Morgunblaðið - 05.12.1975, Page 14

Morgunblaðið - 05.12.1975, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975 Ljósm. HrcKKViður Guögcirsson. Slátrun hófst hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á Reyðarfirði 16. september f haust og lauk aðalslátrun 29. október. Slátrað var 19.585 kindum, meðalþungi dilka var 14,4 kg eða sem næst l'A kg hærri en haustið 1974. Að staðaldri unnu um 55 manns við sláturhúsið f haust. — Gréta Bókin semalfírbiða eftír • • Oldin okkar nýtt bindi Mú birtist þriðji hluti hins vinsæla ritverks ÖLDIN OKKAR og tekur yfir árin 1951—1960. Eru ,,Aldirnar“ þá orðnar átta talsins og gera skil sögu þjóðarinnar í samfleytt 360 ár í hinu lífræna formi nútíma fréttablaðs. Myndir í bók- unum eru á þriðja þúsund talsins og er í engu öðru ritverki að finna slíkan fjölda íslenzkra mynda. — „Aldírnar" eru þannig lifandi saga liðinna atburða í máli og myndum, sem geyma mikinn fróðleik og eru jafnframt svo skemmtilegar til lestrar, að naumast hafa komið út á íslenzku jafnvin- sælar bækur. Látið ekki undir höfuð leggjast að bæta þessu nýja bindi við þau, sem fyrir eru. Öldin er skemmtileg, fróðleg og frábær Tryggiðykkur eintak meðan tiler Iðunn Aðalfundur FEF: Gerðar ályktanir um skóladagheimili og tryggingamál Jóhanna Kristjónsdóttir endurkjörinn formaður Á aðalfundi Félags einstæðra for- eldra sem haldinn var á Hótel Esju fyrir nokkru voru m.a. gerðar sam- þykktir um skóladagheimilismál og tryggingamál. Verða þær birtar hér á eftir. Á fundinn komu sem gestir fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna, þingmennirnir Ólafur G. Einarsson, Vilborg Harðardóttir, Bragi Sigur- jónsson, Karvel Pálmason og Þór- arinn Sigurjónsson. Jóhanna Kristjónsdóttir form FEF flutti skýrslu stjórnar þar sem lýst var umfangsmiklu starfi á árinu, m a hvað snertir fjáröflun vegna húsbyggingar, umbætur í tryggingamálum og fjölda mörgum öðrum málum er snerta rétt- inda- og velferðarmál einstæðra for- eldra og barna þeirra í stjórn voru kjörin fyrir næsta starfsár, aðalstjórn: Þóra Stefánsdóttir, Steindór Hjartar- son, Ingiþjörg Jónasdóttir og Þórunn Friðriksdóttir í varastjórn Egill Frið- leifsson, Stella Jóhannsdóttir og Hulda Björnsdóttir Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður var endurkjörin formaður FEF. Eftirfarandi ályktun var gerð um skóladagheimilismál: Aðalfundur Félags einstæðra for- eldra, haldinn að Hótel Esju 17. nóv., samþykkir að beina eftirfarandi til borgarstjórnar Reykjavíkur: Mikil gremja ríkir með seinagang i skóladag- heimilismálum í austurbænum Ár er nú liðið síðan fulltrúar FEF bentu borgarstjórn á húsnæði, sem hentugt gat talist. Síð^o hefur annað þessara húsa verið í athugun og gert i það tilboð af hálfu borgarinnar fyrir skóla- dagheimili, án þess að neinn verulegur atbeini hafi verið hafður á að Ijúka þvi máli eða snúa sér annað. Fundurinn skorar á borgarstjórn að vinda að þvi bráðan bug að leysa málið svo að skóladagheimili i austurbænum geti tekið til starfa eigi siðar en um áramót. Fundurinn skorar á borgarstjórn að hefja nú þegar raunhæfa athugun á þvi að finna hús fyrir skóladagheimili sem gæti tekið til starfa i Breiðholti í upp- hafi næsta skólaárs.” Þá var samþykkt ályktun til Alþingis á þessa leið „Aðalfundur FEF haldinn 17. nóv. 1975 samþykkir að skora á Alþingi að veita eftirfarandi tillögum brautargengi án tafar 1. að meðlag/- barnalífeyrir hækki nú þegar i sam- ræmi við visitölu vöru og þjónustu í kr. 1 1 951.- 2. að leiðrétting verði gerð á mæðralaunum 3 að til komi tekju- trygging fyrir einstæð foreldri með þrjú börn og fleiri 4 að fyrirkomulagi með- lagsgreiðslna verði breytt þannig að meðlag verði greitt þegar frá fæðingu barns gegn vcttorði frá Sakadómi, inn- an sex mánaða að unnið sé að fað- ernismáli 5. að einstæðri móður verði greiddir sjúkradagpeningar sem fyrir- vinnu. 6. að skattaafsláttur verði gef- inn einstæðu foreldri sem stofnar heimili fyrir barn sitt. 7 að barn á aldrinum 16 til 17 ára fái greidda sjúkradagpeninga 8 að inn í könnun á framfærslukostnaði barna einstæðra foreldra verði kannaður sérstaklsga kostnaður vegna barna með sérþarfi.” Jólabazar Sjálfsbjargar á sunnudag, 7. desember Hinn árlegi jólabasar Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra f Reykja- vfk verður að þessu sinni I Lindarbæ, Lindargötu 9, á sunnu- dag, 7. desember n.k., og hefst kl. 14.00. Á meðfylgjandi mynd má sjá smábrot af því fjölbreytta vöruúrvali, sem á boðstölum verður á basarnum. Ágóða af bas- arnum verður varið til margvfs- legrar starfsemi Sjálfsbjargarfé- lagsins. Norskt ljóðskáld les úr verkum sínum 1 Norræna húsinu SUNNUDAGINN 7. desember n.k les norski Ijóðasnillingurinn Olav H. Hauge úr verkum sínum í Norræna húsinu. Þennan dag klukkan 1 6 verður einnig kynning á athyglisverðum norskum og dönskum bókum þessa árs, einkum á haustbókunum. Olav H. Hauge er garðyrkjubóndi að atvinnu og býr í Ullvik i Harðangri. Hann er fæddur árið 1 908 og er eitt sérsfæð- asta Ijóðskáld i nútima norskri Ijóðlist, og hefur áhrifa hans gætt mjög hjá yngri kynslóð skálda í Noregi. Hauge yrkir á nýnorsku og hefur hann gefið út margar Ijóðabækur. Þóroddur Guð- mundsson, skáld, hefur þýtt á íslenzku nokkur af Ijóðum hans Á bókakynningunni fjalla norski og danski sendikennarinn um nýjar bæk- ur, sem komið hafa út í heimalöndum þeirra á þessu ári Haustið 1975 koma út hjá norskum forlögum um 1750 bókatitlar Danski sendikennarinn mun einkum fjalla um bækur um umhverfi fólks og kvenréttindamál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.