaldsdóttir og séra
Valgeir Astráðsson. Urðu um
þetta miklar og fjörugar um-
ræður. Síðdegis var flutt messa
með altarisgöngu í kapellu NFL.
Var messan vel sótt. Sóknarprest-
urinn séra Tómas Guðmundsson
messaði en orgelleikari var æsku-
lýðsfulltrúinn, séra Guðjón Guð-
jónsson. Eftir messu höfðu prest-
hjónin þau Anna Sveinbjörns-
dóttir og séra Tómas Guðmunds-
son boð inni fyrir ráðstefnugesti.
— Georg.
C
; Mti.vi s |f>Nss()N
WESTERN
SKYRTUR