Morgunblaðið - 07.12.1975, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1975
63
Jólabækur
Helgafells
1975
Aldrei annað eins
úrval í stórgjafirnar
handa mestu bóka-
þjóð veraldar.
Aðeins úrvals bækur
— Helgafellsbækur
„Hagleiksverk
Hjálmars í Bólu"'
eftir dr Kristján Eldjárn
Snilldarverk um manninn og
meistarann, Bóluhjálmar Yfir 40
myndir af hagleiksverkum lista-
mannsins.
„í túninu heima".
Nýtt himinfagurt skáldverk eftir
Halldór Laxness. Almannarómur
samhljóða ritdómendum: „Besta
og fegursta bók Nóbelskáldsins
Jólabók ársins
„Ljóðasafn
Magnúsar Ásgeirs-
sonar"
tvö stór bindi, yfir 800 blað-
slður. Frábær ritgerð um skáldið
eftir Kristján Karlsson,
bókmenntafræðing. Ekki er of-
mælt að Magnús sé einn af
höfuðsnillingum íslenskrar
tungu, maður sem lifði og
þjáðist i miðpúnkti
heimsmenningar.
„Sagan af Þuríði for-
manni og Kambs-
ráninu"
eftir Brynjólf frá Minnanúpi.
Rammíslenskt listaverk,
spennartdi leynilögreglusaga
Bók unga fólksins.
„Timinn og vatnið"
Margslungið verk dulmögnuð
harmsaga eftir Stein Steinarr.
Nú fágurlega myndskreytt af
hinum frábæra listamanni, Einari
Hákonarsyni.
„Maður og kona".
Ný viðhafnarútgáfa með fram
úrskarandi myndum eftir Gunn-
laug Scheving
Piltur og stúlka
einnig til í viðhafnarútgáfu með
glæsilegum myndum eftir
Halldór Pétursson.
„Una saga danska".
Efni að nokkru úr Landnámu, en
notað sem efniviður í bráðsnjalla
skáldsögu um víkingslund og
ástir Höfundurinn er íslenskur
bóndi, Þórarinn Helgason í
Þykkvabæ i Landbroti. Bók er
enn sem fyrr ódýrasta jólagjöfin
og samboðin mestu bókaþjóð
veraldar
Hundruð ódýrra
klassiskra verka i
Unuhúsi — Helga-
felli (Simi 16837)
Benedikt Guðmundsson
hreppstjóri Staðarbakka
Þann 30. nóv. sl. átti sjötugs-
afmæli Benedikt Guðmundsson,
bóndi á Staðarbakka i Miðfirði.
Hann er sonur þeirra merku
heiðurshjóna Margrétar
Benediktsdóttur og Guðmundar
Gislasonar, er þar bjuggu um
langt skeið við mikla rausn og
vinsældir sinna sveitunga og
þeirra mörgu, er þann garð gistu,
meðan landpóstar enn héldu uppi
ferðum milli Borgarness og Akur-
eyrar. Var heimilið rómað fyrir
gestrisni og myndarskap, enda
kirkjustaður og fyrrum prestsset-
ur. Þó eigi væri um mikla skóla-
menntun að ræða á unglingsárum
Benedikts frekar en þá tíðkaðist
yfirleitt f sveitum landsins, voru
þroska- og menningarskilyrði
góðra heimila slfk, að vart varð
betra kosið, enda þá ekki til f
málinu orðið kynslóðabil. Þvf
nýttist hinum ungu vel áunninn
vísdómur hinna eldri, frá kynslóð
til kynslóðar, jafnt á sviði and-
legra mennta sem verklegrar
kunnáttu.
Snemma mun Benedikt hafa
ákveðið að helga sveitalífinu
krafta sína og gerast bóndi, enda
er Staðarbakki ákjósanleg bújörð
og vel í sveit komið, góð til rækt-
unar og hlunnindi nokkur af lax-
veiðum í Miðfjarðará. Til að full-
nægja sem best hinni fjölbreyttu
og merku starfsemi og stöðu
bóndans, stundaði Benedikt nám
við bændaskólann á Hvanneyri og
lauk þaðan búfræðiprófi með
lofsamlegum vitnisburði.
Að undanteknum námstíma
Benedikts á Hvanneyri hefur
hann verið þar heima á Staðar-
bakka, fyrst í skjóli sinna ágætu
foreldra og síðar sem bóndi,
ásamt bræðrum sínum Gísla og
Magnúsi.
A vordögum 1945 kvongaðist
Benedikt Asdísi, einkadóttur
Guðfinnu og Magnúsar, sem lengi
bjuggu á Torfustöðum í Núpsdal,
gáfaðri konu og f alla staði hinni
ágætustu húsfreyju. Börn þeirra
hjóna eru fjögur, vandað fólk og
vel gefið, en þau eru: Margrét,
gift Ólafi Jóhannssyni, Ingimund-
ur, kvongaður Matthildi Sverris-
dóttur, Jón, og er hans kona Þor-
björg Ólafsdóttir, öll búsett í
Reykjavík og yngsti sonurinn
Rafn, heitbundinn Ingibjörgu
Þórarinsdóttur, enn í föðurgarði
og líklegur að taka þar við búi
áður langir timar lfða, og er það
alltaf gleðiefni landi og lýð, er
óðul ganga þannig að erfðum frá
einni kynslóð til annarrar.
I
Auk þess sem þau hjón Asdis og
Benedikt hafa um þrjá tugi ára
setið jörð sína með miklum
myndarskap, stuðlað að gæfu og
gengi barna sinna heima og að
heiman, hefur á þeim tfma verið f
mörg horn að Iíta hvað opinber
störf snertir og tekur það jafnan
eigi síður til húsfreyjunnar en
bóndans, þó hann sé til starfans
kosinn eða skipaður. En það ætla
ég, að Benedikt hafi gegnt flest-
um þeim trúnaðarstörfum sem til
falla í hreppsfélagi, þó eigi verði
þau öll talin hér, en nefna má
hreppsnefnd og þar með talin
oddvitastörf um mörg ár, einnig
sýslunefnd í Vestur-
Húnavatnssýslu og nú Um nokk-
urra ára skeið hreppstjóri Ytri-
Torfustaðahrepps. öll þessi störf,
sem og þau önnur, sem Benedikt
hefur verið til kjörinn, hefur
hann af hendi leyst af samvisku-
semi og allri alúð, enda sfst líkleg-
ur til neinna flausturverka eða
lítt hugsaðra ákvarðana, hvort
heldur verið hefur í opinberum
málum eða einkalífi. Á þessum
merku timamótum færi ég þeim
hjónum og þeirra nánustu mfnar
bestu hamingjuóskir og þar undir
veit ég að sveitungar okkar taka
heilshugar. —
Guðmundur Björnsson.
Þetta er GRUNDIG Ballade 4, vandaður og glæsi-
legur stereo radiófónn á hagstæðu verði. Viðtækið,
sem er fullkomið og langdrægt, er með langbylgju,
miðbylgju, stuttbylgju og FM. FM bylgjan er gerð
fyrir stereo móttöku, en væntanlega hefjast stereo
útsendingar útvarps áður en of langt um liður. Plötu-
spilarinn, sem er af gerðinni Automatic 60, er auð-
vitað stereo líka. Er hann byggður hvort heldur er
fyrir einstakar plötur eða 6—7 plötur með sjálf-
virkri skiptingu. Stórir, vandaðir „superphon" há-
talarar tryggja góðan hljómburð, auk þess, sem
úttak er fyrir 2 viðbótarhátalara. I Ballade 4 er
einnig hólf, sem nota má fyrir segulbandstæki eða
plötugeymslu. — Ballade 4 er i valhnotukassa, og
eru utanmál hans þessi: Breidd 133 sm., hæð 76 sm.
og dýpt 36 sm. ( fáum orðum sagt, Ballade 4 er
fallegt og fullkomið hljómtæki með 3ja ára ábyrgð
og kostar aðeins kr. 111.100,00. Við eigum einnig 3
aðrar gerðir GRUNDIG radiófóna. Væri ekki heilla-
ráð að koma við og kanna málið nánar?
NESCO
NESCO HF
Letöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja.
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavik. Simar: 19150-19192-27788