Morgunblaðið - 05.12.1975, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 05.12.1975, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975 19 Pílagrímagöngur bannaðar í Chile Santiago, 4. desember — Reuter. RIKISSTJÓRN Chile bannaði f gærkvöldi allar pflagrfmsgöngur rómversk kaþólskra á degí hinnar helgu meyjar, þann 8. desember. Ástæðuna segir stjórnin vera að vinstri sinnaðir æsingamenn geti orðið til að notfæra sér slfkar göngur. Ákvörðun stjórnarinnar kom f kjölfar handtöku 12 presta og nunna, sem ákærð hafa verið fyrir að aðstoða og hjúkra vinstri sinnuðum skæruliðum, sem farið hafa huldu höfði, og „óska“ hins opinbera um að friðarnefnd ým- issa kirkjudeilda, sem hjálpað hefur pólitfskum föngum verði leyst upp. Talsmaður herforingja- stjórnarinnar, Rolando Garay höfuðsmaður, sagði að hátíðar- höld dagsins gætu aðeins farið fram innan kirkjudyra. Sagði höf- uðsmaðurinn að marx-leninistar væru vfsir til að notfæra sér pfla- grfmsgöngur, sem átti að fara frá miðborg Santiago og fieiri stöð- um að minnismerki hinnar helgu meyjar f Maipu, 20 km vestan við Santiago, og bera f þeim kröfu- spjöld og dreifa flugritum. Meir en 80% fbúa Chile eru kaþólskir. Souphanaouvong forseti Laos Vientiane, 4. desember. AP — Reuter Souphanaouvong prins, einn af leiðtogum Pathet Loahreyfingar- innar f Laos, var f dag skipaður forseti hins nýja alþýðulýðveldis f landinu. Þá var einn af dyggustu stuðningsmönnum prinsins, Annar banka- ræningjanna skotinn til bana París, 4. desember, AP. LÖGREGLAN í París skaut í dag til bana annan af bankaræningj- unum tveimur, sem rændu 2 milljónum dollara úr banka í mið- borg Parfsar í gær og komust á brott með tvær konur sem gísla. Hinn ræninginn særðist í skotár- ás. Ræningjarnir náðust, er bifreið þeirra lenti í árekstri við bifreið fransks þingmanns, sem var að koma frá þingfundi, þar sem hann hafði lagt til að refs- ingu til handa mönnum, sem tækju gísla í afbrotum, yrði dauðadómur í stað ævilangs fang- elsis. Maðurinn, sem féll, var frá N-Afríku, en hinn særði Spán- verji. Engan annan sakaði. Kaysone Phomyiharn, skipaður forsætisráðherra. Tilkynningin um þetta kemur í kjölfar ákvörðunarinnar í gær um að leggja niður hið 700 ára gamla konungdæmi í landinu. íbúar Laos eru 3 milljónir. Það kom nokkuð á óvart að hin nýja stjórn veitti nokkrum konungsinnum og hægrimönnum sæti í stjórninni. Fyrrum konungur landsins, Savang Vatthana hefur verið skipaður ráðgjafi forsetans, svo og Souvanna Phouma prins. 9 af 45 sætum f efri deild þingsins eru skipuð hægri mönnum. Fjórir varaforsætisráðherrar eiga sæti í stjórninni og eru þeir allir úr hópi Pathet Laomanna. Laos fékk sjálfstæði frá Frökkum árið 1953, en borgara- stríð geisaði á köflum í landinu næstu 20 ár, eða þar til friður var saminn árið 1973. Pathet Lao- menn náðu völdum í landinu í fyrra eftir mikla áróðursherferð gegn hægri mönnum. Undirritun samkomulagsins um Norræna fjárfestingarbankann. Danski ráðherrann Ivar Nörgard undirritaði samkomulagið fyrstur og réttir sænska ráðherranum Kjell Olov Feldt pennann. Lengst til vinstri situr dómsmálaráðherra Finnlands, Kristian Gestrin. Lengst til hægri situr Sigurður Bjarna- son og við hlið hans menntamálaráðherra Noregs Bjartmar Gjerde. Norræna fj árfesting arbankanum valinn staður í Helsingfors FUNDUR samstarfsráðherra Norðurlandaráðs 'var haldinn f Kaupmannahöfn f gær og fyrra- dag og var þar samþykkt ein- róma, að höfuðstöðvar Norræna fjárfestingarbankans skyldu verða f Helsingfors. Af hálfu íslands sat fundinn Sigurður Bjarnason sendiherra í Kaupmannahöfn f forföllum Geirs Hallgrímssor.ar forsætis- ráðherra, sem ekki átti heiman- gengt sökum anna. I stuttu sam- tali við Morgunblaðið sagði Sig- urður Bjarnason, að ákvörðun- in um fjárfestingarbankann hefði verið stærsta málið á dag- skrá fundarins og tillaga um staðsetningu hans lögð fram af sænska ráðherranum Kjeld Olof-Feldt og hún síðan ein- róma samþykkt. Áður hafði aukaþing Norðurlandaráðs formlega samþykkt stofnun bankans í Stokkhólmi í sl. mánuði. Einnig hefur verið ákveðið að starfsemi bankans hefjist um áramótin 1976—77. Bankaráð verður skipað 10 mönnum, tveimur frá hverju Norðurlandanna sem kosnir verða til 4 ára og ræður stjórn- in bankastjóra til 5 ára i senn. Má hann ekki vera úr hópi stjórnarmanna né eiga sæti i 10 manna varastjórn. Fundinn sátu auk Sigurðar og Kjelds Olofs-Felds, Ivar Nörgaard, utanríkisviðskiptaráðherra Danmerkur, Kristian Gestrin, dómsmálaráðherra Finnlands, og Bjartmar Gerd, mennta- og kirkjumálaráðherra Noregs. A fundi með fréttamönnum eftir ráðherrafundinn lagði Sig- urður Bjarnason á það áherzlu af hálfu íslenzku rikisstjórnar- innar að hún teldi stofnun Norræna fjárfestingarbankans eitthvert mikilvægasta mál, sem Norðurlandaráð hefði af- greitt og að íslenzka ríkisstjórn- in teldi að starfsemi hans ætti eftir að verða öllum þjóðunum heilladrjúg. Gunnars Gunn- arssonar minnzt í Jyllands Posten MORGUNBLAÐINU hefur horizt úrklippa úr danska blað- inu Jyllands Posten, frá 28. nóvember s.l. þar sem Þor- steinn Stefánsson rithöfundur, sem búsettur er f Danmörku, minnist Gunnars Gunnarsson- ar rithöfundar f alllangri grein. I grein sinni leiðréttir Þorsteinn ennfremur „óviður- kvæmileg umrnæli" I frétta- tfma danska rfkisútvarpsins um Gunnar Gunnarsson og rit- höfundarferil hans. 1 grein sinni segir Þorsteinn m.a.: „Arum saman hafa menn hér f landi meðvitað eða ómeðvitað verið þöglir um starf þessa rit- höfundar rithöfundar sem hefur fært Danmörku meiri verðmæti en nokkur núlifandi danskur rithöfundur." Ástand þorskstofns ekki eins alvarlegt og Islendingar segja — segir sjávarútvegsráðherra Breta London 4. desember.— frá fréttaritara Morsun- blaðsins i London. Tom Arms. BREZKI sjávarútvegsráðherr- ann, Fred Peart, sagði á fimmtu- dag að full ástæða væri til að vernda fslenzka þorskinn. En hann sagði í útvarpsviðtali f London að ástand stofnsins væri ekki svo alvarlegt að grfpa þyrfti til jafn vfðtækra aðgerða og fslenzka ríkisst jórnin hefur gert. Peart sagði að of mikið hefði verið veitt af ungþorski sfðustu ár „og með tílliti til þess er hyggi- legt að snúa þróuninni við“. „En við erum ekki samþykkir þvf að svo vfðtækar aðgerðir eins og Islendingar vilja grfpa til séu nauðsynlegar. tslendingar hafa gert mikið úr þeirri staðreynd að stofn hrygningarþorsks sé nú 60% minni en hann var árið 1970, og ef litið er á þetta eitt sér virðist útlit svart. En árið 1970 var hlutfall hrygnandi þorsks mjög hátt en þrem árum áður, þ.e. 1967 var það næstum sama og það er nú. Staðreyndin er sú að þrátt fyrir slfkar sveiflur f hlutfalli hrygnandi þorsks, þá hafa verið furðu litlar sveiflur f fslenzkum þorskveiðum. Ef við tökum tfma- bilið frá 1960 til 1974, er meðal- Fiskimálastjóri Noregs: Mistök að leyfa olíuborun fyrir norðan 62. breiddargr. KNUT Vartland fiski- málaráðherra Noregs hefur miklar áhyggj- ur af þeim forgangi, sem olfuvinnslumál f Noregi hafa fram yfir fiskiðnaðinn og f sam- tali við Dagbladet sl. mánudag segir hann bað skoðun sfna, að það séu reginmistök hjá stjórnvöldum að leyfa olfuboranir á fiskimiðunum utan við Tromsö og yfirleitt fyrir norðan 62. breiddargráðu án þess að nægilega vfðtækar rannsóknir hafi farið fram. Segir fiskimála- stjórinn að vitneskju skorti algerlega um hvaða hættu slíkar boranir gætu haft f för með sér fyrir lffið í sjónum og fiskinn. Segist Vartland vera sammála norsku sjómannasamtökun- um um að nauðsynlegt sé að bíða eftir niður- stöðum rannsókna norsku hafrannsókna- stofnunarinnar, sem nú fara fram á svæðinu. ársafli á þorski 400.000 lestir og mestu sveiflur upp eða niður hafa ekki verið meir en 17.000 lestir.“ Peart sagðist geta fallist á að verndunaraðgerða væri þörf við tsland og hann hefði skýrt fslenzku rfkisstjórninni frá þvf, hins vegar taldi hann sig ekki geta fallist á að ástandið væri svo alvarlegt að þörf væri fvrir jafn vfðtækar aðgerðir og tslendingar hefðu gripið til. Peart endurtók boð breta um að þeir minnkuðu afla sinn við ts- land niður f 110.000 lestir á ári, og hann bætti þvf við að þeir Arias Navarro setur skilyrði Madrid 4, desember Reuter ÁREIÐANLEGAR heimildir skýrðu frá þvf í dag að Carlos Arias Navarro forsætisráðherra Spánar, setti það sem skilyrði fyr- ir þvf að hann yrði áfram forsæt- isráðherra að hann fengi frjálsar hendur við skipun nýrrar rfkis- stjórnar. Segja heimildirnar að Navarro hafi fallist á beiðni Juan Carlos konungs um að hann héldi áfram um sinn án þess að skuldbinda sig til að sitja út fimm ára tímabil sitt, sem rennur út 1978. Það sem meðal annars réð því að konungur bað Navarro að halda áfram var vandamál við að finna mann í hans stað, sem heppilegur gæti talist við að leiða Spán inn í nýtt tímabil. Heimildirnar herma að ákveðið Framhald á bls. 22 væru reiðubúnir að minnka þá tölu enn, ef aðeins Islendingar væru fáanlegir til að hækka boð sitt úr 65.000 lestum. Hann bætti við: „Við erum reiðubúnir til að hefja á ný viðræður strax og Is- lendingar láta af áreitni við togaraokkar." Meira en 2,5 milljarða hagnaður SAS í fyrra STJÓRN SAS hefur skýrt frá því að hagnaður félagsins hafi numið 70 milljón s. kr. (um 2696 milljón fsl. kr.) á sfðasta reikningsári sem iauk 30. september s.l. Af þessari fjár- hæð skiluðu dótturfvrirtækin 7,8 milljón s. kr. hagnaði. Eins og kunnugt er hefur SAS verið rekið með nettóhagnaði árum saman. Flugreksturinn hjá SAS stendur að þessu sinni undir 33,7 milljón s. kr. hagnaði. Aðrir þættir starfseminnar þ.á m. sala flug- véla, gáfu 36,3 milljónir f aðra hönd. SAS flutti 6,636.000 far þega s.l. ár og er það 5% aukning miðað við árið áður. Fraktflutningarnir drógust aftur á móti saman um 2%, en póstflutningar jukust um 5%, þannig að heildaraukning á flutningum hjá SAS nam 2%, að því er fram kemur í frétta- tilkvnningu frá félaginu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.