Morgunblaðið - 05.12.1975, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975
Hörkuárekstur
á Oxnadalsheiði
Akureyri, 4. des.
HÖRKUÁREKSTUR varð um
klukkan 15 f dag skammt vestan
við Giljareit á Öxnadalsheiði þar
sem tveir fólksbflar, annar frá
Akureyri og hinn úr Skagafirði
skullu saman af miklu afli. Tveir
farþegar voru f hvorum bfl auk
ökumanna og meiddist allt fólkið
meira og minna, nema ökumaður
A-bflsins. Ekki er þó talið að
neinn hafi verið lífshættulega
slasaður. Fimm manns voru
fluttir f sjúkrahúsið á Akureyri
eftir slysið, sumir illa skornir f
andliti. aðrir með brotnar tennur
og talið er að ein kona hafi verið
fótbrotin.
Slysið varð á hæð á veginum og
bílarnir eru báðir mikið dældaðir
að framan og K-bíllinn hrökk
alveg út af veginum. Báðir eru
bílarnir stórskemmdir og óöku-
færir. Slysið var tilkynnt til
lögreglunnar á Akureyri um síma
í Sesseljubúð á Öxnadalsheiði.
Þetta atvik sýnir, hve þarflegt er
Alvarlegt
slysí
gærkvöldi
ALVARLEGT slys varð
á mótum Laugavegar og
Höfðatúns skömmu eftir
klukkan 23 í gærkvöldi.
Tveir fólksbílar, af
Moskwitch og Mini-gerð
rákust harkalega saman.
Tveir sjúkrabilar voru
kallaðir á staðinn og
fernt var flutt á slysa-
deild. Lögreglan hafði
ekki fengið nánari
fregnir af slysinu þegar
blaðið fór í prentun en
taldi slysið alvarlegt.
— Lestarrán
Framhald af bls. 1
Lögregluþjónar og hermenn
einangruðu ráðhúsið í Beilen
skyndilega í kvöld þegar af því
fréttist að mikill fjöldi Molucca-
eyinga væri á leið til bæjarins í
bílum. Um 200 blaðamenn hafast
við í ráðhúsinu og fékk enginn
þeirra að yfirgefa það í gær-
kvöldi.
Börnin fimm, sem sleppt var úr
ræðismannsskrifstofunni i Amst-
erdam, voru ákaflega miður sín
og skjálfandi af ótta- Lögreglan
álítur að ekki færri en 20 gíslum
sé haldið í skrifstofunni og að
þeir geti jafnvel verið uppundir
50, þar á meðal eru fimm ung
börn. Alitið er að hér sé einnig
um Moluccaeyinga að ræða, sem
berjast fyrir sjálfstaéði eyjanna.
Lögreglan segir að ræðismaður-
inn, Bustanul Arifin, og vararæð-
ismaðurinn, Mohamed Hassa
Wirastrra, hafi slasast þegar þeir
flúðu út um glugga. Einn starfs-
maður skrifstofunnar var skotinn
í magann þegar skrifstofan var
tekin.
Lögreglan neitar að ræða
nokkrar kröfur mannræningj-
anna í ræðismannsskrifstofunni
fyrr en þeir hafi sleppt öllum
börnum.
Byggingin þar sem skrifstofan
er til húsa hefur verið flóðlýst frá
öllum hliðum og nánasta um-
hverfi lokað af. .
Joop den Uyl sagði i kvöld að
stjórnin neyddist líklega til að
grípa til ofbeldis til að binda endi
á ástandið á báðum stöðum. „En
við erum að reyna að finna lausn
án ofbeldis,“ sagði hann.
að hafa þar sæluhús og simatæki,
því langt er til byggða bæði til
Eyjafjarðar og Skagafjarðar.
— Sv. P.
— Air Viking
Framhald af bls. 40
sem sagt hér með að hafa
nokkurn hlut eftir mér.“ Blað-
manni Mbl. tókst ekki að ná sam-
bandi við hinn bankastjóra
Alþýðubankans, Óskar
Hallgrfmsson.
I Morgunblaðinu í gær skýrði
bankastjóri Samvinnubankans,
Kristleifur Jónsson, frá þvi, að
ekkert launungarmál væri, að
Samvinnubankinn hefði gengið í
ábyrgð fyrir h^lming af kaup-
verðinu, þegar Air Viking keypti
flugvélarnar tvær, en það var
greitt með erlendu láni, eins og
komið hefur fram. Kristleifur
skýrði Morgunblaðinu ennfremur
frá þvi, að Samvínnubankinn
hefði tekið veð í flugvélum Air
Viking vegna ábyrgð§r sinnar og
væri kunnugt um ásigkomulag
þotanna.
t tilefni af þessum ummælum
hefur Mbl. aflað sér upplýsinga
um væntanlega klössun á vélun-
um.
Önnur þota Air Viking hefur
staðið á Keflavíkurflugvelli allt
frá því í vor og hefur ekki loft-
ferðaskírteini þar eð flugtími
hennar er útrunninn og hún
verður því að fara i klössun. Að
sögn Grétars Öskarssonar verk-
fræðings flugmálastjóra mun hin
flugvél Air Viking aðeins eiga
eftir nokkra tugi flugtíma. Þá
spurði Morgunblaðið Grétar að
því hvað hann teldi að klössun,
eins og þessar vélar þyrftu að fara
í, myndi kosta. Kvað hann það
geta verið nokkuð mismunandi —
allt eftir því hversu athugun á
vélinni leiddi í Ijós að mikillar
endurnýjunar væri þörf en taldi
þó að klössun einnar slíkrar vélar
væri að stærðargráðunni 200
þúsund til 300 þúsund dollarar
eða milli 30—50 milljónir króna.
Kaupverð beggja véla Air Viking
var á sínum tíma 550 þúsund doli-
arar eða um 93 milljónir króna
svo að klössun beggja vélanna nú
myndi nema sem næst kaupverði
þeirra á sínum tíma.
Vegna orðróms um verulega
skuld Air Viking við Olíufélagið
hf. vegna eldsneytiskaupa sneri
Morgunblaðið sér til Vilhjálms
Jónssonar forstjóra Olíufélagsins
og spurði frétta af þessu atriði.
Hann svaraði því til, að það væri
ekki vani fyrirtækis hans að
gefa upp tölulegar upplýsingar
um stöðu viðskiptafyrirtækja
gagnvart því, en kvaðst þó geta
upplýst, að þetta tiltekna flug-
félag skuldaði um 2ja mánaða
úttekt hjá Olíufélaginu. Hann var
hins vegar ófáanlegur til að gefa
nokkuð upp um fjárhæðina eins
og áður segir.
Þá hefur Morgunblaðið aflað
sér upplýsinga um það, að vegna
langlánatökuáforma Air Viking
erlendis, sem blaðið skýrði frá í
gær, hafi verið ráðgert að lán-
takan yrði á vegum Utvegs-
bankans sem gjaldeyrisbanka, en
með Samvinnubankann og
Alþýðubankann sem hina raun-
verulegu ábyrgðabanka hér
innanlands. Staðfesti Björgvin
Guðmundsson, formaður gjald-
eyrisnefndar þetta í viðtali við
Morgunblaðið í gær.
— Borgarstjórn
Framhald af bls. 40
• Þrátt fyrir mikla hækkun
verðbólgu á árinu 1975 hefur
tekizt að halda þannig á fjár-
málum borgarinnar, að fjár-
hagsleg afkoma borgarsjóðs
mun ekki versna á árinu, ef
innheimta álagðra gjalda nær
77% sem er 1% lakara en á sl.
ári. Sagði borgarstjóri, að
þetta hefði tekizt með aðhaldi í
rekstri og með því að setja
nýjar framkvæmdir ekki af
stað nema nokkurn veginn
væri tryggt, að fjármagn væn
fyrir hendi.
• Áætluð útgjöld borgarsjóðs til
byggingarframkvæmda hækka
um 33,5%
• í gatnagerðarframkvæmdum
verður mikil áherzla lögð á ný
byggingarsvæði, þ.e. íbúðar-
byggingar og iðnaðar- og
verzlunarbyggð. Þegar hætta
er á atvinnuleysi, sagði borgar-
stjóri, eru slikar framkvæmdir
mjög mikilvægar því að þær
skapa atvinnu í byggingar-
iðnaði.
• Áherzla verður lögð á áfram-
hald skólabygginga, byggingu
stofnana í þágu aldraðra, heil-
brigðisstofnanir, fram-
kvæmdir vegna umhverfis og
útivistar og dagvistunarstofn-
anir.
% Borgarstjóri vakti athygli á því
að ýmsar framkvæmdir
borgarinnar eru háðar fram-
lögum frá rikissjóði svo sem á
sviði skólabygginga, íþrótta-
mannvirkja heilbrigðisstofn-
ana og dagvistunarstofnana.
Kvaðst Birgir Isl. Gunnarsson
hafa ritað fjárveitinganefnd
Alþingis bréf um þessi mál og
hafa átt fund með fjárveiíinga-
nefnd í gærmorgun til þess að
skýra fjárþörf borgarsjóðs á
þessum sviðum. Borgarstjóri
sagði að framkvæmdageta
borgarinnar og nýting þeirra
fjármuna sem í þessari áætlun
eru ætlaðir til framkvæmda,
mundu að sjálfsögðu fara eftir
því hvað endanlega yrði sam-
þykkt á Alþingi um fjárveit-
ingar úr ríkissjóði til borgar-
innar.
Nánar verður skýrt frá ræðu
borgarstjóra um fjárhagsáætlun
borgarinnar síðar.
— Spánn
Framhald af bls. 19
verði í baktjaldaviðræðum í
næstu viku hve lengi Navarro
sem óskaði eftir að hætta sökum
þreytu heldur áfram sem forsæt-
isráðherra.
Breyttar kosningareglur f ríkis-
ráðinu gerðu það að verkum að
erfiðara varð fyrir konung að
koma frjálslyndum manni í stól
forsætisráðherra.
— Heimsókn
Framhald af bls. 1
leiðtogarnir báðir að Bandaríkin
og Kfna ættu margt sameiginlegt
þó að ágreiningur væri um sumt.
Ford ræddi samtals í 7 klukku-
stundir við nefnd Kínverja en for-
ystu fyrir henni hafði Peng, sem
er þriðji æðsti leiðtogi Kína og
næstum 2 klukkustundir við Mao
Tse-tung formann.
Utanríkisráðherra Banda-
rikjanna Henry Kissinger, sagði
blaðamönnum síðar að Banda-
ríkjamennirnir væru ánægðir
með ferðina. „Við eyddum litlum
tíma í slökun spennu milli Sovét-
ríkjanna og Bandaríkjanna“, sem
er mesta ágreiningsmálið í sam-
skiptum Bandaríkjanna og Kína.
Sagði Kissinger að mikið hefði
verið rætt um málefni Evrópu og
annarra heimshluta, en að
detente hefði ekki verið neitt
aðalatriði í viðræðunum. Þá sagði
hann að rætt hefði verið um
'Angóla, sem ylli Kínverjum
miklum áhyggjum, Kóreu og
Taiwan. Stjórnirnar tvær greinir
á um Kóreu en Kissinger sagði að
hann vonaði að báðir aðilar héldu
aftur af sér. Hann sagði að
Kínverjar hefðu gert tilslakanir
varðandi Taiwan, en það er það
atriði sem mest stendur í vegi
fyrir þvf að löndin geti tekið upp
stjórnmálasamband sín á milli.
Ekki var gerð nein tímaáætlun
um hvenær stjórnmálasamband
þjóðanna gæti verið komið í eðli-
legt horf en fullt stjórnmálasam-
band hefur í för með sér að
Bandaríkin verða að slíta stjórn-
málasambandi við Taiwan.
Þegar Kissinger var spurður
um af hverju sameiginleg yfirlýs-
ing hefði ekki verið gefin út eftir
heimsóknina svaraði hann því til
að í rauninni hefði engu verið við
yfirlýsingu þá að bæta sem út var
gefin eftir heimsókn Nixons til
Peking 1972.
— Alveg ótrúleg
Framhald af bls. 40
Gestur að nafni, og Gunnbjörn
voru á neðri hæð. Eldurinn
reyndist ótrúlega magnaður.
Stökk Gestur þá út að Hjalla-
túni til að láta hringja á hjálp,
en Gunnbjörn hljóp upp
stigann til að vekja Guðnýju og
Ingibjörgu. Svo magnaður var
eldurinn að stiginn féll rétt
eftir að Gunnbjörn var kominn
upp, og varð hann því að brjóta
glugga og koma konunni og
börnunum þar út en við þá
skárust þau og brenndust, þvf
eldurinn var komin fast að
þeim. Niðurkoman var mjög
slæm þar sem jörðin var gadd-
freðin. „Þetta gekk svo snöggt
yfir,“ sagði Guðný „að maður
varð ekki hræddur fyrr en
eftirá. En það er alveg ótrúleg
lífsreynsla að lenda í svona
bruna og finna fyrst eftirá hve
stutt er milli lífs og dauða."
I brunanum brann íbúðar-
húsið til kaldra kola nema
bflskúrinn sem stóð og bíll
þeirra skemmdist ekki, en að
öðru leyti misstu þau allt sitt
innbú fatnað og hvaðeina sem í
húsinu var. Eftir þetta mikla
áfall er fjárhagsástand
fjölskyldunnar í Norðurbotni
afar slæmt og er hafin fjársöfn-
un á Tálknafirði og á Patreks-
firði til hjálpar þeim. Tekur
prófasturinn sr. Þórarinn Þór á
móti framlögum þeim til handa.
—Páll.
MORGUNBLAÐIÐ hefur orðið
við þeirri ósk sr. Þórarins Þórs,
að taka á móti fjárframlögum f
Reykjavík, og verður þeim
veitt móttaka á skrifstofu
hlaðsins, Aðalstræti 6.
— BBC-
fréttamaðurinn
Framhald af bls. 3
bannað að koma til landsins,
sem ætlaði að framkvæma
starfsskyldur sínar sem frétta-
maður brezka útvarpsins. Þetta
var starf mitt. Ég gerði mig
fyllilega skiljanlegan við yfir-
völd á staðnum í sérstakri
skýrslu, sem ég ritaði, en þrátt
fyrir hana var ákvörðun ráðu-
neytisins óhagganleg — að ég
skyldi aftur sendur sömu leið
og ég kom — þ.e. um borð í
aðstoðarskipið Miröndu."
Morgunblaðið spurði brezka
fréttamanninn næst að því,
hvers vegna hann hefði ekki
haft samband við útlendinga-
eftirlitið í Neskaupstað. Hann
sagði: „Ég fór ekki í land með
leynd. Á bryggjunni voru engir
einkennisklæddir menn frá
útlendingaeftirliti eða lögreglu.
Mér skilst þó að einn þeirra
manna, sem ég hitti hafi verið
frá útlendingaeffirlitinu, eða
maður úr vegabréfaeftirliti.
Enginn bað um að fá að sjá
skilríki mfn og mér var fylgt til
umboðsmanns brezkra togara á
staðnum til þess að komast til
Reykjavíkur. Enginn, sem
ræddi við mig, bað um skilríki
og mér skildist að öll formleg
afgreiðsla slíkra hluta myndi
framkvæmd, er til Reykjavíkur
kæmi.“
Archie McPhee sagðist halda
áfram störfum um borð í
Lloydsman sem fréttamaður og
ég starfa eingöngu sem slíkur
og er ekki á neinn hátt viðrið-
inn aðgerðir Breta hér í þessu
þorskastríði. Hve lengi ég þarf
að vera hér á miðunum, fer
eftir þvf, hvað ritstjórar mínir
hjá BBC ætlast fyrir og ég get
ekki vitað, hvað þeir ætlast
fyrir. I Lloydsman hef ég betri
vinnuaðstöðu, er um borð í
Miröndu og því er ég þar nú. Eg
mun verða hér um einhvern
tíma.“
Að lokum sagði McPhee að
brezki togaraflotinn héldi
áfram veiðum og hann sagðist
búast við því að svo myndi
hann gera áfram undir vernd
brezkra herskipa. Vissulega
myndu varðskipin halda áfram
að áreita togarana, en hann
taldi ólíklegt að það myndi
breyta nokkru um afstöðu
brezkra togaraskipstjóra og
brezks fiskiðnaðar.
— Sprettur
Framhald af bls. 3
og Garðar Cortes syngja sitt
hvort lagið með Arna, og í
nokkrum lögum syngja einnig
Helga Steinsson og Drífa
Kristjánsdóttir.
Ljóð Halldórs Laxness sem
Árni syngur eru: Á þjóðvegin-
um, Maístjarnan, Frændi þegar
fiðlan þegir, Þingvallavegur-
inn, Hjá lygnri móðu, Stóð ég
við öxará, Reikníngsskil,
íslenzkt vögguljóð á Hörpu, Um
hina heittelskuðu, Hjarta mitt,
Fornt ástarljóð enskt,
Hallormsstaðaskógur og
Stríðið. Þau eru öll prentuð á
innsíðum plötukápunnar, sem
prentuð er f Svansprenti. Lit-
myndir tók Kristinn Benedikts-
son, en platan er tekin upp í
Hljóðrita h.f. í Hafnarfirði.
Milljónaútgáfan EINIDRANG-
UR gefur út, „en Einidrangur
er vestasti drangur í Vest-
mannaeyjum. Þar dritar ekki
einu sinni fugl,“ sagði Árni
Johnsen á blaðamannafund-
inum.
— Unnið að . . .
Framhald af bls.21
byggðum öxfirðinga. Þaðan er
svo ætlunin að Ieiða vatnið í
frárennslisgöngum u.þ.b. 10 km
leið niður að Landsbæjum í
Öxarfirði, nálægt mynni
Jökulsárgljúfra.
Vinnuflokkur Orkustofnunar
er um það bil að Ijúka verkum
að sinni á Hólsfjöllum. Nú
stendur aftur á móti til að byrja
að bora um 150 m djúpa rann-
sóknarholu á stæði tilvonandi
frárennslisgangna nálægt Aust-
aralandi í Öxarfirði. Hefur
vinnuflokkur frá Orkustofnun,
sem undanfarið hefur unnið í
Skagafirði, nú þegar flutt
þangað býðir sinar, en ekki var
vinna við þessa borholu hafin
þegar ég síðast vissi til. Sú
vinna tekur a.m.k. nokkrar
vikur.
Því má bæta við að Fjöllung-
ar munu yfirleitt heldur
hlynntir þéssum virkjunar-
rannsóknum, en vafasamt er
aftur á móti hvort þessar rann-
sóknir hafa verið nægilega vel
kynntar fyrir öxfirðingum og
svo þeim Mývetningum, sem
einhverra hagsmuna eiga að
gæta. Spurningin er hvort
Oskustofnun hætti einlægt til
að brenna sig á sama soðinu —
að hafa ekki nægilega gott sam-
band við bændur og aðra land-
eigendur og kynna þeim mála-
vöxtu, áður en þeir hefja um-
fangsmiklar rannsóknir f lönd-
um þeirra.
A hinu leytinu er svo það, að
sumum landsmönnum þykir
nóg um völd hinnar ágætu en
tiltölulega fámennu bænda-
stéttar yfir landinu, ekki síst í
óbyggðum. Heyrst hefur t.d.
bæði í gamni og alvöru að 4—5
bændur á Suður- og Norður-
landi telji Vatnajökul sína eign
og liggi landamerki jarða
þeirra saman h.u.b. um miðjan
Vatnajökul endilangan. Eiga
þeir því mikið undir sér.
Sr. Sigurvin
t
Móðir okkar, tengdamöðir og amma
SÓLVEIG JÓNSDÓTTIR
Stóra-Lambhaga
er lézt 28 nóv verður jarðsétt frá Leirárkirkju laugardaginn 6. des kl.
14
Börn, tengdabörn og barnabörn.