Morgunblaðið - 14.12.1975, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.12.1975, Qupperneq 31
BJARNI BENEDIKTSSON LAND OG LÝÐVELDI ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ Austurstræti 18-Bolholti 6 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1975 Bœkumar frá . Almenna bókafélaginu Bjarni Benediktsson: Land og lýðveldi III. bindi Guðmundur Hagalín: Segið nú amen, séra Pétur Nýstárleg og áhrifamikil skáldsaga um hvernig mannleg náttúra, fjár- hyggja og kynhvöt búa mönnum örlög. Aðalpersóna sögunnar hin glæsilega og geðríka Herborg Bjarnadóttir er einhver eftirminnilegasta kvenlýsing Hagalíns. Verð m/sölusk. kr. 2.640.— Kristmann Guðmundsson: Stjömuskipið geimferðasaga. Með þessu bindi er lokið merku ritgerðasafni, sem ugglaust verður mönnum því dýrmætara, sem lengra líður, bæði sem einstakt heimildarrit og verðug minning um einn ágæt- asta son íslands á þessari öld. Verð m/sölusk. kr. 3.360.— Öll þrjú bindin m/sölusk. kr. 5.520.— Vísindaskáldskapur hefur rutt sér mjög til rúms á bókmenntasviðinu og hlotið almennar vinsældir. Þessi nýja saga er spennandi og ákaflega fjör- lega rituð um lífið á hinum ólíkustu stöðum í himingeimnum. Verð m/sölusk. kr. 2.400.— MENNOG HILTGUNT ZASSPNHAUS M Hiltgunt Zassenhaus Menn og múrar Þýðandi Tómas Guðmundsson Heillandi frásögn um fórnfýsi og hetjulund ungrar stúlku í síðustu heimsstyrjöld. Hún var kölluð engill fanganna og hér rekur hún minn- ingar sínar frá þessum örlagaríku árum, sem hverjum lesanda hljóta að verða ógleymanlegar. Verð m/sölusk. kr. 2.640.— Jóhanna Þráinsdóttir: Útrás Útrás er fyrsta frumsamda bók höfundar, en áður hefur hún birt smásögur i timaritum. Skáldsagan Útrás er raunsæ og hispurslaus lýsing á lifi ungrar ekkju, sem missir mann sinn af slysförum, eftir hjónaband, sem byggzt hefur á gagnkvæmri blekkingu. í beyskju sinni og ráðleysi varpar hún sér út i hringiðu skemmtanalifsins og kemst þá í kynni við ýmsar dekkri hliðar lifsins, fyrst hér heima og síðan í Bandarikjunum. Sagan er gáskafull og bráðskemmtileg en um leið umbúðalaus lýsing, sem ber í senn svip af þjóðfélagsádeilu, ástarsögu pg djörf- um bókmenntum. Verð m/sölusk. 2.520.— Jorge Luis Borges: Suðrið Smásagnasafn, valið og þýtt hefur Guðbergur Bergsson. Sögurnar eru sprottnar úr suðuramerískum jarð- vegi en eiga erindi við fólk hvar í heiminum sem er. Borges er í hópi virtustu skálda sem nú eru uppi og mikill aðdáandi forníslenzkra bók- mennta. Verð m/sölusk. kr. 2.280.— Dusko Popov: Njósnari nasista í þjónustu breta Bókin lýsir einstæðum njósnaferli höfundar. Þjóðverjar töldu hann fær- asta njósnara sinn en í reynd njósn- aði hann fyrir breta og lifði í stöðugri lífshættu. Hann varaði við árásinni á Pearl Harbor löngu áður en hún var gerð en FBI trúði honum ekki. Popov var mikill gleðimaður og fullyrt er, að hann sé fyrirmyndin af James Bond. Verð m/sölusk. kr. 2.280.— Michael Mooney: Hindenburgslysið Hindenburgloftfarið var tákn um mátt og megin nasismans — þar til sprengingin mikla varð 6. maí 1937 við Lakehurst í Bandarikjunum og Hindenburg brann til ösku og 36 manns fórust í augsýn hjálparvana áhorfenda. Hvað gerðist? Var það skemmdar- verk. Þessum spurningum og mörg- um fleiri svarar þessi spennandi bók. Verð m/sölusk. kr. 2.280.— Guðmundur Daníelsson: Óratóría 74 Saga úr sjúkrahúsi með skopteikn- ingum Halldórs Péturssonar. Höfundur bregður skoplegu Ijósi á harðvítugt og tvísýnt stríð upp á líf og dauða við menn og máttarvöld, og hvernig honum tekst að lifa af heila þjóðhátíð tvennar kosningar og tvo holskurði á einu og sama sumr- inu. Verð m/sölusk. kr. 2.640.— Jóhanna Þráinsdóttir Útrás ratóría

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.