Morgunblaðið - 05.12.1975, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.12.1975, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975 Jólasöfnun Mæðra- styrksnefndar að hefjast JÓLASÖFNUN Mæðrastyrks- nefndar fer nú að hefjast, en það hefur verið árviss viðburður frá árinu 1928, að nefndin hefur lið- sinnt bágstöddum mæðrum, börn- um, sjúkum og öldruðum konum fyrir jðlin. Hefur þetta framlag nefndarinnar fært birtu og yl inn á mörg heimilin. „Ég man, að fyrsta úthlutunin 1928 var um 10—12 kónur á heim- ili,“ sagði Jónína Guðmundsdótt- ir, formaður Mæðrastyrksnefnd- ar, í samtali við blaðið: „Nú hafa upphæðirnar margfaldast og þiggjendahópurinn sömuleiðis stækkað. Þau eru ekki orðin svo fá heimilin sem sett hafa traust sitt á jólaglaðning nefndarinnar. Mæðrastyrksnefnd treystir bæj- arbúum til að stuðla að því, að þessi heimili verði ekki fyrir von- brigðum í ár“. Jónína sagði, að söfnunarlistar hefðu verið sendir til fyrirtækja og stofnana, en tekið væri á móti gjöfum í skrifstofu nefndarinnar að Njálsgötu 3 alla virka daga frá kl. 11—6. „Hjálparbeiðnir verða að berast sem fyrst“ sagði frú Jónína og lagði áherzlu á, að ekki yrði út- hlutað eftir gömlum beiðnum. Bæði gætu aðstæður hafa breyzt og fólkið gæti verið flutt í annað húsnæði. „Fljótgert er vel gert,“ sagði frú Jónína ennfremur. „Því fyrr sem við fáum framlög ein- staklinga og fyrirtækja því betra. Þá sjáum víð nokkurn veginn, hvað hægt er að láta á hvern hóp.“ Einnig undirstrikaði hún að allar beiðnir yrðu að berast fljótt í ár, þar sem ekki yrði hægt að sinna úthlutun eftir 18—19. des. „Ég sendi vinum mínum og nefndarinnar í stofnunum og fyr- irtækjum hlýjar þakkir fyrir alla aðstoð og hjálp og glöðum gefend- um þakkar nefndin tryggan stuðning: Hjálpum þeim, sem eru hjálparþurfi, og reynum þannig öll að eiga gleðileg jól,“ sagði Jón- ína að lokum. Samningur um skattamál fullgildur FULLGILTUR hefur verið samningur um skattamál milli íslands og Banda- ríkjanna 26. nóvember s.l. skiptust þeir Haraldur Kröyer, sendiherra, og Robert Ingersoll, varautanríkisráð- herra Bandarfkjanna, á fullgildingar- skjölum í Washington. Samningur- inn, sem gerður er til að komast hjá tvfsköttun og að koma í veg fyrir undanskot frá skttlagningu á tekjur og eignir, var undirritaður f Reykja- vík 7. maf s.l. en samningurinn tekur gildi frá og með 1. janúar 1 976. NÝJAR BÆKUR - GÓÐÁR BÆKUR Sanngjarnt verð Sven Hazel: Tortimið Paris — Denis Robins: Hótel Mávaklettur Þessir höfundar eru íslenskum lesendum kunnir og þarf ekki um að bæta. Bækur Sven Hazel hafa verið þýddar á 52 tungumál og hann er talinn fremsti núlifandi stríðssagnahöfundur. Þessi bók fjallar um tilraun Þjóðverja til að eyða París og er talin ein hans besta bók. Allar fyrri bækur Hazels hafa selst upp. Denise Robins er að likindum afkastamesti og viðlesnasti ástarsagnahöfundur sem nú er uppi. Bækur hennar eiga hér vaxandi vinsældum að fagna og þessi nýja bók hennar er einsog hinar fyrri heillandi lestur. Guðmundur Jakobsson: Metsöluhöfundar Mennirnir í brúnni V í fyrri bindum þessa bókaflokks, höfum við kynnst starfi fiskimanna. Nú kveður við annan tón. Hér eru það siglingamenn sem segja frá. Við kynnumst strandsiglingum, landhelgis- gæslu og millilandasiglingum. Yfirgripsmikinn fróðleik er að finna um alla þessa þætti sjó- mennsku og fjölmargt ber á góma, sem al- menningi er ekki kunnugt. Það er ekki ofmælt að allir þeir sem vilja kynna sér viðfangsefni siglingamanna og landhelgis- gæslu þurfa að eignast og lesa þess bók. Verð kr. 2400,- án sölusk. Þorsteinn Matthíasson: í dagsins önn 1 1 konur segja sögu sína i þessari bók. Þær hafa allar verið mæður og eiginkonur. Hafa samtals eignast 96 börn og eru sælar af sínu hlutverki. Telja það ekki vanmetið enda hið göfugasta hverrar konu. Þeim er það og sameiginlegt að vilja ekki skipta kjörum við þær kynsystur sínar, sem nú berjast fyrir gerbreyttum lífsháttum. Dýrmætasta eign hverrar þjóðar eru góðar eiginkonur og mæður og þessi bók ætti að vera kærkomin öllum þeim, sem enn trúa því að „Mamma skipi ávalt öndvegið." Verð 2000 - án sölusk. Skyggnst yfir landamærin Þessi bók á ekki samleið með öðrum slíkum um dulræn efni. Hér segir frá fólki, sem raunverulega hefur dáið, en verið vakið til jarðlífs aftur. Það hefur því verið i óþekktum heimi um skeið og kynnst þar ýmsu sem okkur er hulið. Spurningunni miklu: Er líf að loknu þessu? er svarað. Enginn sem hefur áhuga á eilífðarmálum getur látið ógert að lesa þessa bók. Höf. Jean-baptiste Delacour Kristín R. Thorlacius þýddi. Verð 1 650 - án sölusk. ÆGISUTGAFAN Jólamarkaður FÉLAG einstæöra foreldra held- ur jólamarkað á Hallveigar- stöðum á morgun, laugardag, 6. des. og hefst hann kl. 2 e.h. Þar verður á boðstólum úrval handunninna muna, tuskudúkk- ur, galdranornir, sprellikallar, FEF á morgun kertastjakar, boltar auk hvers konar gjafavöru. Seldir verða treflar sem FEF prjónar í litum íþróttafélaganna og ýmiss konar bakkelsi sem vel geymist til jóla. Allur ágóði rennur í Húsbygg- ingar- og minningarsjóð FEF. Kópavogsbúar Það er ódýrt í jólabaksturinn hjá okkur Kókosmjöl fínt og gróft 125 gr 53 — Kókósmjöl fínt og gróft 250 gr 102 — Möndlur 100 gr 125 — Hakkaðar möndlur 50 gr. 90 — Hnetukjarnar 100 gr 95 — Marsipan 200 gr 345 — Essensar og perluger Athugið Opið til kl. 10 föstudag og til kl. 6 laugardag. / ÞVERBREKKU 8 S 42040-44140 \ Jólatrésseríur meö amerískum NOMA-perum (Bubble lights) HEKLAhf Laugavegi 170—172 — Sími 2>240

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.