Morgunblaðið - 07.12.1975, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1975
46
Jólakaffi Kvenfélagsins „Hringsins",
verður að Hótel Borg kl. 3 sunnudaginn 7. desember 1 975.
SKYNDIHAPPDRÆTTI
JÓLASKREYTINGAR---IÓLAKORT — PLATTAR
Allur ágóðinn rennur til Barnaspítala „Hringsins".
Giöfin sem ekki gkymist
Löngu eftir viðtöku gjafarinnar, þá mun yðar minnst af ánægðum eiganda.
Frábær að gerð og lögun, PARKER er sá penni, sem verður notaður og
glaðst yfir um árabil og er hugljúf minning um úrvals gjöf um leið og hann er notaður.
PARKER pennar eru lofaðir af fagmönnum fyrir hið stílhreina útlit,
þekktir heimshornanna á milli fyrir bestu skrifhæfni.
Veljið PARKER penna til gjafa (eða eignar). PARKER penni er lífstíðareign.
PARKER pennar kosta frá kr. 490.- til kr. 12,945.-
PARKER eftirsóttasti permi heims.
0
borg sem kennara og hljóðfæra-
stillingarmanns að Laufásvegi 18.
Helga er fædd að Hörgsdal á Síðu
þann 26. nóv. 1905, hún ólst upp í
föðurgarði til fullorðinsára.
Fyrsta árið í Hörgsdal, næstu 5
árin á Prestbakkakoti og siðan 9
ár að Hunkubökkum, alltaf í
sömu sveit.
Árið 1920 fluttist fjölskyldan til
Reykjavíkur og var þá Helga 15
ára. 1923 hóf hún nám í Kennara-
skólanum og lauk þaðan prófi
1926. Næstu árin var hún við
kennslu og ýmis önnur störf eða
þar til árið 1933. Þá giftist hún
Öla P. Möller frá Þórshöfn, en
hann var þá við kennaranám í
Reykjavík. Það sama ár fluttust
þau til Þórshafnar og settust þar
að og tóku til við að fræða unga
sem aldna í því byggðarlagi og
gegndu því vandasama starfi
næstu 26 árin. Óli P. Möller
maður Helgu var skólastjóri við
barnaskólann á Þórshöfn, og
þrátt fyrir húsfreyjustörf á stóru
heimili og uppeldi 4 barna sinna,
helgaði hún kennslunni allar sín-
ar aukastundir og kenndi bæði
almenna kennslu og söngkennslu
við skólann. Helga var einnig
lengi organisti við Sauðanes-
kirkju og oft lék hún á orgel við
ýmis tækifæri í Þórshöfn og ná-
grenni.
Heimili Helgu og Óla var mið-
stöð allra þeirra er vildu fræðast
enda bæði hjónin þátttakendur i
flest þvf sem laut að fræðslu og
framförum byggðarlagsins.
Einnig stunduðu þau búskap og
útgerð um langan tíma.
Árið 1956 fluttust þau hjónin
frá Þórshöfn til Reykjavíkur og
keyptu sér íbúð í Karfavogi 19,
A fmœliskveðja:
Helga Elíasdóttir
kennari
Helga Eliasdóttir kennari, nú
til heimilis að Laufásvegi 18, varð
rm Amn Oíí nÁimmKnr
Þó að árin séu orðin
mörg, er varla hægt að trúa því að
svo sé, sem betur fer, því Helga
hefur haft við það lán að búa, að
hafa góða heilsu og létt skap sem
létt hefur henni lífið á armæðu-
stundum.
Helga er Skaftfellingur að ætt
og uppruna, enda minnist hún oft
æskuáranna með gleði og dáir
heimabyggð sína. Foreldrar
Helgu voru sæmdarhjónin Pálína
Elíasdóttir og Eiías Bjarnason
kennari og bóndi, sem flestir
Reykvíkingar kannast vel við,
vegna langvarandi dvalar hér i
Framhald á bls. 50