Morgunblaðið - 14.12.1975, Page 31
BJARNI BENEDIKTSSON
LAND OG LÝÐVELDI
ALMENNA
BÓKAFÉLAGIÐ
Austurstræti 18-Bolholti 6
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1975
Bœkumar frá
.
Almenna bókafélaginu
Bjarni Benediktsson:
Land og lýðveldi
III. bindi
Guðmundur Hagalín:
Segið nú amen,
séra Pétur
Nýstárleg og áhrifamikil skáldsaga
um hvernig mannleg náttúra, fjár-
hyggja og kynhvöt búa mönnum
örlög.
Aðalpersóna sögunnar hin glæsilega
og geðríka Herborg Bjarnadóttir er
einhver eftirminnilegasta kvenlýsing
Hagalíns.
Verð m/sölusk. kr. 2.640.—
Kristmann Guðmundsson:
Stjömuskipið
geimferðasaga.
Með þessu bindi er lokið merku
ritgerðasafni, sem ugglaust verður
mönnum því dýrmætara, sem lengra
líður, bæði sem einstakt heimildarrit
og verðug minning um einn ágæt-
asta son íslands á þessari öld.
Verð m/sölusk. kr. 3.360.—
Öll þrjú bindin
m/sölusk. kr. 5.520.—
Vísindaskáldskapur hefur rutt sér
mjög til rúms á bókmenntasviðinu og
hlotið almennar vinsældir. Þessi nýja
saga er spennandi og ákaflega fjör-
lega rituð um lífið á hinum ólíkustu
stöðum í himingeimnum.
Verð m/sölusk. kr. 2.400.—
MENNOG
HILTGUNT
ZASSPNHAUS
M
Hiltgunt Zassenhaus
Menn og múrar
Þýðandi Tómas Guðmundsson
Heillandi frásögn um fórnfýsi og
hetjulund ungrar stúlku í síðustu
heimsstyrjöld. Hún var kölluð engill
fanganna og hér rekur hún minn-
ingar sínar frá þessum örlagaríku
árum, sem hverjum lesanda hljóta að
verða ógleymanlegar.
Verð m/sölusk. kr. 2.640.—
Jóhanna Þráinsdóttir:
Útrás
Útrás er fyrsta frumsamda bók höfundar, en
áður hefur hún birt smásögur i timaritum.
Skáldsagan Útrás er raunsæ og hispurslaus
lýsing á lifi ungrar ekkju, sem missir mann
sinn af slysförum, eftir hjónaband, sem
byggzt hefur á gagnkvæmri blekkingu. í
beyskju sinni og ráðleysi varpar hún sér út i
hringiðu skemmtanalifsins og kemst þá í
kynni við ýmsar dekkri hliðar lifsins, fyrst hér
heima og síðan í Bandarikjunum.
Sagan er gáskafull og bráðskemmtileg en
um leið umbúðalaus lýsing, sem ber í senn
svip af þjóðfélagsádeilu, ástarsögu pg djörf-
um bókmenntum. Verð m/sölusk. 2.520.—
Jorge Luis Borges:
Suðrið
Smásagnasafn, valið og þýtt hefur
Guðbergur Bergsson. Sögurnar eru
sprottnar úr suðuramerískum jarð-
vegi en eiga erindi við fólk hvar í
heiminum sem er. Borges er í hópi
virtustu skálda sem nú eru uppi og
mikill aðdáandi forníslenzkra bók-
mennta.
Verð m/sölusk. kr. 2.280.—
Dusko Popov:
Njósnari nasista
í þjónustu breta
Bókin lýsir einstæðum njósnaferli
höfundar. Þjóðverjar töldu hann fær-
asta njósnara sinn en í reynd njósn-
aði hann fyrir breta og lifði í stöðugri
lífshættu. Hann varaði við árásinni á
Pearl Harbor löngu áður en hún var
gerð en FBI trúði honum ekki. Popov
var mikill gleðimaður og fullyrt er, að
hann sé fyrirmyndin af James Bond.
Verð m/sölusk. kr. 2.280.—
Michael Mooney:
Hindenburgslysið
Hindenburgloftfarið var tákn um
mátt og megin nasismans — þar til
sprengingin mikla varð 6. maí 1937
við Lakehurst í Bandarikjunum og
Hindenburg brann til ösku og 36
manns fórust í augsýn hjálparvana
áhorfenda.
Hvað gerðist? Var það skemmdar-
verk. Þessum spurningum og mörg-
um fleiri svarar þessi spennandi bók.
Verð m/sölusk. kr. 2.280.—
Guðmundur Daníelsson:
Óratóría 74
Saga úr sjúkrahúsi með skopteikn-
ingum Halldórs Péturssonar.
Höfundur bregður skoplegu Ijósi á
harðvítugt og tvísýnt stríð upp á líf
og dauða við menn og máttarvöld,
og hvernig honum tekst að lifa af
heila þjóðhátíð tvennar kosningar og
tvo holskurði á einu og sama sumr-
inu.
Verð m/sölusk. kr. 2.640.—
Jóhanna Þráinsdóttir
Útrás
ratóría