Morgunblaðið - 07.12.1975, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1975
61
VELMAKAIMDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
% Árlegt blóðbað
Rósa B. Blöndals skrifar:
„Nú er bágt til bjargar
blessuð rjúpan hvíta.
J.H.
Þessi orð skáldsins má á hverju
hausti sanna þegar veiðimenn
hefja árlegt rjúpna-blóðbað.
Þótti falleg blaðafrétt i haust,
er einn skotmaður hafði skotið 40
rjúpur á einum degi?
Mjög greindur bóndi sagði við ,
mig í sumar: „Eg álít, að rjúpna- 1
drápið sé Islendingum til stór-
skammar."
Theódór Gunnlaugsson lýsti því
í fyrra, rétt fyrir jól, hvernig skot-
hríðin gengur inni i óbyggðum
landsins. Þangað komast menn nú
hindrunarlaust á jeppum. Áður
urðu menn að fara fótgangandi á
þær veiðar langa vegu. Má þar sjá
eitt atriði er eykur eyðingarhættu
stofnsins. Enda benti Theódór
Gunnlaugsson rækilega á það, að
rjúpnastofninn sem nú er, gæti
alls ekki náð þvi hámarki við
næstu endurnýjun rjúpunnar
sem stofninn náði 1927 eða 1930.
Veiðitækni og möuleikum hefur
fleygt fram á þessu sviði eins og
öðrum.
Ég hef oft heyrt fólk halda því
fram, að engin hætta sé á þvi að
rjúpnastofninn verði gjöreyddur.
Rjúpan fellur hvort sem er, segja
menn, og hún endurnýjar sig
alltaf aftur.
Ég hygg, að rjúpnafallið sé
gamla kynsljóðin og endurnýjun-
in gangi fljótt, það er að segja
endurnýjunin fyrir það sem deyr
samkvæmt náttúrulögmálinu. En
áreiðanlega endurnýjar rjúpna-
stofninn sig ekki eftir þvi hvað
skotmenn hafa skotið margar
rjúpur á hverju hausti.
Endurnýjun rjúpunnar kemur
þess vegna rjúpna-blóðbaðinu
ekkert við.
Bóndi úr Húnavatnssýslu tók i
útvarpserindi i sumar eða vor
undir með Theódóri, að rjúpna-
stofninn væri i alvarlegri gjör-
eyðingarhættu.
Rjúpnaskyttur! Munið orð séra
Sigurðar Norlands um fugla-
veiðar: „Mér finnst dauðinn svo
alvarlegur, að menn ættu ekki að
leika sér að honum,“ — Rjúpna-
veiðar eru ekki stundaðar af
nauðsyn. Þær eru leikur með
dauðann.
Rjúpnaskyttur sem kunna sitt
verk, skjóta eingöngu ungana frá
vorinu. Hér í liggur eyðingar-
hættan, eins og með selina og
lundann.
En óskyggnir menn á fjöllum,
sem margir eru, — þeir skjóta
jafnt á skepnur og menn.
Skothrið var svo mikil í fyrra-
haust I nágrenni Laugarvatns að
menn, sem voru á skemmtigöngu
Ilún sagði að þá væri óhjákvæmi-
legt að lögreglan myndi komast í
málið og maður skyldi forðast að
hafa önnur samskipti við lögreglu
en lífsnauðsyn væri á. Þegar ég sá
hvað þjónaðurinn vakti gffur-
lega athygli fór ég að finna til
þakklætis í hennar garð þvl að nú
var þetta allt í cinu ekkert fvndið i
né skemmtilegt lengur og þetta
var 1 sjálfu sér ekki síðri glæpur
en morðið sjálft. Og Barböru
fannst vfst með réttu að nógu
mikið af athygli og umtali
bcindist að Sandellsfjölskyldunni
til að þetta kæmi nú ekki Ifka til.
— Og ferðataskan? spurði
Christer.
Mártcn brosti til hans, svo að
skein í hvftar tennurnar.
— Hún tók hana með sér
hingað þcgar hún flúði hingað á
aðfangadagskvöld. Það var vfst
Einar Bure sem helt á töskunni
fyrir hana.
Tord Ekstedt starði vantrúar-
fullur á hann.
— Ætlarðu að segja mér að
helgigripirnir hafi verið HÉR —
hér á prestssetrinu meðan lög-
reglan leitaði þeirra dvrum og
dyngjum ... Eg verð nú að
segja...
sneru aftur þegar skotin gengu
eins og örvadrifa framundan.
Þarna voru menn að heyja
orrustu við rjúpuna.
Ég skora á kvennasamtökin
miklu að láta nú það boð út ganga,
að rjúpur verði ekki keyptar í
jólamat eða veizlur.
Konur, athugið að hver sú kona,
sem heldur rjúpnaveizlu hún
leggur það fé sem fer til rjúpna-
kaupanna til höfuðs þessari
islenzku fjallaprýði. leggur fram í
stórri rjúpnaveizlu mikið fé
handa skotmönnum til ger-
eyðingar rjúpnastofninum, og
hún situr við hlið þeirrar konu,
sem Jónas Hallgrimsson orti um
þessa vísu:
Plokkar, pils upp brýtur,
pott á hlóðir setur,
segir happ, þeim hlýtur
og horaða rjúpu étur.
Rjúpur hafa aldrei verið jóla-
matur á íslandi, nema e.t.v. í
matarskorti. Það voru danskir
einokunarkaupmenn, sem héldu
rjúpnaveizlur.
Og nú, loksins, hafa Islendingar
efni á þessari „snobb" eftiröpun.
Húsmæður! Friðið rjúpuna!
Rósa B. Itlöndals.“
0 Kaupum íslenzkt
Hildur Þorbjörnsdóttir
skrifar á þessa leið:
„Velvakandi minn.
Mig langar til að biðja þig að
koma á framfæri smárabbi sem á
þó helzt erindi til húsmæðranna.
Ég hefi verið að hugsa um það
siðustu- daga hve gaman gæti
verið fyrir okkur konurnar að
teggjast allar á eitt i sem flestum
málum, sem til heilla gætu orðið á
þessum siðustu og verstu tímum.
Nú er sýnt að hægt var að ná
samstöðu á stórum útifundi til að
vekja athygli á stöðu konunnar i
þjóðfélaginu. I þeim hópi felst
ómæld orka, sem verður að virkja
til fleiri góðra hluta en að syngja
um okkur sjálfar á kvenna-
frídaginn.
Dagurinn i dag býður upp á ótal
möguleika, þar sem við getum
þegjandi tekið höndum saman án
þess að halda fundi eða hugsa um
stjórnmálaskoðanir. Nú þegar
jólainnkaupin fara i hönd höfum
við gullin tækifæri til að haga
innkaupum þannig, að islenzk
iðnfyrirtæki fái sem mest af við-
skiptunum, sérstaklega ef þetta
er gert að umræðuefni i tæka tið.
Þegar talað er um innkaup, þá er
um svo margt að velja, — næstum
of margt — af alls konar innfluttu
dóti, að við verðum að taka af-
stöðu áður en við förum að
heiman, ef við ætlum að standa
við fyrirheitið."
Síðan bendir Hildur á ýmislegt,
sem framleitt er og selt hér á
landi af iðnaðarvarningi. Þetta er
tímabær hugvekja, og má reyndar
segja að hér hafi verið alltof litið
af þvi gert að hvetja neytendur til
að kaupa fremur islenzka fram-
leiðslu að öðru jöfnu.
Bréf Hildar endar á þessum
orðum: „Við húsmæðurnar getum
ráðið miklu um vörukaupin. í
gegnum hendur okkar fara miklir
fjármunir til verzlananna. Eigum
við nú ekki að gera átak svo um
munar? Að halda jól með ein-
göngu islenzkum jólagjöfum?"
HÖGNI HREKKVÍSI
Vissir þú að Högni geymir peninga í
körfunni sinni?
SIG6A V/óGA £ \lLVt9AU
Design Classics of Reykjavík
20 Waterside Paza 27 F
New York City, N.Y. USA 10010
Tele. 212-532-0627.
is á new firm which will specialize in fine qaulity icelandic
merchandise. There are 83 sqaure meters of Show Room
space. We are wholesalers to American byers. We are
also exporters to lceland.
I, Gary Overman, have spent much time in lceland and
understand the need for export and its untapped
potential for increased export.
DCR hf., Hraunbæ 126, Rvik.
tele. 85556 and 86446.
is a new icelandic firm.
★ ★ ★ ★ ★
— er nýtt fyrirtæki, sem aetlar að sérhæfa sig í dreifingu
á islenzkri gæðaframleiðslu. Við höfum 83 fm. sýningar-
sal. Við önnumst heildsölu í Bandarikjunum. Við önn-
umst einnig innflutning til íslands.
Ég, Gary Overman, hef eytt löngum tima á íslandi og skil
mjög vel þörf fyrir útflutning og nauðsyn þess að auka
hann eins og mögulegt er.
Nýkomin
Top of The
Pops með
lögunum Feeling og
SOS ásamt 10 öðrum
vinsælum lögum.
Fæst um land allt.
HEIMILISTÆKI SF.
Sætúni 8 og Hafnarstræti 3