Morgunblaðið - 07.12.1975, Blaðsíða 8
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1975
Stuttsfðan er f umsjón Ásmundar Jóns-
sonar og Baldurs J. Baldurssonar.
Þokkabót
Fyrirhugaðir eru miðnæturtón-
leikar í Háskólabfói miðvikudag-
inn 10. desember. Áætlað er að
tónleikarnir standa í um tvær
klukkustundir og verða þeir
haldnir á vegum Steina hf. Fram
munu koma: Spilverk þjóðanna,
skipað þeim Agli Ólafssyni, Sig-
rúnu Hjálmtýsdóttur, Sigurði
Bjólu og Valgeiri Guðjónssyni;
hljómsveitin Þokkabót, skipuð
þeim Leifi Haukssyni, Ingólfi
Steinssyni, Eggert Þorleifssyni,
Magnúsi Einarssyni og Halldóri
Gunnarssyni; og Einar Vilberg
með aðstoðarmönnum, sem eru:
Pálmi Gunnarsson (Hljómsv. P.G.
og Blues Company) á bassa,
Lárus Grfmsson (Eik) á píanó,
Þórður Arnason (Mexikó) á gftar
Hannes Jón á gítar og Ásgeir
Óskarsson (Pelíkan) á trommur
og slagverk.
Spilverk þjóðanna mun hafa
ýmislegt nýtt fram að færa, en
einnig munu þeir leika nokkur
lög af nýútkominni plötu þeirra.
Með Þokkabót mun leika nýr
meðlimur og heitir hann Leifur
Hauksson og leikur á gítar. Kem-
ur hann f stað Gylfa Gunnars-
sonar. Þokkabót ætlar að leika lög
af tveim LP plötum sínum og
einnig lög er ekki hafa heyrst
með þeim áður.
Lítið hefur heyrst í Einari Vil-
berg um langt skeið, en nú verður
breyting á því. Einar hefur
undanfarnar vikur verið við upp-
tökur á eigin tónlist hjá Hljóðrit-
un hf. í Hafnarfirði. Tekin hafa
verið upp þrettán lög fyrir
væntanlega LP plötu og að sögn
munu þau flokkast undir
„melódiskt rokk“. Nokkur fjöldi
Gísli R. Jónsson og Laddi
Hálfbræður
Helga MöIIer
Paradfs
Emar Vuberg, lengst til hægri og
Hljómplötugagnrýni
Júdas: Júdas No. I
Jud. 001
JTJDAS NO. I hafa þeir í Júdas
nefnt nýútkomna plötu sfna, sem
bendir til þess að þeir standi
fastar á því en fótunum að láta
hér ekki staðar numið.
Hljóðritun plötunnar Júdas No:
I átti sér stað i hljóðstúdíói Hljóð-
rit h.f. í Hafnafirði, á milli 6. júlí
■ og 18. október sfðastliðinn.
Greinilegt er að þessi hljóðritun
er sú viðamesta, sem hingað til
hefur verið framkvæmd þar.
Þarna var samankominn mikill
fjöldi tónlistarmanna úr öllum
áttum. En á plötunni koma fram
fimm blásarar, níu strengjahljóð-
færaleikarar, um fimmtán söngv-
arar auk hljómsveitarinnar
Júdas, sem þarna var og er nú
skipuð eftirfarandi mönnum:
Magnús Kjartansson: píanó,
clarinett, rhodes, ARP, söngur,
Vignir Bergmann: hljómgítar,
rafmagnsgítar, söngur. Finnbogi
Kjartansson: fender og ricken-
baker bassi, slagverk og söngur.
Hrólfur Gunnarsson: trommur,
slagverk. Tónlist sú, sem Júdas
flytur á þessari plötu er mjög í
anda þeirrar tónlistarstefnu, sem
hljómsveitin hefur verið að móta í
nokkuð langan tíma. Tónlistin er
sem sagt í flestum tilfellum f anda
hinnar svokölluðu „disko-
tónlistar", sem t.d. hefur verið
mjög áberandi í diskótekum
flestra dansstaða hér f Reykjavfk.
Þeir hlutir, sem Júdas eru að gera
á þessari plötu, verða þó að teljast
á nokkru hærra plani tónlistar en
þar heyrist. Á þetta einkum við
um þann fjölbreytileika, sem
platan býr yfir. Gefur þar m.a. að
heyra róleg og falleg lög, eins og
It’s Raining Again, innan um
mikla rokktónlist (First class
Rock and Roll og „disko-tónlist“
(New York Overture). Leiðir
þetta oft á tíðum út í nokkurs
konar jassrokk undir áhrifum frá
Hancock. Áhrif frá vinnubrögð-
um Herbie Hancock virðast
annars einnig vera ríkuleg í
strengjaútsetningum þeirra
Magnúsar Kjartanssonar og
Magnúsar Ingimarssonar og svo
hljómborðsleik Magnúsar
Kjartanssonar. Líkt og vænta
mátti eru flest lög plötunnar eftir
Magnús Kjartansson. Flest eru
þau tónverk mjög f anda þess er
Magnús hefur áður gert. Lagið
Poseidon hefur all nokkra sér-
stöðu á plötunni. Þetta er nokkurs
konar ,jam“ með Júdasi og Karli
Einnig finnst mér vælandi tónn i
söng Magnúsar ekki nógu
skemmtilegur.
Platan er annars að mörgu leyti
mjög kraftmikil, fjörug og að því
er ég bezt veit eina rokk eða rokk-
soulplata jólamarkaðsins.
A.J.
Spilverk þjóðanna
Steinar h.f.
Sighvatssyni og er það að mínum
dómi einn skemmtilegasti kafli
plötunnar.
Hljóðfæraleikur hljómsveitar-
innar verður að teljast mjög
öruggur og vel samæfður, eins og
hve greinilegast kemur fram í
samspili hjá bassa og trommum.
Vignir Bergmann sýnir einnig
mjög góð tilþrif í gítarleik og
Magnús stendur fyrir sínu. Við
innkomu kórsöngs, strengjanna
og blástursins verður á þessu
nokkur breyting sem er talandi
Egg 014
dæmi um nauðsyn stærra stúdfós
Spilverk þjóðanna skipað þeim
Agli Ölafssyni, Sigurði bjólu, Val-
geiri Guðjónssyni og Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur hefur nú á vissan
hátt tekist að koma sér upp
ákveðnu menningarlegu tákni.
Tákni, sem ýmsir tónlistahugs-
uðir (framhaldsskólanna) leita
til. Frumverk þessa spilverks er
nokkurs konar tímamótaverk f ís-
lenskum tónlistarheimi. Meistara-
verk f vissum skilningi innan
vissra marka. Tónlist þessa spil-
verks byggir greinilega á bak-
Miðnætnrtónleikai
í Háskólabíói
Kabarett Paradís
LAUGARDAGINN 22. nóvember hélt hljómsveit-
in Paradfs tónleika með skemmtiatriðum þ.e.
kabarett við dræma aðsókn (um 200 manns) í
Austurbæiarbíói. Um þessa tónleika er ekki mik-
ið að segja því fátt nýtt eða frumlegt kom þar
fram. Kabarettinn stóð í tæplega tvo og hálfan
tíma og þar af lék Paradís f tæpan hálftíma. —
Miðaverð var 1000 krónur.
Hljómsveitin lék fimm lög, þar af eitt frumsam-
ið. Hljóðfæraleikur var þokkalega af hendi leyst-
ur, en enginn virtist þó öðrum fremri af meðlim-
um hljómsveitarinnar.
Annað er boðið var upp á var söngkonan Helga
Möller er flutti fjögur Iög við eigin undirleik á
gítar. Þrjú laganna voru frumsamin og eitt eftir
Janis Ian. Lögin voru öll í stíl söngkvennanna
Joni Michel og Janis Ian og mjög áheyrileg.
Gaman verður að sjá hvort eitthvað meira á eftir
að koma frá Helgu opinberlega.
Fjórmenningarnir Hálfbræður hermdu eftir
sviðsframkomu ýmissa skemmtikrafta með lát-
bragði og voru viðeigandi lög leikin af segulbandi
um leið. Eftir alllangan þátt þeirra og losaralegan
komu Halli og Laddi og léku þátt með sams konar
efni, þó mun betur æfðan.
Galdramaðurinn Baldur Brjánsson sýndi einnig
nokkur hefðbundin galdrabrögðf
Kynnir var „Kaffibrúsakarlinn" Gfsli Rúnar
Jónsson og leysti hann hlutverk sitt vel af hendi.
Milli þátta voru leikin lög af diskótekinu As-
láki.
Það sem einkenndi þennan kabarett var alveg
ærandi hljóðstyrkur úr tækjum flestra er fram
komu og var það mjög truflandi.
Bald.J.B.