Tíminn - 18.05.1965, Page 2
2
■
MÁNUDAGUR, 17. maí.
NTB-Cardiff. — 28 kolanámu
verkamenn létu lífiS, en 12 var
bjargað í kvöld í kolanámu
einni í Tonypamdy við Cardiff
í Wales, en sprenging varð í
námunni í dag. Alls munu 180
menn hafa unnið í námumni,
þegar sprengingin. varð um
185 metra niðri í jörðinni.
NTB-Santo Domingo. — Caa-
mano ofursti, sem domini-
kanska þjóðþingið kaus forseta
fyrir nokkru, sagði í dag, að
ríkisstjórn hans myndi áfram
ban,na kommúnistaflokkinn í
Dominikanska lýðveldinu. Hann
sagði, að engir kommúnistar
væru háttsettir innan hreyfing
ar hans, og hann kvað ríkis-
stjórn sína vera á móti ein-
ræði, hvort sem það væru
hægri eða vinstri menn, sem
að því stæðu. Caamano sagðist
ætla að halda frjálsar kosning
ar 20. desember næsta ár, og
sagði, að ríkisstjórn, sem yrði
kjörin í þeim kosningum myndi
taka við völdum 27. febrúar
1967.
Caamano sakaði bandaríska
sendiherrann, Tapley Bennet,
fyrir að bera fulla ábyrgð á
núverandi ástandi í Ðomini-
kanska lýðveldinu, því að hann
hafi í byrjun uppreisnarinnar
gefið Johnson forseta rangar
upplýsingar. Sagði hann, að ef
Bennet hefði ekki gert það, þá
myndi nú ríkja friður í landinu.
Sagðist hann vona, að atburðir
síðustu vikna myndu ekki eyði
leggja þá góðu og löngu vin
áttu, sem verið hafi milli
Bandaríkjanna og Domini-
kanska lýðveldisins.
NTB-Jerúsalem. — Forsætis- tó
ráðherra ísraels, Levi Eskol, |
lagði í dag fram í ræðu í þjóð &
þinginu formlegt tilboð til |
Arabaríkjanna um að hefja frið BB
arvjðræður. Lagði Eshkol fram
uppkast að friðaráætlun, sem
er grundvölluð á því, að sjálf
stæði og landamæri allra ríkj
anna verði virt. í áætluninni er
m.a. bent á þann möguleika, að
Arabaríkin fái aðgang að Mið
jarðarhafsströnd ísraels. og
einnig verði tekin upp sam-
vinna á sviði ferðamála og tek
in upp gagnkvæm efnahagsað- g
stoð. Einnig er lögð áherzla á, p
að herbúnaðarkapphlaupið í
Mið-Austurlöndum verði stöðv
að og fjármagnið notað til upp
byggingar ríkjanna.
NTB-Washington. — Bandarík
in hafa opinberlega boðizt til
þess að veita OAS — Samtök
um Ameríkuríkja — yfirráð yf-
ir herliði Bandaríkjamanna í
Dóminikanska lýðveldinu. Þá
er talið hugsanlegt, að bráð-
Iega munli eiga sér stað veru
iegar breytingar á stefnu
Bandaríkjanna í Dominikanska S
lýðveldinu, sem m.a. getur orð $
ið til þess að herforingjar eins |
og Barrera og Wessim y Wessin R
verði „fjarlægðir“.
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 1965.
BÖRNIN MECA EKKIHRÓPA „HEH
//
JHM—Reykjavík, mánudag.
Á morgun, þriðjudag, kemur Elísabet Englandsdrottn
ing í opinbera heimsókn, ásamt manni sínum Philip, til
Vestur-Þýzkalands. Þessi heimsókn, e'ins og allar aðrar
opinberar heimsóknir, sem konungshjónin fara í, er
vandlega undirbúin og til þess farin að sýna virðingu og
veldi drottningarinnar. Heimsóknin hefur verið mikið
rædd af stjórnmálasérfræðingum og dagblöðum í
Evrópu, og reynt er að tengja hana við aukin stjórn-
málasamskipti Bretlands og V-Þýzkalands.
Mikill undirbúningur er fyr
ir heimsóknina, og dagskráta
hefur verið vandlega sett sam-
an, og m.a. á Elísabet að leggja
blómsveig við styttu Beethov-
ens í Bonn, þann 19. maí. Þeg
ar þessi stytta var afhjúpuð í
ágúst 1845 voru Viktoría drottn
ing og Albert prins þar við-
stödd. Konungshjónin fara um
Bonn, Kobkenz, Wiesbaden,
Munchen, Stuttgart, Cologne,
Dusseldorf, Duisburg, Hanover
og Hamborg. Þá koma þau einn
ig til V-Berlínar þar sem þeim
verður sýndur kommúnistamúr
inn, sem aðskilur borgarhlut-
ana. Þau munu og hitta þrjár
systur Philips, er búa í Þýzka
landi, sem allar eru giftar aðals
mönnum.
Sumir stjórnmálasérfræðing
ar segja að þessi ferð sé nokk
urs konar viðurkenning á hin
um „góðu Þjóðverjum“ sem
byggja V-Þýzkaland. Þessi heim
sókn Elísabetar er nokkuð sein
ef miðað er við, að De Gaulle
hefur komið í margar heimsókn
ir til landsins í þeim tilgangi að
auka tengslin á milli landanna.
John F. Kennedy var í Þýzka
landi fyrir rúmum 2 árum, og
vann vinsældir þjóðarinnar,
sérstaklega þó þegar hann sagði
í hinni frægu Berlínarræðu
sinni; „Ich bin ein Berliner".
Eitt af brezku blöðunum,
Yorkshire Post segir nýlega
í ritstjórnargrein: „Það, sem
er undarlegast við heimsókn
drottningarinnar til Vestur-
Þýzkalands er, að hún skuli
ekki hafa verið farin fyrr!
Önnur blöð benda á, að V-
Þýzkaland sé nú sannur með-
limur í samvinnu vestrænna
þjóða, og að tími sé til kominn
að Bretar og Þjóðverjar gleymi
öllum gömlum erjum og minn
ingum. Blöðin benda á að heim
sóknir De Gaulle til Þýzka-
lands sýni, að Frakkar, sem
urðu að þola meira en við
(Englendingar) í báðum heims
styrjöldunum eru nú reiðubún
ir til að lifa með nágrönnum
sínum“.
Þessi heimsókn, sem hefur
lengi verið í undirbúningi, kem
ur sér mjög vel fyrir Wilson,
forsætisráðherra. Hann var
ekkert sérlega hrifinn af nánari
samvinnu V-Evrópuríkja í kosn
ingunum á s.l. hausti, en núna
er hann farinn að láta meira
og meira í það skrna, að hann
vilji meiri samvinnu „yfir sund
ið“.
Þessí heimsókn er líka góð
fyrir Erhard þar sem De Gaulle
er nýlega búinn að neita að
taka undir áskoranir Breta og
Bandaríkjamanna um samein
ingu Þýzkalands. Sameiningar
málið er mjög áríðandi kosning
aratriði fyrir Erhard, og öll
aðstoð í þeim málum er því vel
þegin frá Bretum. Hann sagði
nýlega á fundi um stofnun
„bandaríkja Evrópu“: „Við
vitum það öll einum of vel,
að Evrópa getur aldrei orðið
þýzk, frönsk, eða rússnesk,
enda byggist hún á samvinnu
og jafnrétti allra aðila“,
Heimsókn Elísabetar og
Philips til Þýzkalands verður
án efa ánægjuleg, sérlega þar
sem skólabörnum hefur verið
sagt að þau megi ekki hrópa
„Heil“, þegar þau standa með-
fram götum þeim sem konungs
hjónin aka um, því það sé álitið
vera dónalegt. Aftur á móti
megi þau klappa og veifa hönd
unum að vild.
— börnin mega ekki hrópa
„Heil".
rwivuqufu.
ítiU .fi«i
_ TA_
brot og þjófnaði og 7 faisanir
KJ-Reykjavík, mánudag.
Fimm piltar, 14, 15 og 16 ára
hafa játað á sig samtals 24 inn-
brot og þjófnaði, sjö falsanir á
ávísunum og tvo bílþjófnaði.
Piltarnir hafa framið þessi af-
brot frá því í . byrjun apríl og
fram til 11. þessa mánaðar að þeir
voru handteknir. Stærstu hlutirnir
sem þeir stálu, voru þrjú segul-
Blikfsxi til
Isafjarðar
GS-ísafirði, mánudag.
f dag kom hin nýja vél Flug
félagsins, Blikfaxi, í fyrsta sinn
hingað til fsafjarðar. Vélin kom
liingað klukkan 13,15 og með henni
voru farþcgar og boðsgestir, þar á
meðal þeir alþingismenn Vest-
fjarða, sem í Reykjavík voru, Sig-
urvin Einarsson, Ilannibal Valdi-
marsson og Sigurður Bjarnason.
Bjarni Guðbjörnsson forseti
bæjarstjórnar tók á móti vélinni
með ræðu, en Örn O. Johnson
þakkaði. Síðan var fréttamönnum
og sveitarstjórum og afgreiðslu-
mönnum Flugfélagsins allt frá
Patreksfirði til Bolungarvíkur boð
ið í flugferð.
Flogið var norður að Horni og
inn með Ströndum, suður fyrir
Drangajökul og síðan út Djúpið
og aftur til ísafjarðar. Menn létu
í ljós mikla ánægju yfir þessum
nýja farkosti, en þeir sem ekki
eru í beinu flugsambandi við
Reykjavík á vegum Flugfélagsins,
vona nú eindregið, að þeir kom-
ist í slíkt samband. .eftir að Björn
Pálsson og Flugfélagið hafa tekið
upp samvinnu sín á milli
Frá ísafirði fór vélin aftur full
skipuð farþegum kl. 15,15.
bandstæki, þrír plötuspilarar og
tvær rakvélar, en auk þess hafa
þeir stolið tóbaki, sælgæti og pen-
ingum, sem þeir notuðu til áfeng-
iskaupa og í skemmtanir. Ávísana-
eyðublöðin, sem þeir fölsuðu,
stálu þeir hjá verzlun einni, og
voru upphæðirnar á hverri ávísun
frá 800—1000 krónur eða nærri
sjö þúsund krónur alls. Piltarnir
fimm voru ýmist 2, 3 eða fjórir
saman við þessa iðju, en alls voru
staðirnir, sem þeir brutust inn á
eða stálu á 14. Á einum staðnum,
þar sem þeir brutust inn, munu
þeir þó ekki hafa stolið neinu en
aftur á móti fóru þeir þar í bað,
en þetta var í Sundlaug Vestur-
bæjar, og hentu alls konar dóti
Framhald á 14. síðu.
HÖFÐA MÁL!
Aðils-Khöfn, mánudag.
Árna Magnússonar-nefndin hef-
ur nú samþykkt einróma að höfða
mál gegn menntamálaráðuneytinu
vegna fyrirhugaðrar afhendingar
íslenzku handritanna. Stefnunni
verður lýst um leið og frumvarpið
verður samþykkt við þriðju um-
ræðu í þjóðþinginu á miðvikudag-
inn.
Málið verður flutt við Öster-
landsret, og mun augljóslega
ganga til hæstaréttar. Nefndin hef
ur samið við G. L. Thistrup
hæstaréttarlögmann um að flytja
málið.
í opinberri tilkynningu um máls
höfðunina, sem er undirrituð af
prófessor Chr. Westergárd Nielsen
fyrir' hönd nefndarinnar, segir, að
prófessor Jón Helgason sem á
sæti í nefndinm. hafi ekki setið
fundinn samkvæmt eigin ósk.
Þrjár árbrúaðar í Öræfasveit
Reykjavík, mánudag.
í TÍMANUM á sunnudag birtist
frétt um, að þrjár brýr verði
byggðar í Öræfasveit í sumar, en
því miður féll niður nokkur hluti
fréttarinnar, og birtist því aðal
atriði hennar hér aftur:
Blaðið átti í dag tal við Árna
Pálsson, yfirverkfræðing Vega-
málaskrifstofunnar, og sagði
hann blaðinu, að í sumar yrðu
Svínafellsá, Kotá og Gljúfursá brú
aðar. Allar eru brýrnar smíðaðar
hér syðra og fluttar austur, þar
eru svo steyptir stöplar og brýrn
ar settar saman. Allar brýrnar
eru stálbitabrýr með trégólfi. Sú
stærsta verður á Svínafellsá, en
hún verður 32 metrar á lengd. Er
þegar búið að flytja allt til henn
ar austur og vinna við stöplana
hófst fyrir um þrem vikum undir
stjórn Jónasar Gíslasonar. Næst-
stærsta brúin verður á Kotá, sem
er milli Hofs og Svínafells. Verð
ur sú brú 30 metrar á lengd, og
er efnið til hennar á leið austur
núna. Þriðja brúin. á Gljúfursá,
sem er rétt vestan við Fagurhóls
mýri, verður 12 metrar á lengd.
Árni kvað allt efnið hingað til
hafa veríð flutt landveginn og
hefðu þeir flutningar gengið ágæt
lega, vegna þess hve lítið var í
vötnunum á Skeiðarársandi. Verð
ur lögð mikil áherzla á að ljúka
flutningum, áður en sumarvöxtur
hleypur í vötnin.
Þegar þessar brýr verða full-
gerðar eru fá vatnsföll orðin eftir
óbrúuð ínnan Öræfasveitar. Þó
eru tvær ár austan Hnappavalla,
Hólá og Stigá, sem geta orðið
býsna slæmar yfirferðar, ef þær
falla saman, og svo Hrútá, sem
er austan Kvískerja og er mikið
vatnsfall.
Austan og vestan sveitarinnar
eru svo mikil vatnsföll óbrúuð,
sem hamla samgöngum á landi,
við umheimínn mestan hluta árs-
ins, en horfur eru nú á því, að
einangrun sveitarinnar verði brátt
rofin, því brú á Jökulsá á Breiða
merkursandi er komin inn í hina
nýju vegaáætlun Sagði Árni blað
inu, að það yrði mikil hengibrú,
sem taka myndi mörg ár að smíða.
Siglingar hafnar til
Sauðárkróks að nýju
GÓ-Sauðárkróki, mánudag.
Vöruflutningaskip kom hér í
fyrsta sinn í gær frá þvi 16.
marz, og var það Skjaldbreið Að
vísu var nokkur ís á höfninni. en
skipið komst þó í gegn um hann
Póstbáturinn Drangur hefur verið
eina skipið sem hingað hefur kom
ið. nú er um mánnður síðan hann
komst hingað síðast Tungufoss
kom hér líka en treysti sér ekki
inn á höfnina, og fór til Hofsóss
þar sem vörunum er hingað áttu
að koma var skipað upp. Núna
er von á hverju skipinu á fætur
öðru á næstunni. og koma hér
fyrst 3 „fellin". þá sementskip og
síðan Rangá. Ef ekki rekur inn
ís núna er vonandi að skipin geti
losað hér áburð og þungavöru,
sem bið hefur orðið á að kæmizt
Framhald á 14. síðu.