Morgunblaðið - 14.12.1975, Page 10

Morgunblaðið - 14.12.1975, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1975 Eftir Alexander Solshenitsyn 2. grein ÞAÐ EINA sem konurnar í fangabúðum Gulag-Eyjaklasans höfðu sér til varnar var ef þær voru gamlar eða ljótar. Fegurð var bölvun þeim konum, sem þannig voru af Guði gerðar. Stöðug- ur straumur karlmanna var að rúm- um þeirra, sem reyndu að fá þær til fylgilags við sig með góðu eða illu, sum- ar voru barðar og ógnað með hnif- um og konurnar áttu sér enga von um að geta staðizt slíkt til lengdar, þeirra kostur var aðeins að reyna að velja sér bezta manninn til að verjast hinum. Helzta starf fangavarðanna á nóttunni var að fara um búðirnar og eltast við konur í karlabröggunum og karla í konu- bröggunum og að sjálfsögðu að fá útrás fyrir eigin hvatir. Ekki var óalgengt, að fangaverðir eyddu heilum nóttum f að útlista fyrir konunum hversu rangt athæfi þeirra væri. En það voru ekki aðeins fangaverðirnir, sem slitu hjónaböndum búðanna, því lífið í búðunum var svo öfugsnúið, að það sem hefði átt að sameina og treysta böndin varð til að slíta þau, barnsfæðing. Þegar konan var komin 8 mánuði á leið var hún flutt i aðrar búðir, þar sem var sjúkrahús með fæðingardeild, þar sem mjóróma barnsraddir hrópuðu að þau vildu ekki verða fangar aðeins vegna synda foreldr- anna. Þegar konan var búin að ala barnið var hún send í enn aðrar búðir, fyrir konur, sem voru með börnin á brjósti, en þær voru kallaðar „mamki“. Börnin voru tekin af konunum, en þær síðan með reglulegu millibili reknar i hóp til að gefa brjóst. Þegar börnin voru ekki lengur á BANNAÐ AÐ SKJOTA BÖRN Áhugi drengja á konulíkamanum byrjar yfirleitt snemma og í krakkaklefunum sagði kynhvötin snemma til sfn vegna þess hve mikið var um kynlíf talað og grófar sögur sagðar. Unglingarnir létu ekkert tækifæri ónotað til að fá tilfinningalega útrás. Eitt sinn kom hópur æstra og' hræddra barna hlaupandi til hjúkrunar- konu á barnaheimilinu og báðu hana að koma og skoða vin sinn, sem væri alvar- lega veikur. Hjúkrunarkonan gleymdi allri varkárni og fór með þeim. Þegar inn í klefann kom skelltu drengirnir hurðum aftur réðust á hana, tættu utan af henni fötin og nauðguðu henni á hinn hryllileg- asta hátt. Enginn gat bjargað henni, því að það var bannað að skjóta börn og hún losnaði ekki fyrr en þeir höfðu fengið nóg og slepptu henni af frjálsum vilja. I barnanýlendunum voru krakkarnir látnir vinna 4 klst. á dag og læra f 4 klst. Námið var hins vegar aðeins orðin tóm. Þegar börnin voru flutt i fullorðinnabúðir voru þau látin vinna 10 klst. Hins vegar var vinnuálagið á þau ekki eins mikið og þau fengu sama matarskammt og full- orðnu fangarnir. Þau komu f þessar búðir 16 ára gömul, en vannæringin gerði það að verkum að þau líktust einna helzt litlum börnum, vöxturinn hafði staðnað svo og hugur þeirra og áhugi á lífinu. Eining barnanna breyttist ekkert eftir að þau komu i fullorðinnabúðirnar og þetta gaf þeim styrk og losaði þau undan hömlum. Þau höfðu enga skynjun á mismuninum á því hvað væri leyfilegt og hvað væri ekki Ieyfilegt og báru ekkert skynbragð á gott Eyjaklasinn Gulag II sem þau mynduðu með fingrunum, en gallinn var sá, að þau reyndu alltaf að reka fingurna upp i augun á þeim sem verið var að heilsa. Þetta var einn uppáhaldsleikur barnanna. Gamall maður, sem var á gangi og átti sér einskis ills von, fékk allt í einu tvo fingur upp í augun og ýtt var við honum, fyrir aftan hann liggur barn á fjórum fótum og gamli maðurinn fellur aftur fyrir sig og skellur með höfuðið i jörðina. Enginn hjálpar honum á fætur. Börnin voru alls ekki að gera honum mein, þetta var bara svo skemmtilegt. Þegar maðurinn staulast á fætur hvæsir hann f bræði: „Ef ég hefði vélbyssu myndi ég skjóta þau miskunnar- laust niður.“ Gamall maður, sem hataði börnin eins og pestina, sagði að þau væru eins og drepsóttarplága fyrir hina full- orðnu og nauðsynlegt væri að drepa þau í laumi. Þetta reyndi hann og þegar honum tókst að laumast upp að dreng, þar sem enginn sá til, skellti hann honum á bakið og rak hnéð í brjóst honum og þrýsti á þar til rifin brákuðust, en hann gætti þess að brjóta þau ekki. Eftir þetta sleppti hann piltinum og sagði að það væri ekki nokkur leið að hann gæti lifað af, en enginn læknir gæti greint hvað væri að. Þannig olli þessi maður dauða margra barna þar til þau börðu harin í hel. H(JN vildi ekki lata krossinn Zoya Leseheva, 10 ára stúlka, var mjög frábrugðin hinum börnunum. Foreldrar hennar, afi, amma og öll systkinin höfðu verið send í fangabúðir sökum þess hve heittrúuð þau voru. Zoya var send á munaðarleysingjahæli og þar lýsti hún því Hún þreif barnið sitt upp á fótunum og sló höfði þess við steingólfið brjósti voru þau tekin algerlega frá mæðr- unum. Feðurnir fengu ekki að sjá börnin meðan þeir voru f búðunum. Fram til eins árs aldurs voru börnin höfð á sérstöku barnaheimili, eftir það voru þau send á munaðarleysingjahæli. Fangabúðabarnið yfirgaf þannig Gulag um tfma, en alltaf var möguleiki fyrir hendi að það sneri aftur síðar, sem ungur afbrotamaður. HtJN VAR BARA „MAMKA“ Árið 1954 eyddi ég einu sinni nótt á Tashkentjárnbrautarstöðinni og þar voru einnig um 30 fangar, sem nýlega hafði verið sleppt úr búðunum skv. einhverri sérstakri tilskipun. Þeir sátu saman í einu horni stöðvarhússins og höfðu uppi mik- inn hávaða og höguðu sér eins og hálfgert undirheimafólk, sem vissi hversu mikils virði lífið væri og hafði fyrirlitningu á öllu frjálsu fólki, sem var umhverfis það. Karlmennirnir spiluðu á spil en konurnar rifust hástöfum út af einhverju. Allt í einu stökk ein konan á fætur með öskri, þreif barnið sitt upp á fótunum og slengdi höfði þess í steinsteypt gólfið. Fólkið í salnum tók andköf af skelfingu en það gerði sér ekki grein fyrir því, að hér var ekki á ferðinni raunveruleg móðir, heldur „rnarnka". Börnin voru hýst á tvo mismunandi vegu í Gulag, í sérstökum barnanýlendum, þar sem einkum voru börn undir 15 ára aldri, og svo í blönduðum búðum, þar sem unglingar voru innan um gamalmenni og öryrkja. Á báðum stöðum voru börnin fljót að þróa með sér dýrslega grimmd og báðar búðirnar ólu upp í þeim eðli af- brotamannsins. Það er athyglisvert þegar Iitið er á hina grimmdarlegu lífsbaráttu barnanna, að þau börðust ekki innbyrðis heldur lögðu á lífsbaráttubrattann sem ein heild. Óvinirnir voru að sjálfsögðu fangaverðirnir og kennararnir, sem stálu matarskammtinum þeirra. Krakkarnir voru vel meðvitandi um styrk sinn, sem bygðist í fyrsta lagi á einingu og öðru lagi á óþekkt. Þegar þau vildu fá mjólk á kvöldin byrjuðu þau að öskra og berja á klefadyrnar og brjóta allt og bramla í klefanum. Þau vissu að þau þurftu ekkert að óttast, enginn myndi skjóta börn og auðvitað fengu þau mjólkina. Ef fullorðn- ir fangar hefðu gert slfkt hið sama hefðu þeir verið skotnir fyrir uppreisn. og illt. I þeirra augum var alit, sem þau langaði í, gott, en allt, sem hindraði þau, slæmt. Frekjuleg og ósvífin framkoma barnanna var til komin af því að þau fundu fljótt að slík hegðun kom sér bezt fyrir þau í búðunum. Þegar einingin kom þeim ekki að gagni notuðu þau kænsku og blekkingu með frábærum árangri. Það var enginn vandi fyrir dreng að leika hreinan engil og koma fólki til að tárast á sama tíma og félagar hans voru að ræna viðkom- andi aleigunni bak við hann. Börnin gátu gripið til leiftursnöggra aðgerða og komið hefnd sinni fram við hvern sem var, og þvi var það, að enginn þorði nokkru sinni að koma fórnarlambi þeirra til hjálpar, er þau gerðu árás. Börnin voru hreinlega ósigrandi. Svo mörg þeirra gátu gert árás í einu, að það var ekki viðlit fyrir fórnar- lambið að greina andlitin í sundur og það hreinlega hafði ekki nægilega margar hendur og fætur til að berja frá sér. „Þtl ER HVORT EÐ ER AÐ DREPAST" Eldhúsið í einum fangabúðum i Síberíu var um 150 metra frá híbýlum fanganna og þessa vegaleng þurftu fangarnir að bera matinn. Fyrir gamalt fólk og öryrkja var það mikil hættu- ferð, því að börnin sátu fyrir þeim eins og hrægammar og áður en fólkið gat áttað sig höfðu 3—4 krakk- ar gert leifturáráá, slegið fórnar- lambið niður og stolið matarskammtinum áður en hægt væri að telja upp að þremur. Aðrir fangar sem sáu þetta þorðu ekki að koma fórnarlambinu til hjálpar en flýttu sér heim í þeirri von að sleppa. Eftir þvf sem fórnarlömbin voru veikbyggðari, því meiri var grimmdin. Gamall og lasburða maður, sem eitt sinn var rændur, grátbað börnin um að skila skammtinum, hann væri að deyja úr hungri. Svarið var: „Hvaða máli skiptir það, þú ert hvort eð er að drepast." Ef frjáls verkamaður, sem ráfaði af rælni inn í búðirnar á göngu með hundinn sinn, gætti ekki vel að sér mátti búast við, að honum yrði boðið skinnið til kaups utan búðanna sama kvöldið. Börnin lokkuðu hundinn í burtu, drápu hann, fláðu og átu á svipstundu. Ekkert er skemmtilegra en þjófnaður og rán. Þgu gefa af sér næringu og eru skemmtileg. Blessuð börnin þurfa til- breytingu í lifinu og að fá að ærslast. Börnin í Gulag voru alltaf að ærslast, slást Sagt frá grimmdar- legri lífs- baráttu Gulag- barnanna og i eltingaleik en þau tóku ekkert tillit til þess þótt þau tröðkuðu á fólki eða skemmdu eitthvað eða meiddu. ÖIl börn leika sér, en flest börn eiga foreldra, sem stjórna þeim og segja hingað og ekki lengra og þau er hægt að skamma og refsa. í búðunum var það ekki hægt, þvi að það var ekki hægt að ná til barnanna með orðum, mannsröddin kom þeim ekki við og þau viðurkenndu ekkert sem þau sjálf þurftu ekki á að halda. ÞAU KUNNU EKKI AÐ SKAMMAST SÍN Það var ekki það að börnin ætluðu sér að meiða eða brjóta af sér, þau voru ekkert að látast, þau tóku bara ekki tillit til neins nema sjálfra sfn og eldri þjófa. Það var með þessum augum sem þau litu lffið og umheiminn og ekkert fékk breytt því. Þegar dagsverki fanganna var lokið og þeir gengu í röð heim á leið úrvinda af þreytu ruddust börnin með ærslalátum inn i röðina til að riðla henni, ekki af þvf að þau meintu neitt illt með því heldur bara af því að það var skemmtilegt. Þau voru alltaf með hávaða og læti bölvuðu Guði, Kristi og Maríu mey og hrópuðu ógeðsleg klúryrði án þess að skammast sín hið minnsta i viðurvist eldri og yngri kvenna. Þau kunnu ekki að skammast sfn, þvf að þau vissu ekki að nein takmörk væru til. Fullorðna fólkið hataði þessi börn eins og pestina og hrópaði að þeim ókvæðisorð- um, stundum með svo miklum biturleika, að ef orð hefðu getað drepið þá hefðu þeirra orð átt að valda dauða um leið. Helzta kveðja barnanna var v-merki, yfir að hún myndi aldrei taka af sér krossinn, sem hékk í festi um háls hennar og móðir hennar hafði gefið henni, er þær skildu. Hún hnýtti festina svo fast, að ekki var möguleiki fyrir starfsfólkið að læðast að henni að næturlagi og taka krossinn. Fólkið hélt áfram að þrasa f henni unz hún hrópaði upp yfir sig í bræði sinni: „Þið getið kyrkt mig og síðan tekið kross- inn af lfkinu." Þá var hún send af munaðarleysingjahælinu á hæli fyrir van- gefin börn. Þar hélt þrasið áfram, en hún stóð föst fyrir og var að lokum gerð að pólitískum fanga. Zoya varð brátt fullviss um að Stalin væri orsök alls ills f hennar lífi og því meir sem kennarar hennar og útvarpið hrósuðu Stalin því vissari varð hún í sinni sök. Hún fékk brátt hin börnin f lið með sér og brátt fóru alls konar fúkyrði að birtast á styttu af Stalín, sem stóð í garðinum ásamt klúrum teikn- ingum. Yfirmennirnir máluðu alltaf yfir styttuna og sendu skýrslu til KGB. Um koll keyrði svo einn morgun- inn, er styttan fannst mölbrotin. Þetta var verk hryðjuverkamanna. Sveitir KGB-manna komu á vettvang og hófu rannsókn með sfnum aðferðum og hótunum um að taka öll börnin af lífi. Það hefði ekki komið neinum á óvart þótt 150 börn hefðu verið skotin og ef Stalín sjálfur hefði vitað um atburðinn hefði hann örugglega fyrirskipað aftöku. Enginn veit hvort börnin hefðu gefizt upp, því að Zoya játaði og hún var dæmd til dauða. En, þar sem hún var aðeins 14 ára, var dauðarefsingunni breytt í 10 ára fangelsi. Hún var í venjulegum búðum til 18 ára aldurs, en þá var hún send til sérbúða. Fjölskylda hennar slapp brátt út, en Zoya fékk hvern dóminn á fætur öðrum og veslaðist upp í búðunum. Loftslagið í Eyjaklasanum Gulag, hvar sem búðirnar voru, var „heimskautalofts- lag“ 12 mánuði ársins og það mátti sjá á andlitum fanganna, alltaf á verði án snefils af góðvilja. Hitastigið skipti ekki máli, það var hinn andlegi kuldi, sem réð. Fangarnir búast alltaf við þvf versta og að ástandið versni. Þannig er líf þeirra, stöðug bið eftir áföllum og árás hins illa anda. Það skiptir engu máli hvernig ástandið er, fanginn hugsar alltaf að það gæti verið verra. Hann hugsar aðeins um það að lifa, hvað sem það kostar og það þýðir á kostnað einhvers annars.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.