Morgunblaðið - 05.12.1975, Síða 37
MORGÚNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1975
37
VELVAKANDI
Velvakandi svarar i sima 10-100
kl, 14-—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
0 Um skrift
Marinó L. Stefánsson, kennari,
skrifar:
„Heiðraði Velvakandi.
Þann 14. nóv s.l. skrifar þú
sjálfur í dálka þína um slæma
skrift og frágang bréfa, sem þér
berast, og segir, að stundum séu
bréfin ólæsileg og fari beint í
pappirskörfuna. Þú segir að rit-
hönd fólks og almennri snyrti-
mennsku virðist hraka eftir þvi
sem fleiri setjist á skólabekk.
Þetta er þörf athugasemd og
gefur tilefni til alvarlegra um-
ræðna. Mig iangar til að leggja
orð í belg.
% Hvernig er
ástandið?
Áður fyrr, meðan skólar voru
fáir eða engir á landi hér, voru
margir óskrifandi, sem telja má
eðlilegt. En þó var nokkuð um
góða skrifara, sem höfðu lært af
öðrum eða æft sig eftir forskrift
(t.d. Benedikts Gröndals, sem var
listaskrifari). 1 þá daga, þegar
ekki voru ritvélar eða tölvur,
þurftu opinberar stofnanir og
verzlanir að hafa góða skrifara.
Þessir menn fengu mikla æfingu,
enda eru margar gamlar verzlun-
arbækur o.fl. frá þeim tima lista-
vel skrifaðar.
Siðan farið var að nota ritvélar,
þarf ekki eins á handskrift að
halda og áður var. Segja jafnvel
sumir, að ekki þurfi að kenna
skrift. Þó hefur það verið gert í
seinni tið, oftast 2—3 stundir á
viku í barnaskólum og 1 stund á
viku í fyrsta bekk i gagnfræða-
skólum, — einnig Kvennaskóla,
Verzlunarskóla og Iðnskóla. Enda
hefur skrift fram undir þetta ver-
ið talin ein undirstöðunámsgrein-
in ásamt lestri, stafsetningu og
reikningi. Vélritun getur aldrei
leyst skrift af hólmi að öllu leyti.
Mér er allvel kunnugt um
ástand þessara mála hér undan-
farna áratugi, bæði vegna þess, að
ég hef fengizt mikið við skriftar-
kennslu og auk þess verið próf-
dómari í skrift við barnapróf hér i
Reykjavík í meira en 20 ár. Skrift
barnanna var mjög misjöfn (veld-
ur hver á heldur) en virtist þó á
timabili fara batnandi yfirleitt.
Nú virðist ástandið heldur fara
versnandi aftur. Ég hef það eftir
ýmsum skólamönnum (enda
reynt það sjálfur), að stundum sé
erfitt að lesa skrift sumra nem-
enda, bæði barna og unglinga.
Hjá fullorðnum er einnig viða
pottur brotinn.
vitna f eitthvað, en ég get bara
ekki skilið hvað það sé...
Nú datt mér allt f einu í hug
dálítið sem virtlst passa inn i
myndina og ég sagði áf jðð:
— Þegar við voruni að þvo upp
sönglaði Lotta stöðugt:
„Hittu mig f kirkjugarðinum
klukkan átta.“ Hafði Barbara þá
cinnig f huga að lokka hana út?
En hvers vegna klukkan átta.
fyrst hinir áttu ekki að koma fyrr
en klukkan nfu.
— Ég hef nú smám saman
komizt að þvf, tautaði Christcr, og
það er að tímaskyn fröken Lottu
er ekki upp á það bezta. Þegar
klukkan hennar er átta eru
klukkurnar okkar sennilega orðn-
ar níu. Þvf er Ifklegt að hún hafi
ekki lagt af stað fyrr en Puck sá
til hennar rétt fvrir nfu.
Örstutt þögn — einkennilega
mögnuð, þar sem mörg ósögð orð
þrúguðu kyrrðina.
Sfðan sagði Einar:
— Það lítur sem sagt út fyrir að
Barbara hafi komið þessum boð-
um til allra viðstaddra að undan-
skildum Johannes, Puck og
Christer.
Aftur rifjaðist upp fyrir inér
atriði og ég sagði:
aíeUAhnfcí
Uklaj
% Hverjar eru
orsakirnar?
1. Kæruleysi. Góð rithönd og
góður frágangur eru ekki talin
nauðsyn, nóg sé ef hægt er að
komast að efninu. En það er til-
litsleysi við þann, sem þarf að
lesa, það tefur fyrir, getur valdið
misskilningi og vilium og spillir
fegurðarsmekk. Það ætti að vera
metnaðarmál að skrifa a.m.k.
nafn sitt læsilega, en oft er nafnið
verst, og það meira að segja undir
áriðandi skjölum, svo að einnig
þarf að vélrita nafnið.
2. Ilraðinn. Skriffinnska er
mikil, og oft reynist enginn timi
til að vanda verkið t.d. í skólun-
um; ritvélum verður þar litt kom-
ið við. Hroðvirknin verður svo að
vana.
3. Nýjar námsgreinar. Yfir-
stjórn fræðslumála hefur nú ýtt
skriftarkennslu að mestu út úr
stundaskrám eldri barna og ung-
linga, vegna nýrra námsgreina,
sem talið var nauðsynlegt að
koma að. Danska var færð neðar í
aldursfiokka, eðlisfræði og ensku
bætt við í 11 og 12 ára bekkjum.
Móðurmál (þ.e. lestur, stafsetn-
ing, málfræði og ritgerðir) hefur
nú færri tima vikulega en áður
var í 5. og 6. bekkjum. Mér er
tjáð, að ekki sé gert ráð fyrir
beinni skriftarkennslu í þessum
bekkjum, en talið, að það hve
mikið sé skrifað, muni veita nægi-
lega þjálfun, enda geti kennarar
haft sérstaka tíma með skriftar-
kennslu, ef þurfa þyki. Þetta er
að minu mati ekki raunhæft. Þeg-
ar tími er svo naumur til móður-
málskennslunnar, að varla er
hægt aó komast yfir hið allra
nauðsynlegasta, verður skriftin
útundan hjá flestum kennurum,
og er það eðlilegt. Það þarf að
kenna skrift (stafagerð, sam-
ræmi, tilburði). Og þarna duga
engin vettlingatök. Þótt verið sé
að nudda i nemendum að vanda
sig, situr allt við sama.
% tJrbætur
í fyrstu fjórum bekkjum barná-
skóla verður að leggja sérstaka
alúð við skriftarkennsluna, svo að
börnin verði komin allvel á veg að
þeim loknum. I 5. og 6. bekk ætti
svo að fyrirskipa kennslu I skrift,
a.m.k. eina stund á viku. Á meðan
lögskipaðir prófdómarar voru i
skrift við barnapróf, var þar
nokkurt aðhald fyrir kennara og
nemendur. Nú, þegar þvi er hætt,
ættu að koma eftirlitskennarar i
skrift í Reykjavik og stærstu bæj-
unum, en námsstjórar sjái um það
annars staðar.
Verði allt látið reka á reiðanum,
hrakar skriftinni enn. Hvað stoð-
ar að láta nemendur skrifa rit-
gerðir, danska og enska stila,
vinnubækur, stafsetningu o.fl., ef
helmingurinn af þvi er ólæsilegt
krass?
Fögur skrift er æskileg, en aðal-
atriðið er læsileg rithönd.
Marinó L. Stefánsson,
kennari.“
Mikill fengur er að bréfi
Marinós, og væri æskilegt ef fleiri
sem bera skynbragð á þetta mál,
létu til sin heyra. Á Velvakandi
þar sérstaklega við kennara, sem
haft hafa með höndum skriftar-
kennslu, en einnig foreldra
barna, börnin sjálf og annað
áhugafólk. Velvakandi hitti að
máli háskólakennara nokkurn ný-
lega. Kvartaði hann sáran undan
þvi hve erfitt væri að ráða i próf-
verkefni nemenda við þá háu og
merku menntastofnun. Þetta sýn-
ir, að hér er ekki um neitt ,,pjatt“
að ræða, heldur alvörumál.
HÖGNI HREKKVÍSI
Má ég biðja um þessa með kisuandlitinu?
Ha? Hvað; kisuandliti??
J""
Q2P SlGeA V/öGA £
Biauðbær
Veitingahús
við Óðinstag - stmi 20490
Ég er Tobbi,
kokkur í Brauðbæ
Auk vinsæla matseðilsins okkar, þá bjóf
um við ávalt rétt dagsins og I dag er það:
Sveppasúpa
Létt saltað uxabrjóst með stúfuðu hvítkáli eð
djúpsteikt fiskflök alhambra
Vertu velkominn I BrauSbæ. Tobbi.
opiðtn ki.io
BRÚÐULAMPINH
ER EFST Á ÓSKALISTA
26 TEGUNDIR
VERD FRÁ KR. 1610
SENDUM í PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT.
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
Suöuiiandsbraut 12
simi 84488
/. - ■7Í5Í !.*•** ;•
Rowenfc
Djúpsteikingar-
pottur.
Krómaðir eða
matt ál.
£6 VféV NÚ
al9 %i wmr
AWNA9 tmí
AmiTAV
E9 HANN
VvEftdAbS
IN WAmiR
m
|vif/.v(r/N|